Morgunblaðið - 18.03.1932, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 18.03.1932, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ 9 ^Mh™m&<Xsew m EM m Notið ein- göngu þessar eldspýtur. Fást í flestum verslunum bæjarins. Spaðkjöt fyrirliggjandi bæði í heilum og hálfum tunnum. Verðið stór lækkað. Eggert Kristlánsson & Ct. Símar 1317 og 1400. Lögtak. Eftir kröfu bæjargjaldkera Reykjavíkur og að und- angengnum úrskurði, yerða öll ógreidd fasteigna- og lóða- leigugjöld, ásamt dráttarvöxtum, sem fjellu í gjalddaga 2. janúar, s.L, tekin lögtaki að átta dögum liðnum frá birtingu auglýsingar þessarar. Lögmaðurinn í Reykjavík, 17. mars 1932. Bjðru Þúrðarson. ísland fyrir íslendinga. Eins og eðlilegt er, hefir krepp- an, sem nú heldur þjóð vorri í heljar greipum, vaidið miklu at- vinnuleysi, bæði hjer í bæ og ann- ars staðar á landinu. Svo að segja daglega missa inenn atvinnu sína, eða atvinnuvon. — Þegar svo er komið, að hundruð starfhæfra manna eru orðnir atvinnulausir, er eðlilegt að menn fari að svipast um og íhuga, livort hjer sje alt • með feidu og hvort ekki megi ráða á vandræðunum einliverja bót. Verður mönnum þá meðal annars star.sýnt á það, að hjer er fjöldi erlendra manna í góðu yfirlæti við ýmiss konar atvinnu, og alt af eru hingað að flytjast erlendir menn, sem atvinnu fá við alls kon- ar störf. Aðrar þjóðir hafa þegar rrist strangar skorður við slíku, og virðist ekki nema sjálfsagt, að vjer reynum eitthvað í þá átt líka. Fyrir forgöngu tveggja manna, Gísla Sigurbjörnssonar, form. Versl uiiarmánnaf jel. „Merkúr“ og Frið- -eirs Sigurðssonar, form. Mat- •”eina- og veitingaþjónafjel. Is- lands. hjeldu formenn og fulltruar nokkurra stjettarfjelaga hjer í bænum, fund með sjer síðastliðinn sunnudag, þar sein þetta mál var rætt aJl-ítarlega. Komu menn sjer saman um, að æskilegt væri að stofna til sem víðtækastra og ái- mennastra samtaka um, að vinna að því, að hjerlendir menn fengi að njóta allrar Jieirrar vinnu, sem lijer væri að fá og þeir væri færir t.il að leysa af hendi, og að-leita fulltingis Alþingis,’ þess sem nu situr, um að það .legði svo fyrir, að takmörkuð yrði atvinna og dvalárleyfi erlendra manna hjer, að ídík leyfi yrði ekki endurnýjuð, sem útrunnin verða á næstunni, nje ný leyfi veitt. Voru kosnir á i'iindiimm þrír menn tii að hafa framkvæmdir í þessu máli að und- irbúa fýrir. anúán fund, sem halda skyldi sem fljótast, ávarp til Al- þingis, um þetta mál. í þessa framkvæmdanefnd voru kosnir þeir Gísli Sigurbjömsson, Friðgeir Sigurðsson og Theódór Arnason og boðuðu þeir til annars fúndar, sem haldinn var í gær- kvöldi, formenn eða stjórnarfull- trúar rúmlega þrjátíu stjettarfje- laga hjer í bæntini. Var fundur þessi mjög vel sóttur og undir- tektir undir hugmynd forgöngu- mannanna hinar bestu og allar á einn veg. Lagði framkvæmdanefnd in fram uppkast að ávarpi t.il Al- þingis, sem rætt var rækilega og samþykt með nokkurri breytingu og síðan undirskrifað af öllum fundarmönnum. Fer ávarp þetta lijer á eftir: „Þar sem atyinnuhorfur eru mjög ískyggilegar, bæði hjer í bæ og annars staðar á landinu, leyfuin vjer oss, undirritaðir fulltrúar neð- anskráðra fjelaga í Reykjavík, að skora á hið háa Alþingi, að það taki nú þegar til rækilegrar íhug- unar, hverjar leiðir sjeu til þess að takmarka endurnýjum dvalar- og atvinnuleyfa útlendinga, sem atvinnu stunda lijer á landi, en sem hjerlendir menn eru færir til. ITm leið leyfum vjer oss að benda á, að mjög hefir verið á- bótavant eftirliti vegabrjefa er- lendra manna, er hingað koma, og má telja það eitt af mörgu, sem hefir orðið til þess, að svo mikið af útlendingum hefir hingað flutst. Einnig hefir þess ekki verið nægi- lega gætt, hvort þeir útlendingar, sem hjer stunda atvinnu, hafi skjöl SÍn í lagi, sjerstaklega að því er snert.ir atvinnu- og dvalarleyfi. Á seinni árum virðast, ríkisstjórn irnar hafa verið allörlátár úm at- vinnuleyfi til útlendinga, sem vjer teljum, að nú ætti að girða fyrir með ,öllu, eins og atvinnumöguleik- úm' landsmanna er nú liáttað. Þegar um er að ræða, að veita atvinnuleyfi erlendum mönnum, á- lítum vjer æskilegt, að ávalt væri leitað álits þess fjelags, sem hlut á að máli, ufti það, hvort ekki sje völ á innlendum mönnum til starfs- ins. — Vjer treystum því, að hið háa Alþingi taki þetta mál til í'hugun- ai og skjótrar úrlausnar“. F. h. Verslunarm.fjel. „Merkúr4 ‘, Gísli Sigurbjörnsson. F. h. Matsveina- og veitingaþjóna- fjelags Islands, Friðgeir Sigurðsson. F h. Fjelags ísl. hljóðfæraleikara, Theódór Árnason. F. h. Stýrimannafjelagsins, Jón Axel Pjeturssón. F. h. Trjesmiðafjelagsins, Björn Rögnvaldsson. F. h. TTrsmiðafjelags Reykjavíkur, Jóh. Norðfjörð. F. h. Kennarafjelagsíns„ Einar Magnússon. F. h. Sítnamannafjelagsins, Andrjes G. Þormar. F. h. Sölumanna í Reykjavík, Valgarður Stefánsson. F. h. Bakarasveinafjelagsins, Theódór Magnússon. F. h. Fjelags járniðnaðarmanna, Loftur Þorsteinsson. F. h. Rafvirkjafjel. Reykjavíkur, Sig. Jónsson. F. h. Fjelags pípulagningamanna, Sigurgeir Jóhannsson. F. h. Fjel. ísl. hjúkrunarkvenna, Sigríður Eiríksdóttir. F. h. Sjómannafjel. Reykjavíkur, Sigurjón Ólafsson. F. h. Málarasveinafjelagsins, Jón Ágústsson. F. h. Hins ísl. prentarafjelags, Björn Jónsson. F. h. Klæðskerafjelagsins, Ilelgi Þorkelsson. F. h. Hárgreiðslukvennafjelagsins, Kristólína Kragh. F. h. Rakarasveinafjelagsins. Þorbergur Ólafsson. Bydess kaifi 1. h. Veggfóðrarafjel. Reykjavíkur, Vietor Helgason. F. h. Bifreiðastjórafjel. „Hreyfill“, Bjarni Bjarnason. F. h. Verslunarmannafjel. Rvíkur, B. Þorsteinsson. F. h. Ljósmyndarafjelags íslands, Sig. Guðmundsson. Það skaí tekið fram samkvæmt einróma ósk fundarmanna, að ekki er til þess ætlast, að seilst verði til þeirra erlendu manna, sem hjer liafa ílengst og búið um sig, nema óþarfamenn sjeu, — heldur er átt við tolk, sem nýlega er flutt hing- \lS, að eklci verði endurnýjuð dval- arleyfi þess, og að ekki sjeu veitt atvinnu og dvalarleyfi nýju er- lendu fólki. Verður nánar vikið að þessum samtökum í blöðunum næstu daga. Er þess vænst, að þeir, sem hlut eiga að máli, skilji það, að hjer Hggja ekki á balt við aðrar hvatir en þær, sem til grundvallar liggja sams konar lireyfingu í Öðrum lönd um, — að liver þjóð reynir, á þessum krepputímum og atvinnu- leysis, að notast sem mest við það, sém heima ,er hægt að fá. Þetta þfekkja t. d. flestir útlendingarnir, Sem hjer eru, miklu betur en við, og er þess- vegna sennilegt að þeir skilji vel málstað vorn. Peykjavík, 16. márs. 1932, . Theódór Árnason, ritari framkv.nefndar. Fjárhagur Breta. London, 1. mars. FB. Allan febrúarmánuð fóru horf- urnar um bættan hag þjóðarinnar batnandi. í fyrsta lagi er það nú talið víst, að fjárlagafrumvarp þáð, sem lagt var fyrir þingið þ. 16. apríl, verður tekj uhall alaust. — í iiðru lagi er fastlega búist við, að vegna hinnar nýju stefnu stjórnar- innar í tollamálum verði viðskifta- jöfnuðurinn bráðlega mun hag- stæðari en hann hefir verið. í þriðja lagi hafa vaxtakjör batnað og hefir það dregið iir viðskifta- erfiðleikum yfirleitt. í fjórða 'lagi- Jiefir mikið gull verið flutt frá Tndlandi t.il Bretlands. Mr. Runci- man, verslunarmálaráðlierra, telur, að Tndland geti látið af hendi við Breta gull svo nemi einni miljón sterlingspunda á viku. Alls er verið að flytja frá Tndlandi tll Bretla.nds fimm hundruð miljónir sterlings- punda í gulli. Einnig heima fyrir í Bretlandi var gullforði, sem til skamms tíma var ónotaður, en á undanförnum vikum hefir ríkið fengið a,f þeim gullforða 10—20 miljónir sterlingspunda. — Þetta eru aðalorsakir þess, að horfurnar fara mjög batnandi, og að við- skiftatraustið vex hröðum fetum. (Úr blaðatilk. Bretastjórnar). LXI. Flagið. Bóndinn hefir hallað sjer aftur á bak á hjónarúmið og nýtur miðdegishvíldarinnar í makindum. Konan kemur inn í baðstofuna og fer geyst mjög og rasandi. TJm leið og.hún æðir inn baðstofugólf- ið, ■ segir hún: „Þú liggur þarna. í letinni, Jóhannes! En flagið liggur afvelta í trippinu og rjettir 'sitt loftið út í 'hvern fót.“ fæst i næstn búð. G.s. Island fer frá Kaupmannahöfn 27. þ. m. um Leith til Reykja- víkur. Þaðan til Norðurlands og til baka aftur. M.s. Di*cnning Alexandt*ine fer frá Kaupmannahöfn 15. apríl um Leith til Reykjavík- ur. Frá Reykjavík 23. apríl til ísafjarðar, Siglufjarðar, Akureyrar. Þaðan sömu leið til baka. :Fer frá Reykjavík 30. ap- ríl beint til Kaupmanna- hafnar. Hraðferðir. Gs. ísland fer frá Kaup- mannahöfn 30. aprll og byrj- ar þar með hraðferðir hálfs- mánaðarlep-a þaðan. Verður farið annan hvern laugardag frá Kaupmanna- höfn. Apnan hvern föstudag frá Reykjavík til Vestur- og Norðurlandsins op- annan hvern laugardag frá Reykja- vík til Kaupmannahafnar. Fyrsta hraðferðin frá Leith verður Gs. Botnia 28. maí. — Síðan annan hvern laugardag frá Leith til Rvík- ur og annan hvern laugardag frá Reykjavík til Leith. c. Zimsen. Revkia May Blossom ágætu Virginla- cigarettur. 20 stk. pakkinn kostar kr. 1.20. HVKOIHÍð: Nýjir ávextir og nýlt grænmeli.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.