Morgunblaðið - 06.08.1929, Blaðsíða 2
M O R G U N B L A Ð i t)
Biðjið um
Colman’s
Fæst allstaðar.
■0 Híssko
M.&'é&.WiL&'&JM.'&B.S.l
L'arneolejeaideling.
Grundl j prahti'Ií c' tccre'isK Undersisn na I alt husligt Arbejde nq Barnepleje.
SKoien udridet - Cen.traioartne ooeralt - Nyt Kursus begynder 4. Nooember og 4. MaJ.
p is '15 Kr mdl. - Projram sendes. - Statsundersteittelse kan szjes
Telí Sora 10? c.q 442 E. Vestergaard, Uorstanderlnde.
Drengur
nm fermmgu
óskast stras.
A. Obenbanpt.
99
Iu memoriam.
ti
Sðpnr
er mýkja, styrkja og
hreinsa hörnudiö og
gefa þvi yndislegan
mjallhvítan litarhátt,
— fást frá 35 anrnm
stykkið í
Uerslið við Vikar.
— Vöfur við vægu verði. —
Nóttina milli 11. og 12. jiilí, and-
aðist hinn ágæti vinur minn, Kon-
ráð R. Konráðsson á hörmulegan
hátt. Hann og Sigríður kona hans
dvöldu enn einu sinni á heimili
okkar. 1 21 ár hafði vinátta okkar
staðið. Jeg hefi með ágætri leið-
sögu hans sjeð fegtirð ættlands
hans og jeg kyntist þá ættjarð-
arást hans. Hann hefir síðan feng-
ið tækifæri til að kynnast mínu
ættlandi og hann lærði að virða
það og elska á sama hátt og jeg.
Jeg átti aidrei dýrmætari og betri
vin, engan sem betur sýndi þakk-
læti, jafnvel fyrir smágreiða. Lífs-
gleði hans og þróttur kendu mjer
að sjá skrítnar hliðar á ýmsu, jafn
vel þótt alvarlegt væri, og jafn
vel á dauðastundinni sýndi liið
þjáða andlit hans dálítið af hinni
einkennilegu góðlátu gleði.
Annar aðaldráttur skapgerða*?
hans var hin óslökkvandi ást hans
á föðurlandi sínu. Þess vegna mun
liann verða grafinn á ættjörð
sinni. Guð blessi minning hans og
huggi vini hans og ættingja.
Hvíl í friði, vinur!
Bremen í júlí 1929.
Emil Sonnemann.
• I Snndskýlnr, Snndbolir, Snndbettnr, fjölbreytt úrval í Verslun gill lacobsen.
mi !ios liíliirs reynist best. Baldursgötu 14. Simi 73.
Pjetur Jónsson söngvari skemti
sjúldingum á Vífilsstöðum með
.söng hinn 1. þ. m., og var almenn
hrifning og þakka sjúklingar hon-
)um kærlega fyrir komuna.
Ernir.
Jeg var staddur vestur í Barða-
strandarsýslu, er jeg las grein
Nielsens á Eyrarbakka ur ernina.
Þar hjelt hann því fram, að á öllu
landinu mundu vera 6—7 arnar-
hreiðnr, brýndi fyrir mönnum
prýði þeirra, og hver þjóðarósómi
það væri, ef þeim væri útrýmt,
líkt og geirfuglinum.
Jeg fór hringinn í kringum Vest-
firði, og frjetti til 14 arnarhreiðra
nú í vor. Jeg veit því með vissu,
að þau eru til muna fleiri á öllu
landinu, en hr. Nielsen telur, og
stafar það vitanlega af únógum
kunnugleika hjá honum.
Margir bera þungan hug til
össu. Einstaklingar þurfa oft að
fóðra hana á lömbum og æðar-
fugli, og þeim þykir fóðrið dýrt.
Hvort rjett sje vegna þjóðarmetn-
aðar að friða hana, skal jeg láta
ósagt, en sje það rjett, er rjett að
heildin horgi þeim einstaklinigum,
sem árlega verða fyrir skakka-
föllum af völdum hennar, en mega
ekki að gera, af því hún er friðuð.
Eða hvað mundu amarvinirnir
láta hana drepa mörg lömh fyrir
sjer — sín eigin lömb — án þess
að fara að áreita hana með skot-
um?
Þegar næst verður rætt um fram
lenging á friðunartíma arnarinnar,
ei sjálfsagt — ef rjett þykir að
friða hana — að láta heildina —
ríkissjóð — borga þeim einstak-
lingum, sem hennar vegna bíða
tjón á einn eða annan hátt.
Þetta vildi jeg biðja vini össu
að athuga.
27.-7. 1929.
Páll Zophóníasson.
Fjársöinnn
til kirkjubygging-ar í Borgarnesi.
í ráði er að reisa kirkju í Borg-
arnesi, og er þegar hafinn undir-
búningur þar efra í þessu skyni.
Merkur maður þar efra skrifar
Mbl. brjef viðvíkjandi kirkjubygg-
ingu þessari og þykir sjálfsagt að
!áta kafla úr því komast fyrir al-
menningssjónir. — Brjefritaranum
farast orð á þessa leið:
„Borgarnes er nú oi'ðið allstórt
þorp, rúml. 400 íbúar, og fólki
fjölgar ört, því atvinnulífið er
þar í mikilli framför, samgöngur
að batna til lands O'g sjávar og
ferðamannastraumur mjög mikill.
Nú er hafnargerðin langt komin,
boginn nndir brúnni fullsteyptur
og byrjað á gangpöllunum; jafn-
framt er unnið að uppfyllingunni
við efri enda Brákareyjar. Búast
menn við að hefja hjer útgerð,
þegar bryggjan er fullgerð og tek-
in til notkunar. Allmörg hús eru í
smíðum, og nú stendur til að
skipuleggja byggingu þorpsins. —
Kirkjnna hugsa menn helst að
reisa þar sem hæst ber, ög gnæfir
bún þar yfir og mundi sjást langt
að. Borgarkirkja er löngu alt of
lítil, bygð 1880, þegar engin bygð
var til í Borgarnesi. Er mælt, að
t. d. við jarðarför síra Einars sál.
I'Yiðgeirssonar hafi ekki komist
inn fjórði hluti viðstaddra, og við
fermingu í vor urðu foreldrar
sumra fermingarbarnanna að
standa utan kirkjudyra. Er mikil
hreyfing í Borgarnesi um að
byggja þar nýja kirkju, en láta
I’orgarkirkju þó standa óhreyfða,
og halda henni við, þar sem á
Borg hafði verið bygð 4. fyrsta
liirkja á Islandi. Er þegar tekið að
safna fje til kirkjunnar; hefir
safnast æði hátt á 2. þúsund kr.,
nær eingöngu með samskotum í
Borgarnesi og áheitum. En það
segir samt lítið, og er nefnd sú,
er fyrir fjársöfnuninni stendur,
mjög áhugasöm um að safna til
kirkjunnar sem víðast og á sem
flestan hátt. Ein leiðin er sú, að
fá Morgunblaðið í lið með sjer til
að hera þá fregn til lesenda sinna,
að vel reynist áheit á Borgarnes-
kirkju, og eru allmargar' sögur
þegar til um það, hve vel hún hafi
orðið við. Okkur finst ekki frá-
leitt, að ýmsir Reykvíkingar, sem
minningar hafa úr Borgarfirði,
annaðhvort frá dvöl þar eða ferða
lagi, mundu vilja láta Borgames-
kirkju njóta áheita sinna og reyria,
hvort hún reynist ekki happa-
sæl.“
Morgunblaðið veitir fúslega mót
töku áheitum og gjöfum til kirkj-
unnar.
Alþinaissjððnr
Björn Bjarnarson, hreppstjóri í
Grafarholti, hefir fyrir skömmu
— í umboði nokkurra manna —
sent út brjef um stofnun „Alþingis
sjóðs“. í skipulagsskrá segir, að
„Al])ingissjóður“ sje stofnaður til
minningar um 1000 ára afmæli Al-
þingis og eru stofnendur þeir, sem
fje leggja til sjóðsins árin 1929—
1930, en styrkjendur þeir, er síðar
efla hann með tillögum eða gjöf-
um. Sjóðurinn skal ávaxtaður í að-
aldeild Söfnnnarsjóðs og má aldrei
skerða höfuðstólinn. Allir vextir
skulu lagðir við höfuðstólinn þar
til sjóðurinil er orðinn ein miljón
krórnur, en eftir það „má Alþingi
verja hálfum vöxtunum árlega til
styrktar eða framkvæmdar stofn-
un eða fyrirtæki, sem þingið ákveð
ur þess verðugt“.
í brjefi því sem Björn Bjarnar-
son í Grafarholtj hefir sent út,
segir m. a. svo:
„Nokkurir fyrverandi og núver-
andi alþingismemn og fleiri hafa
orðið sammála um, að gangast fyi*-
ir myndun sjóðs í minningu 1000
ára afmælis Alþingis, er nefnist
„Alþingissjóðui*“, og erþessvænst,
að þjer munuð einnig vilja fylla
þann flokk.
Það mun verða alment viður-
kent, að eigi sæmi að láta þenna
einstæða merkisatburð svo hjá
líða, að eigi sje stofnað til varan-
legrar miruningar um hann, og er
sjóði þessum ætlað að verða slíkt
ævarandi minningarmerki. Er vísir
til sjóðsins þegar lagðurinn i Söfn-
unarsjóðinn með skilmálum þeim,
er meðfylgjandi skipulagsslcrá' á-
kveður.
Skipulagsskráin er fáþætt. —
Væmt er almennrar hluttöku í
stofnún sjóðsins, eftir lundarlagi
xnanna, efnum og ástæðum, og sje
hver sjálfráður livort hann vill
greiða tillag eitt skifti, eða árstil-
lag um ákveðinn eða óákveðinn
tíma. — Hluttaka sje öllum frjáls.
Gera má ráð fyrir, að veglyndir
menn og þjóðræknir muni fram-
vegis vilja efla sjóðinn, og meðal
annars að það verði föst venja, að
alþingismenn greiði honum tillag,-
a. m. k. hvert sinn er þeir hljóta
kosningu.
Hyggilegast mun að láta Alþingi
óhundið af skipulagsskrárákvæð-
um um það, til hverra stofnana
eða framkvæmda útborgunarhluta
vaxtanna skuli varið. Nú höfum
vjer máske ekki hugboð um það,
er kann að þykja miklu skifta fyr
ir hag og sórna lands og þjóðar
og þess verðugt, að vera styrkt
eða framkvæmt af slíkum sjóði.
En því verður að treysta, að ætíð
verði það einungis hin virðuleg-
ustu viðfangsefni“.
Vafalaust verða margir til þess
að taka þátt í sjóðsstofnun þessari,
og þess vænst að þátttaka verði
sem almennust. Tillög skulu send
forstjóra Söfnunarsjóðs, síra Vil-
hjálmi Briem.
Brúarfoss kom liingað á sunnu-
dagsmorgun. Farþegai' voru: Carl
Proppé O'g frú, Bjarni Snæbjöi'ris-
son læknir og frú, Magnús Thor-
steinsson útibússtjóri og frú, frú
Ingibjörg Pjetursdóttir, frú Jóh.
Pjetursdóttir, Gunnar Priðfinns-
son, Jóhanna Friðfinnsdóttir og
fjöldi annara farþega, þar á rneðal
margir útlendingar.
P»
l.s. islond
fer í kvöld klukkan 6 til Isa-
fjarðar, Siglufjarðar og Ak-
ureyrar. Þaðan sömu leiði til
baka.
Farþegar sæki farseðla fyr-
ir hádegi í dag.
Tekið á móti vörum til há-
degis í dag.
6.S. Bðlnla
fer annað kvöld klukkan 8
til Leith (um Vestmannaeyj-
ar og Thorshavn).
C. Zimsen.
nmungar!
Grammofón-
plötur,
Nótur.
Ekkert sumarleyfi
án
ferðafóns.
Allar tegunðir.
Verð frá 55 kr.
Hljóðfærahúsið.
Ferðajakkar og
Buxur.
Sportsokkar og Vefjur.
Sportskyrtur,
ljósar og dökkar.
Ferðahúfur.
Svefnpokar.
Bakpokar.
„Primus“-hitunartæki.
ódýr og hentug.
„Meta“ eldiviður
er ómissandi.
Ferða-Áttavitar
afar þægilegir o. fl.