Morgunblaðið - 14.04.1918, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 14.04.1918, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ þó áður verið öruggur um sig á strætum og gatnamótum. Morð og rán þekktust þar eigi öðruvísi en sem glæpir, drýgðir einstaka sinn- um. Nú er það daglegt brauð. I staðinn fyrir þjóðastríð er nú komið þjóðfélagsstríð í Austur-Ev- rópu, og þótt heilbrigð skynsemi sé því miður eigi smitandi, þá er heimsk- an það. Sjávar-grænmeti. Það er leitt hvað Island getur framleitt lítið af grænmeti þótt alúð sé lögð við að rækta það i görðum, en leiðara er þó hitt, að menn skuli alveg ganga fram hjá því grænmeti er vex hér óræktað bæði vetur og sumar. Það er grænmetið í fjörun- um, söl, markjarni og annar fjöru- gróður. I io. tbl. »íslendings« ritar Stein- grímur læknir Matthíasson um mjöl- drýgindi í hallæri og birtir þar kafla úr bréfi frá bónda nokkrum i Norður- Múlasýslu. Og vegna þess að það verður aldrei of rækilega brýnt fyr- ir mönnum að nota fjörugrösin, þá leyfum vér oss hérmeð að birta þennan bréfkafla. » . . . Siðastliðið ár hefi eg oftar en einu sinni séð i blöðunum, að hugsandi menn hafa ráðlagt sjávar- fólki, að nota söl og marjukjarna (markjarna vil eg kalla) til manneldis, en þeir hafa eigi minst á, hvernig ætti að brúka þessar jurtir, nýjar eða þurrar eða útbleyttar, líkt og fjalla- grös, að því siður hvaða gildi þær hefðu. Nú í janúarmánuði, þegar altfylt- ist af hafís, en nóg var i fjörunni af fjörugrösum, datt mér í hug að menn mættu varla við því, að ganga á matnum, svo að eg tók mig til og náði i nokkuð af markjarna og fekk konu minni til að matbúa. Að vísu þekti eg enga aðferð við það, en eg þvoði kjarnann og saxaði hann siðan eins og fjallagrös. Þvinæst lét eg í pottinn einn þriðjung af þessu, móti tveim þriðjungum af haframjöli. En kveið nú fyrir, að alt yrði ónýtt vegna óiundarbragðs, eða einhverra mistaka, því grautur- inn varð fyrst laufgrænn, en síðan döknaði hann og varð brúnleitur. En niðurstaðan varð sú, að af honum fanst ekkert óvanalegt bragð, en tölu- vert meiri suðu þurfti þessi grautur en venjulegur hafragrautur. Eg fullyrði að grautur, svona til- búinn, er ágætur matur, að minsta kosti með mjólk, og jafnvel hvern- ig sem maður vill neyta hans. Þetta ern þau mjöldrýgindi, sem vert væri að ræða um af þeim, sem færir væru að tala um slíka hluti. Mikill kostur er við að afla sér kjarnans fram yfir fjallagrös, að hann er auð- jenginn, jafnt vetur og sumar . . . Sérfriður Russa og Miðrikjanna. Hinn 3. marz voru séifriðarsamn- ingar Rússa og Miðríkjanna undir- skrifaðir. Neyddust Rússar til þess að undirskrifa samningana, þótt þeir hefðu eigi ætlað sér það (sbr. um- mæli Trotzkys að ófriðnutn væri lokið, en friður eigi saminn fyr en síðar). Hinn 20. febrúar hafði Maxi- malistastjórnin haldið næturfund í Petrograd og flestir ráðherranna, eða þjóðfulltrúanna, sem þeir nefnast, höfðu fallist á það að halda uppi ófriði við Þýzkaland og verja Petro- grad. En Tcheremissov hershöfðingt, sem hafði verið kvaddur þangað til þess að gefa upplýsingar um her- málin, hélt þá tveggja klukkjstcnd.a Len'n fyiirleslur og sýndi fram á það, að Rússar gætu eigi varist lengur með vopnum, vegna þess að allur agi væri úr hernum. Það var engin minsta von til þess að hermennirn- ir vildu hlýða Krylenko fyrst þeir vildu ekki hlýða Kerensky. Fekk Tcheremissov sýnt fulltrúunm fram á það, að það mundi þýðingarlaust að reyna að mynda nýjar »rauðar hersveitirs og þess vegna var það samþykt um morguninn að vinna þegaf að því að fá fiið við Þjóðverja. Þeir Lenin og Trotzky voru eigi sammála. Lenin hafði altaf haldið því fram, að friðarsamningar yrðu að gerast í Brest Litovsk; með því áleit hann að Rússar mundu fá bjargað eins miklu og unt væri að bjarga og þá mundu aðrar þjóðir fara að dæmi Rússa. En Trotzky hélt því fram að stjórnbyltingar i Vesturlöndunum stæðu rétt fyrir dyrum. Meðan þeir deildu um þetta, héldu Þjóðverjar stöðugt áfram með her sinn inn í Rússland. Lenin og Trotzky urðu ásáttir um það að verja Petrograd. En þá sendu Þjóð- verjar Rússum ályktarorð og þegar stjórnin í Petrograd fór að íhuga hverju hún skyldi svara, dró Trotzky sig i hlé. Margir hugðu að hann gerði það til þess að láta óánægjuna með samverkamenn sina magnast, til þess svo að gr pa í taumana þegar tími væri til kominn að velta Lenin úr sessi. En það hefir víst eigi ver- ið ætlun hans, eða þl a.ð hann hefir eigi t eyst sér til þess þegar á átti að herða, vegna þess að æsingar tóku að magnast gegn honum fyrir það að hann hefði dregið friðarsamning- ana á langinn, þannig að Rússar sættu miklu veiri friðarkostum held- ur en þeir hefðu getið fengið í fyrstu. Sendinefnd Finna, sem íerðaðist á fund stjórnanca á Norðurlöndum til þess að fá þær m Palohcrmo, lsndbúnaðarráð. Gripenber^, stjórnarráð. Paasikivi, bankastjóri. til þess að viðurkenna sjálfstæði Finnlands og hina nýju finsku stjórn. Garros og Marchal. Hinir nafnkunnu frönsku flug- menn Garros og Marchal, sem Þjóð- verjar höfðu handtekið, hafa nú kom- ist á burt úr Þýzkalandi og til Hol' lands. Það var Marchal sem flaug yfir Berlín i fyrrt og ætlaði til Rúss- lands, en lenti heldur snemma og. féll í hendur Þjóðverji. Quebec-brúin. Eitthvert hið mesta verkfræðinga-- afrek, er sögur fara af, er brúin yfir St. Lawrencefljótið hjá Quebec. Hún var fullsmíðuð hinn 20. september 1917. Tvisvar sinnum hafði brúin brotnað í höndum verkamannanna og íbúarnir i Quebec og þar í grend voru sannfærðir um það, að aldrei mundi takast að brúa fljótið á þess- um stað. En verkfræðingarnir gáf- ust eigi upp, og nú er brúin kom- in. Menn geta gert sér nokkra hug- mynd um það hve mikið vatnsfall Lawrencefljótið er hjá Quebec, þegar menn gera sér grein fyrir því, að þar hefir sameinast alt afrensli úr vötnunum Superior, Huron, Michigan, Erie, Ontario, George og Champlain. Þeir sem þurftu að ferðast frá Lewis, sem er sunnan fljótsins, og til Quebec, sem er norðan við það, urðu annafr- hvort að fara á ferju, eða þá að leggjt leið sína um Montreal, en það er 160 milna vegur milli borg- anna, því að fram til þessa hefir engin brú verið á fljótinu fyrir neð- an Montreal. Atta járnbrautir liggja upp með fljótinu beggja vegna, en engar brýr voru fyrir þær yfir fljót- ið. Á sumrin urðu menn því að' ferðast yfir það á ferjum og á vetr- um á sleðum. En vor og haust var það oft lengi að fljótið var 6- fært fyrir isreki. Menn sáu því að það var nauð- synlegt að brúa fljótið, og brúin þurfti að vera svo sterk, að hún þyldi þyngstu járnbrautarlestir og svo hátt undir hana, að skip gætn siglt þar, þvi að Montreal er aðal- hafnarborg i Kanada, nema á vet- urna, þvi að þá leita skipin annað- hvort til Halifax eða Portland. Fyrsta brúin yfir fljótið var nær fullger fyrir 10 árum, en þá hrundi hún. Brúin var smíðuð þannig að við bæði lönd voru gerðir tröll- auknir brýberar, sem hvíldu á steypt- um grunni. Eru á þeim tvær álm- ur og er sú mikið þyngri er að landi veit, til þess að jafnvægið rask- ist eigi þá er miðbitinn er settur í brúna. Sá biti hvílir á báðum álm- um brúarberanna, er beygjast fram yfir fljótið. Brúin var sem sagt nær fnllger og var verið að reyna burðarmagn brúarberanna. Var settur 9000 smá- lesta þungi á þá álmu syðri brúar- berans, er fram yfir fljótið náði. En hann þoldi eigi þungan og brotn-- aði. Fórust þar 82 verkamenn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.