14. april. 158 tbl. MORGUNBLAÐIÐ Ríkjastríð Þjóðfélagsslrið. (Grein þessa ritaði Georg Brandes »Politiken« hinn I3.febrúar.) Frá Stokkhólmi fekk eg eftiifar- andi simskeyti i gær (ritað á ensku): »Eg er nýkominn frá Ameríku og er á leið til Rússlands fyrir »New York Herald* til þess að sjá með eigin augum hvað þar er að gerast. Eg kom til Rússlands þegar Kerensky var forsætisráðherra í júlí og ágúst í fyrra. Þér munið sennilega eftir því að eg heimsótti yður á öndverðu árinu 1916 og að fundum okkar bar saman í New York. Mundi þykja mikillega vænt um að fá sím-svar — sem er borgað — um álit yðar á ástandinu í Rússlandi, Bolchewikka og friðarsamningana í Brest Litovsk. Hvernig lizt yður á friðarskilmála Wilsons forseta, eins og þeir koma íram í síðustu ræðu hans ? Hjartans kveðjur og beztu óskir. Svar ósk- ast sent til ameriksku sendiherra- sveitarinnar í Stokkhólmi«. Eg sendi (á sama máli) svar, sem tnig langar til þess að birta á dönsku, því að eg efast um það að »New York Herald« birti það eða þori að birta það: Hið eina, sem bolchewisminn hefir sér til ágætis, er friðarþráin. Samt .sem áður hefir hann komið á stað borgarastyrjöld. Eg aðhyllist eigi neina aðra rótnemastefnu en hina »aristokratisko« og trúi alls eigi fremur á hið lofsungna lýðvald held- ur en á auðvald. Eg dáist eigi að glaumyrðum. Og pess vegna er eg ekki hrifinn af boðskap forseta yðar. Mannkynið þaif að fá frið og það getur eigi biðið eftir honum þangað til nokkr- um miljónum manna hefir verið slátr- að i viðbót. Ef þjóðirnar fá ekki Irið núna, þá mun það rætast sem eg spáði sumarið 1916. Öreigalýð' urinn mun tryllast svo, að þjóðfé- lagsbylting, sem eigi komst að með- an mannkynið hafði snefil af viti, mun þá brjótast út með sama grimdar- «ði og ófriðurinn nu. Og hún hefir þegar brotist út í Rússlandi og Finn- landi. í öðrum löndum mun hún einnig verða eftirfari ófriðarins og afmá alveg þá litlu andansmenningu, er ófriðurinn kann að hafa skilið eftir. En réttlætið þá, sem a að koma fram í sambúð þjóðanna? Hver get- nr úr þvi skorið hvert það réttlæti er? Hefir nokkur maður séð frti Justitia? Hið eina sem við vitum Qm hana er það, að hún er með bundið fyrir augnn og i höndunum faeldur hún vog og sverði. Hún er i raun og veru skolli, sem reynir að ná hinnm og þessum og tomast að því hver hann er, en það lendir oftast í misgripum fyrir henni, «tíð vegur hún rangt og fyrir sverði Trá Jerúsaíetti. »Sorgarvegnrinn«, eða þrepgatan, sem Múhamedsmenn nefna hana, er einhver elsta gata í heimi. Um hana fóru hermennirnir með }esú Krist á leiðinni til Golgata. — Hér á þessum stað mælti Kiistur til Jerúsalems-dætra og bað þær að gráta eigi yfir sér. hennar verða venjulega þeir, sem ekki eiga það skilið. Við ættum þvi eigi að láta friðinn biða eftir henni*. Það sem eg átti við með þessu var meðal annars þetta: Til hvers er það að krefjast skynsamlegs friðar, og léttláts friðar? Friðarskilyrðin eru hlutkend og skapist eftir þvi hver aflsmunur er þá í svipinn, eða þá af löngun málsaðilja eftir því að hætta að fjandskapast, en þau eiga ekkert skylt við óhlutkendar hug- myndir eins og mannvit og réttlæti: Þessi orð eru líka þegar orðin alt of óákveðin til þess að hægt sé að viðhafa þau innan þjóðfélags, þegar um það er að ræða, að ákveða ein- hverja tölu. Það er eigi hægt að nefna prigfja ára betrunarhúsvist viturlega og réttmæta hegningu fyrir einhverja sérstaka yfirsjón, því að hvorki mannvit né réttlæti getur fært sönnur á það, að hegningin hefði ekki getað verið tve^ja ára betrunarhúsvist. Þannig er það heldur eigi hægt að láta réttlætið skera iir deilumál- um þjóðanna, r. d. í deilunni um Elsass-Lothringen. Þýzkaland vill halda þessum iandshlutum, sem einu sinni voru alþýzkir og lutu Þýzkalandi. Frakkar krefjast þess að fá þá aftur vegna þess að þeir lutu Frakklandi í 200 ár og voru mótfallnir því að komast undir Þjóðverja. A þessum 47 árum, sem nii eru liðin síðan, hafa Frakkar fluzt þaðan, en Þjóðverjar fluzt þang- að, og með breyttum kjörum og skoðunum hefir meginþorri íbúanna orðið þýzkur og þýzkhuga. Hvað segir nú hið óhlutkenda réttlæti? Styður það kröfu Frakka um það að fá löndi aftur? Eða styður það málstað Þjóðverjs, sem segja að ibú- arnir séu ánægðir með hlutskiftj sitt? Og ef þjóðararkvæði á fram að fara, hvað segir þá réttlætið um það, hverjir eigi að hafa atkvæðis- rétt? Eru það þeir, sem fluzt hafa úr landinu o<> afkorceitdur þeirra? Eða eru það þeir ibiiar, sem nú eru þar? Við CffUBD undir f raldri að búa, sarrktpiiisfmldri, þar sem ríkin huð- stríkja sjálf sig um leið og þau hiið- strikja aðra. Og svo fylgir þessu nytt faraldur, eins og þá er Svarti- dauði barst frá Asíu til Evrópu 1348 og gaf sjálfspyndingunum ný- an vind i seglin. Það er þjóðfélags- byltingin, cem hefir borist frá Rúss- landi til Finnlands og ætlar að drepa þar niður alla norræna menningu og siðan að breiðast út til hinna Norðurlanda og sennilega einnig til Italíu og hinna annara útsognu ófriðarlanda. Ef Norðurlönd væru eigi svo orkulaus, sem þau eru, og neydd til þess að vera algerlega hlutlaus, þá lægi þeim ekkert annað nær, en senda her til Finnlands til þess að vernda dýrmæt mannslíf og dyr- mæta, sameiginlega norræna menn- ingu fyrir hinum blóðþyrsta óaldar- lýð, sem hefir tekið Helsingfors og drotnar með voðavaldi yfir suður- hluta landsins. Meðal ástæða þeirra, sem mæla í móti þessu, er sú helzt, að siðan stríðið hófst, hefir alþýðan, bæði á Norðurlöndum og víðar, dregist svo langt aftur úr, að jafnvægið er mist, og hún telur sig sennilega fremur til »hinna rauðu« í Finnlandi heldur en »hinna hvitu«. Mundi hún því hefjast handa gegn því að herliðs- hjálp væri Finnum veitt, og telja það tilraun af hálfu borgarastéttar- innar til þess að kúga verkamanna- stéttina. Það er i hverju landi ein- hver hávaðaflokkur, sem ekki vill kannast við það, að rángjarnir og blóðþyrstir þorparar hafi eigi rétt til þess að kallast fulltrúar verkamanpa né njóta samiiðar þeirra. Hið mikla regindjúp, sem staðfest er milli ófriðarþjóðanna, er engu minna en það djúp, sem nú er stað- fest milli öreiga og annara i Rúss- landi og Finnlandi. Það hefir opn- ast hyldýpi milli þeirra, sem vinna með höfðinu, og hinna,sem vinna með höndunum (og nota nú hendurnar til rána og morða). Og það virðist ef til vill enn hættulegra, heldur en það djúp, sem staðfest er milli Þjóðverfa og Frakka og Þjóðverja og Breta. Ófriðinn milli rikjanna er þó hægt að útkljá — þótt enn virðist þess langt að biða — með undirskrift að samning. Stéttastyrj- öldin er nærri þvi enn þá veiri, grimmari og lymskufyllri, og auk þess nær hún yfir stærra landflæmi, og verður því enn þrálátari. Það verð- ur tæplega hægt að kveða hana niður, nema með svo gagngerði umbreytingu á öllu skipulagi, að það mundi kynslóðum saman ræna lifið og framþróunina fegurð sinni og ljóma. Þegar þjóðernishatrið þvarr i Rúss- landi og Finnlandi, blossaði stétta- hatrið upp af enn meiri ákafa. Þeg- ar Rússland var frelsað undan keis- aravaldinu og Finnland undan er- lendri kiigun, greip öreigalýðurinn i báðum löndum böðulsöxina i sin- ar hendur. A dögum keisaraveldis- ins voru öll fangelsi i Rússlandi full. Nú eru þau miklu meira en full. í Finnlandi gat hver maður