Morgunblaðið - 04.09.1919, Blaðsíða 1
6. árgangur,
281. tölublað
Fimtudag 4. september 1919
Isaioldarpr entsmiðl a
—- GAMLA BIO H
Göður drengur.
Leikrit i S þáttum.
Fjaiska falleg og efnisrik œynd,
vel leikin og útbúnaður hinn
vandaðísti, eins og venja er hjá
World Films Comp.
Capt, Faber flang tiimr t gær.
hann Islendinga að láta sér dæini
þeirra að kenningu verða og sýna
fluglistinni 'þá ræktarsemi, sem
nauðsynleg væri til þess .að henni
gæti vegnað vel, og orðið þýðing-
armikill liður í samgöngum lands-
ins. Hét Iiann á Alþingi Islendinga
sem og einstaka menn, ,að reynast
flugframkvæmdum hollir og árnaði
að lokum íslenzkri fluglist allra
heilla.
Að þessu loknu settist kapt. Fa-
ber við stýrið en vélfræðingurinn
tók að snúa skrúfunni. Brátt fór
mótorinn á stað og livesti þá all-
mjög hjá þeim, er bak við stóðu.
Er mótorinn hafði gengið dálitla
stund var fyrirstaðan tekin frá
vélarhjólunum og vélin rann á stað,
fyrst hægt og síðan á fleygiferð
yfir túnið. ,
Flugfélagið hafði boðað í gær-
morgun, að fiugvélin yrði til sýnis
kl. 8 í gærkveldi.Engu var lofað um
það að flogið yrði. Vélin hafði al-
drei verið reynd og þó að ekkert
hefði reynst athugavert við liana,
er hún var sett saman, mátti þó
alt af búast við að einhvcrju reynd-
ist ábótavant, er til flugsins kæmi.
Var eigi búist við að flug mundi
verða sýnt hér fyr en síðustu dag-
ana í vikunni.
Nýstárleg sjón.
En um kl. 5 í gær gerðist óvænt-
nr atburður suður á Flugvelli.
Reynsluflugið ‘ var ákveðið þá
strax, og án þess að nokkur vissi,
ók Faber vélinni út á völl, settist
við stýrið og rendi á stað. V elin
rann nokkra tugi faðma niður eft-
ir túninu, eins og álft sem flýgur
flpp af vatni, og loks losnaði liún
frá jörðu og smáhækkaði. Hljóðið
frá mófornum heyrðist inn i bæ-
inn og menn fóru að skima í kring-
tiin sig. Og allir, sem skimuðu, ráku
augun í það sama: vélin leið áfram
Um loftið eins og risavaxinn fugl,
stöðúgri en nokkur vagn á renn-
siéttum vegi, sneri sér krappar
beygjur og tylt-i sér eftir dálitla
stund aftur á grassvörðinn.
Annað flug.
Kl. 8 í gærkveldi hafði margt
fólk safnast saman suður frá til
þess að skoða vélina, og hefðu víst
tflargir, sem aldrei 'hafa séð flug-
vél áður, liafa borgað meir en 50
aUra fyrir að mega skoða 'þann
furðugrip. Alþingismönnum, bæj-
avstjórn o. fl. liafði verið boðið
l’angað og kl. 8 var velinni ekið
úr skálanum fram á völlinn. Eftir
^álitla stund steig formaður flug-
félagsins, Garðar Gíslason stór-
^aupmaður upp í flugvélina og
^élt ræðu til þeirra, er þarna voru
^ainankomnir. Drap hanri á, hverja
^ýðingu hið nýja samgöngutæki
fteföi þe gar haft í heiminum og
^iuti á, að hingað ætti það sér-
wakt erindi. Því liér byggi fámenn
^íéð í stóru landi, þjóð sem eigi
risið undir því, að tileinka
aðalsamgöngutæki nútímans,
'fttUbrautirnar. Flugvélin væri það
^göngutæki, sem hvorki þyrfti
^fýt né vegi, það færi jafnt yfir
sem dali, yfir hraun og jökla.
mintist þeirrar þrautseigju,
brautryðjendur flugsins hefðu
^Ut> °g þess, að ávalt hefðu nýir
únir til að halda
, misti við, uns
var náð, er flug-
: vott um. 3að
un verið reiðul
ram, CP aiinarí
ueirri fullkomnun
hútímaus be
Hpp!
Fólkið horfði á vélina fult eftir-
væntingar. Og þegar lnin losnaði
við jörðina, dundi við lófaklapp
allra og köll margra. Fjöldinn all-
ur liafði aldrei séð flugvél lyfta
sér til flugs áður og það hefir ein-
kennileg áhrif á jarðbundnar ver-
ur. Ekki að eins menninia. Hest-
arnir á næsta túni við flugvöllinn
gláptu á þetta furðuverk og voru
steinhissa. Og' einn 'hundur ætlaði
að tryllast.
Flugvélin smáhækkaði í lofti og'
vatt sér í hringum upp í 500 metra
hæð og leið þar áfram. Öðru hvoru
stöðvaði flugmaðurinn mótorinn,
steypti vélinni beint niður á trýnið
nokkra tugi metra og rétti við aft-
ur. Var þá mörgum nóg' boðið og
nokkrir krakkar fóru að skæla.
Eftir að hafa flogið nokkra liríð,
fór vélin 'að lækka í lofti á ný og
rendi sér örfáum metrum fyrir of-
an liöfuðið á fólkinu og í jiráðbeina
línu rétt yfir vellinum. Hóf hún sig
á ný og flaug enn nokkra stund
og að lokum rendi hún sér niður
á völlinn. Alls mun hún hafa verið
fjórðung stundar í loftinu.
Kveldstundin 3. septem'ber 1919
mun lengi verða mörgum minnis-
stæð. Fólkið var í einhverri alveg
nýrri „stemning“, er það horfði
upp í himinblámann og' sá nýjasta
„galdraverk“ nútímans svífa lofts-
ins vegu, laugað geislum sólarinn-
ar, sem ekki-jiáðu lengur til þeirra,
er niðri voru.
Þetta var að eins sýning'. En vér
hyggjum áð margir muni líta öðr-
um augum á flug'ið eftir en áður.
Menn hafa s é ð, og sjón er jafnan
sögu ríkari. Menn hafa séð, að flug-
ið er ekki eins fjarri veruleikanum
eins og sumir vilja vera láta.
Næstu kveld mnuu margir leggja
leið síua suður á Flugvöll. Þangað
ganga menn sér til skemtunar á
kveldgöngu, anda að sér hreinu
lofti og — horfa á flug. Það er
eins með flugið og- hverja aðra í-
þrótt, að menn geta orðið sólgnir
í að sjá það. Svo hefir það reynst
annars staðar, þó lakara hafi verið
í boði, en hér er.
Flugfélagið á heiður skilið fyrir
að hafa komið málinu svona vel á
veg. Og' það hefir byrjað með því
að gefa meira en það lofaði, og er
það vonandi fyrirboði þess, að sú
verði jafnari meginreg'la þess.
Nýja Bíó
Eftirlætiskona stirfurstans.
Indverskur sjónleikur i 4 þáttum. Tekinn af Nardisk Films Co.
Aðalhlutverkin leika þessir alþektn og Jgætu leikendnr:
Lilly Jacobsson, Carlo Wieth og
Gunnar Tolnæs.
Þeir munu ógjarna gleyma þessari mynd, er á hana horfa.
H. í. S.
Steinolia (,Sólarljós( & ,0ðinn().
„Alfa“-Jarðolia. Benzin.
Smurningsolíur:
,Maskínolia‘. ,Mótorcylinderolía l‘.
Cylinderolía & Lagerolía.
Steinolíuofnar og kveikir.
Hið ísl. steinolíuhlutafélag.
Sfmi 214.
Nýjar kröfur
bandamanna.
Khöfn, 3. sept.
Bandamenn krefjast jiess af
Þjóðverjum, að þeir breyti ýmsum
ákvæðum stjórnarskrár ríkisins og
að enginn fulltrúi frá Austurríki
fái sæti í ríkisráði Þýzkalands.
\'erði þessum kröfum ekki full-
nægt, segjast bandamenn munu
setjast að í Rínarlöndunum.
—----0----
Nýr ófriður?
Khöfn, 3. sept.
Eúmenar hafa dregið saman mik-
ið lið, sem ætlað er að berjast gegn
Serhum. Utlit ískyggilegt þar
syðra.
>------0------
Austurriki
og friðurinn.
i
Khöfn, 3. sept.
Ríkisforstjórinn í Austurríki
hefir beðið bandamenn um lengri
frest til þess að svara friðarsamn-
ingum þeim, sem handamenn hafa
látið uppi.
-------0------1
Kolaverðshækkun
á Englandi.
(Úr Verzlunartíðindum.)
England hefir nú fengið alvar-
legt íhugunarefni.
Stjórnin hefir tilkynt, að kola-
verðið verði að hækka um 6 sh. pr.
tonn frá 16. júlí vegna launahækk-
unar, 7 tíma vinnutíma og auðsærr-
ar lækkunar á dagframleiðslu hvers
verkamanns. Ríkið gat ekki tekið
að .sér að borga verðmismuninn, því
kolin urðu ekki ódýrari á þann
hátt. Neytendurnir verða að borga
kostnaðinn að öllu og méga ekki
vænta neins styrks úr vasa skatt-
gjaldenda. Útflutningsverðið cr ó-
breytt, 90 sh.
Foringi verkamannaflokksins,
mr. Adamson, sem sjálfur er kola-
námumáður, hélt þeirri skoðun
fram, að verðhækkunin, sem námu-
eigendurnir færu fram á, væri sams
konar og sú, er stjórnin vildi koma
á í fyrra, um 2 sh. 6 d., og sem
reyndist vera ónauðsynleg.
Forseti Board of Trades, Sir Auc-
land Geddesj hélt því fram, að á-
lagningin í fyrra væri í raun og
,veru sprottin af kostnaðarhækkun
og í hlutarins eðli lægi, að hærri
laun og styttri vinnutími hlyti að
hækka kolin og rýra kolamagnið,
á meðan ekki fyndist neitt, er spar-
aði vinnukraftinn. Námueigendur
gætu ekki krafist meira en þeim
væri áætlað í arð samkvæmt sátta-
dómi Sankeys dómara, 1 sh. 2 d. pr.
tonn. — Verkamannaforingjarnir
heimtuðu nákvæma rannsókn máls-
ins og var þá ákveðin umræðít um
það í neðri málstofunni.
Board of Trades álítur, að sam-
kvæmt fengnum upplýsingum, megi
gera ráð fyrir ársframleiðsht, er
nemi 217 milj. tonna. Að frádregn-
um kolum til námurekstursins og’
námuverkmannanna, samtals 24
milj., og 32 milj. tonna, sem eiga
að seljast til útlanda og notast sem
bunkers (skipakol), verða að eins
eftir 161 milj. tonna til heimasölu.
Reksturskostnaður ásamt vinnu
launum má stíga um 46(4 milj. £
samkvæmt sáttasamningnum, og
kosta þá þessi 161 milj. tonna 5 sh.
9(4 d. meira á tonn, eða um 6 sh.
Verðhækkun á kolum á Englandi
hefir undir eins í för með sér verð-
hækkun á öllum iðnaðarvörum, og
þá ekki hvað síst á Ijósi og éldivið
í húsum. Framleiðsla á stáli verður
þannig 2 £ dýrari pr. tonn. Eins
og nú stendur, geta ameríkskar
stalverksmiðjur boðið lægra vérð
en hinar ensku, og sömuleiðis
frönsku stálverksmiðjurnar í El-
sass Lothringen. Þegar svo skipa-
kolin óhjákvæmilega hækka og
farmgjöldin um leið, þá er auðvelt
að sjá að brezkur iðuaður verður
að lúta í lægra lialdi í baráttunni
við ameríkskan iðnað og ef til vill
innan skamms við þýzkan. Og þá
á þetta ekki síður við skipasmíð-
arnar, sem eiga nú í vök að verj-
ast í samkepuinni við skipasmíða-
stöðvamar í Bandaríkjunum og
J apan.
Mr. W. L. Hichens, formaður í
Gammel, Laird & Co. sagði dagiun
eftir á fuiidi á kolabörsinum í
Sheffield, að stjórnin væri að sjálf-
sögðu neydd til þess að liækka
kolaverðið til þess að kolanámu-
reksturinn gæti borið sig. En 6 sh.
pr. tonn verður erfiður þröskuld-
ur fyrir sérhvert iðnaðarfyrirtæki
í landinu. Því á meðan launahækk-
un og stytting vinnutímans ekki er
samfara framleiðsluauka, þá er
sjálfgefið að brezkur útflutningur
minkai’ og þá um leið velmegun
þjóðarinnar. Hvað vélaiðnaðinu
snertir, hefir hin nýja launahækk-
un ásaint stytting vinnutímans haft
í för með sér 30—33(4 % fram-
leiðsluminkun pr. tíma.
Imperial College of Science and
Technology liafði einmitt nú árs-
fund í sambandi við British Scien-
tifie Products Exhibition í Central
Hall, Westminster. Þar varð um-
ræða hjá hinum lærðu mönnum
um kolaverðhækkunina. Prófessor
Armstrong lagði það til, að bann-
að væri að nota önnur kol til
brenslu en þau er væru kemiskt
unnin. Með þessu móti mundi vera
hægt áður langt um liði að lækka
útgjöld til kola um helming. Al-
vara nútímans væri hróp gegn
deyfðarmóki fólksins. Og’ tæki
þjóðin ekki breytingum í þessu
efni, mundi brátt verða úti um
allan iðnað í landintt.
Prófessor Bone benti á það al-
kunna, að kol eru það eiua aðal-
hráefni, sem gnægð er til af i land-
inu. Stóriðnaðurinn yrði að flytja
inn allan kopar, meir en 90 % af
blýi, tini og zinki, sem þörf væri á,
enn fremur alla bómull, 80 % af
ull og 80 % af trjávið. Helmingur-
inn af járni því, sem brætt er, kem-
ur frá útlendum málmnámum. All-
ur iðnaður í landinu er með öðr-
um orðtim undir því kominn, að
hægt sé að útvéga hráefui aunars
staðar frá. Að þessu hafa ódýru
þoliu verið ségullitm, sem dregið
■hefur að sér þessi útlendu hráefni.
En missi þessi segull mátt sinn,
verði brezku koliu stöðugt dýr
vara, þá missir brezki iðnaðurinn
öndvegissætið, já, má segja að
hann sé þá á heljarþröminni. Kola-
verðið er nú þrisvar sinnum hærra
en það var fyrir 5 árum síðan, og
eigi séð fyrir endann með hækkun-
ina. I Ameríku náði kolaverðið
hámarki sínu fyrir lok ársins 1917
og hefir síðan stöðugt farið niður
á við. Að vísu hefir það ekki enn
komið fyrir, en sá möguleiki er ef
til vill ekki svo fjarlægur, að ódýr
ameríksk kol verði á boðstólum á
Lundúnamarkaðinum fyrir mun
lægra verð en nú er borgað fyrir
brezk kol uppskipuð í Newcastle.
Arsframleiðslan pr. mann var við
ameríksku námurnar árið 1917
770 tonn kol. Á Bretlandi færist
talan niður, en í Ameríku hækkar
hún. Að þessum staðreyndum verða
bæði stjórn og.námuverkamenn og
öll þjóðin að gefa gætur.
(Úr Farmand.)
Erl. símfregnir.
Khöfn, 2. sept.
Frakkar og Þjóðverjar.
Frá Berlín er símað, að Frakk-
ar liafi slakað sVo til, að Þjóðverj-
ar þurfi fyrst um sinn ekki að láta
af hendi nema helming þeirra kola,
sem þeir áttu að láta Frökkum í
té samkvæmt friðarskilmálunum.
Her Bolzhewikka
sækir fram gegn Livlendingum og
Eistlendingum, sem skora á Þjóð-
verja að koma sér til lijálpar. 0.p-
inberlega er tilkynt, að her Litliau-
ensmanna nálgist Vilna og liafi um-
kringt her Bolzhewikka á þeim
stöðum, cii Bolahewikkar vilja
semja frið við þá.
Jarð&rför Jóhanns Sigurjónssonar
er ákveðin þ. 5. þ. m.
Æðardúnn
er seldnr 1 verslun
G. Zoéga.
Fyrir lnktum dyrum
hélt sameinað þing fund í gærmorg-
un kl. 9. Þykir sennilegt að þar
hafi verið til umræðu, að rninsta
kosti aðallega, myndun nýrrar
stjórnar.
Síðan stjórnin sagði af sér, liefir
ekkert heyrst um það, að nokkur
undirbúningur væri í þinginu um
myndun nýrrar stjórnar. En það er
vel skiljanlegt að forsætisráð'herra
vilji ekki „vera við völd“ margar
vikur eftir að liann ef fúsum vilja
hefir beðið um lausn og fengið
liana. Og enn skiljanlegra að hanu
þá reki á eftir þingmönnuim.
Vafalaust verður þetta ráðherra-
spursmál útkljáð einhvern næstu
daga.
Gengl erlendrar myntar.
Kaupmannahöfn, 2. sept.:
Sterlingspund ...... kr. 19.23
Dollar ............... — 4.58
Þýzk mörk (100) .... — 21.40
Sænskar krónur (100) — 111.65
Norskar krónur (100) — 104.95
London, 2. sept.:
Krónur ................ 19.32(4
Dollars 419.2
Mrk..................... 88.50
Reykjavík, 3. sept.:
Sterlingspund ...... kr. 19.55
Fránkar (100) .........— 62.00
Þýzk mörk (100) .... — 25.00
Norskar krónur (100) — 107.50
Sænskar krónur (100) — 115.00
Dollar ................— 4.68
O-