Morgunblaðið - 31.07.1918, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 31.07.1918, Blaðsíða 1
Miðvikud. 5. argangr 3L jillí 1918 MORGDNBLADID 264. tðiublað Rirstjórnarsimi nr. 500 BanatilræðSð við ráðherrann. Anarkistasjónleikur í 3 þáttum. Mynd þessi er falleg, viðburða- rik og sérlega vel leikin. Ganatíaherliðjð í Frakklandi. Mótekja bæjarins. Þrátt fyrir afskaplega slæman árang- ur af mótekju bæjarins í Kringlu- mýrinni í fyrra, var samt ráðist í að halda fyrirtækinu áfram á þessu sumri. Lét borgarstjóri gera allan undirbún- ing þegar snemma í vor og hafin vinna þar innfrá í miðjum maí. Vér áttum kost á því í gær að skoða þetta mikla fyrirtæki bæjar- sjóðs og sjá árangur vinnunnar í sumar. Bauð borgarstjóri nokkrum blaðamönnum með sér inn í mýri og sagði þar frá því sem gerst hefði siöan i VOr. í fyrra var, svo sem kunnugt er, grafinn skurður um endilanga mýr- ina. Var tekinn nokkur mór úr skuiðinum um leið, en aðallega var þetta þó gert til þess að þurka mýr- ina og gera mótekju þar auðveldari siðar og móinn betri. í nánd við skurð þenna lét borgarstjóri stinga móinn í vor. Var hann tekinn úr 1050 kistum, sem svo eru nefndar, hver álnir að stærð. En kist- urnar mynda allar saman eina helj- arstóra mógröf, á að gizka um 3 dagsláttur að stærð. Úr þessari gröf mun hafa náðst samtals um 2500 smálestir af þurrum mó, af virkilega góðu eldsneyti, í mótsetningu við þann leir og þá mold, sem selt var bæjarmönnurn i fyrra undir nafninu mór. Verkstjórn þessa mikla fyrirtækis hefir Guðmundur Þórðarson haft á hendi í sumar og sannfærist maður fljótt um það, að honum hefir farist það ágætlega. Hann hefir látið taka móinn mjög vandlega,' látið kasta frá öllu því, sem leirblandað var að biun eða hitalitið eldsneyti, en gert sér far um að velja móinn sem allra beztan. Sumstaðar hefir hann látið kasta á burt fimm efstu stungunum *f þvi að dálitill leir var í því jarð- lagi, en i fyrra létu menn sér nægja að kasta tveim fyrstu skóflustung- unum. Víðast hvar hafa verið stungnar 14—15 stungur niður í lörðu, en þess þó vandlega gætt, að slæmur mór væri ekki tekinn með. Það má fullyrða, að fyrirtækið hafi Ritstjón: Vilhjálmur Finseu á þessu sumri lánast mjög vel og að mórinn er mikhi betri i ár en i ývrra. Nú er það eldsneyti, sem tekið hefir verið upp úr Kringlu- mýrinni, en í fyrra var það leir og mold og aðeins einstaka köggull af % góðum mó. Nú sem stendur vinna í Ktinglu- mýrinni um 100 manns, rnest kven- fólk og börn. Er mórinn að mestu þur og nokkuð hefir þegar verið flutt til bæjarins, þeim sem pantað hafa. En það er óhemja eftir handa þeim, sem mó vilja kaupa. Enginn vafi getur verið á því, að ódýrasta eldsneytið á þessum tímum er qóður mór. Það er ekki að búast við því, að menn alment muni geta brent kolum í vetur fyrir 300 kr. smálestina, og menn gera það ekki þegar hægt er að fá ágætan mó hjá bæjarstjórninrý fyrir 45 kr. smálest- ina núna. Núna, vegna þess, að það má búast við því að hann verði seldur nokkuð hærra verði eftir að bæjarsjóður hefir orðið að sjá um geymslu á honum fram á haust eða vetur. Það er þvi ráðlegra fyrir fólk að panta móinn þegar i stað og fláta flytja hann heim. Geymslan er dýr. Borgarstjóri er að láta gera tvo skála úr grjóti og torfi, og þar verður óseldi mór- inn geymdur. En þess er að vænta, að bæjarmenn láti flytja heim eins mikið og þeir hafa húsrúm fyrir áður en haustið kemur. — Hvað hyggið þér að þessar 2500 smálestir muni kosta bæinn, spurðum vér borgarstjóra. — Það veit eg ekki enn. Út- gjöldin hingað til nema um 70 þús. kr., en það er mikið eftir ógert enn- þá. En það fé hefir ekki alt farið í sjálfa, mótökuna, heldur í alskonar undirbúning. T. d. þessir vegir hér hafa allir verið gerðir i sumar. Og borgarstjóri bendir á vegina og akbrautirnar, sem liggja alstaðar þvert og endilengt um mýrina. Þeir voru nauðsynlegir vegna flutninga á mónum. Vér stöndum á holtinu fyrir aust- an mýrina og horfum út yfir vinnu- svæðið. Alstaðar standa mónrauk- arnir og bera þess merki, að unnið hefir verið af kappi í sumar. Um sléttar og breiðar brautir aka mó- vagnarnir í sífellu, kvenfólk tneð mislitar svuntur og hvíta klúta um höfuðið, eru að hrauka þurra móinn, börn og nnglingar hjálpa til og bera móinn á milli. Hver hefir sitt ákveðna starf með höndum, 0g borgarstjóri 0g verk- stjórinn líta eftir. Stjórnsemi og starfsemi er nauðsynleg við slík fyrir- tæki ef þau eiga að lánast og mað- ur þarf ekki að dvelja lengi f Kringlu- mýrinni til þess að sannfærast um það, að mótekja bæjarins er nú í ágætu lagi. ísafoldarprentsmiðja — Hvað verður nú gert við það land íramvegis, sem mórinn hefir verið tekinn úr, spurðum vér borg- arstjóra. Mógröfin ein er stærri en allur Austurvöllur, jörðin þar sund- urgrafin og svört, svo lítil prýði er að. En fyrir framtíðinni hefir líka verið séð. — Þetta látum vér alt slétta og fylla, segir borgarstjóri. Og svo ætlum vér að sá grasi þar á eftir. Fyrst tekur bærinn alt það elds- neyti úr jörðinni, sem unt er að ná i. Síðan ræktar hann mýrina og gerir hana að einu stóru, fögru túni. Erl. simfregnir (Frá fráitaritars Morgunbl.). Khöfn, 29. júlí, síðd. í kvöld segja Nationaltidende, að þrátt fyrir allar yfirlýsingar, allra danskra flokka, þá skilji sambands- lögin ríkishlutana. Frakkar hafa náð Forfitardenois, og hafa sótt fram 7 kilómetra á 40 kílómetra svæði og hafa farið yfir Ourcq. Þjóðverjar hörfa undan skipulega. Verkfallinu í hergagnaverksmiðj- um Englands er lokið. ' 1 1 ■ 1 Síldin á Siglufirði. Siglufirði i gær. Sildveiðin hér er mikið að glæð- ast. í fyrradag komu inn þessi skip og hafa alls aflað sem hér segir: Hrafn 180 tunnur, Skalli 2S3, In^ólýur 330, Kjartan Olatsson 489, Svanur 720, Ása 32, Freyja 127, Nanna 130, Stella 800, Lottie 400, Bára 350 og mörg önnur skip 2300 tunnur. Austanstormur var í gær og þoka úti fyrir. Að efns örfá skip hafa komið inn síðan hvesti. Þorskafli er tregur upp á síðkastið. 5. K. 280 krónum stolið. í fyrrakvöld um kl. 6^/2 var 280 krónum í peningum stolið úr mótorbát, sem lá við steinbryggj- una. Afgreiðslusimi nr. 300 &ssmsm*Nýja Bíi)«h Braskararnir Sjónleikur i 3 þáttum. Afbragðs vel leikinn. Myndin sýnir þrælmensku- brögð og ódrengskap tveggja óhlutvandra manna í garð fé- laga sins, og fögur eiginkona og ungur sonur hans gjalda. En upp koma svik um síðir. Þrautirnar endurgjaldast í ást og umhyggju endursameinaðra ástvina. Maður, sem á bátnum er, var þar við vinnu, hafði farið úr jakk- anum og látið hann á þilfar báts- ins. Síðan gekk hann eitthvað frá um dálitla stund, en þegar hann kom aftur og fór í jakkann voru peningarnir horfnir úr vas- anum. Maðurinn var á mótorbátnum »Haukur frá Vatnsleysuströnd. Ekkert hefir komist upp um hver peningunum hefir stolið en lögreglan hefir nú fengið málið til meðferðar. Dáinn úr blóðeitrun. Siglufirði í gær. Nýdáinn er hér ungur efnilegur maður úr blóðeitrun, Sigþór Magnús- son bókhaldari hjá »hinum samein- uðu Islenzku verzlunum*. Fékk dálitla bólu aftan á hálsinn, reif ofan af henni, en eitrunin hljóp í sárið. Tveim dögum siðar dó Sigþór. Hann var mjög vel liðinn maður og mörgum harmdauði. Ný tegund skipa. í Boston hafa tilraunir verið gerð- ar til að smíða báta, sem ekki verð- ur sökt. Þær hafa tekist svo vel, að sérstök skipasmíðastöð verður reist þar til þess að smiða stálskip, sem ekki verður sökt. Stærð þeirra er ákveðin 4200 smálestir og eru sérfræðingar á einu máli um, að kafbátar fá eigi sðkt þeim. Það hefir og verið ákveðið, að smíða þar steinsteypuskip til flutn- inga, sem beri 7500 smálestir. Bannað er nú að selja gufuskip, stærri en 100 smálestir, úr Banda- rikjunum. En heimilf er útlendum félögum að láta smiða seglskip hjá skipafélögum Bandarikjanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.