Morgunblaðið - 06.03.1918, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.03.1918, Blaðsíða 1
Miðv.dag 6 marz 1918 90R60NBLASID 5 f rorangr 122. tniubiað Ritstjórnarsirni nr. 500 Ritstjóri: Vilhjál mur Finsen ísafoid irpr nitsmíðja Afpreiðslusimi nr s o3 BIO Reykjavíkur I nin Biograph-Theater | D í U Kvenna- ræninginn. Óvenju fallegur og hrifandi sjónl. í 5 þíttum, um ást og æfintýri ungrar stúlku í Parísar- borg. — Myndin er tekin ýmist í Sevilla og Parísarborg, í afar- fallegu landslagi,og efnið skemti- legt og afarspennandi. Tölusett sæti kosta 85 og 60 au. Barnasæti 25 au. Er(. símfregnir Opinber tilkynning frá brezku utan- rikisstjórninni í London. London, ódagsett. Hernaðarskýrsla um vikuna sem endaði 28. febrúar: Á vesturvígstöðvunum var óvenju lega lítið um að vera, jafn vel um þetta leyti árs. Færri útrásir voru gerðar af beggja hálfu og slæmt veð- ur hamlaði hernaðarframkvæmdum í loftinu. Smámsaman hafa verið að aukast ^staðbundnar smáskærur, fjöldi flug- árása verið gerðar og margar orust- ur háðar í loftinu. En ekkert bendir þó til þess að sókn sé f nánd. Banda- menn hafa viðbúnað til þess að taka á móti hveiju því sem að höndum ber, en andinn í Þjóðverjum er nú breyttur og búast þeir jafn vel við sókn af bandamanna hálfu. Báðir eru þannig augsýnilega við öllu búnir, en það er einnig ljóst, að herstjórn Þjóðverja býst við því að bandamenn leyni fyrirætlunum sinum og að hún getur alls eigi komist að því hverjar þær eru. Loftorustur voru að eins háðar í tvo daga í þessari viku og þess vegna skutu Bretar eigi niður nema 22 úvinaflugvélar, auk þriggja sem féllu stjórnlausar til jarðar. Brezkir flug- tnenn skutu á Treves hinn 26. febr. Þátttaka Bandarikjanna i ófriðnum er alt af að aukast. Var gerð gas- &ás á stöðvar Bandaríkjamanna norð- Vestur af Toul, en þeir hafa látlaust haldið uppi stórskotahríð gegn Þjóð- Verjum og ný herdeild frá Banda- tikjunum gerði sigursælt áhlaup hjá ^oissons hinn 23. febrúar. A vígstöðvum Itala hefir alt verið tticð kyrrum kjörum, nema hvað Knín novt rv-1 «1 rnr<i r xrfir ^fetar hafa gert margar árásir yfir Ptave. í verksmiðju Eyv. Arnasonar Laufásvegl 2 fást mjög vandaðar Líkkistu.r og alt sem greftrun tilheyrir. Það tilkynnist að jarðaiför drengs- ins okkar, Einars Vilhelms, se n andaðist 25 febr., er ákveðin fimtu- daginn 7. marz, og hefst kl. 11 með húskveðju á hetmili okkar, Skóla- vörðustig 26. Guðr. Einarsd. Kristján Jónsson. Þangað til stórorustur hefjast aft- ur á vesturvígstöðvunum, er það merkilegast sem gerist að austan- verðu. Horfir þar nú svo alvarlega, vegna framkomu hinna ósáttfúsu landvinningamanna í Þýzkalalandi, að viðbúið er að Japan verði að skerast í leikinn. Þjóðverjar neita þvi að halda kyrru fyrir meðan ver- ið sé að semja frið, en halda áfram sókn i þeim tilgangi, að standa þannig að vigi, ef friður verður saminn, að þeir geti þröngvað Maximalistum og heimtað það, að þeir yfirgefi Ukraine. Rússum eru settir hinir hörðustu friðarkostir og er eigi liklegt að það verði til góðrar vináttu i framtíðinni og verða Þjóð- verjar því að hafa fjölda manns á verði til þess að gæta reglu i landi sem er 400.000 fermilur. Maxima- listastjórn hefir gefið út áskorcn til allra borgara um það að gripa til vopna og verjast innrás Þjóðverja, en hermennirnir eru afvopnaðir og\ sýnir það skort á skörungsskap og góðu fyrirkomulagi. Ef Rússar eru ákveðnir í því að verjast Þjóðverjum með oddi og egg, gætu þeir hæglega veitt mikl- um þýzkum her viðnám, en fyrst þeir biðja Þjóðverja friðar, um leið og þeir segjast ætla að berjast til þrautar, þá ei það augljóst, að Þjóð- verjar muni eigi þurfa að ýta mjög fast undir þá til þess að þeir hætti öllu viðnámi og hefji aftur borgara- styrjöld. Þegar Jericho féll hinn 21. febrú- ar náðu Bretar þýðingarmiklum vegamótum, hröktu Tyrki frá öllum stöðvum fyrir vestan Dauðahaf, náðu höndum saman við Araba suðaustur af Dauðahafi, komu í veg fyrir það, að Tyrkir hefðu nokkurn hag af þvi að hefja sókn í vinstra herarmi frá Amman og austur að Jordan, og náðu ágætri aðstöðu i hægra herarmi. Getur Allenby nú valið um leiðir til framsóknar. I héraði þvi, sem Bretar hafa nú tek Jlijja Bio John Storm MyndSn verður sýnd aftur i kvöld. Verzlunin ,GULLFOSSk er flntt í Hafnarstræti Í5 Munið að skósmíðavinnustofan hans Ferdinands R. Einks- sonar, er á Hverfisgótu 43. Vélstjórafélag Íslands heldur fund í Goodtemplarahúsinu, niðri, þann 6. kl. 7 síðdegis. Skorað á félagsmenn að fjölmenna. ' S t j ó r n i n. ið, er mjög frjósamt land umhverfis' Jericho og þar var talsvert fyrir af matvælabirgðum. Aðaláranguiinn af þessari framsókn, i sambandi við aðra minni framsókn sem gerð var 23. febrúar, er sá, að Bretar hafa nú gert herlínu sina beina með því að ná brú yfir Jordan hjá Elgho- ratsie og er nú afnuminn þrihyrn- ingurinn suðaustur af Jerusalem. Framsókn Tyrkja frá Khanabubayet suður að Hit hjá Efrat, er sennilega ekkert annað en tilraun að halda vegamótum »karavan«-leiðanna frá Aleppo til Damaskus og Bagdad, en þær mætast sunnan við Hit. Verð- ur það augsýnilega til þess að treysta varnarstöðvar þeirra. En tyrkneska varaliðið er nú eigi svo mikið að það geti stöðvað framsókn Breta í Gyðingalandi, og þaðan af siður að hægt sé að senda liðsauka til Meso- potamia. Vegna fráfalls Rússa er hægri herarmur Breta þar ber fyrir árás, er Tyrkir munu ef til vill geta gert, með því að safna saman liði af ýmsum þjóðflokkum, en það er engin ástæða til þess að ætla að þeir geti undirbúið stóra sókn. Kák- asus-her Tyrkja fór svo margar og miklar hrakfarir fyrir Rússum, að hann hefir aldrei náð sér siðan í októbermánuði 1915. Sókn af Tyrkja hálfu er því algerlega undir þvi komin að Þjóðverjar geti eða vilji senda þeim herlið og hergögn. En Tyrkir kvarta um það að Þjóð- verjar vilji hvorugt gera. Erl. símfregnir Fri fréttaritara Morgunbl. Khöfn. 2. marz. Hvita hersveitin sækir fram í FinnlandLog veita Þjóðverjar henni lið. Kínverjar eru að búa sig undir að taka þátt í ófriðnum. Þjóðverjar sækja nú ákafar á á vesturvigstöðvunum en áður og verða áhlaup þeirra þar tiðari og grimmari með degi hverjum. Þjóðverjar hafa lagt undir sig Alandseyjar og hefir það vakið gremju mikla í Svíþjóð. Ukrainemenn hafa náð Kiev á sitt vald. Khöfn, 3. marz. Ferdinand Rúmenakonungur hefir neitað að ganga að friðarskilmálum Þjóðverja, sem birtir hafa verið í Brest Litovsk og er búist við því að ófriður hefjist aftur milli Rúmena og Miðveldanna. Þjóðverjar hafa gert æðisgengin áhlaup á vesturvígstöðvunum á mörg- um stöðum, en árangurslaus. ^upirðu góðan hlut nrtundu hvar þíi fekst hann. Smurningsolia: Cylínder- & Lager- og 0xulfeiti eru áreiðanlega ódýrastar og|beztar hjá Sigurjónl Hafnarstræti 18 Simi 137.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.