Morgunblaðið - 13.03.1918, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
3
Kartðflur
Nokkrir pokar eftir!
Verið nú fljótirl
Verzl. VISIR
Sítiii 555.
Jón frá Vaðnesi
hefir fengið — með »Geyair« —
góðar Jiaríöflur
Stýrimaður.
Ungur maður með stýrimanns-
réttindum, hefir verið -8 ár í sigling-
um utan- og innan-lands (verið 30
—40 sinnum á öllum höfnum lands-
ins), óskar eftir starfa nú þegar. —
Ritstjóri vísar á.
Fataefni
tekin til sauma. Föt afgreidd á 1
til 2 dögum, hjá
Reinh. Andersson.
Kanpið innlend
höfuóföt.
Beztu höfuðföt bæjarins úr ágætu
efni og með vatnsheld skygni, fást
að eins hjá
Heinh. Anderson
Laugavegi 2.
(Húfur og »kaskeit« saumuð eftir
pöntun).
Styðjið innl. iðnað.
Síðustu símfregnir
K.höfn 12. marz.
Þjóðverjar eiga aðeins eftir 60
Mlómetra til Odessa.
Hermálaráðherra Bandaríkjanna er
^Ominn til vesturvigstöðvanna.
Times telur nauðsynlegt að Bret-
,r láti Spitzbergenmálið til sín taka.
Loftárás hefir verið gerð á Neapel
Vegna sambands Finna við Þjóð-
^rja, hafa dönsku nefndar meðlim-
ltllir rauða-krossins, sem í Finnlandi
starfað, sagt sig úr nefndinni.
. 11 þeir voru professorarnir Tschern-
og Ehlers.
N ýi dansskólinn
Æfing í svöld kl. 9 í Bárubúð.
Laxveiiiréttur
i Elliðaánum fæst leigður mánuðina jímí, júlí og ágúst.
Tilboð |sendist á skrifstofu borgarstjóra fyrir ’i8. þ. m. og eru
leiguskilmálar til sýnis þar.
Borgarstjórinn í Reykjavik, 12. marz 1918.
cJS. Sjímsen.
Vélstjórafélag Islands
Fundur í dag kl. 4 í Goodtemplarahúsinu uppi.
E.s. ,Kjöbenhavn‘.
Viðtal við skipstjórann.
Björgunarskipið Geir lá mestan
hluta dagsins í gær við hlið skips-
ins »Kjöbenhavn« vestur á Eiðsvík
og lét »dæluna ganga«. Um kl. 5
hvesti og yigja varð töluverð við
skipið, svo Geir flutti sig frá skip-
inu, enda hafði þá verið komið fyr-
ir á þilfari flutningaskipsins tveim
aflmiklum dælum frá Geir, svo skip-
inu var óhætt. Dældu þær skipið í
sífellu, enda mun ekki hafa veitt af,
þvl mikill sjór virðist vera í skipinu.
Kafarinn af Geir var nokkrum sinn-
um niðri til þess að reyna að þétta
götin, en súgur var svo mikill við
skipshliðina, að hann hélst þar ekki
við.
í gærdag komumst vér á vélbáti
háfnarinnar, sem í förum hefir ver-
ið milli skipsins og lands i ýmsum
erindum og náðum tali af skipstjór-
anum, og ýmsum öðrum skipverj-
um.
Skipstjórinn heitir Svarrer og er
á að gizka feitugur, afskaplega
feitur og »skipstjóralegur«, veður-
barinn og lætur sér víst ekki alt fyrir
brjósti brenna. Hann hefir verið á
skipinu síðasta árið og siglt því
margar ferðir milli Ameríku og Eng-
lands. Þegar vér komum i klefa
hans var hann önnum kafinn að
skrifa Jsimskeyti til útlanda og rit-
aði þau með einum fingri á heljar-
stóra ritvél, sem skipstjórinn síðar
lét í ljósi að væri föl fyrir sann-
gjarnt verð! Eftir nokkra bið tókst
að fá skipstjóra til þess að segja
frá :
Við hreptum afskapaveður í hafi
og mistum biða björgunarbátana.
-Akváðum því að halda til Rvíkur til
þess að kaupa báta áður en við fær-
um inn á hafnbannssvæðið. Skip-
inu var ekki ætlað að koma hingað
og flytur því eigi nema lítið sjókort
af þessum hluta hnattarins. Þegar
við komum að Gróttu, gáfum við
hafnsögumerki, og þar sem við ekk-
ert svar fengum annað, en að merkja-
stöðin hefði skilið merki vort, héld-
um við áfram. Ennfiemur sáum við
fram undan okkur seglskip, sem lá
fyrir festum, en það hefir nú komið
í ljós, að það skip lá rétt hjá boð-
anum, sem »Kjöbenhavn« ágldi á
fullum hraða. Hefði skipið ekki
verið þarna og hefði hafnsögumaður
gefið merki um, að hann kæmi út,
þá hefði eg undir eins stöðvað
skipið.
Skipstjóri kvað skipið mjög lekt,'
10 feta sjór í lestinni, og taldi vist,
að það væri mjög laskað. Dælur
Geirs hefðu þó við, en vafalaust yrði
þó að afferma vörurnar til þess að
skipið yrði sjófært eftir viðgerðina
hér.
Skipið var keypt frá Grikklandi
af dönsku félagi árið 1915, en það
félag seldi það aftur öðru félagi í
Khöfn »Dampskibsselskabet Primula«
sem J^ck Steenberg & Co. stjórna.
Það er rúmlega 3S00 smálestir að
stærð og skipverjar 23 talsins, flest-
ir danskir, en nokkiir grizkir og
spænskir. 11 fyrrasumar lá skipið
lengi í Halifax og fékk hvergi að
fara, en síðan hefir það verið i stöð-
ugum flutningum yfir Allandshaf.
— Skipstjórisettistnú aftur við stóru
ritvélina, önnum kafinn eins og fyr.
Hverju strandi fylgja annir þess, sem
stjórnina hefir. En þegar vér kom-
um upp á þilfar, stóðn skipverjar
þar í hnapp og horfðu út yfir boð-
ana hjá Gróttu, sem eigi. höfðu haft
tima til þess að flytja sig, áður en
Svarrer skipstjóri kom á vettvang.
ff
DAGBOK
Hjálparstarfsemi Bandalags
k v e n n a. Viðtalstíml miðvikud. og
föstud. kl. 2—4 á lesstofu kvenna,
Aðalstræti 8.
Gangverð erlendrar myntar.
Bankar Doll. U.S.A. & Canada 3,50 PósthAs 3,60
Franki franskur 62,00 60,00
Sænsk króna ... 109,00 110,00
Norsk króna ... 104,00 106,50
Sterlingspund ... 16,00 16,00
Mark .. 68 00 • ••
Holl. Florin ... • • • ... 1.37
Austurr. króna.. • • • •• • — —
Samverjinn. A. S. færði osa 10
kr. í gær handa Samverjanum.
i>Portland«, þilskip bræðranna Proppó
kom hingað í gærmorgun með gærur
frá Vestfjörðum.
Kartöfiur, miklar birgðir, komu
hingað með »Geysi« frá Danmörku.
Er sannarlega gott að fá þær, því að
margir bæjarmanna voru kartöflulaus-
ir, þar eð þeirra birgðir skemdust í
frostunum. Verð hvers poka er um
22—23 kr. að sögn.
»Sterling«. Það mun vera áreiðan-
legt, að »Sterling« só farið frá Khöfn
áleiðis hingað, líklega síðastliðinn sunnu-
dag.
»Borg«. Eigi vita menn hór til.
þess að Borg só enn farin frá Bret-
landi áleiðis hingað. Mun eitthvað
hafa tafið skipið, þvf það hafðl frózt,
að það væri ferðbúið fyrir nokkru.
Jarðarför Hjartar sáluga Hjartar-
sou fer fram í dag.
Frænkn Charley’s, ætlar lékfélag-
ið nú að fara að sýna. Hefir það
oft verið' sýnt áður hér í bæ og þótt
ágæt skemtun. Jens B. Waage kvað
leika aðalhlutverkið.
Strandaða skipið. Geir lá við
hlið þess í víkinni hjá Eiðsgranda í
allan gærdag og dældi úr því sjón-
um. Að sögn er skipið töluvert
brotið. Verður það affermt hér lík-
lega í Viðey og þangað ætlar Geir
að flytja það.
Leiðrétting.
Misprentast hefir í grein Krumma,
þeirri er út kom i Mbl. 6. marz:
Úlfarfðllshólar fyrir Úlfarfellsfjalls,
og þessi klausa: Máske að Valur
vilji teygja Ellieavatnið austur að
Heklu, fyrir: Máske að Valur vilji
teygja Elliðanafnið austur að Heklu.
í fyrirsögninni hefir fallið úr stafur-
inn »i«, átti að vera: skammi.
Tapast hefir sjúkrasamlagsbók
frá húsi K. Konráðssonar læknis
niður í Apótek. Skilist gegn fund-
arlaunum á Laugaveg 20 B.