Morgunblaðið - 24.04.1918, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 24.04.1918, Blaðsíða 1
5 wrgangr Miðv.dag 24. apríl 1918 H0B6UNBLABIÐ 168. tðlnblnð Ritstjórnarsími nr. 500 Ritstjóri: Vilhjálmnr Finsen ísafoldarprentsmiðja Afgreiðslnsími nr. 500 nm Gamla Bió wmmmm sýnir í k.öld hina fallegu og afarspennandi mynd Paladsleikhússins Hermalurinn nr. 216. (Slægtens Ære) ágætur amerfskur sjónleikur i 4 þáttum. Efni myndarinnar er fagurt og afarspennandi, áhrifamikið og sérlega vel leikið. Erl. simfregnir. frá fréttaritara Morgunbi.). Khöfn, 22. apríl. Frá Paris er símað, að búist sé við nýrri sókn af háifu Þjóðverja í Picardie. í ráði er í Bandarikjunum að gera alla menn á aldrinum 18 til 50 ára herskylda. Þjóðverjar eru komnir til Krím. Þjóðþingskosningar fara fram í Danmörku i dag. Khöfn, 22, apríl. Senatið í Bandaríkjunum hefir veitt 1312 milj. dollara til flotans. Óánægja fer vaxandi i Irlandi og horfir til óeirða. Hervörður hefir verið settur við járnbrautir, póst- og simastöðvar. Deilur eru að risa milli Búlgara -og Tyrkja. ---- Söngskemtun frú Finsen í fyrra kvöld tókst prýðilega eins <og við var að búast. Frú Finsen syngur- látlaust og smekklega, enda -vita þeir fyrirfram, sem til hennar hafa heyrt áður, að hvert lag, smærra eða stærra, muni fara afbragðsvel i Shennar meðferð og smekkvisi. í þetta sinn mátti kenna ofurlitillar þreytu í söngrödd hennar á hæztu tónunum, en það var nú eðlileg af- leiðing af nýafstaðinni kvefsótt og mun horfið næsta sinn. Yfir höfuð fóru þau öll ágætlega sönglögiu frúarinnar og frú Asta Einarson lék prýðilega undir, t. d. í »Ingalil« eftir Rosenfeld. Eg man ekki, að eg nokkru sinni hafi heyrt betur og hljóðar leikið undirspilog var unun að heyra hvað þar fór vel saman leikur frú Einarson og söngur frú Finsen. Nýstárlegt var að heyra nú í fyrsta sinn ungan efnilegan söngmann, Hr. Benedikt Arnason. — Röddin er mikil og hreimfögur á köflum, sérstaklega millitónum og dýpri tónum. Eftir því sem mér heyrðist í fyrrakvöld, mætti helst álíta að hann væri tenor baryton, og það umfangs mikill i meira lagi. Söngvarinn er svo ung- ur og nýr á nálinni, að ekki er gott að sjá hvað úr honum getur orðiðí sennilega verður hann cftir frekari nám og tamningu afbragðs söngvari því hæfileikarnir eru miklir. Þó vildi eg ráðleggja honum að leggja nú að svo stöddu minni áherzlu á »dramatiskan« söng, og vinna fyrst að því að æfa röddina, temja hana og ná í hana festu á lægri sem hærri tónunum. Bezt tókst honum með »Donna e mobilec úr Rigoletto og ankalag eitt sem hann söng eftir margitrekað og dynjandi lófaklapp áheyrenda. Þarna eru vafalaust mik- il skilyrði fyrir höndum og þyrfti söngvarinn sem allra fyrst að kom- ast til útlanda til frekari náms og fullkomnunar. A, Th. Alþing. í efri deild var enginn fundur í gær, en i neðri deild voru 6 mál á dagskrá. 1. Frv. til laga um bæjargjöld í Reykjavik. Þvi var umræðulitið vís- að til 2. umræðu. 2. Bæjarstjórn á Siglufirði. Þvi máli var sömuleiðis vísað til 2. umræðu og allsherjarnefndar, eftir litlar umræður. 3. Mótak. Um það mál urðu talsverðar umræður. Töluðu þeir tvisvar sinnum hvor, framsögum. og Pétur Ottesen. Menn höfðu og skiftar skoðanir um það, hvert frv. skyldi visað til athugunar og álits. Vildu sumir senda það til bjargráðanefndar, aðrir til alsherjar- nefndar, og enn aðrir til landbún- aðarnefndar. En svo fór að málinu var vísað til 2. umr. og allsherjar- nefndar. 4—6. Þingsályktunartillögur um bankaútbú á Siglufirði, nenfd til þess að athuga verzlunarframkvæmdir landsins, og að fjárhagsnefnd athugi Nýja Bíó PAX ÆTERNA EÐ A FRIÐUR Á JÖRÐU. verílur sýnd i kvöld og næsta kvöld. Aðgöngum. má panta í síma 107 og kosta fyrstu sæti 2.00, önnur sæti 1.50, þriðju sæti 1.30. NB. Allar pantanir verða afheutar í N ýj a Bí ó frá kl. 7—8 daglega fjárhagsástand landsins — ákveðin ein umræða um hverja. Sala Olafsvalla. Landbúnaðarnefnd, sem haft hefir málið til íhugunar, hafiar komið fram með eftirfarandi álit: »Nefudin hefir athugað þetta mál og leyfir sér að benda á þessi atriði: 1. Jörðin Ólafsvellir, ásamt hjáleig- unum, er ekki í ábúð þess manns, er æskir kaupsnna, og getur sýni- lega aldrei orðið það, þar sem hann er gamall maður og löngu hættur búskap. Það getur þvl naumast komið til máta, að hann /nái kaupum á jörðinni. 2. Nefndinni hafa borist upplýsing- ar um það, að komið hafi til tals að nota jörðina til skóla- seturs, enda er henni vel i sveit komið til þess. Hér er þvi um almenningsnot að ræða, og er sú ástæða ein út af fyrir sig nægileg til þess að fyrirbyggja sölu. 3. Þegar Skeiðaáveitan er fullger, fær jörðin mjög stórt svæði af landi sinu undir áveitu, og er það að mcstu véltækt engi. Það er þvi sjáanlegt, að hér er um mikla framtíðarjörð að ræða og mjög dýrmætaeignfyrir landssjóð. 4. Skoðun viðkomandi sýsluneínd- ar á þessu máli virðist vera svo mjög á reiki, að naumast er hægt að byggja neitt á henni, þar sem sýslunefnd nær einhuga leggur á , móti sölunni árið 1916, [en nú fyrir skömmu samþykkir sölu með 8 atkv. gegn 5. Af framantöldum ásæðumj[ræður nefndin hv. deild til að^ samþykkja tillöguna óbreyttac. Dómsmálafréttir. Yfirdómnr 22. apríl. Málið: Andr. Figved gegn Gunnari Ingimundarsyni. Mál þetta var rekið á Austur- landi, út af fiskkaupum. Gunnar Ingimundarson lögsótti þar A. F. og taldi hann hafa skuldbundið sig. til þess að kaupa af honum fisk all- mikinn, sem fluttur var til Eski- fjarðar. Er þangað kom, neitaði A. F. að taka hann, og kvað sig aldrei hafa undirgengist kaupin. G. I. seldi siðan fiskinn öðrum og krafði hinn skaðabóta (verðmismun). Fyrir undirrétti féll dómur þannig, að A. F. var dœmdur til pess að grtiða G. I. skaðabatur fyrir van- efndir á kaupunum. Hann áfrýjaði siðan þeim dómi til yfirréttar, sem komst að þeirri niðurstöðu, að alls eigi væri sannað, að áfrýjandi hefði keypt (o: skuldbundið sig til að kaupa) umræddan fisk, og ýmislegt benti til, að svo hefði ekki verið um samið. Dómurinn sýknaði því áfrýjanda algerlega af kröfum G. I., en lét mdlskostnað ýalla niður fyrir báðum réttum (undir- og yfirdómi). Kaupirðu góðan hlut P b& mundu hvar þu fekst hann. Smurningsolia: Cylinder- & Lager- og 0xulfeit| eru áreiðanlega ódýrastar og beztar hjá Slgurj nl Hafnarstræti 18. Simi 137.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.