Morgunblaðið - 18.11.1918, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.11.1918, Blaðsíða 1
Mánudag 18. uov. 1918 0R6UNBLAÐID 6. argangr 8 tölublað Ritstjóri: Vilhjálmor Finsen ísafoldarprentsmiðja Afsreiðslnsitni nr. 500 Ritstjórnarsimi nr. 500 Viðtal við LArus H. Bjarnason prófessor. Það mnn óhætt að fullyrða það, að nefnd sú sem land.tjórnin skip- aði 9. þ. m. til þess að veita nauð- stöddum íbúum bæjarins bjálp vegna infiuenzunnar, hefir unnið bæjaifé- laginn ómetaalegt gagn. Það er áreiðanlegt, að skrifstofan í Bruna- stöðinni hefir bjargað mörgum manns- lífum og oss er nær að ætla að al- drei háfi verið gerð rfðstöfun á þessu iandi, sem svo vel hefir lán- ast, sem þessi. Sem betur fet er sjúkdómurinn mikið í iénun, sagði professor L. H. B. í gær, er vér hittum hann á skrifstofunni. Hann sat þar við stórt borð, þakið skjölum og miðum, önnum kafinn við líknarstarfið. Bænum skitt í deildir. — Við byrjuðum á því að skifta bænom i 13 deildir og var einn eftirlitsmaður fyrir hverja deild, er gekk i ö!l húsin i þvi hveifi. Gaf hann síðan skýrslu til skrifstofunnar um ástandið á heimilunum. Næsta dag horfði til vandræða með brauðabökun í bænum. Skriístofan bjálpaði bökurum um aðsroð, svo hægt var að halda áfram nð baka. Sama dag var ráðinn nætarlæknir á skrifstofuna, sem vitjaði sjúklinga er tilkynt hafði verið um. En á dag- inn hafa læknaskólanemar jafnan verið til taks á skrifstofunni. Bifreiðar hefir skrifstofan i sinni þjónustu eins margar og kostur er á. Hafa læknarnir hver sina bifreið til nm- ,ráða, yfirsetukonur aka í bifreiðum um bæinn, og sjúkt fólk er flutt á spitala og milli húsa i bifreiðum. Flýtti það mjög fyrir hjálpinni. Sjúkrahúsiii. Bærinn hafði tekið franskr spi- talann á leigu, en hann fyltist brátt af sjúklingum. AUmargir voru fluttir á Landakotsspítala, en það dugði ekki samt. Var þá það ráð tekið, að útbúa kenslustofur Barna- skólans til sjúkrahjúkrunar, og kl. ix í gær höfðu 67 menn verið fluttur þangað, en 16 dáið. Má það heita mjög lítið, þegar tekið er til- lit til þess, að þangað voru fluttir að eius sárþjáðir menn. Sjúkrastof- nrnar eru bæði uppí og nið i, og er Þórður læknir Sveinsson þar yfir- læknir. Prófessorsfrú Bjarnhéðins- son hefir tekið að sér yfirumsjón hjúkrunarliðsins. Eru þar 3 lærðar hjúkrunarkonur, auk margs annars fólks, og mun þar nú vera nægi- legur mannafli. Ráðsmaður niðri er Ágúst Jósefsson heilbrigðisfulltrúi, en uppi Einar Pétursson kaupæ. Er það i meira lagi þrekvirki að útvega og búa upp að öllu svo mörg sjúkrarúm á svo skömmum tima. Hefir Jensen-Bjerg, eigandi Vöru- hússins, góðfúslega lánað fjölda rúma úr verzlun sinni, sem til allrar ham- ingju vrr vel birg af þetm hlutum. Aðbúnaður allur og hjúkrun er í a!lra bezta ]agi i Barnaskólanum, til sóma fyrir alla þá, sem að þvi starfa, I kjallaranum er eldhús sjúkra- hússins. Þar erráðsmaður Garðar Gisla* son stórkaupm. Er þar eldaður matur hauda öllum sjúklinguuum Og starfs- fólkinu, en auk þess hefir fólk utan ú' hæ veriðgefið þar hafraseyði handa sjúklingum, og geta bágstaddir sótt mat þaugað fyrst um sinn. Er orð á því haft meðal þeirra sem starfað hafa að liknarstarfi þessu, hve ágæt- ur liðsmaður Garðar Gíslason hafi verið A skrifstofunni i Brunastöð- inni er hann aldrei nefndur annað en »hjálpirhellan«. Þar sem aðrjr hafa staðið ráðalausir með útveguu á ýmsu til stofnunariunar, gat G. G, æfinlega haft upp á hlutunum. — Ráðskona er Steinunn Jónsdóttir. Baruahæli. I dag verðui sett á stofu í Barna- skólanum barnahæli. Er ætlunin að veita þar viðtöku umhirðuiausum börnum, hjúkra þeim og gæta þeirra meðan foreldrarnir eru sjúkir. Er megn þörf á þessari deild. Fjölda mörg börn eru i vanhirðu vegna þess að enginn er til að gæta þeirra heima. Sum hafa mist bæði föður og móður og eiga engann að. Menn geta ef til viil bezt sannfærst um þörfina er þeir heyra, að á einu heimili eru 7 börn hjá sjúkri móður. Sumstaðar v.ldu foreldrarnir ekki láta flytja sig á spítala nema börnin fengju að koma með. í einu húsi var komið að konu látinni í rúmi sinu, en tvö unpbörn láu fyrir ofan haria í rúminn, og faðirinn dauð- veikur með óráði í öðru rúmi i herberginu. Engin orð fá lýst þeirri eymd sem rikir á mörgum heimilum bæjarins þessa dagana. En þetta barnahæli getur mikið bætt ástandið. Ráðsmaður barnahælisins er Johu. Fenger stórkaupm., en Sigur- borg Jónsdóttír er þar ráðskona. Auk þessa aðalstarfs hefir hjúkr- unagnefndin unnið að mörgu öðru. Að hennar tilhlutun mun stjórnar- ráðið hafa símað til Khafnar eftir meðulum, sem vonandi koma hing- að með Botniu næst. Meðul hafa verið sótt til Hafnarfjarðar, þegar skortur var orðin hér og skrifstofan lét útbýta meðulum, dósamjólk og haframjöl til bágstaddra. Um 1000 krónur í peningum hefir hún hjálp- að mönnum um sem bráðabirgða- án auk fátækrastyrks, sem borgar- stjóri hefir látið úti. Steinolíuúthlut- un hefir farið íram i geymslu- húsi Steinoliufélagsins við Amtmanns- stíg. Lögreglan hefir verið látin sjá um flutning á likum í likhúsiu, sem öll eru orðin full, og nýr skúr reist- ur í kirkjugarðinum fyrir fleiri lik. Og þá er ein ráðstöfun enn, sem er mjög mikihverð. Bærinn hefir verið fisklaus. En fyiir tilstilli hjúkr- unarnefndarinnar hefir h.f. Kvelúlfur lofað að senda botnvörpung á fisk- veiðar og láta aka fiskinum um bæinn handa sjúkum. Eggert Briem frá Viðey hefir boðist til f ess að sjá um útvegun á allri mjólk til spítalans í Barnaskól- anum. Fimm læknanemar hafa verið löggiltir sem læknar, 2 simar hafa verið lagðir í Barnaskólann (John Fenger hefir lánað sinn einkasíma), og ýmsum öðrum ráðstöfunum hefir hjúkrunarnefndin komið í kring. Prófessor L. H. B. kvaðst eigi nógsamlega geta þakkað starf hinna mörgu sem aðstoða hann. Hann kvaðst hafa tvo »vikinga« úr stjórn- arráðinu á skrifstofunni, þá Gísla Is- leifsson og Þorkel Þorláksson, og Pétur Guðmundsson, sem unnið •hefði öll störf á borgarstjóraskrif- stofunni, auk mikils erfiðis i þarfir nefndarinnar. Enginn hefði leitað til skrifstofunuar árangurslaust. T. d. hefði skrifstofan útvegað tvo menn til þess að skola flöskur fyrir lyfjabúðina, þá Kofoed Hansen skóg- ræktarstjóra og íngvarsen verkfræð- ing. Um 2000 læknabeiðnum hefði verið annað, og geta menn af því séð, hve afskaplega þörfin hefir ver- ið mikil. Meðan vér sátum og fengum þessar upplýsingar hjá prófessorn- um, varð hann að svara í símann í sifellu. Á einum stað var lik sem þurfti að flytjast i burt, eitt heimili vantaði vökumann, annað lækni, þriðja yfirsetukonu. John Fenger tilkynti að nú gæti hann veitt 10 börnum móttöku á barnahælið, og Einar Pétursson að 8 uppbúin rúm í viðbót væru til tiks í hans deild o. s. frv. En þegar einhver maður að austan kom í símann og bað um bifreið austur í Flóa — þá lagði prófessorinn heyrnartólið frá sér. Utan af landi. Inflúenzan er komin austur um allar sveitir. Samkvæmt skeyti að austan í gær, er veikin mikið út- breidd i Flóanum, er komin á nokkra bæi í Grímsnesi, á Skeiðum, i Hrepp- um og í Tungutn. Um mtnndauða getur ekkert. I Rmgárvallasýslu geisar veikin trjög utan Ytti-Ringár nema í Þykkvabæ. Sjö menn hafa dáið úr veikinni. Ekkert tilfelli enn ucdii hyjafjöllum. ..... ..... ............. ..... Veikin breiðist út. Alvarlegt ástand. Opinber afskifti nauðsynleg Kvefpestin (inflúenzan) eða ,Spanska veikin* sem sumir kalla þessa pest, hefir nú rasað hér um í þessum bæ síðasta hálfa mánuðinn, og gert mik- ið tjón, og valdið all-miklum mann- , dauða, svo að margir eiga nú um sárt að binda. Virðist veikin .hafa náð sinu há- marki hér, og vera heldur i rénun. En nú er pestin farin mjög að breiðast út i Borgarfirði, Kjósinni, Mosfelissveitinni og austanfjalls. Hefi eg fyrir satt, að veikin sé komin um mestalla Arnessýslu, austur á Land, i Holtin og uu Rangárvelli. Mér er sagt — en allar fréttir eru mjög ógreinilegar, því að fáir eru á ferð, og sfminn hefir verið fram undir þetta, lokaður öilum al- menningi, og er enn að miklu leyti — að sum heimili séu þegar alveg undir lögð, og að allir þar liggji, en engir séu færir um að sinna skepn- unum. Og það þarf ekki langt að leita, að dæmunum i þessu efni. I gærmorgun (laugardag) var svo ástatt í Gufunesi, að engin þar gat mjólkað kýrnar. Var verið að smala saman fólki hér í bænum og það sent i bíl þangað til þess að hirða þær og mjólka. Og þannig mun viða ástatt, þar sem pestin er komin eða farin að ganga. Að visu er það svo, að nágrann- arnir hjálpa hverjir öðrum meðan þeir geta. En við það breiðist veik- in út meir og meir, og fleiri og fleiri heimili sýkjast og verða ósjálfbjarga. Nú er- veðráttan — þegar þetta er skrifað, að visu góð og útifénað- ur allur á beit — En ekki er lengi að breytast veður i lofti. Og hvern- ig fer, ef alt i einu breýtist veður og gerir hríðarbylji og harðindi, en fénaður úti um alt og enginn á fót- um til þess að bjarga skepnunum. Fólkið er að leggjast og liggur i hrönnum aðhlynningarlítið, lækna- laust, svo að segja, og skepumar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.