Morgunblaðið - 17.04.1931, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 17.04.1931, Blaðsíða 5
Föstudag 17. apríl 1931. 5 * „DAoiurinn IA Tryggvi Þórhallsson er sífelt að tala um dóm þjóðarinnar. Hann lætst vilja skjóta málum sínum undir þann dóm. Tr. Þ. er það sjálfsagt ljóst, að hann muni ekki komast fram hjá hinum reglulegu dómstólum landsins með sakir sínar. Ilonum virðist einnig vera orðið það Ijóst, hvernig mál hans muni þar ljúk- ast. Og það er eins og mannin- am sé það einhver fróun, að telja sjer sjálfum trú um, að íleiri ieiða aé völ, en Litlahrauns vegarins. Það er nú líklegt, að Tr. Þ. megi lengi þreyta sitt tóma höfuð, áður en hinn finnur ieiðina fram hjá hrauninu. En ekkert er á móti því að athuga líkurnar fyrir því, að þjóðin dæmi mildar um afbrot Tr. Þ., en hinir reglulegu dómstólar munu gera. Þar um mætti leita vitnisburðar sögunnar. Mætti ætla, að manninum væri það ekki ógeðfelt, þar eð hann mun þykjast sögufróður. Hins er og ao geta, að refsing Tryggva mtmdi verða póiitísk, í stað þess að hliðsíæðir sakborningar tókr. áður út refsingu, samkvæmt þjóðardómum, á líkama sín- um. Hvað er það svo, sem Tr. Þ. er sakaður um? Hann er sakaður um, að hafa farið óráðvandlega með fje þjóðarinnar — ríkissjóð. Hverskonar dóm hefir þjóð- in áður á tímum felt yfir slík- um mönnum? Hún hefir ekki einu sinni þolað, að þeir fengju heiðarlegan dauðdaga. — Hin pólitíska aftaka Tryggva fyrir þessar sakir, yrði því án efa mjög óvirðuleg. Tr. Þ. er sakaður um að hafa brotið æðstu lög landsins. Hann er sakaður um, að fara með konungsvaldi á hendur þjóð- inni. Hvernig hefir þjóðin áður skift við þá ménn, sem tekið hafa sjer völd með konungs að- stoð gegn þjóðarvilja og lands- lögum? Hvernig fjell þjóðar- dómur um Krók-Álf, Jón Ger- reksson, Smið Andrjesson, Jón skráveifu, Ljenharð fógeta og fleiri slíka konungs skjólstæð- inga? Heldur Tr. Þ., að þjóðin taki nú vægar á afbrotum og skapraunum, en hún gerði á fyrri öldum, þó nú sje komin pólitísk refsing í stað líkam- legrar? Heldur hann, að þjóð- in kunni betur konungskúgun nú, þegar hún er fastráðin í því að losna algerlega undan kon- ungsvaldinu, heldur en hún gerði, meðan hún leit á kon- ungsvaldið sem ævarandi? Tr. Þ. er haldinn miklum andlegum og siðferðilegum sljó- leika, ef hann heldur, að þjóð- in taki vægt á afbrótum hans og framferði. Þó ekkert hefði annað verið, en að hann reynir að hanga við völd í trássi við landslög og þjóðarvilja, mundi það eitt vekja slíka fyiirlitn- ingu, að þessi maður væri til frambúðar pólitískt dauður. En hverjir smámunir eru þó þessi tiltæki hjá öðrum afbrot- um, sem Tr.Þ. nú hefir að verja fyrir þjóðardómstólnum? Tr. Þ. er þegar kominn fyrii þjóðardómstólinn. Hann hefir verið þar nokkra daga tii yfir- heyrslu, og þar hefir alt geng- ið, eins og vant er að ganga hjá sekum mönnum: Tr. Þ. er byrj aður að meðganga. í fyrradag sendir hann þingmönnum Sjálístæðisflokksins skriflegt til boð um það, að hann skuli hvorki misbrúka ríkisfje nje rík iseignir fram til kosninga. — Þarna meðgengur hann, að þetta hafi hann gert til þessa dags, en hann býðst til að lifa ráðvandlega í 7 vikur. í gær sendir Tr. Þ. aftur Sjálfstæðisflokknum yfirlýsingu um það, að hann láti bæði fjár- málaráðherrann og dómsmála- ráðherrann segja af sjer. Þarna meðgengur hann, að meiri hluti stjómarinnar sje óhæfur til að fara með völd í landinu. Og Tryggvi Þórhallsson á eft ir að meðganga fleira, — miklu fleira og stærra. irampe og Trvggvl. Ennþá, eftir 80 ár, er þjóð vor mint á frumhlaup Trampe greifa, og skjót úrræði og skörungsskap dóns Sigurðssonar, er hann bjarg- aði heiðri og hamingju þjóðarmn- ar á fundinum 1851, og eftir hann. Trampe greifi beitti því ósvífna gerræði, aö siíta fundi þeirra, sem konungur og þjóð vor í sameining 1 hafði stofnað til. Sleit fundi í nafni konungs, einmitt þá, er ísi. fulltrúarnir ætluðu að ræða frá sinni hálfu stjórnarskrármálið, það málið, sem fundurinn var stofnað- ur til og átti sjerstaklega að ræða. Nú lieíir stjórn vor beitt sama gerræðinu. Hún hefir slitið því þingi, sem þjóðin og konungur höfðu kvatt saman. Og slitið því einnig þá, er komið var að alvar- legustu umræðunum um mestu nauðsynjamál þjóðarinnar. Þessum tveim atburðum liefir verið jafnað saman. En þeir eru ekki hliðstæðir eða jafnir, að öðru leyti en gerræðinu. Nýi atburður- inn er hinum miklu verri, af þess- um ástæðum: 1. Trampe greifi Var danskur maður, og fulltrúi konungs. Hann varð því á fundinum til þess að gæta rjettar Dana gagnvart rjetti Islendinga ,og verja skoðnn kon- ungs og danskra löggjafa, gegn skoðun og vilja þjóðar vorrar. Nú er það ekki aðeins íslenskur inaður, heldur sjálfur forseti ríkis- stjórnar landsins. — Sá maður, / sem fremur öllum öðrum á að gæta hagsmuna og vernda rjett þjóðar- mnar, og síst allra má. láta sjer verri menn og óhlutvandari, hafa sig að varaskeifu, hann hefir nú traðkað á þingræði voru, og flúið aí hólmi, þá er liann átti að verja gerðir sínar og þeirra sem hann var settur yfh-. 2. Á fundinum gat Trapnpe greifi ekki spurt konung ráða, h.va.ð gera skyldi. Hann tók því einn á sínar herðar ábyrgðina af fundarsbtum. En þessi stjórn skríður í kon- ungs skjól, og sýnist hafa. blekt konung með villandi frásög^i, og tælt hann tií að brjóta þá stjqþnar- skrá og þann rjett ísldndinga, sem hann og þeir allir, er hjer hafa að unnið, hafa lofað með eiði að vinna eftir og varðviþta. 3. Einræði og ofbeldi konungs- valdsins var á fyrra ár abilinu al- kunnugt víða um Iönd„ Þjóð vor -ar búin að venjast því uin 600 ár, >g hugsunarháttur hermar var ann ar en nú. Flest þótti /ært að bjóða henni, og hún var v 6n að þola og b'ða. Nú er þjóðin vanari við að ráða og fara ferða siraia. Nú er ekki eins hægt um vik og þá, að bjóða þenni ósvífni og einræði. 4. Þjóð vor átti þá ekki frjálst iöggjafarþing, og engin sjórnskip- unarl. (stjórnarskrá). Almenning- ur þekti því næsta lítið þjóðfrelsi og þingræðisreglur eða stjórnfars- lcgt velsæmi. Mörgum mun hafa þótt svo sem sjálfsagt, að konungur og fulltrúar hans rjeðu einir því er þeim sýnd- ist. — Nú liefir ]ijóðin vanist því, meira (u hálfa öld, að setja sjer lög og Iífsreglur sjálf. Og leiða til lykta nauðsynjamálefni sín á Alþingi, án nokkurrar meinbægni frá konungs- valdinu, á síðustu árum. Nú lætur þjóðin varla lengnr ofríkisfúlla ráðleysingja setja sig ;i vonarvöl. 5. Trainpe hafði varla mikið að missa, ekkert að fela, og ekkert að vinna. Þó djarft væri teflt. Hann var að vinna fyrir Dani og konunginn. En Tryggvi sýnist með gerræði sínu vera að vemda vald sitt og ukjólstæðinga sinna, og dylja glæp samlegt framferði og fjársóun þeirra, móti liagsmunum sinnar eigin þjóðar, að miklum meiri hluta. Á þessu hneyksli byrjar önnur áraþúsundin í þingsögu Alþingis. Byrjar á meira hneyksli, en til er í þingsögunni um þúsuhd ár, af hálfu hins æðsta valds í landinu. Þjóðin mun nú — ekki síður en fyr öðlast vit og vilja, þrek og þor til þess, að hrinda af sjer þessari einræðisstjórn, og átumeini því er henni fylgir í fjárhag og frelsi þjóðar vorrar. Góðir íslendingar og þjóðrækn- ii' hafa nú verið vaktir af svefn- móki, og þeir munu mæla sem einum munni: Vjer mótmælmn allir! 16. apríl 1931. V. G. Nýkomið: Fyrlr bakara: Hveiti „Cream of Manitoba“. Rúgmjöl ,,Blegdamsmöllen“. Hálfsigtimjöl. Sultutau blandað. Svínafeiti. [V> notib .smAra-.smjörlIki. Fyrirliggjandi: Kjðt > í 1/1 og 1/2 dósnm. Kæfa í 1/1 — 1/2 — FiskaMIir I 1/1 — 1/2 — Eggeri Krisijfánssoa & Co. Umgur maðnr vannr Ölium skrifstofnstðrfum, óskar eftir vinnn, allan daginn, eða hlnta úr degi. Tiiboð sesdist A S í fflerkt „B“ Ankakosning i Englandi. London, 16. apríl. George Hicks, jafnaðarmað- ur, vann aukakosninguna í East Woolwich; hlaut 16,200 atkv., en frambjóðandi íhaldsmanna 12,357 atkv. Nýkomið. íslenskar vörur: Kartöflur í sk. og lausri vigt. Egg, 18 aura. Andaregg 25 aura. íslenskt smjör 1.50 pr. y2 kg. Rjómabússmjör, glænýtt 1.75 pr. y2 kg. Riklingur í pökkum. Danskar vörur: Ný egg á 15 aura. Hvítkál á 25 aura y2 kg. Rófur 20 aura y2 kg. Þetta er lægsta verð í Reykja- \úk. URiF/INDI Dívanar og Dýnur af öllum gerðum. Enn fremur Divanteppi. Veggteppi. Alt með lægsta verði. Húsgagnaverslun Reykjavíkur. ÍF kr. 1.25 á iJohn Oakey & Sons Ltd. London. UfeiiiiDtoR FÆGIL0GUR I HREINSAR BEST GLJÁIR fflEST Kaupið Morgunblaðið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.