Morgunblaðið - 16.01.1918, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.01.1918, Blaðsíða 1
Miðvikud, 16. jan. 1918 H0R6DNBLABID 5. árgangr 73. tðlublað Ritstjórnarsimi nr. 500 Ritstjón: Vilhjálmur Finsen ísafoldarprentsmiðja Afgreiðsiusfmi nr. 500 Gamla Bio Þorseir í Vík Sökum þess hve margir hafa óskað að mynd þessi yrði sýnd aftur, verður hún sýnd í kvöld í 18. sinn. Verzlunin „Gullfoss er flutt í Hafnarstræti 15. <6 \> Tlýja Bíó <■ John Storm, Myndin sýnd öll i kvöld kl. 9. Þeir leggja nú aðaláherzluna á það, að fylla skörðin, sem kafbátamir þýzku höggva i flutningaskipin, og menn eru farnir að trúa því, að þeim muni takast það. ætlað að hræða Breta, en á. eftir þessum koma margar flugvélar í einu og varpa þar niður ikveikju-sprengj- um á víð og dreif. Þessi aðferð gekk mæta vel i i fyrstu. En Bretar gerðu þegar ráðstafanir til þess að hindra árás- irnar og má svo segja að árangur sé sama sem enginn af flugárásun- um. Að bfjólast í gegn. Þegar Miðríkin brutust í gegn um ?herlinu ítala hjá Isonzo, var mikið skrafað um það i Frakklandi meðal þeirra er hernaðarfróðir eru, hver hernaðaraðferð mundi heppilegust. Um nokkurn tima hafa menn haldið að eina rétta hernaðaraðferð- in væri sú, sem kend er við Petain, að leggja undir sig smáspildur í einu, eftir að grimmileg stórskota- hrið hetir ónýtt fremstu skotgraf- irnar og gaddavirsgirðingarnar. En nú segja margir franskir hermála- fræðingar að sókn Miðrikjanna gegn ítölum sýni það bezt, að það sé ekkert nema* imyndun ein, að eigi sé hægt að rjúfa herlinurnar, og krefj- ast þess að bandamcnn geri tilraun- ir i þá átt á vesturvigstöðvunum, ef/ striðinu eigi nokkurn tíma að lykta. Gustave Hervé ritar um þetta efni: — Bezta hernaðaraðferðin verður sú, að ráðast að óvörum á herlinu óvinanna, annaðhvort þar sem hún er veikust fyrir og lélegastar her- sveitir fyrir til varnar, eða þá þar sem óvinirnir búast alls eigi við sókn. Og þegar ein eða tvær her- deildir óvinanna hafa þannig verið ^öiaðar og alt kemst í uppnám, þá ^ að senda fram sóknarlið og láta Það rjúfa herlínuna. Þessi aðferð hepnast eigi ætíð. Hún mishepnaðist fyrir Þjóðverjum hjá Verdun hinn 26. febrúar 1916 fyrir bandamönnum hjá Somme 5- júlí sama árið. En stundum hepn- ast hún lika. Þannig hefir hún alt- nepnast Mackensen í viðureign hans við Rússa, Serba og Rúmena. Og nú hefir hún hepnast Þjóðverj- um í viðureigninni við ítali. Fyrsta skilyrðið til þess að hún hepnist er það, að hún sé reynd. Ef við freistum þess eigi, munum við eiga það á hættu að Þjóðverjar beiti henni þegar okkur varir sízt og — takist betur heldur en hjá Verdun hinn,26. febrúar 1916. Skipasmíði Bandarikjamanna, Því var tekið fremur fálega í Norð- urálfunni, þegar tilkynningin kom um það, að nú ætluðu Bandaríkja- menn að ráða bót á siglingavand- ræðunum og skipaeklunni, með þvi að smiða að minsta kosti eins mörg skip og þýzku kafbátarnir söktu. Mönnum þótti það næsta ótrúlegt og það hafa svo mörg »stór orð« komið vestan um haf, að menn voru hættir að leggja trúnað á að mikið yrði úr framkvæmdum. En þeim hinum sömu hefir skjöpl- ast. Skipasmiði i Bandarikjunum hefir miðað svo mjög áfram, að furðulegt er. Ein einasta skipamiða- stöð þar i landi hefir á tveim árum smiðað 500 kafbátaspilla fyrir Breta. Sama skipasmíðastöð hefir nú tekið að sér að smiða 200 flutningaskip, 5000 smálestir að stærð hvert, fyrir Amerikustjórnina. Félagið hefir skuldbundið sig til að fullsmiða 25 skip á mánuði hverjum, svo að inn- an 20 mánaða hafa bandamönnum bæzt 200 ný skip frá þessari einu skipasmiðastöð. Auk þessa eru ósköpin öll af skipum i smiðum i Bandarikjunum. Loftárásirnar. Ný bardagaaðferð. Það er kunnugra en frá þurfi að segja, að árangur — að minsta kosti frá hernaðarlegu sjónarmiði — af loftárásum Þjóðverja á brezkar borg- ir, hefir sama sem enginn verið. Það er likt ástatt með loftárásirnar eins og kafbátahernaðinn. Þjóðverj- ar mega aldrei búast við þvi, að geta unnið sigur með honum. En um hvorttveggja er svo varið, að bardagaaðferðirnar eru þess eðlis, að þær hljóta að gera Þjóðverjum miklu fremur bölvun en hitt. »Moralskur« ósigur þeirra er vis. Þjóðverjar tefldu fyrst fram hin- um stóru Zeppelins-loftförum sín- um, létu þau svífa yfir Bretlandi og varpa niður sprengikúlum á við og dreif um landið. Loftför þessi höfðu þann stóra kost, að þau gátu flutt með sér að heiman mikl- ar birgðir af sprengiefni, en þau höfðu þann stóra ókost, að það var hægra fyrir Breta að hæfa þau og granda þeim, en flugvélum, sem eru miklu minni. Svo fór, að Þjóðverjar mistu fjölda Zeppelins-'oftfara, svo mörg að þeir sáu vænst, að hætta að tefla þeim fram. Síðan hafa þeir eingöngu notað flugvélar til árásanna, en árangurinn hefir ekki verið betri né meiri. í hverri árás ueyða Bretar nokkrar óvinaflugvélar til þess að lenda, og fjöldi er skotinn niður. Hingað til hafa Þjóðverjar nær eingöngu notað sprengjur, en upp á siðkastið eru þeir farnir að nota ikveikju-sprengj- ur. Haga þeir árásinni svo, að fjrst láta þeir nokkrar flugvélar freista þess að komast til London. Er þeim Hindenburg og Ludendorff. Fréttaritari »Neue freie Presse* átti tal við þá Hindenburg og Luden- dorff um það leyti er vopnahlé var samið við Rússa. Meðal annars sagði Ludendorff þá og lagði áherzlu á hvert orð: — Ófriðnum lýkur eigi þannig að jafntefli verði. Miðrikin munu sigra. Enn þá eru framkvæmdir meira virði heldur en stór orð. Vér getum alt af samið vopnahlé við Rússa, þegar vér höfum fengið tryggingu fyr þvi hver afstaða þeirra er. En alþjóða vopnahlé verður erfiðara við- fangs. Þriggja mánaða vopnahlé er of langt. Það verður að taka ákvarð- anir á skemri tíma, ef hernaðaraf- staðan á eigi að breytast til hins verra. Blaðamaðurinn spurði hvernig Þjóð- verjar hefðu hugsað sér að semja frið við Frakka. — Ef til vill tekst oss það enn að vinna á þeim fullnaðarsigur, mælti Ludendorff. Gm hjálpina frá Ameriku mælti Hindenburg: — Sá »reklame«, sem Bandaríkja- ríkin viðhafa, þá er þau skýra frá herviðbúnaði sínum, er stórfenglegur og samboðinn ættjörð Barnums. En við skulum nú sjá hvort framkvæmd- irnar verða jafn stórfenglegar. Ludendorff sagði svo um hernað- inn gegn ítölum: — Hersveitir vorar í Italíu þurfa eigi á neinum aðdráttum að halda. Hinar miklu birgðir sem ítalir skildu J^Pirðu góðan hlut, mundu hvar þú fekst hann. urjón Pjetursson Síml 137. Hafnaretræti 18

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.