Morgunblaðið - 17.04.1934, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.04.1934, Blaðsíða 2
2 MORGUNB'LAÐTÐ JPlorgtt»í>laí>i$ Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavlk. Rltstjðrar: Jðn Kjartansson, Valtýr Stefánsson. Rltstjðrn og afgrelðsla: Austurstræti 8. — Ptral 1600. AuglýsingastJðrl: E. Hafberg. Auglýsingaskrifstofa: Austurstræti 17. — Stnil 3700. Heirtiasfmar: Jðn Kjartansson nr. 3742. Valtýr Stefánsson nr. 4220. Árni Óla nr. S04S. E. Hafberg nr. 3770. Áskriftagjalcl: Innanlands kr. 2.00 á mánutSI. Utanlands kr. 2.60 á mánuSi í lausasölu 10 aura eintakið. 20 aura œeS Lesbðk. Mussolini lækkar laun embættismanna. Rómaborg 14. aþríl F.B. Ríkisstjórnin hefir ákveðið að lækka laun embættismanna um 6—12% og hækka piparsveina- skattinn. .Tafnframt verður hús- eigendum fyrirskipað að lækka húsaleigu 6—12%. Rómaborg 16. apríl F.B. Akvörðun ríkisstjórnarinnar um lækkun launa starfsmanna hins opinbera var tekin svo að hægt yrði að jafna tekjuhalla fjárlag'- anna og gera það örugt, að ekki þurfi að hverfa frá gullinnlausn. Þessi ráðstöfun og aðrar fleiri verða gerðar til þess einnjg að stuðla að því, að óhagstæður við- skiftajöfnuður breytist í hagstæða átt. A fyrsta fjórðungi yfirstand- andi árs nam innflutningurinn 2009 miljörðum líra, en útflutn- ingurinn 1275 m-iljörðum líra. Sumarhús Sigurðar búnaðarmálastjóra í Fagrahvammi brennur. Um kl. 2 á laugardaginn, urðra verkamenn í Fagrahvammi í öl- fusi, á garðyrkjubúi Sigurðar búnaðarmálastjóra, þess varir, að eldur var kominn upp í 'Sum arhúsi Sigurðar, sem stóð mjög skamt frá gróðurhúsunum. Stundarfjórðungi áður hafði einn verkamanna komið jnn í húsið, og varð ekki var við neinn eld. Eldstæði var ekkert í hús- inu, enda var það hitað upp með hverahita. En raflögn var þar. Verkamenn fjórir voru þarna á næstu grösum . Ætluðu þeir fyrst að fara inn á loft hússins, en utangengt var þangað. Kom- ust þeir ekki inn fyrir reykjar- svælu. Þá ætluðu þeir að fara inn í stofuhæð hússins. En þang- að varð heldur ekki komist. — Húsið fuðraði upp á 20 mínút um. Vindur var hvass af norð- austri, og lagði eldinn ekki að nálægum húsum. Hefði vind- staða verið önnur, hefði þar brunnið meira. Húsið var vátrygt, en innan- stokksmunir og lausafje verka- fólks sem þar var, var óvátrygt. Rannsóánir á Vatnaiökulsgosinu. Jökulfararnir komnir til baka að Núpsstað. Ánægðir yfir ferð sinni. í gærkvöldi átti Morgunbláðið tal við Jóhannes Askelsson. Hann var ])á á^imt föninautum sínum kominn ao Núpsstað, þeir komu þangað kl. að ganga átta í g'ær- kvöldi. Jóhannes ljet vel yfir ferð þeirra á jökulinn. Þau voru á gosstöðvunum á föstudaginn. Alls voru þau 3 sólarliringa á jöklinum. Nokkra hríð fengu þau í ferðinni, er annars gekk slysa- laust, og að óskum. Um árangur af athugunum þeirra vildi Jóhannes ekki segja í gærkvöldi, þareð hann var ferð- lúinn, og' hafði ekki samið skýrslu um ferðina og athuganirnar Barnauppeldissjóður Thorvald- sensf jelagsins selur merki á morg'- un. til ágóða fyrir.starfsemi sína, Sjóður þes.si hefir sett sjer það nmrk að koma uþp myndarlegu barnahæli, og er þess væiist að hælið geti komist bráðlega. a fot. Börn sem vildu selja irierki, ern beðin að koma í Thorvaldsen.s- basarinn á morgdu kl. 10 f. b. Góð siilubuin eru greidd. Rannsóknarför dr. Niels Nielsen til Vatnajökuls. Carísbergsjóður hefir tekið að sjer að greiða allan kostnað við för- ina. Þeir fjelagar leggja af stað hjeðan á morgun. í fyrra.kvöld kómu þeir hingað með íxoðafossi. dr. Niels Nielsen og Miltherg. magister, er ætla að anga á Vatnajökul til að rann- saka gosstöðvarnar. Morgunblaðið hitti þá að máli í gær. — Það er vitaskuld ákaflega erfitt, segir dr. Nielsen, að gera nokkra áætjun um þessa ferð okkai', því fyrst og fremst fer hún mjög eftir því liyernig viðr- ii' og svo vitum við svo lítið. hvernig jökullinn er til umferðar, og hvernig hægast verður að kom ast til eldstöðvanna. Mjer þykir mjög vænt um, lielt hann áfram, að menn eru komnir á undan okkur * upp á jökulinn, því þeir geta vafalaust gefið okk- ur mikilsvarðandi leiðbeiningar um það, hvernig við getum best liagað ferð okkar. En við höfum allan útbúnað til þe.ss að standast hvaða veður og' livaða erfiðleika, sem fyrir kunna að koma, enda búumst við við því, að vinna að rannsóknum þessum nokkurn tíma. Ætlunin er, að komast fyrst til eldstöðvanna, rannsaka þar og mæla Öll vegsummerki, en snúa sjer síðan að því, að rannsaka Skeiðarárhlaupið, hvernig það j hefir liagað sjer og ]>að alt til sjávar. j Jeg hafði vonast eftir því, held- J ur dr. Nielsen áfrarn, að þeir Pálmi Hannesson og Steinþór Sigurðsson helst báðir, eða a. m. lc. annai' liver þeirra gæti farið með okkur í rannsóknarför þessa. En því miðiir getui' hvorugur þeirra farið. Hiiffnm við gert ráð fvrir því, að vera fjórir í alt. Hvaða menn við fáum ineð okkur, er óráðið enn. í smvandi við þessa ferð okk- ar get jeg ekki látið hjá líða að. mimjast á, hve framúrskarandi vel og. liðlega stjórn Garlsbergssjóðs tók í það að kosta þessa ferð. Venjulega tekur það langan tíma að koma vísindalegum ferða- lögUm af stað. En er jeg fór fram á það við sjóðstjórnina, að hún styrkti ferð þessa, svaraði hún því um hæl, að liún skyldi bera allan kostnað af ferðinni. Slglingar balda áfran í Danmðrku. Óeirðlr i Esbferg. Hafnarverkamenn vilja ekki gera samúðar- verkfall. Stjórn verkalýðsfjelaganna gefur út áminn- ingu til verkamanna. Louis Zöllner, konsúll áttræður. Laust fyrir 1880 fluttist ungur Dani til Newcastle on Tyne og hóf þar verslunarstarfsemi.Hann mun hafa verið fremur fjelítill, en hafði öðlast ágæta verslunar- mentun áður en hann ljet úr landi. — Blómgaðist fyrirtækið skjótt, enda komu þegar í ljós þeir kostir kaupsýslumannsins, sem iivalt síðan hafa einkent L. Zöllner, gætni og fyrirhyggja og áreiðanleiki í öllum viðskiftum. Fyrstu árin flutti Zöllner inn landhúnaðarafurðir frá Dan- mörku. En árið 1882 hófst starf- semi kaupf jelaganna hjer á landi og komst verslunarrekstur Zöllners þá á víðara svið. Zöllner varð umboðsmaður kaupfjelaganna, sá um innkaup á erlendum vörum og sölu á ísl. afurðum. Hjeldust þessi skifti alt þar til Samband ísl. sam- vinnufjelaga var stofnað. Þegar þess er gætt hvern hug alþýða manna hjer á landi bar til kaupmanna fyrrum og þó einkum danskra kaupmanna, má það ljóst vera, að það var engum meðalmanni fært að vinna svo traust íslenskra bænda j sem Louis Zöllner gerði. Hefir j því og verið lýst yfir af hlut- : aðeigandi aðiljum, hver haukur i í horni Zöllner reyndist f jelög- 1 um þeirra. — Hefi jeg það eftir góðri heimild, að engum þeirra, sem farið hafa með viðskifti kaupfjelaganna, hafi tekist eins vel að vinna sjer traust og vin- sældir meðal kaupfjelagsmanna sem Louis Zöllner og Hallgrimi Kristinssyni. Auk viðskifta sinna við kaup- fjelögin rak Zöllner um aldar- fjórðung verslunarstarfsemi á Austfjörðum, bæði fyrir eigin reikning og í fjelagi við aðra menn. Og ennþá hefir hann all- mikil viðskifti hjer við land. — Á fyrri árum kom Zöllner Kalundborg 16. apr. FÚ í Höfn hefir alt verið að miklu leyti með kyrrum kjörum í dag. Nærri öll áætlunarskip, sem leggja áttu úr höfn í dag, hafa farið á stað á rjettum tíma — 24 verkfallsmenn komu fyrir rjett í dag, sakaðir um það, að hafa stofnað til óeirða á götum úti í sambandi við verkfallið. — Þeir voru dæmdir í 50 kr. sekt hver. í Danmörku hefir í dag eink- um dregið til tíðinda í Esbjerg. Havnegade heitir aðalgata sú, sem liggur niður að höfninni, en lögregluvörður er. um alt hafn- arsvæðið. Snemma í morgun tók mannfjöldi rnikill að safnast saman í Havnegade neðan- verðri, og gerði mannfjöldinn sig líklegan til þess að rjúfa lögregluvörðinn, og lenti þar brátt í bardaga á milli mann- fjöldans og lögreglunnar.'Nokk- urir meðal mannfjöldans köst- uðu grjóti og öðrú lauslegu að lögreglunni, en brátt lagði mann fjöldinn á flótta. j Ekki leið á löngu, þangað til aftur hafði safnast saman mik- ill mannfjöldi á sömu slóðum og eggjuðu foringjarnir fast á að ganga að lögreglunni. Höfðu þá ýmsir prik og annað lauslegt í höndum. Lögreglan rjeðist þá fram og brast þá skjótlega flótti í lið kröfugöngumanna. Flúði hver sem betur gat inn í næstu hliðargötur, en iögreglan ljet kylfurnar ganga á þeim, sem ekki höfðu sig undan og fjellu nokkrir í rot í þeirri viðureign. Að þessu loknu varð rólegt í bænum, enda ljet lögreglan það boð út ganga, að hverjum þeim yrði umsvifalaust bægt frá hafn arsvæðinu, sem gerði tilraun til að hindra þar vinnu. í Árósum er unnið við höfnina undir lögreglu eftirliti. Nokkur mannfjöldi safnaðist þar einnig saman í dag, en lögreglan dreifði honum. Einn eða tveir menn hafa verið handteknir þar fyrir að stofna til óeirða. í Álaborg hefir lögreglan einnig vörð um hafnarsvæðið, og er þar unnið við höfnina í dag. Verkfallsmenn gerðu tilraun til þess að rjúfa lögregluvörðinn, en var þegar stökkt á flótta. Hafnarverkamenn fylgja ekki sjómönnum í verk- fallinu. Harðorð áminning frá Sambandi verkalýðsf je- laganna. (Sendiherrafrjett 16. apr.) Fjelög hafnarverkamanna í Höfn, og í Árósum, hafa með miklum meiri hluta felt þá til- lögu að g,era samúðarverkfall með sjómönnum. f Höfn greiddu 405 atkv. með samúðarverkfalli, en 1906 á móti, í Árósum voru einir 5 með, én 735 á móti. Framkvæmdastjórn sambands verkalýðsfjelaganna hefir gefið út ávarp til allra verkamanna. Segir þar í niðurlagi ávarpsins: Stöðvið lögbrotin. Takið ekki þátt í ofbeldi og óbótaverkum. Víkið inn á grundvöll laga og samvinnu og látið æsingamenn- ina eina um að bíða ósigurinn. árlega til íslands og hafði hin mestu kynni af Islendingum. — Fylgdist hann vel með í málum manna hjer heima fyrir og lagði gott til málanna. Louis Zöllner er fyrir löngu orðinn breskur ríkisborgari, og er í fremstu röð kaupsýslu- manna í borg sinni. Er hann meðeigandi og stjórnandi í ýms um bíómlegum fyrirtækjum þar. Hann hefir verið konsúll Dana áratugum saman og kon- súll vor jafníramt síðan Sam- bandslögin gengu í gildi. Hann er kommandör af Dannebrog og stórriddari af íslensku fálkaorð- unni. _ Zöllner er kvæntur enskri konu af þektum ættum og eiga þau fjögur börn, tvo syni og tvær dætur. Eldri sonur hans dvaldi hjer á landi um tíma og nam íslensku. Þrátt fyrir háan aldur tekur Zöllner enn þá daglegan þátt í rekstri fyrirtækja sinna og er hinn ernasti, áhugasamur og vakinn, sem ungur væri. Hefir hann þó orðið að þola alvarlegar sjúkdómslegur og uppskurði á síðustu árum. Nú á áttræðisafmælinu munu margir Isleridingar senda honum kveðjur sínar og óska honum allra heilla. Mótmælafundir gegn launaíatkktmínnní i Frakklandi. 1 París 16. apríl F.B. Mótmælafundir, voru lialdnir í gær í 120 borgum í Frakklandi út af launalækkununum. Frekari mót mælafundir verða haldnir í dag, m. a. verður í dag gert klukku- stundarvei'kfall af öllum starfs- mönnum ríkisins. — Engar ó- spektir hafa orðið í sambandi við mótmælafundj þessa. Sumarfagnaður stúdenta verð- nr haldinn síðasta vetrardag eins og vant er. Hefst með sameig'in- legu borðbaldi kl. 7. Búist við mikilli ])átttöku og gleðsltap, ef að vanda lætur. Heimdallur. Fundnr verður haldinn í formannaráðinu bl. 8V2 e m. í VarðaiTnisinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.