Morgunblaðið - 03.02.1919, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.02.1919, Blaðsíða 1
Mynd þessi var tekin í Berlín þá er Spartacus-flokkurinn hatði beðið ósigur. Var þeim sigri fagnað engu siður heldur en heimkomu hermannanna. En svo eru Beriinarbúar orðnir vanir skotum og ærslagangi að það vekur eigi eftirtekt nema að eins i þeirri gðtu þar sem það fer iram. Annað dæmi um þa breytingu sem orðið hefir á Berlin, er það að nú klífa menn upp í tré til þess að geta betur horft yfir og séð hvað fram fer á götunum. Slíkur ósómi hefði ekki liðist í Berltn meðan gamla stjórnin sat að ríkjum. En nú er lögreglan atnumin og það hressir svo dæmalaust að mega láta eins og mann lystir og þurfa ekki að skeyta um boð og bann. Erl simfregnir Frá fréttaritara Morgunbiaðsins Khöfn, 1. febr. Hin endanlega friðarráðstefna verður sett í París 10. maí n. k. Gengi erlendrar myntar. 100 krónur sænskar .. kr. 108.35 100 krónur norskar .. •— 105.65 Sterlingspund ..........— 18.27 Dollar ............... — 3.84 Khöfn, 2. febr. Hermennirnir í Helsingfors liafa hlanpist undan merkjum. Stórskotaliðið í Kronstadt skýt- ur á Petrograd. Óánægjan meðal brezkra verka- manna heldtir áfram og verkföllum fer fjölgandi. ......... <i£T» KaupirSu góðan blut, þá mundu hvar þú fékst hann. Sigurjón Pétursson. Dómsmálafréítir. Landsyfirdómur 13. janúar. Málið: R. P. Leví og ' Jensen Bjerg gegn Pétri Þ. J. Gunnars- syni. Mál þetta er risið út af leigu stefnda á herbergjum þeim í Hótel ísland, sem hann hefir rekið verzl- un sína í, Landstjörnuna. Síðastl. vor eignuðust áfr. Hótel ísland og með því að þeir töldu að stefndi hefði vanhaldið leigusamning sinn með því að láta hjá líða að greiða leiguna fyrir einn mánuð, kröfðust i þeir að hann væri borinn út úr hús- næðinu af fógeta. Bn fógetinn úr- skurðaði að útburður skyldi ekki fram fara, en þeim úrskurði skutu * áfr. til landsyfirdóms. Stefndi taldi hins vegar, að leig- an hefði fallið niður fyrir þennan mánuð af misskilningi umboðs- manns síns, en sjálfur var stefndi þá ekki í bænum, en áfr. hefðu ekki mint hann á greiðsluna. Yfirdómur leit svo á, að stefnda hefði hvorki brostið vilja né getu til að greiða leiguna, enda boðið hana fram þeg- ar er hann varð þess vís, að hún var ekki greidd. Dráttur sá, er á

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.