Morgunblaðið - 08.05.1918, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.05.1918, Blaðsíða 1
' ' f’Hnfc; Miðv.dag 8 inaí 1918] H0R6DNBLAÐID 182. tðlnbl»A Ritstjórnarsi^ri nr. 500 Ritstjóri: Viihjáiraur Rnsen Isafoidarprefnsmíðja Afg ei' sm'imr nr 500 mn Gamla Bió bbh ViB dauðans dyr Sakamálssjónleikur í 3 þáttum, afarspennandi og vel leikinn af okkar góðkunnu dönsku leikurum Luzzy Werren, Herm. Fiorentz og Henry Knudsen. Atakanlegur sjónleikur tekinn úr daglegu lífi. Margvísiegir atbnrðir verða tii þess að svifta mann öllu heilli. — Hið fyrr- um rólega Hf hans breyttist í raunir og baráttu, og saklaus verður hann neyddur til að játa þann glæp, sem hann aldrei hefir framið. Börn fá ekki aðgang I Malverkasýníng Einars Jónssonar •opin daglega kl. 11—8 i Yerzlunarskólaiium. Hér með vottum við undir- rituð innilegt þakklæti til Þorvaldar Sigurðssonar og hans skyldfólks, fyrir þá góðu hjálp, að gefa baini okkar eina málíð á dag, yfir síðast- liðinn vetur. Þessa velgerð biðjum við þann að launa, sem alt gott launar. Guð gefi ykkur gleðilegt sumar f Jesúnafni. 2. maí 1918. Guðmnndur og Valgerður. Erl. simfregnir. (Fri frittaritara Morgunbl.). Kaupmannahöfn, 6. maí. Þjóðverjar mótmæla áframhaldandi -æsingaundirróðri maximalista. »Kadetta«-stjörnin rússneska hefir viðurkent fullveldisrétt Ukraine- ríkis. Sendiherra maxitnalista i Stokk- hólmi hefir lýst þvi yfir, ag öllum erindrekum eldri stjórna f Rússlandi hafi verið vikið frá embættum, vegna þess að þeir séu ekki fulltiúar rúss- nesku þjóðarinnar. Sir French, fyrrum hershöfðingi Breta í Frakklandi, er orðinn lands- stjóri á írlandi. Hér með tilkynnist að jarðarför bróður mins, Tryggva sái. Guðmundssonar frá Stóru-Borg í Húnavatnssýslu, fer fram á miðvikudagiun, 8. þ. m., kl. 11 f. h. frá Dómkirkjunni. Steinunn Guðmundsdóttir, nuddlæknir. Ketiil bróðir minn fekk hægt og rólegt andlát eftir 8 vikoa legu á Landakotsspitala, kl. ii1/^ i dag. Jarðarförin fer hér fram 14. þ. m. P. t. Reykjavík, 6. mai 1918. Guðm. Bergsson, bóksali. í. S. í. í. S. í. Knaffspyrnufélagil Fram heldur aðalfund sinn fyrir árið 1918 á föstudaginn kemur, 10. þ. m.) í Iðnó (uppi) kl. 9 e. h. stundvíslega. Yngri deildin komi á fundinn. D a g s k r á samkv. 8. gr. félagslaganna. Þeir sem óska inntöku í félagið, gefi sig fram við Arreboe Clausen, fyrir fundinn. Stjórnin. Einar H. Kvaran les nokkura kafla úr nýsaminni, óprentaðri skáldsögu, „Sambýli“, í Bárunni, uppstigningardag, 9. þ. mán,, kl. 5 síðdegis. Aðgöngumiðar að tölusettum sætum verða seldir á 1 kr. I Bókaverzlun ísafoldar I dag. væru nú komin loforð fyrir um 40.000 kr. gjöf frá Oddfellowum og 83.000 kr. frá félögum og ein- stökum mönnum. Hæstu gefend- nrnir utan Oddfellowa, ero Thor Jensen stórkaupmaður með 20.000 kr., »Bragi« með 3000, Elias Stef- ánsson með 2500 kr; og ýmsir með 1000 kr., 500 kr. og minni upphæðir. Stjórnir i nokkrum fé- lögum hafa lofað álitlegum fjárhæð- um, að áskildu samþykki aðalfunda. Þarnæst vorn samþykt lög fyrir Radíumsjóðinn, en samkvæmt þeim getur hver sá orðið félagi í sjóðn- um, sem leggur fram 100 kióna tillag. Hver félagi hefir 1 atkvæði án tillits til þess hvað hann hefir lagt fram. í stjórn voru kosnir þessir menn og hafa skift þannig með sér verk- um Thor Jensen stórkaupm. (for- maður), Halldór Danielsson yfirdómari (varaformaðui)/ Sveinn Björnsson yfir- dómslögmaður (ritari), Jón Laxdal stórkaupm. (gjaldkeri) og Sæmundur Bjarnhéðinsson prófessor. Varamaður i stjórnina var kjörinn Eggert Claessen yfirréttarmálaflutn- ingsmaður, endurskoðendur Jón Páls- Radiumsjóður Islands stofnaður. Eins og áður hefir verið getið í blöðunum beittust Oddfellowar fyr- ir þvi i vor, að koma radium-mál- inu i framkvæmd, með þvi að gangast fyrir fjársöfnun til Radium- stoínunar. Aður en Oddfellowar tóku málið að sér voru komnar nokkrar stórgjafir til fyrirtækisins, frá Fiskiveiðahlutaféiagsins »Haukur«, Geo Copland, L. Kaaber 0. fl. Oddfellowar kusu sin á meðal níu manna nefnd, er unnið hefir síðan að fjársöfnun og undirtektir verið svo ágætar að hægt var á laugar- daginn að stofna hér Radiumfélag: »Radiumsjóð Islands*. Á stofnfundinum reifaði Jón Lax- dal kaupmaður málið fyrir hönd nefndar Oddfellowa. Gat hann þess að nú væri alls safnað i innborguðu íé og loforðum um r 50.000 krónur. Skýrði hann frá, að auk þeirra 27.000 kr., sem safnast höfðu áður en Oddfellowar tóku málið að sér, E Nýja Bíó -4 Talsfmasfúlkan Stórfengl. sjónleikur í 4 þáttum leikinn af Nordisk Films Co. Aðalhlutv. leika: Fru Karen Sandberg, Fr. Buch. Alfr. Bliitecher 0. fl. Menn munu minnast hinnar ágætu myndar: Stúlkan frá Palls sem sýod var í Nýja Bió í vetur, eftir Schnedlcr-börensen, og þótti með afbrigðum góð. Hér birtist þá önnur mynd eftir sama mann og að nokkru leyti áframhald af sama efni. Karen Sandberg leikur hér af aðdáan- legri snild. Myndin stendut yfir i1/^ kl.st. Aðgöngumiða má panta í sima 107 og kosta fyrstu sæti 0.85, öunur sæti 0.65, barnas. 0.20. Eininginn nr. 14. Fundur í kvöld kl Qljv Fulltrúakosning. Innsetning embættismanna. Óvænt nýjung. Allir beðnir að mæta son bankagjaldkeri og Morten Han- sen skólastjóri, til vara Matthías Einarsson læknir. Það er tilætlunin, að vinda eins bráðan bug og hægt er að því að koma Radíumstofnuninni á fót og getur hún væntanlega tekið tii starfa einhverntíma á þessu ári. Alþing. Eins og skýrt var frá i blaðinu i gær, var fundi frestað i fyrradag til kl. 4^/g og stóð hann svo nær 3 stundir. Varð þetta hálfgildiogs eldhúsdagur, þótt friðsamlega endaði hann að lok- um. Þegar fundur hófst aftur tók fjár- málaráðherra fyrstur^til máls til þess að svara ræðu Vigur-klerks. Kom fátt nýtt fram i ræðu hans, nema það, að stjórnin hefði nú handbærar nær 5 miljónir króna í peningum. Þá talaði Björn Kristjánsson og hélt hann sér eingöngu við efnifrv. Þótti honum það vansmiðað að ýmsu leyti og hrært inn í það óviðkom- Kaupirðu góðan hlut Smurningsolía: Cylinder- & Lager- og 0xulfeiti Hafnarstræti 18 bá mundu hvar þu fekst hann. eru áreiðanlega ódýrastar og beztar hjá Sigurjónl Sími 137.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.