Morgunblaðið - 03.02.1922, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.02.1922, Blaðsíða 2
MORGUNBLAiIÐ (><■ vérslunarástandið verði þannig að stjómin geti e.kki útvegað birgðir á ákveðnum tíma, heldur tmmu afleiðingarnar af slíku dembast yfir þjóðina fyrir getu- leysi og rangan útreikning stjórn- arinnar. Þá er þriðja ástæðan, sem mest áberslan var lögð á af stjórninni og formælendum frumvarpsins í þinginu, en sem auðsælega er lang- athugaverðust. Hjer skal á kostn- að alþ.jóðar mynda tryggingarsjóð fyrir landbúnaðinn. Til þess að landbúnaðurinn geti verið áhyggju laus, skal dem'ba á alla brauðneyt- endur hækkuðu verði á aðalnauð- synjavörum landsmanna og ganga þannig á rjettindi frjálsrar versl- nuar. Það virðist eðlilegra að stjórnin hallist að því að örva og styðja landbændur til komforða- búrastofnana og viðhalds þeim, og við álítum að ekki væri um skör fram misboðið frelsi landbúnaðar- ins, þó bændum væri gert að skyldu að eiga í hverri sveit á- kveðinn kornforða til skepnufóð- mrs undir hvert vor og það auð- vitað á þeirra eigin kostnað og ábyrgð. Með því móti væri má ske hægt að draga úr þeim galla, sem altaf hefir verið talinn við forðabúrin, nefnilega að margir sctji á þau og lendi á þeim miklu oftar en knýjandi ástæður em til þess. Við viljum því einhuga leggja það til, að bæjarstjómin, af fram- angreindum ástæðum og fleirum, sem við höfum ekki tekið fram, mæli fastlega á móti því að þing, ið samþykki greind heimildarlög. tl’is1: MnniH. Þar sem nú bráðum líður að því, að Alþingi kemur saman, þá vaknar eðlilega sú spuming hjá almenningi, hvað gott það muni færa. Mjer hefir heyrst á mörgum, sem jeg hefi átt tal við um þetta eini, að störf Alþingis nú muni aðallega verða í því fólgin, að leggja nýja s'katta á landsmenn svo hægt verði að greiða þau miklu gjöld, sem á landssjóði hvíla. En þá rís sú spuming, á hvað á að leggja skatfca? Eftir því sem mjer hefir skilist á fólki, þá eru skattar þeir, sem nú era, svo margir og miklir, að ískyggilegt þykir að fjölga þeim. En era þá engin önnur ráð til þess að komast ur þessum vandræðum? Væru ekki hugsanleg önnur ráð fyrir stjórn- ima eða glþingi að afla fjár handa landssjóði, en með nýjum skatta- áiögum 1 Jeg hefi sem hlutlaus út- lendingur athugað nokkuð þetta mál. Skal jeg því leyfa mjer að svo stöddu að koma með tvær uppástungur, sem em þess eðlis, að þeim verði gaumur gefinn. Þar sem nú ísland með íbúum þess — 97000 — er frjálst og sjálf stætt rjki, þá virðist hin fyrsta skylda stjómarinnar vera, að koma festu á íslenskan gjaldeyri. Þá verður með íslensku fjármagni að efla hjer innlendan iðnað, svo íslendingar geti sjálfir framleitt það, sem hægt er, af vamingi þeim sem þeir þarfnast og fært sjer í nyt hráefni þau, sem hjer á landi era fyrir hendi. Við þetta mundi þjóðareignin aukast svo 100.000 kr. skiftir á ári hverju, þegar við það, að ágóðinn og vinnuaflinn verður hjer í landinu og um leið eykst þjóðareignin erlendis. Eji fjárhagsástand það, sem nú er fyr- i hendi, og örðugleikamir við að komast yfir útlendan gjaldeyri til þess með honum að greiða hráefni' þau, sem hjer eru ekki fyrir hendi, draga allan kjark úr mönnum og í öðru lagi aðflutningsgjaldið af útlendum hráefnum ob vjelum þeim, sem eru nauðsynlegar til þess að geta unnið og fært sjer í nvt hráefni þau, sem hjer á landi eru fyrir hendi. Annað eins fyrir- komulag mun hvergi finnast ann- arstaðar. Það, sem þá fyrst verður að ger- ast, er að koma lagi á viðskiftin við útlönd og í öðru lagi að af- nema alt aðflutningsgjald af út- lendum hráefnum og vjelum. En til þess að bæta upp hall- ann við afnám ofangreinds að- flutningsgjalds, gæti í þess stað komið skattur, um 14% á fram-1 leiðsluna að öllum kosfcnaði frá- dregnum, og sú uppliæð, sem þessi | skattgreiðsla nemur, mundi verða margfalt meirí en hið oftnefnda aðflutningsgjald. Nái nú þessar uppástungur mín- ar fram að ganga, þannig að út- gefin verði lög eða ívilnanir í því efni, mun jafnframt mikill hluti af fje því, sem íslendingar eiga eða eignast í bönkum erlendis, hverfa hingað aftur, þar sem það leiðir af sjálfu sjer, að hver hygg-, ir.n kaupmaður lætur andvirðið fyrir varning þann, sem hann flyt- ur út hjeðan, vera erÞndis, að minsta kosti að nokkru leyti, svo hann ávalt geti gripið til þess, þeg ar hann þar þarf á því að halda. Svo væri það og æskilegt, að stjómin eða alþing legði varnar- toll á þann aðfluttan varning, sem r hægt er að framleiða hjer á landi. Það verður sem sje með öllu móti af hlynna að innlendum iðnaði. Martin W. Helfbemd. ,,viskusteininum“. Þá fyrst mundu menn sjá, að rjettara hefði verið að ákveða skaðabæturnar í vörum en ekki peningum. I Þýskalandi hefir ekkert heyrst um þetfca mál og staðhæfing pró- fessorsins kemur eins og þruma úr heiðskíru lofti. Gömlu trúnni um möguleika á því að hægt sje að framleiða gull, hefir aukist fylgi við síðustu uppgötvanir á sviði efnafræðinnar og eðlisfræð innar.Og því er ekki vert að heno.a gaman að þessari staðhæfing:, jafnvel þótt hún komi frá Ame- ríku. Hver veit nema gullgerðar- maðurinn þýski komi einn góðan veðurdag til skaðabótanefndarinn- ar með alla gullmiljarðana í eftir- dragi. niiiOiar í Gnsti Um jólin barst frjett um það hingað, að skip hefðu horfið á einkennilegan hátt í Eystrasalti, einkum í grend við Kronstadt. Er haldið að rússneskir sjóræningjar valdi þessu og nokkur dæmi sjó- rána hafa þegar verið staðreynd. 22. des. var þýska skipið „Capella' rænt og áhöfnin sett í land. Panst það á reki og alt fjemætt horfið úr því. 9. desember týndist skipið „Sarama“ með allri áhöfn. Yit-a menn það seinast til þess, að það var stöðvað skamt frá Kronstadt af rþssneska ísbrjótnum „Viuga“ og vifca menn eigi annað um þeirra skifti en að ísbrjóturinn rendi á „Sarana“ svo að það sökk eftir fáar mínútur og fórust þar 28 menn. Skipið var frá Eistlandi og hefir stjómin þar krafist skýr- ingar á þessum atburði af sovjet- st.jórninni. iar f Bústaður konungsins. Merkileg staðhæfing. M.erkur þjóðmegunarfræðingur í Amerjku, Irving Fischer prófessor við Yale-háskólann, var nýlega á ferð í Englandi og hjelt þar fyr- irlestna í frægu vísindafjelagi. 1 einum þessara fyrirlestra kom pró- fessorinn fram með staðhæfingu, sem vakið hefir dæmafáa athygli. Hann heldur því sem sje fram, að Þjóðverjar bafi fundið aðferð til að búa til gull. „Það verður að gera ráð fyrir, að mikil líkindi sjeu til, að þýskir efnafræðingar finni aðferð, er geri Þjóðverjum kleift að gr-‘iða hem- aðarskaðabætumar“, segir hann. Og hann getur þess, að sjer sje persónulega kunnugt um, að ein- um þýskum efnafræðingi hafi tek- ist að gera hreint gull úr ódýrari málmum. Segir prófessorinn, að nú vanti ekki annað á, en að gera þecsa framleiðsluaðferð ódýra og fylla síðan markaðinn af gulli, sem vitanlega fellur í verði að sama skapi sem meira verður af því og verði á endanum mjög lít- ils virði, í stað þess -að greiða sektir, auðgist úr hófi fram á Þegar Kristjánsborg var reist úr rústum aftur, var svo ráð fyrir gert, að önnpr álma hallarinnar yrði bústaður Kristjáns konungs tíunda. Yiar bústaðurinn nýlega fullgerður, en á síðustu stundu varð breyting á þessu, og er talið víst, að kommgshjónin muni <hafa óskað þess að fá að vera kyr á Amalíuborg. Þykir sennilegt, að utanríkisráðuneytið flytji í kon- ungsbústaðinn í Krisjánsborg úr búsaðnUm sem það fekk fyrir ' sköftimu í Thotts-höllinni á Kongs- ins Nýjatorgi. f konungsbústaðn- um á Kristjánsborg eru 70 her- bergi. og er gert ráð fyrir að það nægi og að þar verði jafnframt móttökusalir ríkisþingsins. Að vísu hafði utanríkisráðuneytinu talist svo til, að það þyrfti á 90 her- bergjum að hálda, en stofumar í Kristjánsborg era svo rúmgóðar, að líklegt þykir að þær nægi, þó eigi sjeu þær nema 70- Á bústaður banda utanríkisráðherranum að verða á sama stað. Bústaður kon- ungs á Amalíuborg verður skinn- aður upp; hann er orðiun úr sjer genginn af því að honum hefir eigi verið haldið við síðustu árin vegna breytingar þeirrar, er fyr- irhuguð var. 750 ára striðið. Með írska sáttmálanum er loks fenginn friður í deiluuTii milli íra og Englendinga, dú'.u, sem hefir staðið yfir að kalla látlaust í 750 ár. írska þingið Dail Eireann og enska parlamentið ihafa staðfest sáttmálann, sem gerður var í Lon- don 6. desember. í enska þinginu var sáttmálinn samþ. með mikl- um meiri hluta, en í írska þinginu var aðeins 2 atkvæða meiri hluti. Að munurinn varð ékki meiri ,.1 þetta í Dail Eireann gefur ástaðu til að óttast, að írar muni ekki una við sáttmálann og að nýjar kröfur og dei'lur komi fram von bráðar. Hið eina sem afsýrt get- ur þessu er það, að írar finni, þeg- ar þeir fara að reyna hvernig sátt- málinn gefst í framkvæmdinni, að hann er landinu til góðs, og að ! honum aukist fylgi fyrir þá sök. { Eða að friði verði haldið á þann hátt, að Englendingar slaki enn meira til við íra en þeir hafa þegar gert. írland hefir mætt mörgu mót- drægu síða-stliðin þúsund ár. Fyrst; komu norrænu víkingarnir, Norð-1 menn og Danir og spiltu friði í j landinu og árið 1171 byrjuðu árás-! ir Englendinga á frland með því, ^ að Hinrik konurigur TI. rjeðist inn í landið og þar með hófst veldi Englendinga í írlandi. Síðan eru liðin rjett 750 ár, og þess eru fá dæmi, að*nokkur þjóð hafi jafn lengi getað bárist gegn erlendu valdi og fyrir frelsi sínu. Englend- ingar hafa engan heiður haft af afskiftum sínum af írlandi. Eniska valdið í írlandi hefir aldrei verið annað en kúgunarvald, og af því hefir engin þjóð haft heiður. Saga írlands er samfeld keðja af of- beldisverkum, uppreisnum og alls- konar vandræðum. frar hafa aldrei < gefist upp, 0g af því að rjettur- inn var í upphafi á þeirra hlið, hafa þeir notið samúðar flestra þjóða og Englendingai- mæli af* m^ðferð sinni á Irurn. írska málið er ein sönnun þess, að kúgunin getur aldrei unnið varanlegan sigur, og þó hægt sje að ræna þann sem minni máttar er frelsi og rjetti um sinn, þá kemur hefndin ávalt um síðir. Eftir frönsku stjórnarbýlting- una reyndu írar lað mynda fríríki, en það mistókst með öllu. Næstu tímamót í sögu írsku baráttunnar urðu árið • 1860, þegar Fenía-f je- lögin í Ameríku voru stofnuð og fóru að vinna að málefnum fr- lands. Til íranna í Ameríku má rekjia tildrögin til þess, hvernig málum írlands er nú komið. Það er styrkurinn frá fram vestan hafs, sem hefir reynst írum happa drýgstur í barafctu siðari tima. Englendingar hafa, samþykt stefnu hinna frjálslyndari stjórn- málamanna í frlandsmálunum og sáttmálinn nýi gengur lengra en heimastjómarfrumvörpin, sem frjálslyndi flokkurinn enski barð- ist fyrir frá dögum Gladstone, en hinsvegar hefir það tekist að halda frlandi innan endimarka breska alríkisins. Þessi lausn mál- anna má heita viðunandi fyrir alla aðila og má fullyrða, að hún hafi fyrst og fremst náðst fyrir vitur- lega og hyggilega framgöngu Lloyd George í málinu. -------0-------- Kaupþingað. 1) Kaupþmgið er opið á þriðju- dögiun og föstudögum kl. 1,30 til 3 e> h. í húsi Eimskipafjelags fs- lands. 2) Kaupþingið er undir aðaluni- sjón Verslunarráðs Íslands, og hef- ir einn af þáttakendum þess eftir- lit með kaupþinginu eftir nánari ákvörðun. 3) Þeir sem sækja kaupþingið skulu hafa aðgönguskírteini, er Vei'slunarráðið veitir fyrir eitt al- manaksár í seUn. Ökírteinið hljóð- ar á nafn og veitir aðgang þeim manni, sem á því er nefndur eða föstum starfsmanni hans. Að- gönguskírteini skal framvísað ef eí'tirlitsmaður kaupþingsins óskar þess. 4) Aðgöngugjald ákvefur Versi- unarráðið við byrjun hvers árs. Fyrir árið 1922 er gjaldið ákveðið kr. 75.00. Skuldlausir þátttakendur í Versl unarráðinu og ræðismenn eriendra írikja hafa ókeypis aðgang að kaupþinginu. Umsóknir uni aðgöngu-skírteini s< ndist á skrifstofu verslunarráðs- ins. / 5) Eftirlitsmaður kaupþingsins g-etur leyft þeim, sem aðgöngu- rjett hafa, að taka með sjer gesti. 6) Gengis- og vöruskráningar, svo og opiniberar frjettir og skýrsl ur kaupþingsins skulu festar upp' á töflu í kaupþingsherberginu. Eiiikaauglýsingiar fást og birtar á sama hátt gegn 2 aura gjaldi fyrir ferhyrnings centimeter í hvert sinn, rninsta gjald þó 5 krónur. Augiýsingamar sjeu afhentar á skrifstofu Verslunarráðsins í síð- asta lagi fyrir hádegi þann dag,- er kaupþing stendur. 7) Fjarverandi þátttakendum kaupþingsins gefst kostur á að fá símleiðis sendar upplýsingar og frjettir af kaupþinginu gegn fyrir fram kostnaðargreiðslu. 8) Fjelög kaupsýslumanna í fjar liggjandi bæjum og kaupstöðum, eiga kost á upplýsingum kaup- þingsins jafnóðum, sem þær ber- ast því, svo og frjettum og upp- lýsingum ,af kauplþinginu, gegn greiðslu á útlögðum kostnaði og ársþóknun eftir samkomUlagi við Verslunarráðið. 9) Þeir, sem kaupþingið sækja eru vinsamlega ámintir um að ganga hreinlega um herbergi kaup- þingsins. K-eykingar eru bannaðar. Verslunarráð íslands. ----—O------- Fri MMri í rærkvöldi. Farsóttahúsið. Hjeraðslæknir hafði farið fran< á að mega, nota efri hæð farsótta' hussins fyrir barnaveikissjúklink3 þar sem uú væru nokkur brÖ£^ að þeirri veiki í bænum, en eOr' inn skarlatssóttarsjúklingur í far' sóttahúsinu sem stendur. Farsctta' húsnefndin hafði gefið samþý^^1 sitt til þessa. Ennfremur hafði nefndin ákveð- ið laun hjúkrunarkonunnar við far sóttahúsið, 130 kr. á mánuði, ýf|r þetta ár. Var þetta hvort tveggja samþykt. Blómsveigasjóður Þ. Sveinsdóttur. Lesinn var upp reikninguv

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.