Morgunblaðið - 30.01.1919, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ
2
J»>v
vinnumanxiinn koma inn til að iiafa
upp afkáralega vísu, sem áheyr-
cndurnir hafa heyrt áður. Mér kem-
ur það helzt í huga, að hann taki
ekki leikritið sitt jafn alvarlega og’
eg hefi gert hér að framan.
Það er vandaverk, að semja gott
leikrit; og einhver helzti ritdómari
þessa lands segir, að leikrit, sem
ekki vei’ði fundið að, sé tæplega
til.
Maðurinn, sem lék bóndann í
„Afltaugiun kærleikans“, lék iiann
mætavel og triíanlega. Sama má
segja um konuna, sem lék konu
bóndans. Hiui er oftast bergmái af
manninum sínum.Vinnukona þeirra
hjónanna, „sem ávalt er látin vinna
alt það versta“, og sem aldrei kem-
ur fram til góðs, var leikin með
skírleik og samkvæmni. Vinnumað-
ur þeirra, sem ávalt er fyndinn, var
leikinn af gömlum kýmnileikara,
sem oftast hittir markið, þegar
hann hefir eitthvað skemtilegt að
segja. Bg hafði enga leikskrá, svo
það mun ekki eiga við að nefna
nöfn leikendanna, enda er eg óviss
í, hvað af þeim eg kann að nefna
rétt. Af Öllu, sem fyrir mig bar
um kvöldið, þótti mér mest um vex-t
að hlusta á málróm ungfrúarinnar,
sem lék Svöfu. Málrómurinn var
skær, beygjanlegur og svo viðfeld-
inn, að eg saknaði lxans bæði í öðr-
um og þriðja þætti, þar sem Svafa
kemur ekki fyrir. Mér þótti svo,
sem það væri leikhreimur í honum.
Eg lít svo á, seni það sé ómaks-
ins vert fyrir Reykvíkinga að fara
til Hafnarf jarðar og sjá leikinn.
I. E.
tii íslendinga og einlægan vilja til
þess að koma á góðri samvinnu
milli landanna.
Simfregnir.
Akureyri, í gær.
Bæjarstjórnarkosning
Urslit kosninganna urðu þau,
að A-listinu fékk að eiris 28 atkv.
og kom engum manni að.
B-listinn (verkamenn og sam-
vinniimonn) hlaut 416 atkv. og
kom að 6 mönnum, og hlutu þessir
kosningu af lionum:
Erlingur Friðjónsson, trésm.,
Böðvar Bjarkan, lögm.,
Ingimar Eydal, ritstjóri,
Sveinn Sigurjónsson, kaupm.,
Halldór Einarsson, verkam.,
Þorst. Þorsteinsson, verkam.
C-listinn hlaut 326 atkv-, og náðu
5 menn af honum kosningu:
Otto Tulinius, konsúll,
Ragnar Olafsson, konsúll,
Sig. Ein. Hlíðar, dýralæknir,
Júlíus Havsteen, lögm., og
Sigurður Bjarnason, trésm.
Kosningin var afarvel sótt.
Endurskoðendur bæjarreikninga
voru kosnir: Kristján Karlsson og
Olafur Thorarensen. •
Kristján X. til Islands,
• „Politiken“ 15. þ. m. flytur þá
fregn, að konungur Dana og ís-
lendinga hafi í hyggju að ferðast
til íslands á sumri komandi. Er
gert ráð fyrir því, að hann muni
koma til Reykjavíkur í júlímánuði
og dvelja þar nokkra daga, en síð-
an ferðast austur um sveitir, eins
og faðir hans gerði sumarið 1907.
í för með konungi verður drotn-
ing haus og margir mikilsmetnir
Danir.
Nokkru áður en heimsstyrjöldin
hófst hafði Kristján konungur á-
formað að heimsækja íslendinga,
en vegna sfyrjaidarinnar gat ekk-
ert orðið xir ferðinni. Það þótti
nauðsynlegt að konungurinn væri
ætíð heima, ef svo skyldi fara, að
Danmörk lenti í ófriðnum. En nú,
er friður er í nánd, er ]xegar liaf-
inn undirbúningur undir ferðina til
Islands.
Oss íslendingxxm er það mikill
sómi, að konungur vor heiðrar oss
með heimsókn sinni, eigi sízt nú,
er vér erxxm sjálfstæð þjóð, jafn
rétthátt ríki og Danmörk. Með því
sýnir konungur vor hugarþel sitt
M PAGBOK |
„G-eysir‘1 kom hingað í fyrradag með
saltfarm.
Farþegar á „Botníu“, auk þeirra,
sem þegar hafa verið taidir, voru:
Ingvar Ólafsson verzlunarmaður, ung-
frú Asta Zoega, Þorbergur Kjartans-
son verzlunarmaður. —
„Botnía' ‘ mun að líkindum fara héð-
an á laugardag. Engin veiki hafði ver-
ið á skipinu — að því er sagt var —
og var þess vegna leyft að það hefði
samgöngur við land eins og áður.
He.yrzt hefir þó, að einn maður hafi
verið settur veikur í land í Færeyjum.
Kornerup. Fyrsta fyrirlestur sinn
flutti hann hér í gærkvöldi og þótti
mönnum mikið til koma. I dag verða
fyrirlestrarnir tveir — annar um Jaek
London og hann hefst kl. 6. Hinn er
um för hr. Kornerups yfir þvera
Ástralíu. Hkuggamyndir frá þessum
myrkviði mannkynsins sýnir hann
jaf'nframt, og þorum vér að mæla með
þessum fyrirlestrum við alla vora les-
endur.
Fermingarbörn séra Jóhanns Þor-
kelssonar komi í kirkjuna fimtudag kl.
5, og fermingarbörn séra Bjarna Jóns-
sonar föstudag kl. 5.
Baðhúsið opið á miðvikudögum og
laugardögum.
Þjóðmenjasafnið opið á þriðjudög-
um og sunnudögum lcl. 1—3.
Merkir friðarmenn
Mjpii
Clemencau.
Lloyd George.
Nýja Bió ««
Ultus.
Glæpamannakonungur Lun lúna
I. kafli.
Afarspennmdi leyniiögreglu-
sjónleikur í 3 þá tum.
Börniim innan 16 ára
bannaður aðgangur.
U. M. F. R.
Fundur fyrir félagsmenn eina í
Bárnnni kl. 9 stundvíslega í kvöld
Mikilsveiða ákvörðun að taka
Fjölmennið!
Stjórnin.
Nýkomið:
„ U uiverseT ‘ -myndakrókarnir
Merkisspjöld (ur leðri)
Merkikrít (blá)
Bréfaklemmxxr
Pappírsserviettur (2 teg.)
Blýantsyddarar (litlir)
Skólakrít (hvít)
Vatnslitapenslar
Blekblýantar
Strokleðxxr
og fl.
í Bóka- og ritfangaverzlunina
á Laugavegi 19.
SIGURJÓN JÓNSSON.
U. M. F. Iðunn.
Aðalfundur félagsins verðui
haldinn 30. janúar, kl. 9 síðd., í
Lestrarstofu L. F. K. R.
Axxk venjulegra aðalfundarstarfa
verður mikilsvert mál til umræðu.
Aríðandi að félagsmenn fjöl-
menni.
STJÓRNIN.
Herbergi fyrir einhleypan ósk-
ast nvx þegar, um skemmri eða
lengri tínxa. Tilboð, rnerkt „25“r
•sendist á afgr. Morgunblaðsins.