Morgunblaðið - 08.02.1919, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.02.1919, Blaðsíða 1
6. arg&ngr Ráðstefna milli stjórnarmanna og Spartakista. Taugaveikin Samkomubann í HafnarfirSi. í samráði við landlækni og hér- aðslækni hefir bæjarstjórn Hafnar- fjarðar bannað allar skemtisam- komur þar á staðnum og kvik- myndasýnmgar, og mælzt til þess við prestana að þeir messuðu ekki meðan þetta bann stendur yfir. Að því er vér höfum bezt frétt, er þetta ekki gert vegna þess að taugaveiki sé mjög mögnuð í Hafnarfirði. Þar hafa ekki nema 3 eða 4 menn tekið veikina. Held- ur er þetta gert. af ótta við sótt- útbreiðslu frá Reykjavík. f hvert skifti sem einhver mannfögnuður er í Hafnarfirði kemur þangað fjöldi Reykvíkinga og nú hafa gengið þær tröllasögur af tauga- veikinni hér, að Hafnfirðingar cru orðnir hræddir. Þó hve taugaveiki ekki vera verri hér heldur en und- anfarna vetur, en nú eru menn ótta- gjarnari en ella vegna inflúenz- unnar og er ekkert við þvx að segja. Skólum hefir ekki verið lokað þar syðra enn. ■------■»«•»----- Liebknecht. Ósigur Spartacus-flokksins. Þegar stjórnin í Berlín tók að lokum rögg á sig og' svifti Eichorn lögreglustjóra völdum, þá lét hami hart mæta hörðu. Réði hann yfir allmiklu vopnuðu liði og skýrði stjorninni frá því, að sér dytti eig'i í hug að leggja niður embættið, nema hann væri neyddur til þess með valdi. Þá skarst Liebknecht fyrst í leik- leikimi fyrir alvöru og studdi Eich- horn. Spartaeistar tóku þá ,.Vor- wárts“, „Wolffs Bureau“ og fleiri hús. Hinn 6. janúar kom Liebknecht á fjölmennum „demonstration11 - um. I Humholthain flutti hann þrumandi ræðu yfir lýðnum og til- kynti að alt væri nú undir það bú- ið, að vopna öreigalýðinn og steypa stjórninni. Og ásamt þeim Lede- bour og Paxd Scholze gaf hann út tilkynningu til alþýðu um það að stjórn Eberts hefði reynst óhæf og væri hér með steypt, en þrímeixn- ingarnir væru „framkvæmdavald“ byltingamanna. Stjórnin vissi ekki, livað Ixún átti að gera. Hún liafðist ekkert að og hefði sennilega oltið xir sessi, ef borgaraniir í Berlín, verkamenxi og demokratar, hefu eigi flykst til Wilhelxnsstrasse í stórhópum og varið kanzlarahöllina, ]xar sem stjórnin hafði xxú aðsetur sitt. En Spartakistar höfðu „Unter den Linden“ á sínxx valdi, og Radek, „agitator“ hinna í-ússnesku Bolzhe- wikka, ók sigri hrósandi fram og aftur milli Brandenburger Tor og hallarvatnsins í bifreið lögreglu- stjórans. Fylgismenn stjórnarinnar í Wilhelmsstrasse heimtuðu vopn, en fengu ekki. Þá er Fischer, hiiui nýi yfirfor- ingi í Bérlín, liélt xxt til hallarinnar til þess að reyna að komast að samningum við sjóliðana, sem þar lxöfðu sezt að, hitti hann Doren- bacli foringja þeirra í áköfxxm sam- ræðumvið Liebknecht. Stórar flutn- ingahifreiðar komu akandi þangað með vopn og skotfæri, sem rænt tiafði verið í Spandau. Smalar Liebknechts höfðu safnað saman mörgum þxxsundum óbreyttra borg- ara, og þar á meðal versta lýðnum, Úti á götu. Skothríðin er hafin. Stjórnarsinnar í strætisvígi, sem gert er úr pappír. AfgreílSsluslmí nr, 500 ■ "" -------------- bæði konum og körluxn, og var nxí verið að úthluta vopuunum á milli þeii'ra. Var Fischer skýi’t frá því, að xixx ætti að ráðast á stjórnina. Fiseher sagði þeim þá, að þjóðin mxxndi eigi geta sætt sig við öreiga- drotnuu og að tilraunir til þess að steypa stjórninni mundu kosta óg- urlegar blóðsúthellingar, en þá svaraði Liebknecht því, að stjórn- inni væri þegar steypt. Hinn 7. janúar voru Spartakist- ar og þorparalýður sá, sem slegist hafði í flokk með þeim, drotnandi í Berlín. Menn vissu þó að daginu áður hafði stjórnin skipað Noske fyrir yfirforingja í Berlín, en h axxxx hann lét ekkert á sér hæra. Noske sigrar. Stjórnin hafði þó fundið rétta manninn þar sem Gustav Noske var. Noske var sonur saxnesks vef- ara og var sjálfur trésmiður og síð- ar ritstjóri jafnaðarmannablaðsins „Volkstimme“ í Chemnitz. Hann hafði verið einn af þeim, sem ötul- legast gengu fram í Kiel þegar stjórnarbyltingin hófst. Hanu beitti nú öllum dugnaði sínum til þess að berja niður Spartacus- hreyfingxina, en hann varð að fara út fyrir höfuðhorgiila til þess að fá hjálp. Hinn 7. janxxar fór hann til Pots- dam til þess að leita liðsinnis hjá hersveitunum þar. Hann kvaddi á sinn fund ýms tvífylki, sem skipuð voru hændum, og liðsforingjar gengu hrönnum saman í lið með honum og enn fremur stúdentar. 8. janúar kom Noske aftur til Berlínar og um sama leyti fóru æfð- ar hersveitir að drífa til borgarinn- ar. Urn alla borgina voru sendar xxt áskoranir til borgara og verka- manna um það að ganga þegar í „þjóðvarnarlið lýðveldisins.1 ‘. En Liebkneeht kom þá líka með áskor- un: Hver vopnfær maður verður að taka sér byssu í hönd. Nú verður stofnuð rauða hersveit! Af- vopnið alla þá, sem eru gagnbylt- ingamexni! Sækið vopn þeirra heim til þeirra! Farið inn í hermanna- skálana og sýnið hermönnunum fraxn á, hvaða skyldur þeir hafi gagnvart byltingamönnum.1 ‘ Hinn 9. og 10. janúar var barist ákaft á götum borgarinnar og mátti tæplega í milli sjá. En hinn 11. jan. fór hersveitum Noske að veita bet- ur. Um morguninn náðu þær „Vor- warts“-húsinu og nokki'u seinna fóru 3000 stjórnarliðar með öflugt stórskotalið í gegn um Charlotten- burg og Berlín. Sunnudaginn 12. jan. gei'ði Rheinhard ofursti áhlaup Kaupirðu góðan hlut, J»á mundn hvar þú fékat hann. Signrjón Pétnrsson. KaupirSu góSan hlut, þá mnndn hvar þú fékst hann. Sigurjón Pétursson. KaupirSu góSan hlut, þá mundu hvar þú fékst hpnn. Sigurjón Pétursson. KaupirSu góSan hlut, þá mundu hvar þú fékst hann, Sigurjón Pétursson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.