Morgunblaðið - 29.03.1919, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.03.1919, Blaðsíða 1
Laugardag 29 marz 1919 H0R6DNBLADIÐ 6.árgangur 136 tölublað ........ Ritstjórnarsími nr. 500 Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen ísafoldarprentsmiðja Afgreiðslusími nr. 500 Verzlun H. S. Hanson Laugaveg 29, er f 1 u 11 fyrst um sinn á H VERFISG0TU 50 Erl. simfregnir. (Frá fréttaritara Morgunblaðsins). Khöfn, 26. marz. ítalir hafa tekið borgina Pressburg í Austurríki herskildi. Gagnbylting í vændum í Þýzkalandi. Frá Berlín er símað, að einveld- issinnar færist þar í aukana og halda fjölmenna fundi. Stjórnin hefir lýst því yfir, að hiin sé við því búin að bæla niður þá hreyf- ingu. Lögreglan í Búdapest hefir verið leyst upp. Priðars amningarnir. Frá París er símað, að bráða- birgðasamningar verði nú fullgerð- ir á laugardaginn. Fulltrúar Þjóð- verja eru væntanlegir innan þriggja vikna. Sameinaðafélagið græddi 37% miljón króna síðasta ár. Hluthafar fengu 35% í arð en 11% milj. er ætluð til greiðslu á °pinberum gjöldum. Ur loftinu. London, 28. marz. Friðarsamningamir. Það er sagt að f jögramannaráðið muni fullgera fyrsta uppkast frið- arsamninganna í kvöld og muni síð- an íhuga þá lið fyrir lið. Wilson forseti hefir gefið út yfir. lýsingu og lætur þar í ljos undrun sína á því „áliti, sem virðist 1'íkj- andi meðal sumra, að það séu ráð- stefnur alþjóðasambands-nefndar- innar, sem tefji fyrir því að friðar- samningar sé fullgerðir“, og lýsir yfir því, „að nefndarmennirnir séu sjálfir fullvissir um það, að þeir hafi aldrei á neinn hátt tafið fyrir friðarsamninganefndinni'1. Frá Bolzhewikkum. Af hemaðarhorfunum á hinum ýmsu vígstöðvum Rússa, er það að X»upirðu góðan hlut, (þfi mundu hvar þú fékst hann, Sigurjón Péturseon. segja, að að vestan og austan ýmist hörfa Bolzhewikkar nndan, eða þá að þeini er haldið í skefjum. Að sunnan sæltja þeir stöðugt fram í áttina til Odessa, en borgin er samt sem áður ekki í bráðri liættu. Hættulegasta framsókn þeirra er í Donets-héraði, þar sem þeir eiga í höggi við herarm Denikins herfor- ingja. Frá Ungverjalandi kom engar fregnir og vita menn því ekki hvað þar er að gerast. Rannsóknardóm á að setja í Þýzkalandi til þess að rannsaka sakargiftir þær, sem hornar eru á ýmsa menn í sambandi við stríðið, ef þeir menn æskja þess, Það er sagt, að Ludendorff hers- höfðingi hafi farið fram á það, að sakargiftir þær, sem á hann eru bornar, verði rannsakaðar á þennan hátt. Frá Egyptalandi. Góðar fregnir komu frá Egypta- landi í gær. Ráðstafanir þær, sem stjórnin gerði, hafa borið árangur gagnvart þeim, sem stóðu fyrir ó- spektunum, en hinir gætnari mcðal upphlaupsmanna, hafa gefið út á- skoranir um það, að menn skuli ekki grípa til ofbeldisverka, heldur vera rólegir. Samgöngur liafa ver- ið teknar upp aftur við Efra- Egyptaland. Fyrstu siglingar Þjóðverja. Fimm mjög stór gufuskip af hin- um afhenta kaupskipastól Þjóð- verja, eru komin til Cowes. Það eru skipin „Kaiserin Auguste Vikto- i'ia“, „Graf Waldersee“, „Cleve- land“, „Cap Finisterre“ og „Pati'i- Kaupirðu góðan hlut, þ& mundu hvar þú fékst hann Sigurjón Pétunson, cia‘ ‘. Á þeim eru þýzkar skipshafn- ir og fá þær ekki að koma í land. Símskeyti til Reuters frá. Ham- burg segir að alls muni 120 þýzk kaupför sigla til Englands. Heimfararleyfi. Svo sem kunnugt er hafa all- margir Þjóðverjar verið ófriðar- teptir síðustu árin hér á landi. En nú liafa þeir fengiS leyfi til þess að fara heim til sín óhindraðir af Bretum. Er þó leyfið því skilyrði hundið, að þeir fari yfir Norður- lönd. Má því búast við því, að margir þeirra noti sér þetta leyfi undir eins og fyrsta skipsferð fell- ur héðan. Sæluhús. Hver hugsandi maður, sem snemma dags á leið niður á hakka Roykjavíkurhafnar, sér þá oft í verstu veðrum, kulda og regni fjölda verkamanna hýma undir pakkhúsveggjnm, bíðandi eftir tækifæri til þess að fá einhverja vinnu. Sá hinn sami hlýtur að finna það, að hér er ekki alt eins og vera skyldi, þar sem menn standa þarna oft tímunum sainan, skjálfandi og rennvotir, og allir vita, að slíkt er heilsuspillandi fyr- ir þá, er þessu sæta, auk óþæginda og leiðinda, sem ekki fer sem bezt með skap og sansa. Eg vil því benda á og vekja at- kygli manna á því, liversu nauðsyn- leg't það væri, að skýli eða nokkurs konar sæluhíisi fyrir þessa menn yrði sem fyrst komið upp. Slík hxxs erxx víða erlendis* sem veita þeim mönnxxm, sem líkt stendxxr á fyrir Caupirðu góðan hlut, þá mundu hvar þú fékat haun, Sigurjðn Pétursaon. sem hér, skjól og þægindi eftir föngum. Hér þyrfti ekki að vera um neitt stórhýsi að ræða, heldur að eins skúrhyggingu einhvers stað- ar nálægt höfninni, en sú bygging þyrfti á vetrum að vera vel upphit- uð og unx þrifnað og góða liirðingu yrði að sjá, og með talsíma í ofaná- lag gæti þetta orðið nokkurs kon- ar miðstöð verkamanna og til mik- illar nytsemdar hæði fyrir þá, senx og líka fyrir vinnuveitendur. Rvík, 27. marz 1919. Baldvin Björnsson. Grein þessa bað hr. Baldvixx Björnsson mig fyrir til hirtingar í „Ægi“, en mér lízt það vel á hana, að hún verðskuldi að. komast í víð- lesið blað höfuðstaðarins og bið því Morgunblaðið að flytja hana, en vil þó leyfa mér að bæta fáeinum at- hugasemdum við. Þurfa ekki litlu börnin eða fá- klædd gamalmenni, sem send eru neð mat eða kaffisopa til fyrir- vinnunnar, einnig skjól meðan þau bíða eftir því að matarins sé neytt eða finna ekki þann, er leitað er að. Það eru hai’ðir kostir að verða að borða frosinn mat við stranga vinnu, en harðara er það þó að sjá börnin gagndrepa eða hálfnakin bíða meðan matxxrinn er borðaður og vita þau eiga langt heim. Máltíð, sem þannig er neytt, getur varla komið að notum. Við höfnina munix björgunartæki ókomin. Er vcrið að bíða eftir slysi fyiúr það kæruleysi? Hér, eins og annars staðar, mxxn það þó sann- ast, að það er of seint að byrgja brunninn, þegar barnið er dottið ofan í. 28. marz 1919. Sv. Egilson. Grundvallarlög þjóðabandalagsins. Eins og menn geta séð á xxtdrætti þeim, sem birtist hér í hlaðinxx í gær xxr lögum „alþjóðasambandsins“, þá ætla bandamenn sér að vera nokkurs konar lögi-egla í heiminum framvegis. Alþjóðasambandið, sem svo oft hefir verið talað nm, er í rauninni ekki annáð en baixdamenn — eða stórvcldin, senx börðxist gegix Þýzkalandi. •» . Mönnum muxx því forvitni á að vita, hvað Þjóðverjar segja um þessi boðoi'ð, og höfum vér þá fyr- ir oss hina miklu ræðu, er Brock- dorf-Rantzau greifi og xxtanríkis- Kap.pirCu góðan hlut, þá mxmdu hvar þú fékst hann. Sigurjón Pétursson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.