Morgunblaðið - 01.02.1938, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 01.02.1938, Blaðsíða 6
MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 1. febr. 193S. TiIkynnSng frá Ffelagi kjölverslana í Reykjavík. Samkvæmt samþykt á fundi fjelagsins 26. janúar 1938 verðnr, frá og með 1. febrúar 1938 að telja, enginn nýr viðskiftamaður tekinn í reikning og yfirleitt eigi sjer engin reikningsviðskifti stað, til annara en þeirra, er áður hafa haft slík viðskifti hjá hverri ein- •takri kjötverslun. Ennfremur, eins og áður hefir verið auglýst, skulu vörur, sem sendar eru með kontant nótum, því aðeins skildar eftir, að meðfylgj- andi nótur sjeu um leið að fullu greiddar, nema öðruvísi hafi verið um það samið. — Matarversl. Tómasar Jónssonar, Laugaveg 2. Laugaveg 32 og Bræðrahorgarstíg 16. Kjötverslanir Hjalta Lýðssonar, Grettisgötu 50, Grettisgötu 64. Fálkag. 2 og Verkamannahúst. Matardeildin, Hafnarstræti 5. Matarbúðin, Laugavegi 42. Kjöthúð Austurbæjar, Laugavegi 82. Kjötbúð Sólvalla, Sólvallag. 9. Kjötbúðin, Týsgötu 1. Verslunin Von, Laugavegi 55. KjÖtverslunin Herðubreið, Fríkirkjuvegi 7. Verslunin Liverpool. Guðjón Guðmundsson, *** '• Kárastíg 1. Verslunin Baldur, Framnesv. 23. Kjötbúðin Goðaland, Bjargarstíg 16. J. C. Klein, Baldursgötu 14. Kaupfjelag Borgfirðinga, Laugavegi 20. Kjötbúðin Herðubreið, Hafndrstræti 18. S/F. Nordalsíshús, Kjötbúðin Borg, Laugavegi 78. Kjötbúðin Búrfell, Laugavegi 48. Kjöt & Fiskur, Baldursgötu. Lárus Ottesen, Laugavegi 134. Verslunin Vegtir, Vesturgötu 52. Milnerskjötbúð, Leifsgötu 32. Elís Jónsson, Reykjavíkurvegi 5. Brífandi, Laugavegi 63. Jóhannes Jóhannsson, Grundarst. 2 SEXTUGUR Guðmundur Bergsteinsson Quðmundur Bergsteinsson, kaupmaður í Flatey á Breiðafirði er sextugur í dag. Um þrjátíu ára skeið, eða rúm- lega það, hefir Guðmundur versl- að í Flatey. Ásamt landverslun sinni rak hann um allmörg ár myndarlega og happasæla þil- skipaútgerð. Meðan Guðmundur Bergsteins- son var á hesta aldursskeiði og atvinnurekstur hans hjelst óhindr- aður af verðhruni, viðskiftakrepp- um og öðrum áróðrum, var gull- öld Flateyjar, „þessarar yndis- eyju, þar sem náttúran ber svip hinnar eilífu fegurðar“, eins og Kiljan kemst að orði. Margur mun á þessum afmælis- degi Guðmundar senda honum hlýjar hugsanir, um leið og minst er þeirra ára, er hann var mestur aflgjafi menningar- og atvinnu- mála hjeraðsins. Það er einnig fullvíst, að þeir hinir sömu sakna nú þeirra tíma, er hann veitti öllum vinnufærum íbúum eyjarinnar, körlum og konum, næga atvinnu, ásamt fjölda aðkomumanna, enda var björgulegt í Flatey þau árin er fengsælir formenn hans og sjó- menn sigldu sökkhlöðnum fiski- skútum, undir þöndum seglum, inn á Flateyjarhöfn. Þar var augljóst heilbrigt samstarf, er erjulaust vann að því takmarki, að sjálfs- bjargar hvöt allra hlutaðeigenda næði sem bestum árangri. Þótt rás viðburðanna hafi gerst Guðmundi svo örðug, að fótum er nú kipt undan atvinnurekstri hans, honum til tjóns og öðrum íbúum eyjarinnar, sjást í Flatey glögg merki athafnamannsins og vinnuveítandans. Að vísu hefir tönn tímans nagað skörð í sumar umbætur hans, en saga Flateyjar mun geyma sögu hans, ef rjett verður með farið. Það væri gæfa þessa lands, ef mörg bygðarlög ættu slíka menn, er ótrauðir legðu fram orku sína og fje til vaxtar atvinnulífi og fje t.i! efnalegu sjálfstæði hjeraðs síns. G. KOSNINGAR UTAN REYKJAYlKUR. FRAMH. AF FIMTU SÍÐU. Sveinsson svo mjög strikaður út, að enda þótt hann væri efsti mað- ur listans, komst hann ekki að. Þó af listanum næðu 4 menn kosn- ingu. Nú var líklegast, að 5. mað- ur listans kæmist að sem 4. mað- ur. En svo varð ekki, Því Jakob Karlsson, sem var í 6. sæti, var færður svo mikið upp, að -hann komst að, þó eigi næðu nema 4 kosningu. Alt þetta gerði því svo mikinn glundroða, að gerð var endurskoð- un á atkvæðatalningunni í gær, að því er snerti lista þenna, en breytti þó ekki fyrstu niðurstöðunni, eftir því, sem blaðið best veit. Atkvæðatölur þær, sem hafa verið tilfærðar hjer að framan, eru eftir FÚ. Þaðan er og eftirfarandi greinargerð um úrslitin í öðrum kauptúnum: Seyðisfjörður. Alþýðufl. 175 atkv., 3 fulltr. Framsóknarfl. 7l atkv., 1 fulltr. Kommúnistafl. 62 atkv., 1 fulltr. Sjálfst.fl. 180 atkv., 4 fulltr. Neskaupstaður. Framsóknarfl. 84 atkv., 1 fulltr. Sjálfst.fl. 141 atkv., 2 fulltr. Alþýðufl. og Kommímistafl. 331 atkv., 6 fulltr. Húsavík. Framsóknarfl. 131 atkv., 2 fulltr. Alþýðufl. 74 atkv., 1 fulltr. Kommúnistafl. 158 atkv., 3 fulltr Sjálfst.fl. 95 atkv., 1 fulltr. Flateyri. Frjálsl, kjós. 135 atkv., 3 fulltr. Sjálfst.fjel. 120 at.kv., 2 fulltr. Eskifjörður. Samfylk.m. 86 atkv., 5 fulltr. Framsóknarfl. 40 atkv., 2 fulltr. Hellissandur. Alþýðufl. og Framsóknarflokk- ur, 51 atkv., 2 fulltr. Utanflokka, 57 atkv., 3 fulltr. Sauðárkrókur. Frams.fl., Alþ.fi., og Kommún- istafl. 276. atkv., 4 fulltr. Sjálfst.fl. og óháðir borgarar, 202 atkv., 3 fulltr. Hrísey. Sjálfst.fl. 51 atkv., 1 fulltr. Alþ.fl. og Frams.fi. 81. atkv., 2 fulltr. Suðureyri. Alþýðufl. 68 atkv., 2 fulltr. Frams.fl. 58 atkv., 1 fulltr. Sjálfst.fl. og óháðir borgarar, 66 atkv., 2 fulltr. Ólafsfjörður. Ýmsir borg. 194 atkv., 3 fulltr. Verklýðsfjel. Ólafsfjarðar, 102 atkv., 2 fulltr. Blönduós: Alþýðufl. og’ Framsóknarmenn 86 atkv., 2 fulltr. Sjálfst.fl. og Framsóknarflokkur 105 atkv., 3 fulltr. „Lyra“ kom til Bergen kl. 9 í gærmorgun. Ðjörgunarskúta Slysavarnafjelags- ins fullbúin Björgunarskútan „Sæbjörg'* sem smíðuð hefir verið á skipasmíðastöðinni í Frederiks- sund í Danmörku hefir nú far- ið fyrstu reynsluför sína og tókst ágætlega. Vidstaddir voru í förinni full- trúar frá skipasmíðastöðinni, fulltrúi frá Bolindersfjelaginu í Svíþjóð. Þorsteinn Þorsteins- son skipstjóri í Þórshamri í Reykjavík, sem hefir sjeð um smíði skipsins o. fl. Kristján Kristjánsson skip- stjóri og íslensk áhöfn mun inn- an fárra daga taka við skipinu og er gert ráð fyrir að það leggi af stað frá Danmörku £ kringum 10. febrúar. (FÚ). KOSNIN G AD AGURINN. FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU. og annarstaðar komu jafnóðum í xitvarpinu. Fyrstu fregnir af talningunni hjer í Reykjavík fluttu atkvæða- tölur, er bentu til annara úrslita en síðar komu í ljós. Svo öruggir þóttust samfylking- armenn um sigur, að þeir stofnuðuc til einskonar sigurhátíðar í Iðnó. Þar var margt manna, og gleð- skapur eigi lítill í upphafi. En er hinar fyrstu fregnir bár- ust þangað af talningunni hjer £ Reykjavík, varð fjörið svo mikið, að nálgaðist trylling. Hjelst það um stund. En er næsta fregn kom, er sýndi sama hlutfall milli flokk- anna og úrslitin, slumaði í hinu rauða liði. Og þegar sú þriðja kom, sem staðfesti betur hvert stefndi, varð söfnuðurinn svo dapur, að> menn leituðu hljóðir útgöngudyra. Eða svo fór fyrir þeim, sem er heitn ildarmaður blaðsins. Og kunnum vjer því ekki þessa sögu lengri. En af hinum fyrstu undirtekt- um í Iðnó að dæma, virðast sam- fylkingarmenn hafa gert sjer vonir- um alt önnur úrslit en hjer urðu. Alþýðublaðsmenn voru daufir í dálkinn í gær. Ségja þeir berum orðum, að þeir hafi ekki haft gagn af þessum nýja sið. En margur dansar nauðugur. Nú er að vita hvað kommúnistar segja. I vor var Hjeðni Valdimarssyní kent um hrakfarir flokksins og- fall Stefáns Jóhanns úr þingmensk. unni. Hann tók því það ráð, að> leggja flokk sinn undír kommún- •Eftir úrslitunum í vor að dæma, átti samfylkingin að fá 6 menn í bæjarstjóm. Hjeðinn settist sjálf- ur í 6. sæti. En nú fjell hann þar. Útkomarif fyrir hann, fjelaga hans, flokk og samfylkinguna í heild er því verri en í vor. Og dýpra sekliur hann og flokk- ur hans. Hann á sem sje eftir fleiri áföll, fleiri árekstra. Kaupum tómar flöskur þessa viku til löstudagskvðtds. Flöskunum veitt móttaba fi Nýborg. Áfengisverslun rfkisins. Besta tækifærisgjöfin er einhver hlutur úr hinu heimsfræga Schramberger Keramik. Fátt er til meiri prýði á hvers manns heimili. Mikið úrval. K. Einarsson & Björnsson r---------------- UmbúOapappír 20 - 40 • og 57 em. NÝKOMINN H. BENEDIKTSSON & GO E. POSCHMANN Strandgade 28 B. Köbenhavn K. Símnefni: Monkers. Kaupir allar íslenskar vörur. Sjergrein: Fersk, ísuð lúða. Peningagreiðsla um hæl. — Selur allar kaupmannsvörur. Goliat.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.