Morgunblaðið - 19.06.1918, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.06.1918, Blaðsíða 1
Miðv.dag 19 jiiní 1918 H0R6DNBIAÐIÐ 5. argangr 222 tðiabiað Ritstjórnarsimi nr. 500 Ritstjón: Vilhjáímnr Finsen ísafolásrprems tr. ifii Afgreiðslusími nr. 500 Gamla Bió Ballet- leikmærin. (Tbanhouser-Film) Ahrifamikill, efnisgóður og vel leikinn sjónleikur, í 3 þáttum. Aukamynd: Chaplin sem afbrýðissamur eiginmaður. Erl simfregnir. (Frá fréttaritara Morgunbi.). Khöfn, 17. jdni. Frá Wien er símað, að Austur- rikismenu hafi ruðst inn i þriðju varnarlínu Itala hjá Brenta og tekið 6000 fanga. Fyrir austan Brenta hafa þeir mist aftur það sem þeir höfðu urtnið. Frá Róm er símað að áhlaupum Óvinanna hafi víðasthvar verið hrund- ið í fremstu varnarlínu. Islandsmál. Khöfn. 17. júnf. Félag íslenzkra kaupmanna í Kanp- mannahöfn hefir sent rikisþingi og stjórn áskorun um að það fái að velja fulltrúa i nefnd þá, er nú á að senda til íslands. Tnor E. Tulinius stórkaupmaður hefir mótmælt þessari áskorun. Segir hann að í félaginu séu aðeins 7 ís- lenzkir kaupmenn og segir hann að sér sé kunnugt um það að flestir þeirra séu á móti áskoruninni. Fé lagið hafi eigi óskað að vinna í sam- einingu við kaupmannaráðið í Reykja- vík meðan á striðinu hefir staðið. Tulinius segist lika vita, að sá full- trúi sem félagið hafi viljað senda sé kaupmaður, er eigi sé vel þokkaður á Islandi. Kveðst Tulinius álíta, að sendinefndin eigi ekkert annað að gera en reyna að komast að samn- ingum i sambandsmálinu. Ritzau. Jarðarför Gisla Jónssonar á Mosfeiii fer fram á heimili hins látna, hinn 25. þ. mán. Bazar Landsspítalasjóðsins verður opnaður miðvikudag 19. júní kl 1. e h. í Good-Temp!- arahúsinu. Gjöfum til hans veitir undirrituð nefnd þakklátlega móttöku. ^Anna Danlelsson. Asthildur Thorsteinsson. Elín Jónatansdóttir. Guðrún Arnason. Katrín Ma°nússon. Maria Amundason. Þórunn Jónassen. Arsfundur Hins ísl. kennarafélags verður haldinn miðvikudaginn 26. þ. m. kl. 4 e. h., i söngsal barnaskólans. Verður þar lagður fram og borinn upp til samþyktar endurskoðaður reikningur félagsins síðastl. ár, og skýrt frá gerðum þess það ár. Aðalfundarefni: Framtíðarhorfur fyrir skólahalid. Reykjavík 17. júní 1918. Jóxi Þófapinsson p. t. forseti. Guöraundur Friöjór.sson endurtekur erindi sitt um Ömtnu qömlu — samkvæmt ósk margra bæjarbúa — 1 IWannannaMsiin flmtndagmn 20. j>, m, og byrjar kl. S1/^. Aðgöngumiðar fást í bókaverzlun ísafoldar og i Iðnaðarmannahúsinu á fimtudag eftir kl. 7. Tölumerkt sæti 75 aura, standandi rúm 50 aura. Landspítalasjóðs- dagnrinn. 19. júní - Mföisdagnr kvenna. Kvenþjóðin islenzka fagnaði feng- num réttindum með því að vigja opinbera starfsemi sina þvi fyrirtæk- inu, er næst Eimskipafélagi Islands hlýtur að vera hjartfólgnasta mál alþjóðar. En það er að fá hér reist- an Landspítala. Og daginn sem kvenþjóðin öðlaðist réttindi sín, 19. júni, hefir hún helgað Landspítala- málinu. Þann dag heldur kvenþjóðin íslenzka hátiðlegan og safnar um leið fé til þessa þarfa alþjóðarfyrir- tækis. Og tilgangurinn er svo góður, að allir eiga að telja það skyldu sína að stuðla til þess að 19. júni verði sem hátíðlegastur, og að fjárhags- legur árangur af hátiðahaldinu sem mestur, því að það miðlar til þjóð- þrifa. Þetta er nú í þriðja sinn að konur hér í Reykjavik halda dag þennan hátíðlegan og þótttíminn sé að því leyti óheppilegur, að 17. júuí — þjóðhá- tiðardagurinn — er svo skömmu á undan, þá hefir þó hátíðin jafna tek- ist vel og eru nú likur til þess að hátíðahöld verði víða um land, eins og vera ber. Hátíðin í dag hefst einni stundu eftir hádegi. Þá verður opnaður bazar í G.-T.-húsinu niðri, en veit- ingasalur uppi. En aðal-hátiðahöldin hefjast þó fyrst kl. 4 Va- safnast konur borgarinnar saman í barnaskólagarð- inum og ganga þaðan i skrúðfylk- ingu niður á Austurvöll kl. 5. Þar flytur frú Briet Bjarnhéðinsdóttir ræðu, en lúðrafélagið Harpa skemtir með hornaþyt. Suður á íþróttavelli hefst mann- fagnaður kl. 6Va- Þar flytja þau 1» Nýja Bió. Prinsessan. Sjónleikur í 3 þáttum um ástir ungrar konungsdóttur. Aðalhlutverkin leika: Nicolai Johansen, frú Fritz Peter3en, Aage Hertel. Sérstök sýning og önnur mynd kl. 7—8 fyrir Lands- spitalasjóðsdaginn. Til Vífilsstaða fer bifreið fyrst um sinn hvern þriðju-, fimtu- og sunnu- dag kl. ii frá Breiðabliki. Farkeðlar verða að kaupast þar. (Aukaferðir venjulega kl. 2.) St. Einarsson. Gr. Sigurðsson. Sími 127. Sími 581. cFeréatasfía og ýarða vafnsslicjvel ósfiast fiQijpt nú þegar. Jt. v. á. ræður Guðrún Lárusdóttir frú og Bjarni Jónsson frá Vogi og margs konar skemtanir verða þar aðrar fram að miðnætti. Klukkan 7 hafa bæði kvikmynda- húsin sýningar til ágóða fyrir Land- spítalasjóðinn og kl. 8Va verður kvöldskemtun i Iðnaðarmannahúsinu. Þetta er í stuttu máli dagskráin. Geta menn þó af þessu séð, að margskonar skemtunar geta þeir aflað sér jafnframt því að styðja gott málefni. Kaupmenn munu loka búðum sínum um miðjan dag, til þess að verzlunarþjónar geti tekið þátt í hitíðahaldinu, og er þess vænst, að fleiri atvinnuveitendur fari að dæmi þeirra, og veiti starfsmönnum sinum lausn frá vmnu síðari hluta dags. Styðjið Landspítalasjóðinn! Kaupirðu góðan hlut t>á mundu hvar þú fekst hann. Smurningsolia: Cylinder- & Lager- og 0xulfeiti ere áreiðanlega ódýrastar og beztai- hjá Bigurjónl Hafnarstræti 18 Simi 137.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.