Morgunblaðið - 10.05.1918, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.05.1918, Blaðsíða 1
Föstudag 10 maí 1918 H0R6UNBLAD1Ð V »*nsr 184 tölubli»> Ritstjórnarsimi nr, 500 Ritstjón: VilhjAlmnr Finsen ísafoldarprentsmiðja I. 0. 0 F. 1005109 — III. Gamla Bio sýnir í kyöld hina ágætu mynd Paladsleikhússins Litlu englarnir eða I móður stað Óviðjafnanleg mynd í 4 Þáttum eftir GranviHe Watwick. Undirbúið hefir D. W- Grifflth, jöfar kvikmyndagerðarinnar. Þetta er einhver sú bezta og áhrifamesta mynd sem hér hefir verið sýnd — mynd sem allir, eldti og yngri, hafa gagn og gaman af að sjá. Sýning stendur yfir i1/^ kl.st. — Betri sæti tölns. kosta 1 kr., alm. tölus. 75 a., brrnas. 2$ a. — Sýning i dag kl. 6, 7^/a Qg 9- 1 Til Vífllstaða fer bifreið á sunnudr.g kl. 11 frá Breiðablikum. Farseðlar verða seldir þar á laugardag. Steindór Einarsson. af tekjum (brutto) og renni það í bæjar- eða sveitarsjóð. Bréf Karls keisara. Erl. simfregnir. (Frá fréttaritara Morgunbl.). Khöín 8. maí. Feisiews-blöðin flytja símfregnir frá Reuter-fréttastofu um samninga Islendinga og baadamanna og í sambandi við þær fregnir halda blöðin því fram, að sambandsdeilan milli íslendinga og Dana sé komin :í mjög alvailegt horf, vegna þess að Alþingi hafi gert nýjar viðtækar sjálfstæðiskröfur, þar á meðal um ;persónusamband. Þess vegna segja blöð þessi að rikisþingið hafi verið kvatt saman til aukafundar. »Berlingske Tidende« og »Poli- tiken* þverneita því, að nokkuð sé bæft í þessum staðhæfingum um i- skyggilegar horfur í sambandsmál- inu; þingið verði ekki kvatt sam- an, heldur ætli flokksforingjarnir að gefa þingflokkunum ýmsar skýrsl- ur næstkomandi þriðjudag, og þar á meðal Hklega um íslandsmál. Friðarsamningar milli Rúmena og Miðveldanna eru nú undirskrifaðir og verða í heild sinni birtir bráð- lega. Maurice hershöfðingi ber þær á- kærur á þá Lloyd George og Bonar Law að þeir hafi gefið neðri deild brezka þingsins rangar hernaðar- skýrslur. Rannsókn hefir verið hafin gegn Maurice til þess að úrskurða hvort hann hafi eigi með þessu brotið bág við heragaskyldur sinar, en ráðherrunum hefir verið stefnt fyr- ir drengskapar-rétt (honorcourt). Payer, varakanzlari Þýzkaland, ver framkomu Þjóðverja i Austurvegs- málum. Frá Seyðisfirði. Seyðisfirði i gær Hér er veiting póstafgreiðslustarf- ans aðalumræðuefni manna á meðal. Er það alment álitið mjög vítavert af landsstjórninni að litilsvirða til- lögur póstmeistara og taka ekki tillit til áskorana fjölda manna á Seyð sfirði um veitinguna. Afli er ágætur á Suðurfjörðunum. Kastað fyrir smásiid hér í gær. Út- lit til þess að vorafli byrji hér óvenju snemma að þessu sinni. Steinolíu- vandræði eru mikil. Kvikmyndagjald. í neðri deild flytja þeir Jörundur Brynjólfsson og Þorst. Metusalem Jónsson frumvarp um að bæjar- og sveitarfélögum sé heimilt að leggja skatt á kvikmyndasýningar og aðr- ar myndasýningar. Hugsa þeir sér að gjaldið meigi nema alt að 20 % Franska fréttastofan »Agence Havas* segir að bréf Kirls Austur- ríkiskeisara til prins Sixtus af Bouibon Parma, sé á þessa leið: Það liður nú bráðum að lokum hins þriðja árs þessa ófriðar, sem hefir flutt svo mikla sorg og ógæfu yfir heiminn. Þjóð mín er enn ein- lægari i þvi nú heldur en nokkuru sinni áður, að verja sjálfstæði lands- ins, hversu þungar fórnir sem hún verður að bera. Það er þvf að þakka að hún stendur uppi sem einn mað- ur, að riki mitt hefir nú í þrjú ár getað afstýrt hinum alvarlegustu hættum. Engin getur borið brigður á þá miklu sigra, er herir mínir hafa unnið, sérstaklega á vigvöllum Balkans. Frakkar hafa að sinu leyti sýnt framúrskarandi þrautseigju og dugnað. Vér dáumst allir, undantekn- ingarlaust, að hinni framúrskarandi hreysti þeirra og fórnfýsi frönsku þjóðarinnar yfirleitt. Þess vegna er mér það sérstaklega kært, að enginn alvarlegur ágreining- ur aðskilur riki mitt og Frakkland, enda þótt fjandskapur sé nú þar í milli sem stendur, og að eg hefi rétt til þess að vona það, að hin einlæga vinátta min í garð Frakka og þjóðar minnar yfirleitt, muni um alla framtið afstýra þvl, að aftur hefjist ófriður sem þessi, er eg ber enga ábyrgð á. Til þess að sýna það á ótviræð- an hátt, að eg tala í einlægni, bið eg þig að skýra Poincaré Frakka- forseta leynilega frá þvi, að eg mun neyta allra ráða og beita öll- um áhrifum miaum á bandamenn vora, til þess að styðja réttmætar kröfur Frakka til Elsass-Lothringen. Um Belgiu er það að segja, að hana verður að endurreisa og fá henni aftur fullkomið sjálfstæði og láta hana hafa allar nýlendur sinar í Afriku, auk þeirra skaðabóta, sem Afgreiðsiusimi nr. 500 Prógram samkvæmí göfuaugí. »e o • • *>«>•»» Til Hvítasunnunnar nýkomíð stórt úrval af: \ IDrcncjja-cRcviof og SporísJ&í % ^Drcngja-fraRRar c^clpuRápur cTSíœti cMorpunRjoíafau éCviíí JSárcft einbr. og tvibr. © ömurtjRfraR/iar . IÞomu-opcKefpu- Rapur Vatf-feppi Í2,50 Húmteppi 6,50 Uííaríeppi 5,25 hjá Sv.Juel Henningsen Austurstræti 7 — Sími 623 * ° • hún ætti að geta fengið fyrir það tjón, er hún hefir beðið. Um Serbiu skal það sagt, að hún á að fá fult sjálfstæði aftur og sem tryggingu fyrir góðum vilja vorum, erum vér fúsir til þess að tryggja Kaupirðu góðan hlut 5>á mundu hvar þu fekst hann. Smurningsolia: Cylinder- & Lager- og 0xuifeiti eni áreiðanlega ódýrastar og beztar hjá Slgurjóni Hafnarstræti 18 Sími 137.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.