Morgunblaðið - 16.02.1919, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.02.1919, Blaðsíða 1
£safoldarpr«ntemi8j» AfgrciCeiiuáakí ur. 500 Bitstjórnarsími nr. 500 Eitstjóri: Vilhjálmnr Finsen ErS simfregtiir, Frá fréttaritara Morgunblaðsins Khöfn, 13. febr. Stjörnarbylting í Rumenía Maximalisminn breiðist út. Frá Wien er símað, að allsherj- ar stjórnarbylting sé hafin af Maxi- tnalistnm í Rúmeníu. Konungurinn er særður og hefir gert árangurslausa flóttatilraun. Engin von er talin til bjargar vegna fjárskorts og matvæla, en ástandið í hernum iiið ískyggileg- asta. Vopnahlcssamningarnir. Frá Berlín er símað, að vopna- hléssamningarnir hafi ekki enn 'verið endúrnýjaðir. Það er búist við ])ví, að bandamenn krefjist þess, að Þjóðverjar framselji allan kaupskipaflota siim og einnig skip sem eru í smíðum. Frá París er símað, að Clemen- ecan kref jist auk þess, að Þjóðverj- ar láti af hendi oll hergögn sín. Mannerheim í Svíþióð. Frá Stockhólmi er símað, að rót- tækustu jafnaðarmeim lýsi van- þóknun siimi yfir Mannerheim, ríkisst jóra —jJinna, sem þar er staddur. , Sænsk flotadeild er komin í heimsókn til Kaup- mannahafnar. Þýzka stjórnin. Frá Berlín er símað, að full- trúar þýzkra Austurríkismanna muni fá sæti í þýzka ráðuneytinu nýja, sem aðstoðarráðherrar. Brezki flotinn. •Jellieoe, fyrv. yfirflotaforingi, hefir gefið út bók um brezka flot- ann og afreksverk hans í ófriðn- um. Inflúenzusóttkveikjan fundin. •,British Meclical Journal“ skýr- 'r frá því, að tekist hafi að ein- •aiigra og rækta inflúenzu- og 1,ephritis sótl'kveikjuri.ufr. J Khöfn, 14. febr. Norska stjórnin. Frá Kristjaníu er símað, að Michelsen, fyrrum forsætisráðherra Norðmanna, hafi tjáð sig reiðubú- inn til að mynda nýtt ráðuneyti. Úr loffÍKiy London, 12. febr. Ráðgerðar umbætur í Bretlandi. Þegar konungur setti brezka þingið flutti hann ræðu, sem bæði var löng og kom víða við. Aðal- atriði ræðunnar voru þessi: Hildarleikurinn milli þýzka of- beldisins og frjálsræðisins í Norð- urálfuuni er á enda og nýtt tíma- bil að renna upp. Þjóðin mun votta þakklicti sitt fyrir iit'rek og fórn- fýsi þeirra manna, sem hafa þol- að hörmungar fyrir föðurlandið. Fylsta eindrægni og samúð hefir einkent umræður friðarráðstefn- unuar og engrar sundurþykkju orðið vart. Grundvallaratriði frið- arsamninganna verða væntanlega fastákveðin áður en langt er iiðið á þingtímann. Það verður að leggja alt kapp á, að koma 1 framkvæmd endur- bótipn á þjóðfélagsskipulaginu. Það veröur að útrýma óverðskuld- aðri örbirgð, draga lir atvinnuleys- inu og ráða bót á hörmungum ]>ess, sjá fátæklingunúm fyrir sæmilegu hiisnæði, efla þeilbrigði þjóðarinn- ar, og bæta kjör og líðan allrar alþýðu. Eiginhagsmunir einstak- linganna og gamlar kreddur verða að víkja fyrir þessum umbótum. Með ótímabærri virðingu fyrir gömlum venjum verður þeim ekki komið í framkvæmd, en ofbeldi og óeirðir hlytu að tefja fyrir þeim. Stofnað verður sérstakt heil- brigðismálaráðuneyti og vega- og samgöngumálaráðuneyti, Ráðstaf- anir verða gerðar til þess, að bæta sem fyrst ú r ]>eim göllum, sem eru á innanlgardssamgöngunum, svo að komið verði í veg fyrir óeðlilega samkepni, sem bygð er á því, að unt er. að selja aðfluttau varning lægra verði en í því landi sem hann er framleiddur í, en jafnframt verð- ur greitt fyrir aukinni landbúnað- ar- og iðnaðarframleiðslu. LTppá- stungur munu verða gerðar i þá átt, að mönnum verði gert aðgengi- legra að leggja stund á landbúnað. „Að endingu skal eg leiða athygli yðar að vandamálum iðnaðarins, sem bíða úrlausnar.“ \ ------— ■ ------------ Rafmagnsmálið Er það strandað? Heyrst hefir, að einn af bönkum þeim, sem ætlaði að veita lán til rafmagnsstöðvarinnar í Grafar- vogi, hafi kipt að sér hendinni og tilkynt bæjarstjórn Reykjavíkur, að hann muni ekki veita sinn hluta af láninu. Er búist við því, að hin- ir aðrir bankar, sem fé höfðu lof- að, muni fara á eftir. IJm ástæðuna tií þessa er oss eigi fullkunnugt, og ef til vill liggja til þess fleiri ástæður en ein. En ekki er ólíklegt, að það eigi sinn þátt í ])ví, að bæjarstjórnin hefir ákveðið að vinna verkið sjálf, í stað þess að bjóða það út og fá til þess verkfræðinga, sem svo eru vanir byggingum rafihagnsstöðva, að full trygging sé fyrir því, frá sjónarmiði lánveitenda, að verkið verði svo vel unnið sem framast er kostur á. Verði nú þau afdrif rafmagns- málsins, að það strandi að jiessu sinni, þá er eigi víst að Reykjavík þurfi að gráta það svo mjög. Lánið átti éigi að veitast með neinum vildarkjörum, og nú er margt breytt frá því sem var þá er ákveð- ið var að koma upp rafmagusstöð- inni. Er nú þörfin eigi jafn knýj- andi og auk þess eftir betra að bíða með verð og flutnihga á því, sem til stöðvarinnar þarf. Nýkomið: Svart, slétt ALPACCA. H. P. Duus. A-deild. Einokun, Stjórnarráðið lieíir enn gefið út nýja reglúgerð „samkvæmt heimild til ýmsra ráðstafana út af Norður- álfuófriðnum“, og er hún um ein- okun á kornvöru til 1. okt. n. k. Til þess tíma er kaupmönnum, félögum og einstökum mönnum bannað að flytja inn kornvöru, nema undantekning verði gerð um einstakar tegundir. Til loka þessa árs er b a n n a ð að selja hér á landi aðra kornvöru en þá, sem landsverzlun hefir flutt inn, nema sérstakar undantekningar verði gerðar. Ef brotið er gegn þessum fyrir- mælum varðar það 100,000 króna sekt. BAGIOK Þrímastrað seglskip lcom í fyrradag til Hafnarfjarðar með kolafarm til landsverzlunar. Áfengi allmikið fann lögreglan í „Gullfossi' ‘ í fyrradag, og var það eign tveggja háseta aðallega, en sumt vildi enginn kailnast við. Var lögreglan all- an daginn að þessu og vann til að i*í£a þiljur úr skipinu víða og brjóta. Urðu af því spjöll allmikil, en Jrver á. a'ð borga þau? Það mun mikið efamál. „öeysir' ‘ fór héðan vestur í fyrra dag. „Willemoes* ‘ á að taka bér fisk og flytja hann tit Spánar. Aðra ferð mun skipið sennilega fara seinna með fisk- farm til Genúa. Sykurverzlun frjáls. Fr.í 1. mai næstkomandi er innflutningur og sala á sykri frjáls hér á landi. Laust prestakall. Þóroddsstaða- prestakall er nú auglýst laust t'il um- sóknar og veitist frá næstu fardögum. Umsóknarfrestur til 31. marz. Efnafræðisprófi við Háskolann hafa lokið: Jónas Sveinsson, Valtýr Alberts- son, Björn Árnason og Guðm. Guð- mundsson, allir með 1. ág. einkunn, og Páll Sigurðsson, Steingrímur Byfjörð, Skúli Guðjónsson og Agúst Brynjólfs- son, allir með 1. einkunn. — Er þetta hið hæsta próf í efnafræði, sem tekið liefir verið síðan Haskólinn var stof'n- aður. h-aupirðu góðan hlut, í’á roundu hvar þú fékst hann Sigurjón Pétnrsson. Kanpirðu góðan hlut, þá mundu hvar þú fékst hann. Sigurjón Pétursson. Kaupirðu góðan hlut, þá mundu hvar þú fékst hann. Sigurjón Pétursson. Kaupirðu góðan hlut, þá mundu hvar þú fékst hann. Sigurjón Pétursson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.