Morgunblaðið - 11.06.1933, Blaðsíða 4
m o '* k fi w
iSSsÉfaF
| Smá-auglýsingar|
Athugið! Xýkomnar karlmanna,-
fátnaðarvörur. Oclýrastar og best-
ar, Hafnarstræti 18, Karlmanna-
hattabúðin. — Handunnin liatta-
breinsun.' Sú einasta besta, sama
stað. ___________
Butil, nýjung. fljótandi púður
ög krem, sem endurnýjar hörund-
ið. Hárgreiðslustofa Reykjavíkur.
J A. Hobbs, Aðalstræti 10. Sími
4045.
Sportnet, mikið úrval. Hár-
greiðslustofa Reykjavíkur. J. A.
Hobbs, Aðalstræti 10. Sími 4045.
Bílaviðgerðamann vantar til Ak-
urevrar 3—1 mánuði í sumar, þarf
að geta unnið sjálfstætt, aðallega
við Pord og Cleneral-Mótor bíla.
tlpplýsingar í dag á Hótel Borg,
herbergi 108 kl. 1—2 síðd.___
Unglingsstúlku vantar í vist
hálfan daginn til Ögmundar Sig-
urðssonar, Gerðinu í Hafnarfirði.
Morgunblaðið fæst keypt í (Jaffe
Pvanur við Barónsstíg-
Blóm & Ávextir, Hafnarstræti 5.
Daglega seldar plöntur til útplönt-
nnar: Levkoj, blómkál o. fl.
Blómkáls- og hvítkálsplöntur,
stjúpmæður og bellisplöntur og
fleiri plöntur til útplöntunar, til
sölu í Suðurgötu 18, Sími 3520.
Til íslenska búningsins, ullar-
klæði, Silkiklæði, Upphlutasilki,
Svuntuefni köflótt, röndótt, rós-
ótt og einlit. Upphlutsskyrtuefni
margar tegundir í öllum litum.
Slifsi ákaflega fallegt úrval. Þu-
ríður Sigurjónsdóttir, Bankastræti
h Sími 4082.
Heimabakarí Ástu Zebitz, Öldu-
götu 40, þriðju hæð. Sími 2475.
íslensk málverk, fjölbreytt úr-
val, bæði í olíu og vatnslitum,
sporöskjurammar af mörgum
stærðum. veggmyndir í stóru úr-
vaíi. Mynda- og rammaverslunin,
Preyjugötu 11 Sig. Þorsteinsson.
gæsluföngum í hegningarhúsinu.
Porstjóri Skipaútgerðar ríkis-
ins hefir föst laun 9770 kr. Auk
þess er hann formaður í stjóm
Landsmiðjunnar og fær fyrir það
1$00 kr. Ofan á alt þetta eru
honum greiddir fæðispeningar(!)
3 krónur á dag.
Einn af frjeftamönnnm útvarps-
ins hefir 4800 krónur í föst laun,
eh auk þess fær hann 2628 kr.
hjá Landssímanum fyrir einhver
aukastörf þar.
Niðurlagsorð.
Eins og sjest af skýrslu Pjeturs
Ottesen er hjer mikið verkefni
ófeyst, þar sem er að koma á
samræmi um launagreiðslur rík-
isins. —
Starfsmannahald ríkisins er
orðið svo mikið bákn, að þjóðin
fær ekki undir risið. Sjerstak-
lega varð vöxturinn mikill iá „velti
árnm“ Hrifluvaldsins, þegar rík-
isstofnanimar nýju voru settah á
laggirnar — með öllu því starfs-
mhnnaflóði, sem þeim fylgdi. Og
það mun sannast, að erfitt verður
að kippa þessu í Iag á meðan
Framsóknarflokkurinn hefir yfir-
ráðin á Alþingi, því að þar rekast
óþyrmilega á hagsmunir flokks
og þjóðar.
Þetta mál alt, launamálið og
starfsmannahald ríkisins er mikið
vandamál og verður að leysast
með hagsmuni þjóðarheildar fyrir
augum. Stefnan á að vera sú, að
ríkið hafi ekki fleiri starfsmenn
en naijðsyn krefur og launi þeim
'sæmilega, enda hafi það þá starfs-
krafta þeirra óskifta. Þá fyrst
hefir ríkið skapað sjer þá að-
stöðu, að það getur á hverjum
tíma trygt sjer bestu starfskraft-
ana sem völ er á.
Dagbók.
Veðrið (laugardagskvöld kl. 5):
Hæg S- og SV-átt um alt lancl.
Þykkviðri á SV- og V-landi, en
b.jartviðri norðan lands og austan.
Yfir' NA-Grænlandi er lægð á
hreyfingu austur eftir og mun þvi
herða á V-átt á Norðurlandi á
morgun. Suðvestan lands mun
vindur verða S eða SV og senni-
lega þykkviðri, en ekki mikil rign-
ing. —
Veðurútlit í Rvík í dag: SV-
gola. Ský.jað. Dálítil rigning.
Háflóð í dag kl. 7.50 og 20.10.
Varðarfundur er í dag kl. 3 í
Varðarhúsinu. Þar talar Jón Þor-
láksson borgarstjóri. Þar verður
rætt um undirbúning undir kösn-
íngarnar 16. júlí.
María Markait endurtekur ein-
söng sinn í Iðnó í kvöld kl 9.
Syning Jóns Engilberts. í dag er
síðasta tækifærið til að sjá sýn-
ingu Jóns Engilberts listmálara, í
Goodtemplarahúsinu. Sýningin e<r
opin í síðasta sinn í dag frá kl. 11
árd. til 10 síðd.
L, F. K. R. Bókasafn fielagsins
í Vonarstræti 12 er opið í sumar
hvern mánudag kL 4—6 og 8—9.
Fiskur var breiddur h.jer í gær
á nokkrum stöðvum. Mun ekki
hafa verlð hreyft við fiski hjer
vikum saman. Sólskinslaust var
orðið um hádegi og rigndi allmildð
seinni partinn.
Fimtubekkingar Mentaskólans
eru hú á heimleið. Komu þeir til
Víkur í Mýrdal kl. 6 í gær, en
hjeldu áfram upp í sveit. Búast
þeir við að koma hingað til Reyk.ja
víkur annað kvöld.
Grænlandsleiðangur. Leiðangurs-
skip Lauge Kochs „Gustav Holm“
og „Godthaab“ eru lögð á stað til
Grænlands. Með skipunum voru
36 Ieiðangursmenn. Lauge Koeh
Ieggur seinna á stað með ,,íslandi“
og fer til Akureyrar með skipinu.
fSendiherrafrjett).
Akureyrarferðir. Pastar bílaferð-
ir eru nú komnar á milli Reykja-
víkur og Akureyrar og ætlar Bif-
reiðastöð Akureyrar að halda uppi
ferðum 4 sinnum í viku. Stöðin
hefir m. a. 14 manna bíl — Ný.ja
Ford —• sem yfirbygður hefir verið
hjer á landi. Hinn viðkunni bíl-
st.jóri Páll Sigurðsson stjórnar 14
manna bifreiðinni.
Magnús Runólfsson talar í kvöld
kl. 8l/2 í K. P. U. M.-húsinu í
Hafnarfirði.
Hjúskapur. í gær voru gefin
saman í h.jónaband af síra Bjama
•Tónssyni ungfrú Bjarney S. Holm.
Bragagötu 26 A, og Tryggvi Saló-
monsson á Korpúlfsstöðum.
Bethanía. Samkoma í kvöld kl.
8%. Bjami -Tónsson talar. AHir
velkomnir. Mánudag kl. 8^4 síðd.
Sæmundur G. Jóhannesson kenn-
ari hefir Biblíulestur í Bethaníu.
Allir velkomnir.
Grasspretta er svo góð austao
fialls. að tún verða víða farin að
spretta úr sjer fyrir næstu mán-
aðamót, ef sprettntíð helst. I gær,
var slegið síbreiðugras á grasvöll-
um skemtigarðsins við Tjörnina. Á
Austurvelli hefir gras legið í leg-
um í nokkra daga.
Botnía fór kl. 5 í gær frá Leith.
Fram og Víkingur keppa á í-
þróttavellinum í kvöld.
ísland fór frá Kaupmannahöfn
kl. 10 í gærmorgun.
Fánadagurinn, 20 ára afmæli
fánadagsins (12. júní 1913) verður
hátíðlegt haldið að Álafossi í dag
og liefst hátíðin kl. 3. Fánabátur-
inn, sem Einar Pjetursson var á
hjer á höfninni, og danska herskip-
ið tók, verður sýndur þar. Auk
þess verða ræðuhöld, söngur, kapp-
SUnd, leikfimi 0g fleira. Allur á-
góði af hátíðinni rennur til í-
þróttaskólans á Álafossi, þessa
skóla, sem er að kenna æskulýð
íslands íþróttir og heilbrigt líferni.
Trúlofun sína opinberuðu í gær
ungfrú Elín Jónsdóttir, Urðarstíg
,15 og Sigurður Bjarnason s.jómað-
nr frá Grund á Kjalam''*’
Heimatrúboð léikmanna, Vatns-
s+;~ 3. Samkomur í dag: Bænasam-
lcoma kl. 10 árd. Almenn samkoma
kl. 8 síðd. Allir velkomnir.
Skipafrjettir. Gullfoss er í Kaup
mannahöfn. Goðafoss er á leið til
FTull frá Vestmannaeyjum. Brúar-
foss var væntanlegur til ísafjarð-
ar síðdegis í gær. Dettifoss var
væntanlegur frá ritlöndum í nótt.
Lagarfoss var á Sauðá'rkrók í gær-
morgun. Selfoss fór frá Leith í
fyrradag.
Ársþing Hjálpræðishersins. Sam
koman í kvöld kl. 81/2 verður í sal
Hersins, en ekki í K. R.-húsinu,
svo sem auglýst var. Annað kvöld
Id. 8I/2 verður kveðjusamkoma
fyrir aðkomna foringja í sal Hers-
ins. —
Stjórn Kreppulánasjóðs. Sam-
kvæmt 20. gr. laga um Kreppulána
sjóð frá síðasta þingi skal stjórn
sjóðsins fram til 31. des. 1934
skipuð þremur mfönnum, aðalbanka
stjóra Búnaðarbankans og tveim
mönnum er atvinnumálaráðherra,
skipar eftir tilnefningu landbúnað-
amefndar Alþingis. En eftir 31.
des. 1934 skal stjórn Búnaðar-
bankans falin stjórn sjóðsins. Land
búnaðarnefndir þingsins tilnefndu
þá Pjetur Magnússon og Jón í
Stóradal í stjóm sjóðsins með aðal-
bankastjóra Búnaðarbankans, Tr.
Þórhallssyni.
Bjarni Bjömsson endurtók
skemtun sína í fyrrakvöld fyrir
troðfullu húsi áheyrenda sent
gerðu hinn besta róm að skemtun-
inni.
Skrifstofur málafærslumanna
verða lokaðar á laugardögum kl.
12 á hádegi mánuðina júní, júlí
og ágúst.
Belgaums-málið var sótt og var-
ið fyrir Hæstarjetti í fyrradag.
Dómur verður sennilega kveðinn
urro á mánudag.
Útvarpið í dag: 10.00 Messa í
dómkirkjunni. (Síra Friðrik Hall-
grímsson). 11.15 Veðurfregnir.
15.30 Miðdegisútvarp. 19.30 Veð-
urfregnir. 19.40 Grammófónsöng-
ur. Hildach: Der Lenz. Wein-
gártner: Liebesfeier. (Boris Grev-
erus). Richard St.rauss: Zueign-
ung; Heimliche Aufforderung
(Paul Kötter). 20.00 Klukkuslátt-
ur. Barnatími. (Priðrik Hjartar).
20.30 Tónleikar. (Tónlistarskólinn:
Kat.rín Dalhoff Bjarnadóttir, Tnd-
riði Bogason). 21.00 Prjettir. 21.30
Grammófóntónleikar. Brahms:
Kvintett, í H-moll, óp. 115. (Léner
strengjakvartettinn og Charles
Draper, klarinet). Danslög til kl.
24. —
Útvarpið á morgun: 10.00 Vcð-
urfregnir. 12.15 Hádegisútvarp.
16.00 Veðurfregnir. 19.30 Veður-
Kviiistu eðferðlr
við andlitsböð og andlitsfegrun, hárliðun og- klippingu.
Einnig- handsnyrting dömu og herra-
Hárgreiðslustofan,
Kirkjnsirætt 10.
ðdfrt far á Fánadagshátiðlna
á Álafossi — er frá
Vðrnbílastöð Islands
frá kl. 1 síðd. - Sími 1471,
Hárgrelðslnstofa
mín verður lokuð um 6 vikna tíma vegna f jarveru minnar-
Soffía Wsdbotm
ca—ssan—————BEWBMa————b——gaim iBiwwaa—an 1 iiiinssBiiiiii'ii'iinnriiiiiruaoiegaaeaHBnB—mr
Álafoss.
HafoarfJQrðar.
Útiskemtun á báðum stöðum. Akið á þessa skemtistaði í
Steindórs þjóðfrægu bifreiðum. - Ferðir allan daghm>
BfikieitaflelaBlð.
Aðalfundur fjelagsins verður haldinn laugardaginrt
17. júní næstk., kl. 9 síðd., í Eimskipafjelagshúsinu (uppi).
DAGSERÁ:
1. Skýrt frá hag fjelagsins og lagðir fram til úrskurðar
og samþyktar reikningar þess fyrir 1932.
2. Kosnir tveir endurskoðunarmenn.
3. Rætt og ályktað um önnur mál, er upp kunna að verða
borin.
GUÐMUNDUR FINNBOGASON
p. t. forseti.
fregnir. 20.15 Tilkynningar. Tón-
leikar. 20.30 Óákveðið. 21.00 Prjett
ir. 21.30 Tónleikar. Alþýðulög. (Út
varpskvartettinn). — Einsöngur.
(Frú Elísabet Waage).
Stefanía Jónsdóttir, kona Saló-
mons Jónssonar verkstjóra hjá
Kveldúlfi, andaðist í Landakots-
spítala í fyrri nótt.
Til Hallgrímskirkju í Saurbæ.
Frá gömlum Strandhreppingi kr.
50.00. Frá gömlu sóknarbarni kr.
40.00. Til minnmgar um frú Lár-
ettu Þorvaídsdóttur, frá dóttur og
tengdasyni kr. 25.00. Samtals kr.
115.00. Lagt í hók kirkjunnar hjer.
Akranesi 8. júní 1933. Ólafur B.
Björnsson.
Nýja Bíó sýnir í fyrsta skifti í
dag mynd sem heitir „Konan frá
Monte Carlo“. Mynd þessi kom
hingað með Brúarfossi og verður
að fara út með sama skipi núna í
vikunni; var aðeins Ijeð hingað
með þessu skilyrði. Aðalhlutverkið
leikur Lil Dagover og þykir leikur
hennar ágætur og myndin merki-
leg. Efni hennar er það, að skip-
herra á frönskn herskipi hefir
gifst, og þegar stríðið brýst út
1914, er konan stödd um horð í
skipi manns síns hjá liðsforingja
nokkrum. Skipið er sent út til
hafs, en er skotið í kaf af óvina-
herskipi. Á eftir er skipherrann
ákærður fyrir skyldu-vanrækslu,
og hann hugsar meira um það að
bjarga stöðu sinni heldur en heiðrí
konu sinnar. Þetta tekst, og í ör-
vílnun sinni hverfur konan aftur
til Monte Carlo þaðan sem hún var
komin. Tilraun hennar nm það að
lifa heiðarlegu lífi sem kona her-
foringja, hafði misheppnast. —
Efni sögunnar er að ýmsu leyti
mjög merkilegt, mörg atriðin á-
gæt, t. d. orustan, og vel farið
með ástamálin.
Framhald Dagbókar er á 8. síðu.