Morgunblaðið - 02.08.1924, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 02.08.1924, Blaðsíða 3
Endurminniiigar eftir sjera Ólaf Ólafsson fríkirkjuprest. Þaö eru 50 ár í dag síðan sú liátíð var haldin um land alt til minningar um það, að þá var land- iö búið að vera bygt í þúsund ár. Það lieföi ekki verið ástæðulaust, þótt þessa viðburðar hefði verifi minst allrækilega, þ.ví þjóðhátíðar- árið 1874 er án alls efa eitt allra merkilegasta árið í allri sögu ís- lensku þjóðarinnar. Meö þvi ári JtefsJ nýr og merkilegur líafli í íslandssögu, þá byrjar nýr tími, liefst nýtt og merldlegt tímahil með nýrri þjóðarvakning og nýj- um f ramfaraliug og framiaratil- þrifum á nærfelt öJlum sviöum þjóðlífsins. Það fer með því ári nýr andvari yfir-alt landið, vekj- andi, lífgandi og hressandi; og' þo að þjóðin væri farin að rumska og vakna áður, þá er eins og hú með og upp úr því ári verði glað- vakandi, og gangi með nýjum hug og nýjum dug að ölJum sinumldut- verkum. Flest öil stórvirki, sem síöan hafa verið framkváemd, eiga til þess árs sínar dýpstu rætur aö rekja, ef rjett er að gáð, og nógu djúpt er Lagst, eru i sínu inst.a eðli sprott- in upp af þeim frækorrmm, and- legum og Jíkamlegum, sem þá voru lÖgð niður í þjóðarakurinn, og þá fengil líf og frjómagn. ÍJm alt þetta mætti langt mál rita, en til þess er að þessu sinni hvorki tími, rúm nje tækifæri. Jeg ætla einungis fyrir tilmæli og inönnum til stundargamans aö rifja dálítið upp og segja mönnum. frá þessu fimmtíu ára gamla há- tíðalialdi, eins og það var Jijer í Reykjavík og á Þingvölium; þaö má gera ráð fyrir, aö öllum þorra manna sje þetta mál nú annaðlivort lítt knnnugt eða ókunnugt; margt fyrnist og gleymist á skemmri tíma en hálfri öld. Blöð voru þá varla til lijer í Kvík nema Þjóðólfur; ísafold var eltki fædd, 0g dagbiöð voru eng- in; lífið alt var gagnólíkt því, sem nú er, bæði lijer í Itvík og alstaöar annarsstaðar á landinu. Jeg var þetta merldlega sumar á nítjánda árinu, kominn í þriðja bekk B. í latínuskólanum; átti jeg &ð heita kaupamaður um sumarið ájá Jóni Matthiesen bónda í Gröf í Mosfellssveit, bróður Bjarna hringjara hjer í bæmun, mjög góð- hm bónda og stökum gæðamanni; -— jeg var ljelegur lrauþamað- hr; var með allan hugann niður í ^vík við þaö, sem þar var að ger- ast, eða von v,ar á að gerast mundi. ^14 jeg nú segja það liúsbændum hdnuin til hróss, aö þau ljetu mig aH-sjálfráðan atliafna minna. Jeg hrátti fara niður í Rvík, er jeg Frá guðsþjónustunni í Dómkirkjunni 2. ágúst 1874. í prjedjkunarstólnum er dr. Pjetur Pjetursson biskup, en Hallgrímur Sveinsson, þáverandi dómkirkjuprestur fyrir altarinu. í „lands- höfðingjastúkunni*1 sjást m. a. Kristján níundi og sonur hans, Valdimar prins. J?á var „Ó Guð vors lands“ sungið í fyrsta skifti. (Eftir samtíðarmynd.) vilcli; en segja varð jeg öllu fólk- inu frá því, er fyrir augu og eyru liafði borið í hÖfuðstaðardýrðinni1 í þaö og það slciftið. Jeg Var því sjónar- og lieyrnar- vottur að öllu hátíöarhaldinu hjer í bænum; man jeg enn margt af því, sem fyrir augun bar, og sumt af því, sem þá var talað, eins vel og skilmerkilega, eins og það hefði verið fyrir nolvkrum dögiun; bet- ur en margt það, sem síðar Jiefir við borið. Undirbúningur undir þjóí- hátíðina. All-löngu fyrirfram voru menn búnir að lireyfa því, aö lialda bæri liátíölegt þetta ár, í minningu um þúsund ára byggingu landsins. Stjórnarskrárdeilan var þá búin að standa árum saman undir f;v- ustu Jóns Sigurðssonar, og gerði eiginlega hvorki að reka nje ganga, og síðustu árin höfðu þau tíðindi gerst, að allmikið var farið að hitna í mörgimi; þeir voru fæstir, sem mikið vildu slaka á klónni; en margir þráðu oröið, að fá bund- inn sæmilegan enda á máliö. En með þjóðhátíðarárinu greidd- ist, að minsta kosti um stund, úr þessu vanda- og vandræðamáli. Hinn 5. janúar það ár undir- skrifaði konungur, Kristján níundi, stjórnarskrána. Datt þá í bili byl- ur af húsi, og konungur lilaut þegar vinsældir og lof hjá öllum þorra manna. Auðvitað var stjórn- arskráin þegar talin gallagripur, og ekki fullnægja öllum kröfum íslendinga; en flestir játuðu líka hitt, að hún væri upphaf og und- irstaða annars meira og betra í framtíöinni; enda varð líka sú raunin á. Samhliða þessu fóru þær fregnir og að berast víða út um landið, að þetta smnar mundi konungur sjálf- ur heimsækja landið og þjóðina með miklum veg og yiðliöfn, út- nefna Jijer liinn fyrsta íslandsráð- herra, og þannig sjálfur færa á Þingvelli, liinum fornlielgasta stað landsins, Islendingum hina nýju stjórnarskrá að gjöf. Þetta þóttu öllum bæöi mikil og góð tíðindi. ; Nú skaut gestrisnis- og höfðings- skaparlundinni upp í íslendingum; allir vildu taka svo sæmilega, sem föng væru á, hinum fyrsta kon- ungi, sem stígi hjer fæti á land, sýna lionum alla virðingu og gleyma, að minsta kosti um liríð, öllum gömlum deilumálum. ;En ekki kom mönnum að öllu ltyti saman um það, hvern dag að’ liátíðin skyldi haldast. Norölingar vildu hafa liátíðina á Þingmaríu- messu, 2. dag júlímánaðar, og voru sumar hátíðimar fyrir norðan haldnar þann dag, svo sem á Odd- eyri og í Svarfaðardalnum, á Þing- eyrum og á Reynistað og máske víðar. En ofan á varö, að aðalhá- tíðisdagurinn yrði 9. sunnudagur- inn eftir Trinitatis eöa 2. ágúst, Dagana á eftir, 5.-7. ágúst, er konungur væri á Þingvelli, skyldi Jialda þar allsherjarþjóðhátíð og Þingvallafund fyrir alt landið, með þar til kjörnmn mönnurn úr öllum sýslum landsins, en auðvitað væri þangað öllum frjálst að koma. — Biskup bauð öllum prestum lands- ins, að lialda svo liátíðlegar guðs- þjónustur í kirkjum sínum, sem itjiig væru á, þennan sunnudag, og liáfa fyrir texta Dav. Sálm. 90, 1—4 og 12—17. Til þess að Iiafa á hendi mnsjón og stjórn á þjóðhátíðarhaldinu í Rvík kaus bæjarstjórnin 3 menn: landfógeta Á. Thorsteinsson, faktor -Jón Stefánsson og Ilalldór yfir- kennara Priðriksson. Varamaður var Itosinn assessor Magnús Stepli- ensen, síðar landsliöfðingi. Konungskoman. Konungur, Valdemar prins og föruneyti konungs kom hingað á freygátunni Jótlandi; er hún enn við lýði, þótt gömul sje, og liafa Danir á lienni dálæti mikið síðan nun tók með sóma þáít í sjóorrust- unni við Ilelgoland, er Danir unnu frægan sigur á Austurríkismönn- um undir forustu Suenzons aðmír- als. llún er þeim eins og gömlu reiðhestarnir oltltar íslendinga, sem hafa^oft Jvomið okkur lifandi heim yfir margar torfærur; við tímum «■ endanum ekki að slá þá af, þótt þeir sjeu orðnir til einskis nýtir. En fylgdarskip með Jótlandi var lierskipið Heimdallur; en herskipið í'ylla Var hjer fyrir. Snemma á fimtudagsmorguninn, 30. júlí, frjettist með ensku skipi, sem Albion lijet, að Itonungsslripin væru komin inn um Reykjanes. Fór þá Fylla þegar á móti þeim til að vísa þeim rjetta leið til liafnar. Komu svo skipin hjer inn á höfn um hádegisbil; fór Jótland fyrst, þá Heimdallur og síðast Fylla. — \ ar það skemtileg sjón, er þau sigu hjer inn sundin; var Jótland mikið skip og frítt, og bar liátt yfir sjó, eins og Orminn langa. — Þegar skipin sigu inn Engeyjarsund, þá hófu útlendu herskipin, sem hjer voru þá fyrir, skothríð mikla til að heilsa konungi; reið sænska her- skipið Norrköping á vaðið; var sem alt ætlaði ofan að ríða í þeim þórdunum, og nötruðu rúður í gluggum, en gamalt fólk hugði heimsendi kominn. En öllum þess- um kveðjum svaraði fylgdarskipið Ileimdallnr með „kurt og pí“ fyr- ir konungs hönd. Nú víkur sögunni til Reykjavík- ur. Þar hafði bæjarstjórnin gert það, sem í hennar valdi stóð, til að þrífa bæinn, moka úr gömlum og grónum öskuhaugum á Austur- velli og skolpa verstu rennustein- ana í miðbænum. En á miklu var að taka, og verkið sóttist seint; var samt furða, hve bærinn leit skamm-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.