Morgunblaðið - 07.03.1919, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.03.1919, Blaðsíða 1
Föstudag 7 uaarz 1919 H0R6UNBLA0IS 6 arg&ng* 114 t51ubM Ritstjómarsími nr. 500 JRitstjóri: Vilh jálmnr Fins«n Isafoldarprtntimiðja AfgraUfehsffitani ar 5(M‘ Cf)ocoíad2 (Sírius, Hmtz & Co. on Cloétta) ódýra>t i heildsölu. — Ennfremur Cigareffur. Tf.f. Carl Jföfner, Sími 21. Ur ioftinu. London, 5. marz. Símslit milli Hollands og Englands. Vegna mikilla sæsímabilana milli Englands og Hollands, eru loft- skeytastöðvar í báðum löndum teknar að annast skeytasendingar milli landanna til bráðabirgða, meðan á aðgerð stendur á sæsím- anum. Herskipastóll Þjóðverja. „Times“ segir, að hin einu ný- tízkuskip, sem Þjóðverjar fái að halda í flota sínum, verði 5 beiti- skip og 8 tundurbátar. Auk þess fái þeir 21 gömul vígskip og mörg af þeim séu í mjög slæmu standi, 9 gönral og létt beitiskip, 37 tund- urspilla, sem eru 10 ára gamlir, og urn 36 enn fornfálegri skip, 64 tundurbata, sem eru yfir 20 ára gamlir, og 17 strandvarnaskip. Um herinn er það að segja, eð eigi munu að eins gerðar ráðstafan- ir til þess að koma í veg fyrir að Þjóðverjar geti æft mikinn hluta borgaranna við vopnaburð, heldur er það einnig nauðsynlegt að koma í veg fyrir, að þeir geti myndað varalið, hvorki að óbreyttum her- mónnum né liðsforingjum, og þó allra sízt liðsforingjum. Rafmagn til járnbrauta í Bret- landi. „Daily Maii“ segir. að næsta um- ræða um vegi og samgöngubætur muni fara fram í næstu viku. Er búist við því, að nota rafmagn í stórum stíl til reksturs járnbrauta. Þó hefir enn eigi verið gerð áætlun iun þetta, en Sir Eric Geddes álít- nr, að hér sé um mikið framfara- “aál að ræða. ■^úmenadrotning í París. Það er tilkynt frá París, að drotningin í Rúmeníu og dætur hennar þrjár séu væntanlegar þangað í dag og muni koma til London á sunnudaginn. Eftir stutta dvöl þar, munu þær aftur halda til höfuðborgar Frakka. London, 6. marz. Wilson um þjóðabandalagið. Wilson forseti talaði um þjóða- bandalagið í New York, áður en liann hélt af stað til Norðurálf- unnar aftur, og mælti eindregið með stofnun þess. Hann sagði, að yfirgnæfandi meirihluti Banda- ríkjamanna væri því fylgjandi. — Jafnvel þó að bandalagið væri ekki annað en nmræðufélag, þá myndi það verða stjórnmálabrögð- unum að bana, því að þau þyldu ekki opinberar umræður. Þýzka- land myndi ekki hafa lagt út í ófriðinn, ef heiminum hefði gefist tækifæri til að ræða herförina \ gegn Serbíu svo sem vikutíma. Utanríkisstjórn Breta hefði beiðst þess, að gefinn væri eins eða tveggja daga frestur, svo að f'ull- trúar Evrópuþjóða gætu komið saman og reynt að miðla málum. Þýzkaland þorði ekki að leyfa einn dag til umræðu. Þegar heiminum varð það ljóst, að ein þjóðiu lék lausum hala eins og stigamaður, þá fóru hinar þjóðirnar smátt og smátt að taka höndum saman gegn lienni,*r- „Yér vitum með vissu,“ mælti forsetinn, „að ef I jóðverjar hefðu látið sér detta það í hug, að Bretaveldi gengi í ófriðinn með Frakklandi og Kúss- landi, þá myndu þoir aidrei hafa lagt út í ófriðinn. Það er tilgang- ur handalagsins, að gera öllum stigamannaþjóðum það Ijóst. að ekki að eins Bretaveldi heldur einnig Bandaríkin og allur heim- urinn, muni taka í taumana til að þrjóta slíkar fyrirætlanir á bak aftur.“ Allenby í Sýrlandi. Símskeyti frá Bayrouth hermir það, að Allenby hershöfðingi hafi fengið stórkostlegar fagnaðarvið- tökur, er hann kom þangað. Bæjar- stjórnin hélt honnm heiðurssam- sæti, og fyrir hönd horgaranna af- henti borgarstjóri honnm gimstein- um búið sverð að gjöf. Allenby kvaðst miklast af því, að hafa stjórnað þeim her, sem leyst hefði Sýrland undan ánauðaroki Tyrkja, og óskaði landinu alls góðs. Útflutningur frá Þýzkalandi. „Múnchener Neueste Nachrich- ten“ tala um það, að allar stéttir manna í Þýzkalandi krefjist þess að ráðstafanir sén gerðar til þess að greiða fyrir útflutningi Þjoðverja að stríðinn loknu, og benda á, að nauðsynlega þurfi að koma á fót útflytjendaskrifstofu. Biaðið bend- ir á það, að gott muni fyrir Þjóð- verja að flytja til líússlands, Ar- gentínu, Brazilíu og Chile, þegar er friður er saminn, en segir, að verri horfur séu fyrir þá til afkomu í Ástralíu. Prá Berlín. Seinustu skeyti frá Berlín herma það, að þótt ýmis konar óregla sé þar, þá hafi þó stjórnin bæði tögl og hagldir. Verkamenn í mcrgum verksmiðjum, bæði smáum og stór- um, skoruðust undan því að taka þátt í allsherjar-verkfallinu. Her- sveitir stjórnarinnar og annað hjálparlið streymir til borgarinn- ar og hefir mætt mjög lítilli mót- spyrnu. Fjölda margir flokkar lög- regluliðs, með alt að 20 manns í hverjum, eru sífelt á verði á göt- unum og allar opinberar bygging- ar hafa verið teknar. London, 6. marz. Óeirðir í Berlin. Út af verkfallinu í Berlín hafa orðið þar nokkrar óeirðir og hafa nokkrir menn hiðið hana og særzt. Nokkrar búðir hafa verið rændar. Noske, þjóðvarnaráðherra, er enn í Berlín, og cr sagt, að hann taki harðlega í taumana. Hernaðarskaðabætumar. í neðri málstofu hrezku þingsins var þeirri spurningu beint til Bon- ar Law hverjar hernaðarskaðabæt- ur Þjóðverjar ættu að greiða. Sagði ráðherrann, að bandamenn yrðu að líta á þetta mál með sann- girni og taka tillit til þess, hvað Þjóðverjar væru færir um. Hann mintist a, að sá orðrómur gengi, að Milner lávarður væri eigi fús á að heimta skaðabætur af Þjóðverjum. En ekkert væri til : þessu. Samt sem áður hefði Milner lávarður lát- ið uppi þá skoðun, ;.ð sumnm kröf- um bandamanna ferjgist ekki full- nægt. Það væri þó enginn efi á því, mælti Bonar Law enn fremur, að bandamenn hefðu rétt til að krefj- ast þess að fá allan herkostnað sinn endurgreiddan, og þeir ættu að láta Þjóðverja horga eins mikið og þeir væru færir um. Þó viðurkendi hann það, að bráðnauðsynlegt væri að semja frið eins fljótt og unt væri. Eigi væri að eins hætta á því, að Bolzhewikkar næðu yfirráðum í Þýzkalandi, heldur hefði það einnig afarmikla þýðingu fyrir Breta, að verzlun þeirra og viðskifti gætu byrjað á ný með fullum krafti. Það væri augljóst, að á meðan hafn- bannið stæði, gætu viðskiftin ekki komist í eðlilegt horf. Þó yrði að gæta þess, að hafa tryggingu fvrir því, að friðarskilyrðunum yrði fullnægt og bandamenn hefðu þau vopn í höndum, að þeir gætu knúð það fram. Hafnbannið væri eigi að eins slæmt fyrir börn, konur og sjúklinga í Þýzkalandi, heldur einnig fyrir Breta sjálfa og því fyr sem það væri upphafið, því betra. Fulltrúanefnd hrezkra sjómarma kom á fund forsætisráðherra í gær og sagði hann henni, að fulltrúar vorir í París hefði fengið skipun Xaupirðu góðan hlut, {áá mnndu hvar þú fékst hann. Signrjón Pétursaon. Kaupirðu góðan hhit, þá mundu hvar þú fékst hann Sigurjón Pétursson. Kaupirðu góðan hlnt, þá mundu hvar þú fékst hann Sigurjón Pétursaon. Kaupirðu géðan hlut, þá mundu hvar þú fékst taam, Sigurjon Pétursson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.