Morgunblaðið - 11.06.1918, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.06.1918, Blaðsíða 1
f»riðjudag 11. júní 1918 H0R6UNBLÍDID 5. argangr 2i4 tðlub"að RitstjórnarsiiTi! nr. 500 Ritstjórt: Vilhjáimnr Finsen ísafoldarprentsmifija Afgreiðslusimi nr. 500 ■■■■BBnHinmnBsn^Nýja Bió Skuggi fortíðarinnar eða Ast Yvonne Sjónleikur í þrem þáttum, tekin á kvikmynd af Nordisk Films Co. Aðalhlutverkið leikur £lse Frölicll. Hvers er krafist af góðri kvikmynd? Að hún sé áhrifamikif, fögur, einkennileg, efnisrík, hrifandi og vel leikin. Öll þau skilyrði uppfyllir þessi mynd. UPPBOÐ á 50—60 málverkum eftir Magnús Á. Arnason verður haldið i G.-Templarahúsinu miðvikudaginn 12. þ. m. kl. 3 e. h. Myndirnar til sýnis frá kl. 9 á sama stað. Frjáls aðgangur fyrir allal Innilegt þakklæti vottast hér með öllum þeim, sem sýndu hluttekningu við jarðarför Péturs sál. Sigurðssonar skipstjóra. Fyrir hönd fjarstaddra vandamanna hans. Björn Sveinsson. Hér með tilkynnist vinum og vandamönnum að okkar hjart- kæri faðir, Guðm Jónsson ökumaður, andaðist að heimili sínu, Bræðraborgarstig 21, sunnudaginn 9. þ. m. kl. 6 siðdegis. Jarðarförin ákveðin síðar. Synir hins látna. I. 0. 0. F. 1006119 — I. Fyrsta flokks bifreiðar ávalt til leigu. St. Einarsson. Gr. Sigurðsson. Siroi 127.Simi 581. Erl simfregnir (Frá fréttaritara Morgunbl.). Khöfn, 7. júni. Matvælavandræðin i Austurríki eru heldur að minka. >Allgem. Norddeutsche Zeitung« lítur svo á, að Venizelos og hans flokkur sé i opinberum ófriði við ^ýzkaland. Khöfn, 9. júni árd. Varnarnefnd hefir verið skipuð í París. Norðmenn hafa fengið víðtæk út- flutningsleyfi i Ameriku. Nefndarálit íslandsmálanefndar rikisþingsins danska verður væntan- lega birt á miðvikudaginn. Khöfn, 9. júni siðd. ^áðstefna er hafin i Haag milli Breta og Þjóðverja viðvíkjandi her- föngum. Þjóðverjar gera áköf fótgönguliðs- áhlaup hjá Montidier og Noyon. Frakkar hafa gert áhlaup i Elsup- skóginum og Vrigny með góðum árangri. Landsþingið i Georgien, í Káka- suslöndum Rússa, hefir lýst landið óháð ríki. Tvenn !ög. Alþingi afgreiddi í gær tvenn ný lög, sem eru mjög þýðingarmikil fyrir verzlun landsins. Voru bæði frumvörpin afgreidd með afbrigðum frá þingsköpunum i báðum deildum, því þau komu fyrst fram í gær og voru samþykt í hvelli. Oss þykir rétt að birta bæði ].ög- in i heild og greinargerðir fyrir þeim, því að þau snerta mjög hag allra kaupsýslumanna. Frnmvarp til laga um viðauka við lög nr. 6, 8. febr. 1917, um "neimild handa landstjórninni til ráðstafana til trygg- ingar aðflutningum til landsins. Frá bjargráðanefnd. 1. gr. Við 1. gr. laga nr. 6, 8. febrúar 19x7, bætist: Enn fremur veitist ráðuneyti ís- lapds heimild til þess, að taka eignar- námi til útflutnings íslenzkar afurð- ir hjá kaupmönnum, félögum, fram- leiðendum eða öðrum, gegn fullu endurgjaldi, að frádregnu lögboðnu útflutningsgjaldi. Endurgjald skal ákveða eftir mati þriggja óviðhallra manna; skal einn þeirra kvaddur af Landsyfirréttinum, annar af bæjarfó- getanum í Reykjavik og þriðji af stjórnarráðinu. Þeir kjósa sér odd- vita. Matsgerðir þeirra eru fullnaðai- matsgerðir. Eignarnemi þarf ekki að taka hið numda strax i sínar vörslur, að matsgerð lokinni, en „greiða skal hann eiganda eða umráða- manni hins numda hæfilegan geymslu- kostnað eftir mati matsmanna. Að öðru leyti fer um framkvæmd eignar- námsins, eins og greinir í lögum nr. 61, 14. nóvember' 1917, um framkvæmd eignarnáms. 2. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. Greinargerð. í lög 1. febrúar 1917 vantar skýra heimild til þess að taka vörur eign- arnámi, en nú er, vegna skuldbind- inga þeirra, sem hvila á landsstjórn- inni samkvæmt samningi milli henn- ar og stjórna bandamanna, óhjá- kvæmilegt að hafa slíka heimild til eignarnáms skýrt ákveðna I lögun- um. Því að þótt rétt megi telja, að sú víðtæka heimild, sem framan- greind lög veita laudssjórninni til að selja með reglugerðum ákvæði, sem nauðsynleg þykja til þess að tryflgja aðflutninga til landsins, inni- feli einnig heimild til að fyrirskipa eignarnám, er eins og nú á stendur nauðsynlegt að taka fyrir allan vafa um þetta atriði. Ennfremur er óhjá- kvæmilegt að fá sérstakar reglur um eignarnám það, sem hér um ræðir, aðallega að þvi er snertir matsmenn- ina og kvaðningu þeirra, svo og um, að matsgerðir þeirra skuli vera fullnaðarmatsgerðir. Frumvarp til laga um bráðabirgðaútflutnings- gjald. Frá fjárhagsnefnd. x. gr. Meðan Norðurálfuófriður- inn stendur og ráðuneyti íslands fer með verzlun innlendra vörutegunda, fleiri eða færri, eða sér um útflutn- ing þeirra, er því heimilt að leggja raeð reglugerð eða reglugerðum út- flutningsgjald, auk lögboðinna út- flutningsgjalda, á vörutegundir þess- ar, eftir því sem nauðsynlegt er, til þess að landssjóður bíði ekki skaða af afskiftum sínum af þeim. Gjaldi þessu skal hagað þannig, að ekki komi á neina vörutegund hærra gjald en sem svarar til þeirrar fjárhæðar, sem landssjóður verður að leggja fram vegna verzlunar með eða um. sjónar á þeirri tegund. Vörurnar, andvirði þeirra og vá- tryggingarupphæð, er að veði fyrir gjaldinu. í reglugerð má kveða á um til- högun og innheimtu gjaldsins, hver skuli greiða það, sektir fyrir brot á henni og meðferð mála út af slíkum brotum, 2. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi Greinargerð. Eins og kunnugt er, þá er lands- stjórnin neydd til, vegna samninga við önnur riki, að taka i sínar hend- ur verzlun með ýmsar innlendar vörutegundir og umsjón með útflutn- ingi á þeim, til þess að tryggja að- flutninga til landsins, og þar sem búast má við, að landssjóðui biði skaða af þessum afskiftum sínum, ef engi heimild er fyrir hendi um, að hann megi leggja gjald á vöruna til lúkningar þeim skaða, þá virðist eigi verða hjá því komist að ná honum með skatti. Tilætlun þessa frv, er að útvega slíka heimild, þar sem það gæti orðið landssjóði ofvaxið að greiða slikan halla. Það er að sönnu óvanalegt að veita heimild til skatta- álögu til landssjóðs með reglugerð- um, en þar sem alveg sérstaklega Kaupirðu góðan hlut Smurningsolia: Cylinder- & Lager- og 0xulfeiti Hafnarstræti 18 mundu hvar þú fekst hann. eru áreiðanlega ódýrastar og beztar hjá Siyurjóiii Simi 137.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.