Morgunblaðið - 06.07.1933, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 06.07.1933, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ 3 JfRorgttttHttMft H.Í. Arvakur, Xltatjörar: Jön KJ».rtan»*ofc. ValtJ-r SttfA&MOH. itltatjörn ok afcralOsla: Au«tur«trœtl S. — Stasi iSCt • i.u*lý»ln«a«tjörl: B. Hafb«r«, Aa*lt«ln*a«krlf«tof*: ▲uaturatrotl 17. — Stmi t70f Htlwtalaar: Jön KJartanaaon nr. >7 41. Valtýr Stef&nason nr. «111. B. Hafber* nr. >770. r AakrlftaKlald: Innanlanda kr. 1.00 a nttn «6 Utanlanda kr. 1.10 á naAcuQt, S lasaaaölu 10 aura alntaklB. S0 aura m«B UiMk. Ítalía. I áratug hafa mennin'gar- þjóðir litið undrunaraugum og •aðdáunar ,til Ítalíu. Þar var að ófriði loknum sundruð þjóð og vanmegnug. Þar var að grípa um sig stjórnleysi og óregla. Þar var þjóðarvoði á ferðum. Sótt- kveikjan úr Austur-Evrópu var farin að veikja mátt þjóðarinnar. Þá reis upp maður, sem skildi til fidlnustu þjóð sína, skildi hugarfar hennar, skildi hvernig taka þurfti í taumana. Hinn samtaka þjóðarvilji birt- ist í einum manni, er talað gat þrótt, kjark og framtíðarhug- sjónir í alla, háa sem lága. Síðan hefir saga 'ftalíu verið sagan um það hvers samtaka þjóð er megnug. Fyrir óreglu og agaleysi, er nú komin stjórn og regla á smáu sem stóru í hinu ítalska ríki. Og hver sá jtali, sem finnur mátt og er til þess fær að gera þjóð sinni gagn, auka veg hennar, virðing og vald, hann finnur sjer stað og verkefni innan þess skipulagsbundna kerfis, er þar ríkir. En sem talandi tákn samtak- anna, þjóðarmáttarins, skipulags ins, sem í Ítalíu ríkir, er flug- ferð Báibos flugmálaráðherra. Hann hefir um alla stjómartíð Mussolini verið hans önnur hönd. Hann mun vera rpeðal yngstu ráðherra i heimi, 37 ára •að aldri. Hinn ungi ráðherra hinnar nýju Ítálíu stefnir flugsveit sinni yfir hafið. Flug hans er eigi óreglulegt Jcappflug milli ósamtaka manna. Flug hans er samflug. Honum hefir fyrstum tekist að stýra skipulagðri flUgsveit yfir höf og Jönd, heimsálfanna á milli. Slík þolraun er merkur þáttur í tæknisögu mannkyns. En flug þetta er um leið, og *ekki síður talandi tákn þess 'unda, sem í Ítálíu ríkir, anda .samtakanna, anda samhugar, •anda hinna sameiginlegu- átaka, sem hver þjóð þarf til þess að jfinna sinn eigin mátt. Það er íslendingum óblandið ■ánægjuefni að geta á einum á- fangastað orðið sjónarvottar að hinum ítalska stórhug, djörf- ■ung og frama. Hópflug Italanna. Nokkru fyrir hádegi í gær lögðu ítölsku flugvjelarnar á stað frá Londonderry, þrátt fyrir vont veðurútlit. Eftir sex stunda flug lentu þær allar, 24 talsins, heilu og höldnu í sund- unum innan viö Reykjavík. Að ofan: ítölsku flugvjelamar í flug'höfnmni Orbetello. Að neð- an; Balbo flugmáiaráðherra og nokkrir af flugforingjum hans. Um hádegi í gær kom skeyti um þ&ð að ítölsku flugmennirnir væri lagðir á stað frá Londonderry á írlandi í flug sitt til Reykjavíkur, sem var næsti áfangi. Það var síður en svo að veðurútlit ATæri gott, stormur og dimmviðri yfir hafinu, enda þótt hjer á Suður- landi væri heldur að hirta og lægja treðrið. ITndir eins og fyrstu fregnir komu um það að þeir væri lagðir á stað, bárust þær eins og eldur í sinu um allan bæinn. Pólkið vildi fá að vita hvernig þeim gengi á leiðinni , og símaði stanslaust til Morgunblaðsins til þess að leita upplýsinga. Pn miklar upplýsing- ar var ekki hægt að gefa, því að hljótt var um flugmennina fvrst í stað. Um kl. 3 kom þó skeyti um það að ferðin hefði til þessa tima gengið vel. og flugmennirnir bvgg ist við því að koma til Reykja- víkur kl. Iþú—5. Segir nú ekki meira af því, en kl. 4.10 fóru fyrstu 0 flugvjelarn- ar fram hjá Yestmannaeyjum, tíu mínútunv síðar fóru 7 þær næstu fram hjá ]iar, og kl. 4Víj þær sein- ustu. Sýndist Vestmannaeyingum þá eina flugvjelina vanta -— gátu ekki talið nema 23. Þegar fregnin kom um þetta bingað til Revkjavíkur, þóttust menn rúta að flugvjelanna ATæri A-on hingað á liA-erri stundu. Hóp- aðist fólk þá upp á öll húsþök í bænum, þar sem hægt var að kom- ast og nokkur von að sjá til flug- vjelanna, en öll skip í höfninni höfðu skreytt sig viðhafnarfánum, og á flestar flaggstengur i bænum voru fánar dregnir. En inn í Vatnagarða var stöðugur fólk- straumur og söfnuðust þar saman þúsundir manna. Komu ítalanna seinkaði. Fólk fór að stinga néfjum saman um það, að nú hefði þeir orðið að nauðlenda einhvers staðar. Var það að vísu ekki ólíklegt, því að yfir Reykjanesi ATar sunnan dimmviðri og mikill stormur, svo aðeins endr um og eins eygði Keili frá Reykja- vík. Vestar til hafs og norðar ATar veður bjartara, en himinn þó þrunginn skýjum, sem vöru skamt yfir. ftalarnir nauðlentu ekki. Kl. tæplega fimm sást til fyrsta hóps- ins, sem stefndi hingað vestan úr flóanum. Var engu líkara en að þær hefði kaþólsku kirkjuna fyrir A'egvísi, því allar stefndu þær á hana. Af glampa hvítra skýja- klakkanna bar birtu á málmbúka binna hvítu og fallegu flugvjela og sáust þær langleiðis. Komu þar fyrst 6 siglandi saman í hóp, síðan ]irír hópar, og voru 4 í hverjum. Kl. 5 og 10 mín. komu svo þrjár siglandi saman, blið við lilið með fárra metra millibili, og allar í sömu bæð frá því er fvrst sást til þeirra, og þessu flugi heldu þær áfram þvert yfir bæinn. Um 10 mínútum seinna' komu þær sein- ustu þrjár og enn í fögrum hóp. Yoru þá allar flugvjelarnar, 24 alls, komnar hingað heilu og liöldnu. Inni í Vatnagörðum. Um kl. 4 byrjuðu bílarnir að streyma inii í Vatnagarða. Var sýnilegt að öll farartæki voru not- uð, og öll fullskipuð. Reykvíking- ar, sem áttu heimangengt ætluðu auðsjáanlega ekki að verða af því að sjá það þegar ítalska flugsveit- in lenti inni á Kleppsvíkinni. Klukkan 414 fór mannfjöldinn að skima eftir flugvjelunum. En ekki sást til þeirra fyrri en er klultkuna vantaði 5 mínútur í 5. Þá sáust þrjár flugvjelar í lofti í stefnu á Landakotskirkju. Brátt heyrðust flugdrunurnar í lofti. Og áður en varði svifu fyrstu flug- vjelarnar yfir Vatnagarða norður yfir Viðey, sveimuðu um, nokkrar mínútur uns þær settust áustan til við Viðey og rendn sjer inn á Kleppsvíkina. Nú komu fléiri. Drunurnar i loftinu jukust. Á fám mínútum voru þær komnar 10. Og eftir skamma stund voru þær 18 komn- ar. Allar svifu þær nokkrar mín- útur yfir Sundunnm, uns þær sett- ust. Allar settust þær á svipuðum stað, því A’indur var allhvass af suðvestri og urðu þær að hafa sömu stefnu er þær settust. Nú var nokkur bið uns fleiri sáust. Sýnilegt var að hefði meiri dráttur orðið á komu þeirra, hefði ítölunum sem biðu ekki orðið sama. Þá heyrast dunur. Þrjár koma. Eina flugdeild vant- aði. Það var sú sem síðast skyldi fljúga. Alt virtist með feldu. — Nokkrar mímitur liðu. Enn heyrðust dunur vir vestri. Liðs- foringi Longo kom með sína flug- deild heila í höfn. Meðan flngvjelarnar voru að setjast höfðu bensínbátarnir farið af víkinni. En jafnskjótt og all- ar flugvjelarnar voru sestar fóru þeir út á víkina hver að sinni- flugvjel. En þetta varð þó til þess að landganga flugmannanna tafðist. Var það ekki fyrri en klukkan að ganga 7 að Balbo ráð- herra kom að bátabryggjunni. Þeir Tomasi ræðismaðnr og Altomare kapteinn höfðu sótt hann út að flugvjelinni. Bátur þeirra var fánum skreyttur. Báturinn var ekki fyr kominn að bryggjunni en Balbo ráðherra stökk upp á bryggjuna og skund- aði hvatlega á móti þeim sem gengu nú til móts við hann. Fyrst- ur gekk forsætisráðherra Ásgeir Ásgeirsson, ásamt frú sinni. — Leiddu þau sjer við hönd telpu- hnokka, dóttur Trvggva Þórhalls- sonar. Hún lijelt á blómvendi er hún rjetti komumanni. Balbo ráðherra kysti á kinn hennar í þakklætisskyni. Þá heils- aði hann Jóni Þorlákssyni borgar- stjóra og frú hans, svo og þeim öðrum, er þarna voru mættir til móttökunnar. Þar Amr Guðm. Svein björnsson skrifstofustjóri, Stefán ÞorATarðsson stjórnarráðsritari og Kristján Albertson rithöfundur, scm er fulltrúi borgarstjóra vegna itölsku heimsóknarinnar. Þarna voru hinir hollensku flug- menn A’an Giessen og f.jelagar hans, er aðstoðað hafa ítali við veðurathuganir undanfarna daga Balbo flugmálaráðherra er fæddur í Perrara árið 1896 og er þvi rúmlega þrjátíu og sex ára að aldri. Hann tók þátt í heims- stríðinu sem sjálfboðaliði í Alpa- skyttuherdeildinni. Vaki i hann þá þegar á sjer atliygli fyrir liug- prýði og frækilega framgöngu, var skjótt gerður að liðsforingja og liækkaði smám saman i tigninni Uns hann Arar orðinn yfirforingi, vegna sjerstakra foringjahæfileika sinna. Meðan á stríðinu stóð Arar hann sæmdur hverju heiðursmerk inu á eftir öðru fyrir hreystilega framgöngu. Balbo flugmálaráðherra sem stjórnar sjálfur flugferðinni. Að stríðinu loknu var liann einn af fjórum helstu mönnun- um, sem stofnuðu Fascistaflokk- inn, og stóðu fyrir hergöngunni frægu til Róm, þegar Mussolini of Fascistar náðu ATöldum í Italíu. Þegar eftir að Mussolini tók \Tið stjórn, fól hann Balbo, þótt ungúr væri, að koma skipulagi á flugher ítala. Reyndist hann þar svo framúrskarandi, að hann fekk hersliöfðingjanafnbót og var gerð- ur að flugmálaráðlierra árið 1926, þá aðeins þrítugur að aldri, og þótti einsdæmi að svo ungum manni skyldi falið sato vanda- samt embætti hjá stórveldi. En Balbo hefir staðið ágætlega í stöðu sinni, er sjálfur orðinn heims- frægur maður og hefir gert flug- lið ítala heimsfrægt líka. Þótti það meira en lítill viðburður er hann stofnaði til og stjórnaði för 12 ítalskra flugvjela vfir sunn anvert Atlantshaf til Suður-Ame- ríku. En enn þá meiri athygli vekur þessi flugferð sem nú stend- ur yfir — eitt hið djarfasta fyr- irtæki sem enn hefir gerst á SAÚði fJugmálanna. og Grandjean foringi varðskipsins Fyllu. er lofað hefir aðstoð sinni, ef á þyrfti að halda. Að ógleymd- nm Erlendi Pjeturssyni, sem und- anfarnar AÚkur hefir verið önnur hönd ftala við undirbúninginn hjer. Þá voru þarna og vitanlega allir blaðamenn sem hjer eru, bæði að- komumenn og heimamenn, og myndatökúmenn margir, sem ljetu sjer ant um að taka sem flestar myndir. Áhorfendaf jöldinn beið alla stund, meðan þetta fór fram, á hæðunum umhverfis Vatnagarða. Balbo ráðhérra hafðist við skamma stund þarna innfrá, Bílar biðu lians og föruneytis hans uppi A'ið loftskevtastöð flugmanna. — Þangað gekk hann ásamt móttak- endum og ók til bæjarins í bíl með forsætisráðherra. S

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.