Morgunblaðið - 04.03.1937, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 04.03.1937, Blaðsíða 5
Pimtudagnr 4. mars 1937. MORGUNBLA ÐIÐ Notið Trúlofunarhringa fóið þið hjá Sigurþóri, Hafnarstæti 4. Sendir gegn póstkröfu hvert á land sem er. Sendið nákvæmt mál. tJr og klukkur f miklu úrvali. böolf lil STEINDÖRSPRENT HF Sinl K7& PMUB 369 o/j «(i 4 Baugstaða- smjðrið er komio aftur. Versl, Vísir. Laugaveg 1. Iiefir Kilolið besiu meðmæli Spikfeitt kjöt af fullorðnu fje. Nautakjöt — Hangikjöt. Versl. Búrfell, Laugaveg: 48. Sími 1505. o ifi PlROUn Morgunblaðið með mcrgunka ffinu „Mála!erlin“ 'i Moskva frá sjónarmiði Þjóðverja. Pýska blaðið „Rheinisch Westfálische Zeitung“ birt- ir eftirfarandi grein frá frjetta- ritara sínum í Moskva og önn- ur þýsk blöð hafa tekið grein- ina upp. Segir í greininni frá pyntingaraðferðum hinnar al- ræmdu rússnesku GPU leyni- lögreglu, „sem eru athyglisverð- ar (segir blaðið) í sambandi við „játningar“ þeirra, sem sak- feldir voru í síðustu „sýningar- málaferlunum“ í Moskva, þar sem þær varpa ljósi yfir, hvern- ig á því stendur, að hinir á- kærðu keppast um að ákæra sjálfa sig“. Blaðið heldur síðan áfram: Sálarpyntingar þessara ves- lings manna, sem fallið hafa í hendurnar á GPU, er í mörg- um tilfellum ekki frábrugðnar aðferðunum, sem beitt var gegn galdrafólki á miðöldum, en stundum eru þær framkvæmd- ar eítir „nýjustu tísku“ og er þá stuðst við síðustu nýjungar í verkfræði- og læknavísindum. * Þegar um minniháttar pólit- ísk mál er að ræða, er fyrst í stað beitt „ljósa og hitabreyt- ingar aðferðinni“. Klefi fang- ans er lýstur upp í 30 mínútur með sterku ljósi, en næstu 30 mínútur ríkir þar (colniðamyrk- ur, hálfa klukkustund er 40° hiti og næstu 30 mínútur er klefanum breytt í ísskáp. Þess- um „leik“ er haldið áfram dag og nótt vikum saman. Það þykir saklaus pyntingaraðferð, að loka fangana dögum og vikum saman inni í niðadimmum smá- kvikindaherbergjum. „Sam- þjöppunar“ klefarnir, þar sem föngunum er hrúgað saman, svo að þeir verða að standa upp- rjettir og klefarnir síðan hit- aðir upp, í 40° hita, eru mjög tíðkaðir. Það er opinbert leynd- armál að fangarnir, konur jafnt Einræðisherraim Stalin. og karlar eru barðir á dýrsleg- an hátt. Aðrar líkamspyntingar, sem kínverskir og lettískir kommúnistar eru venjulega látnir framkvæma, get og vil jeg ekki minnast á, vegna þess hversu ægilegar þær eru. * Fangarnir, sem nota þarf í „stóru sýningarmálaferlin“, eru ,,tilreiddir“ á alveg sjerstakan hátt. Útlendingar, sem viðstadd- ir voru rjettarhöldin í Moskva veittu því sjerstaka athygli hve framkoma allra fanganna var svipuð. Ensk blöð gátu þess, að föngunum myndi hafa verið „gefnar sprautur“. Líklegar er þó að valdahafarnir hafi náð takmarki sínu með því, að gefa föngunum inn Luminal-lyf (svefnlyf). Ef Luminal er gefið Molatof forsætisráðherra Rússa. Brfef »end Mwilnnblalliitii. Yeðurfregnir og stjórnmál. Hr. ritstjóri! Jeg hefi altaf álitið, að þeir sem hafa áhyrgðarmiklum störfum að gegna, sem almenningsheill varðar, t. d. læknar og prestar, ættu sem allra minst að skifta sjer af stjórnmálum opinberlega, að minsta kosti ekki það mikið, að þeir þyrftu að standa í andsvör- um þess vegna, þar sem hætt er við, að það leiði hugann um of frá aðalstarfi þeirra, og mjer finst, að gjarnan mætti Jón Eyþórsson veðurfræðingur vera þar með. Þeir sem hlusta að staðaldri á pistla þá er hann flytur í hið hlutlausa! ríkisútvarp „Um daginn og veginn“, hljóta að finna af hvaða sauðahúsi hann er á stjórn- málasviðinu. Það skal viðurkent, að oft eru þessir pistlar lians skemtilegir og fræðandi, en það er óviðkunnanlegt að blanda þá með einhliða pólitík. Ef lir. Jórf Eyþórsson hefði að- eins fylgst með að athuga lofts- útlitið hjer við sunnanverðan Faxaflóa síðatl. mánudag, þann 22. febrúar, er mjer nær að halda, að veðurstofan hefði ekki látið þá veðurspá frá sjer fara, sem hún gerði umrætt mánudagskvöld, þar sem veðurspáin fyrir Faxa- flóa var: Vaxandi austan kaldi, úrkomulaust að mestu. En áður- nefndur veðurfræðingur hafði kvöld þetta meðfram annað að hugsa um, þó ekki væri nema það, að ávíta konur þær, er sýndu þann diignað og framtakssemi að stofna með sjer Sjálfstæðiskvenna fjelagið Hvöt. fslenskar húsmæð- i:r, og þá ekki síður þær sem í Reykjavík búa, hafa vissulega fengið að kenna á afleiðingunum af óstjórn þeirri er nú ríkir í ís- lenskum þjóðfjelagsmálum,; og ætti engan að þurfa að undra, þó að þær reyndu að bera þar hönd fyrir höfuð sjer. An efa hefir veðurspá sú er jeg gat um, átt mestan þátt í því, að allir bátar lijer í verstöðvunum reru það kvöld. Var óskemtilegt að vakna við þá frjett morguninn eftir, að allir bátar væru á sjó, þar sem þá strax var komið hvass- viðri með svo svörtum byl, að varla sást húsa á milli. Enda sendi Slysavarnafjelag fslands hjálpar- beiðni til handa bátunum með næstu veðurfregnum. Þrem dögum síðar varð veðrið einnig mjög á annan veg en spáð var þ. e. síðastl. föstudag; kl. 10 um morguninn var veðurspáin norðaustan kaldi, en þann dag var veðurhæðin hjer 8—9 vindstig, með 10 stiga frosti; þann dag voru allir Sandgerðis- bátar á sjó, nema tveir. Hafa hát- ar þeir er þá voru í róðri, komist að því fullkeyptu að ná lóðum sínum, enda töpuðu þá allir meira og minna og sumir næstum öllu. Er illa farið, þegar svona óná- kvæmar og beinlínis vitlausar veð- urspár endurtaka sig þannig með fárra daga millibili, því eðlilegt er að menn hæfti þá að taka mark á þeim. Þeir sem veðurspárnar hafa með höndum, liafa það vandasömu og ábyrgðarmildu starfi að gegna, að sannarlega veitir ekki af að þeir sjeu heilir og óskiftir við það starf. Þar sem sjóróðrar eru stundaðir hjer af framúrskarandi dugnaði og kappi, álít jeg illa farið, ef menn færu að láta veðurspárnar sem vind um eyrun þjóta. 27. febrúar 1937. Gamall karl við sunnan- verðan Faxaflóa. „Þannig má Hallgrímskirkja ekki líta út“. Hr. ritstj. Þá er jeg leit á uppdrátt í blöð- um nýskeð, af væntanlegri Hall- grímsltirkju í Saurbæ, datt mjer þegar í hug ein ömurlegasta sjón er jeg hefi sjeð í sauðkindar líki. Það var hrútur mjög höfuðstór og með geysimiklum hornum, en búkurinn var með afbrigðum lítill, bláskarða og berskáldaður. Hann var ekkert nema hornin. Já, þetta er nú fyrirmyndar „kynbótagrip- ur“, hugsaði jeg. Yæntanlega rís aldrei kirkja í Saurbæ eftir þessari fyrirmynd, eða mjög líkri henni, því jeg hýst við að það mundi' ýfa skap margra, er þeir sæju hana, í stað þess sem ætti að vera, að vekja Forseti Rússlands: Kalinin. í litlum skömtum, verða áhrifin af því þreyta og máttleysi, en ekki svefn. Ef skamtar þessir eru gefnir inn daglega í nokkr- ar vikur, þá er hægt að gera hraustustu menn; að ræflum. — Jafnvel þótt fangar GPU leyni- lögreglunnar geri hungur- stræku, strax frá byrjun, þá verða þeir þó að neyta vatns, og er þá hægt að gefa þeim saltvatn fyrst, til þess að gera þá þyrsta, og blanda síðan Luminal í vatnið. Vilja- þrekið þrýtur, fanginn fer að borða og smátt og smátt verður hann að viljalausum ræfli, sem síðan er spurður daglega sömu spurningum, og að lokum, eft- ir nokkrar vikur er hann „tií- búinn fyrir dómstólana“. * Til þess að hraða „árangrin- um“ þá eru notuð ýmis önnur deyfingarmeðul. GPU leynilög- reglan er fyrir löngu orðin fræg fyrir ,,ópíumaðferð“ sína. Það er talið eiga rót sína að rekja til deyfingarlyfa, að fangarnir fóru oft miklu lengra en af þeim var krafist í því að bera sakir á sjálfa sig, svo að hinn opinberi ákærandi gerði ör- væntingaþrungnar tilraunir til að stöðva orðaflaum „sakbona- inganna“. Þetta kom oft fyrir. Germania. Aðgöngumiðar að samsæti og dansleik fjelagsins fást í Nora- magasin til hádegis á fimtudag- inn 4. þ. m. og eftir þann tíma á Hótel Borg. FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.