Morgunblaðið - 01.06.1918, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.06.1918, Blaðsíða 1
Xaugard. 1 júní 1918 H0R6UNBLABID 5. argangr 204. tölublað P Ritstjómarslmi nr. 500 Gamla Bió Ritstjón: Vilnjálmur Finsen Tökubarnið °ð rógborni presturinn. Pallegur og áhrifamikill sjónl. * 4 þáttum. Ef þér viljið sjá verulega góða kvikmynd, sem sýnir yður mjög viðburðaríkan, undarlegan og spennandi æfiferil. l»essi ágæta uiynd verður sýnd f sídasta sinn í kvöld. Erl simfregnir (frá fréttaritara Morgunbl.) Khöfn 30. maí. Frá Paris er símað um hádegi í gær, að aðallega sé barist i fylking- arörmunum. Bandamenn halda und- an í skógunum fyrir austan Sois- sons og sunnan Thierry-hæðirnar. Herlinan er nú um Aisne—Vesle- skurðinn. Frá Berlín er símað f nótt að Þjóðverjar sæki enn fram milli Sois- sons og Rheims. Skoðanir þýzku blaðanna eru skift- ar um Brest-Litovsk friðarsamning- ana. Riissar vilja semja'frið við Ukraine hvað sem það kostar. Friðarsamningar Finna og Aust- urríkismanna og verzlunarsamningar Svía og bandamanna hafa verið undirskrifaðir. Khöfn 30. maí Frá París er símað í nótt, að orustur hafi einkum harðnað vestan- vert við Soissons og var barist ákaft á götum borgarinnar, unz hún var yfirgefin. Orustur fara einnig harðn- andi suðaustur á bóginn. Frá Berlín er símað að Þjóðverjar hafi tekið Septmonts, Ambrief, Char- ise; að bandamenn hörfi undan hjá Lonperque, Brouillett og Savigny og að Þjóðverjar haldi stöðvum þeim, sem þeir hafa níð hjá Tillay. Hersveitir bandamanna sem hafa varið Reims, hafa hörfað undan til hæðanna þar fyrir norðan og vestan. íslandsmál í erlendum blöðum. IX. Eftirhreytur. Tveir danskir stúdentar, Ole Björn Kraft og Max Kjær Hansen, hafa alveg nýlega gefið út bækling, er þeir nefna »Danmark udslettes« og fjallar hann um afstöðu Dana til hinna fjarlægu ríkishluta: Vestur- heimseyja, Færeyja, íslands og Græn- lands. »Vort Land« segir svo um bók- ina: »Þessi litla bók er vel rituð og ber vott um að þessir tveir ungu menn hafi vakandi þjóðerniskend og opin augu fyrir öllum þeim syndum, sem danskar stjórnir hafa á samvizku sinni vegna framkomu sinnar við þá hluta ríkisins, sem ekki liggja milli Skagen og Gedser. Fyrst er i stuttu máli skýrt frá sölu Vesturheimseyja. Kaflinn um það endar með þessum hnæfilegu orðum: »Skammsýni, rangsýni og danskur kvikindisháttur reisti sér hinn 14. desember 1916 sinn veg- legasta minnisvarða.* Síðan er minst á sambandið við Grænland, Færeyjar og ísland og að lokum og yfirlit yfir afrek dönsku stjórnaainnar og það er í stuttu máli þetta: 1. Vesturheimseyjum illa stjórnað, vanræktar og að lokum seldar með þjóðaratkvæði 14. des. 1916. 2. Grcenland er sem lokað land. Hinar mörgu auðsuppsprettur þess látnar ónotaðar og stjórnin gerir engar ráðstafanir til þess að reyna að skapa landinu þá framtíð, sem það væri réttilega að komið. 3. Island hefir æ meir losnað úr rikistengslunum. Og fánaviðurkenn- ingin 1915 hefir mjög stuðlað að þvi. ísland kemur nú fram með kröfu um sérstakan siglingafána og hótar að skilja við Dani, ef krafan nái eigi fram að ganga. 4. Fctreyjar eru enn þá bundnar föstum tengslum við móðurlandið, en danska stjórnin styður leynt og ljóst sundrungarandann þar. Fulltrúar rikisins eru svívirtir á allan hátt, án þess að stjórnin reyni að skjóta fyr- ir þá hlífiskildi, og þess vegna hafa *ðstu embætismeun eyjanna sótt um lausn. Þess 'vegna er það við- búið að sambandsflokkurinn, sem heldur trygð við Dani, verði f minni- hluta við lögþingskosningar þær er í hönd fara. (Það reyndist líka rétt). Þetta er sannleikurinn hreinn og beinn. Og vér sjáum fyrir oss riki ísafoldsrpr c ntsmið j a Afgreiðslusími nr. 500 !> Thjja Bíó. Ægilegasta spreagiefnið. Sjónleikur í þrem þáttum tekinn af Nordisk. FilniP Co. Aðalhlutverkin leika: Vald. Psilandep og Ebba Thomsen. Efni þessarar myndar er 1 stnttu máli það, að ungur og ötull efna- fræðingur finnur upp svo ógurlegt sprengiefni að liknr eru til að ætla að allar styrjaldir muni þess vegna leggjast niður. — Uppgötvuninni er stolið og hann er grunaður um landráð. En á siðustu stundu bjargar unnnsta hans honnm. — Er efui myndarinnar og meðferð þess svo af- bragðs góð, að allir verða að sjá h&na. Leikfélag ReykjaYikpr Landafræði •< ást verður leikið sunnudaginn 2. júní kl. 8 síðdegis í Iðnaðarmannahúsinu. • Aðgöngumiðar verða seldir í Iðnó á laugardag frá kl. 4—8 siðdegis með hækkuðu verði, og á sunnudaginn frá kl. xo—12 árdegis og frá 2—8 siðd. með venjulegu verði. Póstferðir * Neflavfkur Eins og að undanförnu tek eg að mér póstferðir til Keflavíkur einu sinni í viku, á fimtudögum, frá Reykjavík kl. 9 árd. frá Keflavík — 2 sama dag. Farmiðar verða seldir hjá R. P. Leví, Austurstræti 4. Sími 186. Simi í Keflavik nr. 6. Fyrsta póstferð byrjar 6. júní. Tek líka að mér lengri og skemmri ferðir. Sanngjörn borgun. Gunnar Sigurfinnsson, bílstjóri. i upplausn, riki i niðurníðslu. Verði eigi skjót breyting á^þessu, þá mun hin núlifandi kynslóð verða að horfa upp á það, að hiö stóra ríki, sem hún tók við af forfeðrum sinum, með hjálendum, sem útvörðum hjá siglingaleiðum um heimshöfin og alla þá miklu óteljandi kosti, sem það hefir i för með sér, er — að eins orðið að landinu með sundum og beltum og þá eru hæfileikar þess til efnalegs og menningarlegs sjálfstæð- is óendanlega mikið rýrðir og fram- þróunar-skilyrðin ónýtt fyrir eigin glópsku. Danmörk aýmdist! —^Hvert land hefir sinn lit á alheimskortinu. Sá litur, sem táknar Danmörk hefir orð- ið æ sjaldgæfari á síðustu öld, en enn þá sézt hann þó í bláma út- hafanna og ber vitni þess að landið lifir. í Karabiska-hafinu höfum vér sjálfir afmáð hann fyrir skömmu. Mun fara á sömu leið i norðanverðu Atlanzhafi?* Þessi ummæli eru því miður beizkur sannleikur og maður getur 3 bifreiðar fara til Vifilsstaða á morgun kl. 11 og 2 kl. it/2 frá Breiðabliki (1 tima viðstaða ókeypis) Farseðlar seldir i Breiðabliki i dag og kosta 5 kr. báðar leiðir, 3 kr. aðra leið. St. Einarsson. Gr. Sigurðsson. Simi 127. Sími 581. eigi annað en óskað bækling þess- um mikilar útbreiðslu. Danska þjóðin þarfnast mjög upp- lýsinga í því efni, sem þar er rætt um«. Ur Eyjafirði 16 maí. Veðrátta hin hagstæðasta siðan nm miðjan april. Sauðfé gengur ^aupirðu góðan hlut Smurningsolia: Cylinder- & Lager- og 0xuifeiti Hafnarstræti 18 mundu hvar þu fekst hann. eru áreiðanlega ódýrastar og beztar hjá Sigurjóni Simi 137.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.