Morgunblaðið - 17.07.1918, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 17.07.1918, Blaðsíða 1
5. argangr Miðv.dag 17, júlí 1918 MORGDNBLABIÐ 250. jSlntoSað Rítstjórnarsimi nr. 500 Ritstjón: Vilhjálmnr Finsen ísafoldarprect iuiioja Afgreiðslusimi nr. 500 NYJA BIO Einstæðingurinn eða Muaaðaplausa stúlkan. Sjónleikur í 4 þáttum, leikinn af Nordisk Films Co. Aðalhlutverkin leika: Johs. Ring. Henry Seemann. Gerda Christophersen og hin alkunna leikkona Clara Wieth. Kærar þakkir fyrir sýnda samúð við fráfall Guðríðar Ingimagnsdóttur. Frá barni hennar og manni hennar. Alþýðuflokksfundur verður haldinn í kvöld kl. 8V2 í Goodtemplarahúsinu. Danski jafnaðarmannaroringinn F. J. Borgbjerg talar um jafnaðarstefnuna. Menn eru beðnir um að koma stundvíslega. Stjórn Alþýðuflokksins. ■■■■■9 Gamla Bió buM^b t Apsché-stúlkan Fallegur og áhrifamikill sjón- leikur í þrem þáttum, afar- spennandi og sérlega vel leikin. Aukamynd Chaplin baðstaðinn Sprenghlægileg mynd. Erl. simfregnir Kböfn. 13. júli. Sjóliðsmaður drýgði um daginn sjálfsmorð vegna óánægju með for- ingja í sjóliðinu. Hann var jarðaður i dag og í því tilefni safnaðist sam- an á strætum Kiupmannahafnar múgur og margmenni, til þess að mótmæla herskyldu. Khöfn, 15. júlí. Henderson, verkmannaforinginn enski, álitur að nú sé fært að halda alþjóðafund jafnaðarmanna. Jafnað- armenn Miðveldanna svara friðar- ávarpi jafnaðarmanna bandaþjóðanna vingjarnlega. Frá Prag er símað að Czeckar krefjist fullkomins fullveldis. Frá Berlín er símað, að banda- tnartnaherinn sæki fram suður á bóginn frá Murmanströndinni og hafi náð Koh á sitt vald. »Algermauir* lýsa óánægju sinni yfir ræðu Hertlings (um endurreisn Belgiu) og vilja hafa »samvinnuf við Belgiu í stjómmálum* og fjár- málum. Frá Moskva er símað að upp- reistin í Petrograd hafi verið bæld niður. Czeckoslavonar hafa náð Kasan á sitt vald. Fulltrúaþingið rússneska hefir ákveðið að koma á herskyldu. Khöfn, 15. júli Frá París er simað kl. 9 í kvöld að Þjóðverjar hafi eftir ákafa stór- skotahríð hafið áhlaup í morgun milli Chateauthierry og Maindemas- signes. — Bandamenn veita sókn- inn viðnám á 80 kllómetra svæði. Orustunni er enn haldið áfram. Frá Berlin er simað að Frakkar hafi gert útrás fyrir suðvestan Ypres. Sendinefndin. Það fer nú að líða að því að danska sendinefndin hverfi héðan og haldi heim á leið. Störfum hennar er lokið að sinni, en heima í Dan- mörku eiga allir nefndarmennirnir þýðingarmiklum störfuWi að gegna, sem þeir geta eigi verið frá lang- vistum. Um samningafrumvarpið, sem nefndirnar hafa gert með sér, er ekki kunnugt. Það verður eigi birt fyr en Danir eru komnir heim og þá samtímis i báðum ríkjum. Þá, en ekki fyr, gefst blöðunum tæki- færi til þess að ræða það. En hvernig svo sem það frum- varp er, verður að telja það lán mik- ið fyrir báða má'saðilja, að Danir skyldu senda menn þessa hingað. Vegna þess, að þeir komu hingað, hefir þeim hlotið að verða það ljóst hversu ólíkar þjóðir Danir og ís- lendingar eru að mörgu leyti. Og hvernig sem alt er, þá hafa þeir þó hlotið að finna það, að þeir eru hér í framandi landi. Þetta er einmitt heppilegt fyrir af- drif sambandsmálsins, því að það er ofur eðlilegt, að Danir, sem aldrei hafa komið hingað, geri sér algerlega villandi hugmyndir um íslenzku þjóðina. Það er heldur eigi von á öðru. En þótt viðdvöl þessara manna hafi orðið stutt hér, þá ef- umst vér eigi Um það, að þeir hafi nú glöggari skilning á því hvers vegna Islendingar þykjast réttbornir til sjálfstæðis, heldur en þeir mnndu hafa haft, ef sendinefnd hefði farið héðan til Danmerkur. En einmitt þetta: Þekkingarskortur Dana á Is- landi og Islendingum yfirleitt, hefir löngum orðið verri þrándur í götu sjálfstæðismíls vors, heldur en ósann- girni af Dana hálfu. Það munu allir vona, að sam- bandsdeilan verði jöfnuð fyr eða siðar. Og samningatilraunir þær, sem nú hafa fram farið, eru fyrsta sporið í áttina til þess. En þegar farið verður að byggja á þeim meg- in grundvelli sem nú hefir lagður verið, þá verður það auðveldara vegna þess að dönsku nefndarmenn- irnir komu til vor. Vér getum því með góðum huga þakkað þeim fyr- ir komuna. Til Vífilsstaða fer bifreið fyrst um sinn hvern þriðjn-, fimtu- ogsunnu- dag kl. 11 frá Breiðabliki. Farseðlar verða að kaupast þar. Aukaferðir veujulega kl. 2.) St. Einarsson. Gr. Slgurðsson. Simi 127. Slmi 581. Gott orgel óskast til leigu. Ritstj. vísar á. Kaupirðu góðan hlut Smurningsolia: Cylinder- & Lager- og 0xulfeit| Hafnarstræti 18 mundu hvar þú fekst hann. erE áreiðanlega ódýrastar og beztar hjá Sigurjóni Simi 137. hvöíd kí. 9 keppa Tram og Vaíur !

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.