Morgunblaðið - 26.07.1918, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 26.07.1918, Blaðsíða 1
Föstudag 26. jtaí 1918 H0R6DNBLÍDI0 5. argangr 259. tðl«sb?að Kítstjórnarsitni nr. 500 Ritstjóri: Vilhjiltnnr Finsen í saíoldarprer 15 rn iójs Afereiðslnsimi nr. 500 Erl. simfregnir (Frá fréttaritara Morgunhl.). Khöfti 23. júlí. v. Frakkar hafa hafið áhlaup á ný hjá Marne og hjá Aisne. Italir hefja sókn i Albania og hafa þegar handtekið 2000 fanga. Frá London er simað að skip White Star-linunnar >}ustitia* hafi ■verið kafskotið fyrir norðan írland. Verkfall stendur yfir í hargagna- verksmiðjuuum í Coventry. Síldveiðin. Frá Siglufirði var Morgunblaðinu simað í gær, að var væri enn eigi farin að veiðast nein sild og væru, þó skipin að reyna. En tíðarfar er ilf og kuldar miklir á öllu Norð- urlandi. Frá ísafirði var oss simað i gær, að þar hefði ekkert veiðst tvo sið- t>stu dagana. Hefir verið stormur úti fyrir og eigí fært bátum, en i Skutulsfirði sjálfum hefir verið dágott veðnr. ðlikill klabi í jörðn enn. Stykkishólmi í gær. Vestur á Fellsströnd var nýlega 'verið að girða tún og var grafig fyrir staurum. Við það kom j ljós, að mikill klaki var enn í jörðu. Voru mældir 10 þumlungar ofan að klaka, þar sem grynst var, en ein alin þar sem dýpst var. Allar líkur eru til þess að klaki verði i jörðu 3lt þetta sumar, eins og suma ið eftir ha’ða veturinn (1880—1881). Grasspretta er sögð afarlitil alstað- ar á Vesturlandi og tún sumstaðar tæplega sláandi. Tjörnesnáman. í henni er, svo sem kunnugt er, unnið i sumar, en það mál var af- greitt frá þinginu á þaon veg, að ef ekki borgaði sig að reka þar kola- gröft i sumar, þá skyldi landssjóður láta hætta þar vinnu á landsins kostnað. Landsverkfræðingur Geir Zoéga er nýkominn þaðan að norðan land- veg. Hann tjáði oss í gær, að vinn- an gengi þar sæmilega vel. Þar mundu vera um 15 manns i vinnu nú sem stendur undir duglegri stjórn þeirra Olssons hins sænska og Jón- asar Þotsteinssonar verkstjóra. Ols- son mundi bráðlega fara þaðan, lík- lega næst með Sterling, og er áætl- að að senda hann til Vestfjarða til leiðbeiningar i kolanámum i Stranda- sýslu, ísafjarðarsýslu og viðar. Landsverkfræðingurinn kvað kola- tegundina verða lakari þvi innar sem kemur í lagið. Eigi kvaðst hann geta sagt um, hve miklum kolum yrði náð úr námunni í sumar. . Brúargerð. Blönduósi í gær. Brúargerðin yfir Austurós Héraðs- vatnanna gengur mæta vel. Búist við þvi, að hún verði fullger innan skamms. Þá verður og 'bráðlega byrjað á annari brú úr járnbendri steinsteypu á Vatnsdalsá milli Hnaosa og Sveinsstaða í Húnavatnsýslu. — Mikil samgöngubót er að brúm þess- um, þvi að vötn þessi eru oft ill yfirferðar. Erindrekastarf mitt. Þeim til athugunar, sem trúðu þingræðu hr. alþm. Pjeturs Otte- sen 15. júnís. 1., er fjallaði um kostnaðarreikning fóns Sivertsen fyrv. erindreka landsstjórnarinnar i Vesturheimi. J. S. Þegar eg fór til Vesturheims i fyrravor, sena erindreki landsstjórn- arinnar, mátti auðvjrag búast við þvi að eitthvað yrði sett ht á þá stjórn- arráðstöfun, eins og flestar aðrar. Eg gerði þó hálfvegis ráð fyrir; að þetta yrði látið óátalið, þar til þag kæmi i ljós hversn eg leysti starfann af hendi. En því var ekki að heilsa. Eg hirði ekki um, að svo stöddu, að svara smáglósum þeim, er sum blöðin hafa flutt og liklegt er að gengið hafi hér manna á milli, en eg hefi hugsað mér, áður en lýkur, að skýra frá starfi minu í Vestur- heimi, ástandinu þar, annmörkum öllum og hverju eg fékk til leiðar komið — og færa rök fyrir. Má þá þjóðin dæma um það sjálf hversu eg leysti starf mitt af hendi og hve ánægjulegt það er að hljóta að laun- um alt að ærumissi. Sem betur fer er eg ekki hörund- sár, en ofmikið má af öllu gera, og þegar sjálfir alþingismennirnir hafa gert kostnaðarreikning minn að árás- arefni á stjórnina, og það á þann hátt, að við sjálft liggur, að mér sé þar beinlínis brugðið um fjárdrátt, þá get eg ekki látið ósvarað með öllu. A eg þar aðallega við þing- ræðu herra Pjeturs Ottesen, þingm. Borgfirðinga, er hann, samkvæmt frásögn sumra blaðanna, hélt 15. júní s. 1. Það sem fyrst verður fyrir, er að hann telur mig þegar hafa fengið útborgaðar tœpar 60 þúsund krónur. Þetta er ekki rétt hjá alþingismann- inum, þar sem sú upphæð, sem gengið hefir gegnum mínar hend- ur frá landsstjórninni nemur kr. S L629,06 og mundi mörgum þykja liggja nær að kalla þá upphæð rúm- ar 50 þúsundir en tæpar 60. En nú er þess að gæta, eins og alþing- ismanninum ætti að vera kunnugt, hafi hann séð reikningsskil mín, að í þessari upphæð er fólginn skrif- stofukostnaður, sem víða er minni en 1 New York, símskeytakostnaður, sem heldur er ekkert smáræði, sund- urliðaður ferðakostnaður á sjó og landi, og það ætti alþingismaðurinn að geta sagt sér sjálfur, að húsaleiga í New York og Washington er góð- um mun hærri en á Skaganum eða jafnvel I Reykjavík sjálfri, en þó get eg sagt alþiogismanninum það, til harmaléttis, að eg bjó í New York allmikið ódýrara en ætlast var til I fyrstu og ekki líkt því eins dýrt og flestir búa, þeir er gegna samskonar störfum og eg gegndi. Eg hefði og ef til vill getað búið ódýrara nokknð, hefði .eg Ieigt mér húsnæði til lengri tima — þó ekki hefði verið nema til hálfs árs — en það gat eg, þvi miður, ekkí, sökum þess hve alt var óákveðið um veru mína þar. Það sem alþingismaðurinn kallar reikning »fyrir mat og þjórfé* er ekki einungis reikningur fyrir mat og þjórfé, heldur og risnu, þjónustn alskonar, simasamtöl innarr bæjar og utan og akstursgjöld, þvr”þó fjar- lægðirnar sén ekki stórar í New York, getur það oft orðið tafsamt að fara labbandi. Hér við bætast ritföng allskonar, burðargjöld og þess- háttar, sem alþingismanninum ætti að vera kunnugt um af reikningnum að ekki var talið til aðalskrifstofu- kostnaðar og mætti þannig halda áfram að telja upp, en það sem hér er nefnt ætti að nægja til að sýna — mildast sagt — ónákvæmni þing- mannsins. Þá vil eg geta þess, ófróðum til upplýsingar, að í allflestum tilfellum má ekki reikna dollarann yfir krónu- virði, og mun það reynsla flestra héðan, er dvalið hafa í New York og þori eg óhræddur að leggja það undir þeirra dóm. T. d. má reikna morgunkaffi (Breakfast) 75 cents, hádegisbitann, eða það sem alment er kallað »Lunch«, $ 1,50, miðdeg- isverð (Dinner) $ 2,50, te að kveldi til 7S cents, pressun á fötum, þvott og aðra þjónustu má telja að minsta kosti 2—3 dollara á dag, þegar búið er á góðum gistihúsum. Símasamtöl kosta 10 cents -innanbæjar í hvert skifti o. s. frv. Þjórfé má ætíð reikna 20% af öllum mat og þjón- ustu (service). Sést á þessu, að 16 dollarar á dag mun tæpast ofreikn- að fyrir alt, sem hér hefir verið talið upp, og að ofan, til daglegs kostnaðar. Til þess að gera árás sína sem áhrifamesta, hefir herra Ottesen al- þingismaður gefið gersamlega ranga skýrslu um dvöl prófessors Friðþjófs Nansen í Vesturheimi. Hvort það hafa verið visvitandi ósanuindi, sem hann fór með, eða hvort einhver gárunginn hefir talið honum trú um þelta, getur alþingismaðurinn sagt um sjálfur. Hann hélt því fram, að prófessor Nansen hefði dvalið í Vesturheimi í eitt 0% hálft ár, en það vill svo til, að mér er kunnugra um þetta en alþingismanninum, þar sem eg var einmitt staddur í Washington, þegar prófessor Nansen kom þangað sem formaður fyrir sjö manna sendi- nefnd Norðmanna, og ætla eg það hafi verið i ágúst síðast heldur en í septemberbyrjun s.l., og sagður var próf. Nansen farinn heimleiðis nokkrn áður en eg fór frá Vesturheimi, og svo var að minsta kosti tilætlast, veit eg. Á þessu má sjá, að alþingismað- urinn ruglast aftur í tölunum, því að nær liggur að telja dvöl próf. Nan- sen i Bandarikjunum hálft ár ejj hálft annað. Hefði prófessor Nansen dvalið i Vesturheimi i ii/2 ár, næði þessi 30 þúsund króna kostnaðarreikningur, sem alþingismaðurinn talaði um, auð- vitað ekki nokkurri átt, og mér er •nær að halda, að allur kostnaður við Hafnarstræti 18 Simi 137. ^aupfrðu göðan hlut mundu hvar þú fekst hann. Smurningsolia s Cylinder- & Lager- og 0xulfeit! eru áreiðanlega ódýrastarog beztar hjá' Sigurjónl

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.