Morgunblaðið - 10.02.1919, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.02.1919, Blaðsíða 1
London, 8. febr. Frá þing'i Þjó'ðverja. Það er talið líklegt, að Scheide- mann verði kjörinn forsetí þýzka lýðveldisins. Hr. David var kjörinn. forseti þjóðþingsins. Pólsku kosningarnar. Af fyrstu fregnnnum sem birtar hafa verið af úrslitum kosning- anna í Pól- íandi, má ráða, að samstevpu- flokliur Paderew- sliys hafi unnið sig- ur. Eftir þeim fregn- um ætti þessi flokk- PADEREVSKY, ur að hafa píanósnillingur og unnið 400 stjórnmálamaður. af samtals 405 þing- sfetum. Pader,ewsky er farinn aft- ur til Warschau. Þar hlaut sam- steypuflokkurinn fullan helming atkvæða. Upplausn brezka hersins. Síðan vopnahléið komst á, liafa 28243 liðsforingjar og 1180360 lier- nfenn verið leystir úr hérþjónustu hjá Bretum. Frá Portugal. Préttaritari „Times“ í Lissabon símar, að úr því að tilraun kon- ungssinna tii ag hertaka Lissabon hafi místekist, þá mimi fullnaðar- ósigur þeirra óhjákvæmilegur. Her lýðveldisins er korainn yfir Douro og er að umkringja her konungs- sinna. Skipagöngur leyfðar milli Hollands og Þýzkalands. Bandamenn hafa sett reglur um skipagöngur milli Hollands og Þýzkalands, meðan á vopnahléinu stendur. Slíkar samgöngur eru að Kaupirðu góðan hlut, -Iþá mundu hvar þú fékst hann, Sigurjón Pétursson. Ritstjóri: Yilhjálmur Finsen || eins leyfðar með. hollenzkum skip- um. , Eistland og Þýzkaland. Stjórnin í Eistlandi skýrir frá því, að fulltrúar þýzku stjórnar- innar (Eberts og Scheidemanns) hafi boðið þjóðþingi Eistlendinga í Reval, að birgja landið að vopn- um og skotfærum og veita því pen- ingalán að upphæð '^fi miljón. Þeir (Ebert 0g- Scheidemann) brýna það mjög fyrir þínginu, hve áríðandi Eistlandi sé að vera i vin- fengi við Þýzkaland og g-efa í skyn, Kaupirðu góðan hlut, þá mundu hvar þú fékst haxrn. Sigurjón Pétursson. ísafoldarprentsmiðja að Bretar muni ætla að taka Re- val og hafa þar herskipastöð. Iðnaður Bandaríkjanna. Samvinna verkamanna og auðvalds. Það er símað frá Washington, að viðskiftamálaráðherrann hafi beð- ið forsetami að skipa „friðar- iðnaðarráð“ til þess að koma iðn- aði Bandaríkjanna í fastar skorð- ur. Ráð þetta vill hann iáta skipa fulltrúum verkamanna og' auð- manna ásamt. starfsmönnum stjórn- arinnar. Kaupirðu göðan hlut, þá mundu hvar þú fékst hann. Sigurjón Pétursson. AfgraiSsslmsím! nr. 500 || DAgBOI || Mokfiski er enn daglega og gæftir góðar. Er nú fiskur farinn að falla hér í verði og þætti gott ef allar vörur f éllu svo mikið. Fyrir nokkrum dögum var ýsupundið selt á 15 aura, en nú síðustu dagana hefir það kostað 10 aura. Sigurður öuðmundsson prestur í Þóroddsstaðaprestakalli hefir sagt af sér embætti og fær lausn, án cftir- launa, frá næstu fardögum. Stjórnarráðið héfir látið tilkynna, að viðtalstími ráðherranna sé kl. 2—3 á virkum dögum, nemá því sé fyrir- fram lofað, eða erindið mjög brýnt. Skemtanir hafa verið með tíðana móti hér í bænum að undanförnu og aðsókn mikil, eius og venja er. Burðargjöld hækka. Þegar samþykt voru iög á þinginu um burðargjalda- liækkun, leit póstmeistari svo á, að sú hækkun næði eigi til póstsendinga inn- sveitis. Þess vegna hefir verið sama bnrðargjald hér innan bæjar sem áður. En nú eiga innsveitisburðargjöld að hækka frá 1. marz, og kostar þá 8 aura undir almenn bréf, spjaldbréf 5 aura og prentað mál 5 aura. Útburður bréfa. Prá 1. marz verður Reykjavík skift í 4 bréfberaumdæmi. Fær hver bréfberi 1500 krónur að árs- launurn og eiga umsóknir nm þann starfa að vera komnar til póstmeistara fyrir 20. þ. mán. Árni Pálsson sagnfræðingur hefir nýlega verið skipaður 1. bókavörður vi Landsbókasafnið. Hallgrímur Hall- grímsson sagnfræðingur er orðinn að- stoðarbókavörður. Nýja Bíó sýnir í fyrsta sinn í kvöld mynd sem liefir hlotið mikið lof er- lendis. n er leikin eftir sama efni og hin heimsfræga opera Carmen, sem allir munu kannast við. Undir mynd- inni verða spiluð lög úr operunni, af fjögra manna „orkester“, og verða því óvanalega góðir hljómleikar. Aðgöngu- miðar eru seldir frá kl. 2 í dag í Nýja Bíó, og er það gott fyrirkomulag, sem alt af ætti að vera notað, því þá getur iólk keypt aðgöngumiða án þess að lenda í þrengslum. Kaupirðu góðan hlut, þá mundu hvar þú fékst hann. Sigurjón Pétursson. Ritstjórnarsími nr. 500 Úr loftinu Óeirðir í Berlin. Hér á myndinni má líta líkfylgd fallinna Spartakista. Er múgur og margmenni samankomið þar, en Spartakista-foriúginn Ledebour stendur uppi á strætisvagni og blessar yfir hina dauðu flokksbræður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.