Morgunblaðið - 30.07.1918, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.07.1918, Blaðsíða 1
I»riðjudag júlí 1918 5. argangr 263. tölnbiað Rustjórnarstnii nr. 500 Ritstjóri: Viihjáimur Finsen ísafoidarprent —ið'js Afpmðsiusimi nr. 500 Gamla Bió Banatilræðið við ráðherrann. Anarkistasjónleikur í 3 þáttum. Mynd þessi er falleg, viðburða- rík*og sérlega vel leikin. ÍC a n'ad a h e r I tð i ð f *. S a K! J|§ í Frakklandi. Erl. simfregnir (Frá fréttariiara Mnrgunbl.). Khöfn 28. júlí. Frakkar hafa nú algerlega náð aft- ur hinum gömlu vigstöðvum sínum í Champagne. Manneklu er tekið að verða vart i her- Þjóðverja. Bandamenn hafa brotið mótstöðu Þjóðverja milli Ourcq og Marne á bak aftnr Og fylgja sigrinutn eftir. Deilur Búlgara og Tyrkja magnast. ■ Fyrv. forsætisráðherra og hermála- ráðherran í Ukranie hafa verið hnept- ir i varðhald. 9 Isiandsmál i Danmörku. Khöfn 28. júlí árd. Politiken talar um hinar stuttu at- faugasemdir ihaldsmanna cg óbeint lof þeÍTra nm sendimennina. Blaðið segir, að langt sé síðan nokkur flokkur hafi sýnt jafn hörmulegt merki um stjórnmálalegt getuleysi og ihaldsmenn nú, þar sem þeir hafi neitað að taka þátt i samningum vegna þess hve viðfangsefnið v.ir flðkið og óvLt um árangur, Social- demokraten og Hovedstaden mæla eindregið fram með frumvarpinu. Kristeligt Dagblad heldur þvi fiam að sameiginlegu málin ;sén enn þá ■of mörg. Vort Land mjög hrygt. Köbenhavn segir að ekki sé hægt að taka ljósara fram en gert sé í frumvarpinu, að rikiseiningin sé rof- in. Dagens Ekko segir að stefna Skúla Thoroddsens hafi meir en unnið sigur. Island verði fjórða ríkið á Norðurlöndum. Dagens Tjyheder segja, að ekki sé mikill raunveruiegur munur á nýja frum- varpinu og gamla frumvarpinu (1908). Dönsku nefndarmennirnir leggi áherslu á það að íslendingar hafi samþykt jafnrétti þegnanna og því geti Danir öruggir samþykt samn- inginn. Khöfn 28. júli síðd. Socialdemokraten segir að dansk- íslenzki samningurinn ætti að verða ófriðarþjóðunum fyrirmynd, þegar til friðarsamninga kemur. Knud Berlin er tekinn að rita í Köbenhavn í sama anda og áður. Siidin á Siglufirði. Þær góðu fréttir komu frá Siglu- firði í gær, að þar er kominn land- burður af síld og gengur hún upp undir iandsteina, svo að skamt er að fara eftir henni og ósköpunin öll að gera. Skip og bátar hafa komið inn með hlaðafla og horfurnar ágætar, ef gott veður helzt. Ef stutt verð- ur að sækja síldina, eins og nú, þá má búast við, að ekki hafist undan að silta. Það er mikið unnið á Siglufirði nú, nætur og daga Og gleðl og fjör yfir öllu. Rotturnar. Þær eru að verða hreinasta plága í bænum. Á hverju kvöldi sjást rottur á hlaupum í tugatali niður við geymsluhúsin á uppfyllingnnni, sum- ar á stærð við væna ketlinga, og rllir kjallarar og mörg hús i bæn- um erét »full af rottum*. Eru þær sumar orðnar svo spakar, að þær hræðast ekki fólk sem gengur rétt hjá. Það verður að fara að gera eitt- hvað til þess að útrýma þessum dýr- um, sem gera afsknplegt tjón á vör- um Og húsum. En auk þess tjóns sem rotturnar gera, eru þær einnig mjög hættuleg dýr, því þær flytja með sér allskonar smitandi sjúkdóma. Erlendis verja ríkin, bæjarstjórn- irnar og ýmsar stofnanir stórum fjárupphæðum árlega til útrýmingar á rottum. Það er eitrað fyrir þær og þær eru veiddar í gildrur alstað- ar þar sem því verður við korrið. Eru gefin verðlaun fyrir hverja rottu, sem veiðist og hefir það ráð gefist vel. Eitthvað má til að gerast til þess að útrýma rottum hér. Það þarf að byrja alment stríð gegn rottunum — og það ætti 'að byrja þegar i stað. Síldveiðin. ísafirði í gær. Bezta veður hér nú og ágætur afli. Margir bátar komu inn í morg- un með 200—400 tunnur af síld hvor. Útlit ágætt ef veðrið helzt, því næg síld er uti fyrir. Skipið »VioIa« er á leið til Reykja- víkur til þess að sækja vörur. Símaniaður bjargar skipi. Á fundi Marconi-félagsins í Lon- don var skýrt frá því, að loftskeyta- maður nokkur hefði bjargað skipi með hugprýði sinni, en sjálfur látið lífið. Skipið var um 140 mílur undan iandi, þegar kafbátur réðst á það með skothríð: Loftskeytamað- urinn stóð í símaherberginu og komst í samband við stöð á landi meðan skothríðin stóð sem hæst, og hafði skipstjórinn þó ráðiagt hon- uni að forða sér. Lika náði hann sáhnbandi við herskip frá Bandarikj- unum, en rétt á eftir þaut kúla gegnum klefa hans og varð honum að bana. Honum hafði aðeins enst tírni til að taka við skeyti nerskips- ins áður en hann dó, og það skip kom i tæka tíð til þess að bjarga hinu. Frá vesturvígstöðvunum Þau tiðindi, sem orðið hafa á vestur- vigstöSvunum þessa siðustu viku, meiga heita mjög merkileg. Sókn Þjóðverja hefir eigi að eins stöðv- ast með öllu, heldur hefir aðstaðan breyzt svo, að Þjóðverjar eru á undan- haldi og áköf sókn af hálfu banda- manna. Þegar Þjóðverjar hófu siðustu sókn- ina, var alment búist við því, að nú ætluðu þeir sér að gera siðustu til- raunina til þess að komast til Parisar. Þeir mundu stauda nokkuð öðru- vísi að vígi þegar til friðarsamninga kæmi, ef þeir þá hefðu hina ríku og fögru höfuðborg Frakka á sinu valdi. En það gefrn að skilja að Frakkar og bandamenn þeirra voru eigi að- gerðalausir milli sókna Þjóðverja. Þeir tefldu fram óhemjuliði tii varn- ar höfuðborginni. Ameríkumenn komu í tuga þúsunda tali á degi hverjum til Frakklands og mun það hafa riðið baggamuninn. Það er ekki unt að svo stöddu að segja neitt um það hve langt Þjóðverjar verða reknir aftur í þess- ari sókn bandatnanna. En samkvæmt skeytunum þá eru þeir þegar komn- ir töluvert langt austur fyrir þær .Nýja Bld. Prógram samkvæmt göfuaugí. stöðvar, sem þeir höfðu tekið í sókn- inni á undan. Varalið þeirra er mik- ið farið að minka og að öllum lík- indum hugrekki hermannanna einnig. Það er ekki ósínnilegt að búast megi við miklum tiðindum frá vestur- vigstöðvunnm næstu daga. Síðustu símfregnir. Khöfn 29. júlí. Frá París er símað að Frakk- ar séu komnir að Ourcq og að veginum milli DormansogRheims. Það er búist við því að Þjóð- verjar muni halda undan alla leið að Vesle. Burian hefir lofað Pólverjum því að samþykkja ekki Ukraine- ófriðinn. Búist við orustum á hverri stundu milli Þjóðverja og banda- mannaliðsins á Murmanströndinni- Blöð afturhaldsmanna í Dan- mörku eru ekki sammála um sambandssamninginn. Eru »Vort Land« og »Dagens Nyheder« ósammála um ýms atriði. Kona Míchaels stórfursta handtekin. Frá Moskva var dönskum blöð- um símað nýlega, að kona Michaels stórfursta bafi verið tekiu höndum í Moskva. Réðust »rauðliðar« inn í herbergi frúarinnar og höfðu hana á burt með sér. Kona M’chaels er dóttir þektasta málfærslumannsius í Moskva. Var hún fyrst gift lögreglustjóranum i Petrograd, en skildi við hann og giftist stórfurstmum. Varð Nikulás keisari svo reiður út af því, að hann rak Michael úr landi, en þeir sætt- ust eftir að ófriðurinn hófst.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.