Morgunblaðið - 24.06.1932, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.06.1932, Blaðsíða 2
9 MOIGUK BIAÐIÐ nnankki niiurrilsnamg. Hver er Guðmundur Skarphjeðinsson? Reykvíkingar munu fyrst hafa heyrt G. S. getið á fulltrúaráðs- fundi Síldareinkasölunnar, sem haldinn var í byrjun des. s.l. Var það á einum þeirra funda að 6. S. sem sjálfur var borinn þungum sökum fyrir starf sitt sem settur framkvstj. Rinkasölunnar á Siglu- firði s.l. sumar, gaf það í skyn, um umbjóðanda sinn fjarveranda, P.A.Ó., að hann hefði þegið eða hefði ætlað að þiggja mútur frá Ingvari Guðjónssyni og Brdr. Levy. Þá notaði Ingvar Guðjóns- son hin sömu orð um G. S., sem h.öfð voru um ómennið Kark þræl, er sjer til fjár vann á húsbónda sínum, Hlákoni Hlaðajarli, sof- anda. -----„Illt er að eiga þræl fyrir einkavin". Þessi samlíking Ingvars er því betri, sem söm varð lykt þeirra beggja, Karks og Guðm. að fall þeirra fylgdi falli húsbænda þeirra. — Það er sagt, að þrælinn hafi dreymt, að Ólafur konungur Tryggason (stjórnin) legði gull- men á háls honum, að launum fyr- ir trúmenskuna við Hákon jarl. En honum varð að öðru. Sagan endurtekur sig. Of langt yrði að fara hjer út í að rekja sögu Guðm., enda nóg að stikla á nokkrum atriðum. Að loknu námi við Kennaraskólann, fekk G. stöðu við barnaskólann á Sigluf., hjá skólstj., hinni viður- kendu dugnaðarkonu, frú Guðrúnu Björnsdóttur frá Kornsá, konu Þormóðs Eyjólfssonar. Hún sagði siðar af sjer skólastjórastöðunni og kom Guðm. í stöðuna í sinn stað. Hvernig hann launaði henni og þeim hjónum upphefð sína, kem jeg síðar að. Verkalýðssvikarinn. Verkalýðsforsprökkum má skifta í 2 fl. hjer eins og í öðrum lönd- um. Eru annarsvegar þeir, sem hcillaðir hafa orðið af kenningu Karls Marx og annara brautryðj- enda sósíalismans, en hinir — og þeir eru fleiri — pólitískir svindl- arar, sem með ýmsum loddara- brögðum nota verkalýðinn til þess að lyfta sjer sjálfum upp í virð- ingastöður, þar sem þeir sjálfir lifa svo í vellystingum praktug- lega og hugsa ekki fremur en áður um verkalýðinn. Hjer á landi tel jeg í fyrra fl. m. a. Brynjólf Bjarnason, ritstj. Verklýðsblaðsins, og Hauk Björnsson, en í síðara flokknum og þeim fjölmennari, bankastj. Alþýðuflokksins, Ólaf Friðriksson og Finn Jónsson ásamt ótal fleirum, að ógleymdum Guðm. Skarphjeðinssyni, sem jeg nú skal lýsa nokkuð nánar, af því að hann ei ljóslifandi dæmi þessarar mann- tegundar. Þegar Guðm. var kominn í skóla stjórastöðuna, hafði verkalýðs- hreyfingin fyrir skömmu borist til Siglufjarðar. Sá hann sjer nú leik á borði að gerast verkalýðs- forsprakki og hefir aðferð hans jafnan verið sú, að slá ryki í augu verkamanna með því að gera sem allra hæstar kaupkröfur. — Þannig fann hann upp á því, árið 1929, að helgidaga vinna skýldi teljast 36 klst. í viku og skyldi greiðast 3 kr. tímakaupi. — Kom hann þessu í kring og hefir þetta kaup haldist síðan og af því hafa | Siglfirðingar síðustu 2 árin fengið (að súpa seyðið, því að f jöldi skipa, sem áður var söltuð síld af á Siglu firði, hefir nú leitað burt með verkunina þaðan, ýmist til Eyja- fjarcíar eða Sauðárkróks, og hefir þessi straumur frá Siglufirði farið vaxandi. Guðmundur krækir í bitlinga. Fylgi verkamanna, sem fengið var með þessu móti, notaði Guðm. til þess að koma sjer í bæjarstjórn Siglufjarðar. Síðar notaði hann þá aðstöðu er hann þá fekk, til þess að ná í bitlinga í bæjarstjórninni, svo sem við kolasölu bæjarins, mjólkurbú o.s.frv. Aðstaða hans í bæjarstjórninni og vinátta. hans við Þormóð Eyjólfsson og konu hans, komu honum að í stjórn Síldarverksmiðju ríkisins, sem full- trúa Siglufjarðarkaupstaðar. Síðar aúlaði hann að nota sjer sömu aðstöðu til að komast í . fram- kvæmdastjórastöðu við Síldareinka söluna. Greip hann tækifærið, er staða losnaði við brottvikningu Einars Olgeirssonar. Sjálfum tókst honum að ná formanni iitflutnings- nefndar einkasölunnar, aukvisan- um Erlingi Friðjónssyni, sem er af sama sauðahúsi, til fylgis við sig, en Þormóður Eyjólfsson trygði honum atkvæði Böðvars Bjarkans. Vantaði nú ekki nema eitt, atkv. í útflutningsnefndinni, til þess. að hann næði í stöðuna, en það, sem strandaði á, var atkv. Steinþ. Guðmundssonar fyrv. barnakenn- ara, sem áleit, eins og rjett var, sjálfan sig betur hæfan í stöðuna en Guðmund. Nú voru góð ráð dýr. Var gripið til þess, að P. A. Ólafsson var látinn gera Guðm. Skarp. að framkvstj. einkasölunn- ar á Siglufirði, en svo hjet í orði kveðnu, að Guðm. væri fulltrúi P. A. ÓI. á Siglufirði, og fekk hann sl .sumar fyrir það starf sitt full framkvæmdastjóralaun. — Loks gerði hann hinstu tilraun til að ná í þessa framkvæmdastj.- Stöðu á fulltrúaráðsfundi Síldar- einkasölunnar í vetur, en allir muna, að þeim fundi lauk með því að einkasalan var afnumin með bráðabirgðalögum, og aumkvaði Tryggvi forsætisráðh. Þórhallsson síg yfir kratafulltrúana á fund- inum, þegar hann heyrði, að sumir þeirra sæti fastir á hótelum vegna skulda, og 'ljet hann senda þá hvern heim til sín á landsins kostnað. Um óstjórnina á Siglufirði í fyrrasumar, meðan G. S. gegndi framkvstj.stöðunni, ræddi jeg ítar- lega á fulltrúaráðsfundinum í vet- ui og mun máske síðar fá tækifæri til að víkja aftur að þeim at- riðum. Guðmuudur færir út kvíarnar. Fjáraflamaður er Guðm. mikill, eins og ljóst mun af framanrituðu. Hann hefir sjálfur sagt það í mín eyru, að fyrsti gróði sinn hafi ver- ið sá, að hann keypti spröku af sjómanni fyrir 20 kr. og seldi hana aftur Óskari Halldórssyni í Bakka fyrir 40 kr., og fekk hana borg- aða. Þetta var fyrsti gróði Guðm. á fátækum manni af verkalýðs- stjett, en ekki sá síðasti. Margir verkamenn leituðu Guð- mundar um ýmsar útveganir og brjefaskriftir, þar sem þeir hugðu- Iiann sendibrjefsfæran, sem jeg raunar álít hann ekki og get fært gögn að, ef með þarf. Kom það þá oft fyrir, að verkameiin féngu Guðm. til að skrifa fyrir sig pöntun á ýmsum byggingarefn- um o.fl. Þetta varð til þess, að Guðm. sá, að hjer var fjár von og setti á stofn byggingavöru- versl. á Siglufirði, sem hefir verið sú langstærsta þar í bæ. — En þegar lokað var fyrir veðdeildina dró úr byggingunum. Teptist þá verslunin, og hefir Guðm. nú að sögn selt versl. Kaupfjel. Siglfirð- inga, en í stjórn þess hefir hann komist fyrir atbeina verkamanna. Er það almæli á Siglufirði, þótt G. S. sjálfur láti annað í veðri vaka, að þótt víða liafi honum bitlingar komið, þá nemi bitlingar hans, laun sem Síldareinkasölufor- stjóra, laun sem stjórnanda Síld- arverksmiðjunnar og skólastjóra barnaskólans til samans ekki eins miklu og gróði hans af timbur- versluninni, sem hafður er af sigl- firskum verkamönnum og öðrum Siglfirðingum á sama hátt og 20 krónuruar, er hann hafði af sjó- manninum í sprökukaupunum. Fjöldi verkamanna hefir leitað til Guðm. og fengið hjá honum byggingarefni til að koma upp fokheldu húsi yfir höfuðið^ Gang- nrinn hefir verið sá, að verkamað- nrinn eða hans nánustu hafa sjálf- ir unnið mestalt verkið. Er húsið var orðið fokhelt, hefir verið klínt á það virðingu, fengið út á það lán í veðdeild og veðdeildarfjeð iiotað til að greiða Guðm. upp í byggingarefnið. Fyrir eftirstoðv- unum hefir hann tekið 2. veðrjett í húsinu. Með þessari „hjálpsemi“ hefir Guðm. gert fjölda verka- manna sjer háða og síi skoðun hefir komist inn hjá þeim, að „Guðmundur geti alt“, enda kom það ljóslega fram á fundinum 18. júní, að þeir álíta hann óskeikulan reikningsmann, þrátt fyrir þær fjarstæður, er hann bar þar fram. Lítilmenska Guðmundar, Framkoma G. S. í garð húsbónda wíns, P. A. Ó„ varð til þess, að gera hann víðfrægan hjer í Rvík. Framkoma hans, er jeg nú skal lýsa, í garð Þormóðs Eyj- ólfssonar, mesta velgerðamanns hans, og lítilmenska Guðm. í því sambandi, er af sömu rótum runnin Svo sem drepið var á í grein minni um kaupdeilurnar, hafa ver- ið stöðugar deilur innan verk- smiðjustjórnarinnar, þegar skipa átti stjómina á ný í júní. Leit svo út um tíma, sem ekki myndi verða samkomulag milli okkar Guðm. Hlíðdals annars vegar og Þormóðs Eyjólfssonar hins vegar, og að hann færi því úr stjórninni. Þor- móður hafði altaf talið Guðm. Skarphjeðinsson sjer tryggan og fylgjandi og var honum það nauð- ngt, að G. Sk. færi úr stjórninni. Nú, þegar leit út fyrir, að Þorm. myndi ekki fara í stjórnina með okkur G. Hlíðdal, fór jeg á fund G. Sk. til þess að ganga úr skugga um trygð hans við Þorm. og sigl- firskan verkalýð. Spurði jeg hann í þeim tilgangi um það, hvort liann væri reiðubúinn að koma í verksmiðjústjórnjna með okkur Hlíðdal. Kvað hann já við því, en þó með einu skilyrði, að hann yrði sjálfur form. verksmiðjustjórnar- innar. Þá spurði jeg hann, hvort hann væri reiðubúinn að gangast fyrir kanplækkun í verltsmiðjunni á grundveíli till. okkar Hlíðdals, sem var sú hin sama er verksmiðju stjórnin bar fram á verkalýðs- fundinum á Siglufirði 18. júní. Kvað hann já við því, en með því skilyrði, að hann yrði form. verk- smiðjustjórnarinnar. Bar jeg upp fyrir honum fleiri spurningar og játti hann þeim öllum, að því til- skildu, að hann yrði form verk- smiðjustjórnarinnar. Ef G. Sk, ætlar að þræta fyrir þetta samtal, mun jeg, þegar óskað er, nefna stað og stundu. Jeg þekti Guðm. áður og vissi, hvern mann hann hafði að geyma, og kom mjer vitanlega ekki til hugar að taka áfram sæti með honum í verk- smiðjustjórninni, en í þessu sam- tali mínu við hann liafði jeg fengið enn eina staðfestingu á því, hve óumræðilegt lítilmenni hann er. Það or hörmulegt til þess að vita, að fjöldi verkamanna og hundruð sjómanna skuli eiga á hættu að missa sumaratvinnu sína fyrir aðgerðir þessa vesalmennis. Sveinn Benediktsson. Bmninn á Iðu í Biskupstungum Abyggileg og dugleg stúlka, helst ekki yngri en 25 ára, óskast í brauðsölubúð á Akranesi, um næstu mánaðamót. Semjið við Jó- hann Reyndal, sími 30, Akranesi. Nýiar kartðflur, nýjar gnlrætnr, blúmbál, gnrknr, og trðllasúra. Frásögn bóndans, Einars Sigurfinnssonar. Þess var getið í símfregn nýlega, að bærinn Iða í Biskupstungum hafi brunnið til kaldra kola þann 6. þ. m. Nánara var ekki sagt frá þessu. Bóndinn á Iðu, Einar Sigur- finnsson, var hjer nýlega á ferð og átti Mbl. þá tal við hann og fekk frá honum eftirfarandi upp- lýsingar: Bærinn var allgóður timburbær, járnklæddur og voru tvö hús sam- bygð. Eldsins varð vart um kl. 4 síðd., undir þakinu í vestra hús- inu. Varð eldurinn strax svo magn- aður, að eigi voru tiltök að bjarga nema litlu af innbúi, sængurfatn- aði o. fl. Brann þarna allur fatn- aður, matvæli öll (var nýbúið að draga að nægilegt til sumarsins), eldhús- og borðáhöld, smíðaverk- færi, rúmstæði, og stólar, kommóða með ýmsu verðmætu í þ. á m. vönduðum kvenfatnaði, dúkum o. fl. Einnig branjj þarna tjald,, laxanet og ýmsir búshlutir og var alt þetta óvátrygt. Bærinn var mjög lágt vátrygður, eða fyrir 1500 krónur. — Er haldið, að eld- urinn hafi orðið með þeim hætti, að neisti hafi fokið úr reykháf í þurt torf undir þakskegginu. Bóndinn, Einar Sigurfinnsson, heíir orðið fyrir mjög tilfinnan- legu tjóni. Eftir brunann stóð hann uppi með tvær hendur tómar, húsnæðislaus, matarlaus, fatalaus og allslaus. Er þetta mjög tilfinn- anlegt fyrir mann, sem var bláfá- tækur fyrir. Einar er Skaftfell- ingur að ætt og uppruna. Hann bjó um skeið 4 Kotey í Meðallandi. Er ekki ósennilegt, að einhverjir Skaftfellingar sjeu til hjer ,í bæn- um, er gjama vildu rjetta Einari Kviðslit Monopol kviðslitsbfndi, amerísk teg., með sjálfvirk- um loftpúða og gúmmí- belti. Notað dag og nótt án óþæginda. Sendið mál með pöntun. Einfalt 14 kr„ tvö- falt 22 kr. Frederlksberg kem Laboratorlum Box 510. Köbenhavn N. Fallegar gerðir. Lágt verð. Húsgagnav. Reykiavfkur. I matinn. Frosið dilkakjöt, saltkjöt, hangi- kjöt, hvítkál og margt fleira. Sent um alt. Versl. Bjðrnina. Bergstaðastræti 35. Sími 1091. hjálparhönd nú í erfiðleiknm hans, Hann hefir og eignast margavini og kunningja hjer í hæ, sem vafalaust vildu einnig hjálpa. Gjöfum í þessu skyni má koma á skrifstofu Morgunblaðsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.