Morgunblaðið - 17.05.1938, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 17. maí 1938.
Xaupmenn og kaupfjelög
Hrísgrjón
Maframjöl
i sekkjum og pökkum
H. Benediktsson & Co.
Vátryggingarhlutafjelagið
NYE DANSKE AF 1864
Líftryggingar
allar tegundir. Lægst iðgjöld. Best kjör.
Aðalumboð:
V átryggingarskrif stof a
Sigfáss Sighvatssonar,
Lækjargötu 2. Sími 3171.
Notlð
bniarins bestu bftfreiOar.
it' m
Sfeindór.
Til brúðargjafa:
Handskorinn Kristall í miklu úrvali. Schramberger
heimsfræga kúnst Keramik í afarmiklu úrvalí.
Schramberger Keramik ber af öðru Keramik, sem gull
af eir.
K. Einarsson &'Björnsson
Syngur
á 10 tungu-
málum
Samtal við Irmu
Weile-Barkany
17 rjettaritari MorgunblaSsins
hefir átt tal við hina kunnu
söngkonu, Irma Weile Barka-
ny, sem ætlar að halda hjer
söngskemtun á morgun.
„Jeg hefi ferðast um nær
alla Evrópu", segir söngkonan,
„og haldið söngskemtanir. Jeg
hefi einnig sungið mikið í út-
varp.
— Venjulega hefir það ver-
ið svo, að jeg hefi fengið til-
mæli um að syngja í útvarp,
,eftir að jeg hefi haldið söng-
skemtun. 1 Kaupmannahöfn
söng jeg í fyrra í útvarp á 7
tungumálum. Söng mínum var
m. a. endurvarpað á heimssýn-
ingunni í París.
Jeg ætlaði fýrst að verða
píanóleikari og var komin all-
langt á þeirri braut, hafði m.
a. hlotið gullpening fyrir píanó
leik. En síðar ákvað jeg að
helga krafta mína sönglistinni.
Jeg hefi sungið í Berlín (Ber
lín álít jeg miðstöð allrar hljóm
listar), í París, Varsja, Khöfn,
Milano og víðar og víðar. —
Einni viku ,eftir að Mussolini
opnaði hina miklu útvarpsstöð
í Milano, var jeg beðin um að
syngja þar. Jeg söng á 10 tungu
málum.
Eftir konsert Irma Weile
Bárkany í Milano fjekk hún
svohljóðandi brjef frá hinum
fræga spánska söngkennara
Maestro Arturo Cuartero, sem
var af tilviljun staddur þá í
Milano:
„Jeg hlýddi á konsert yðar,
sem var mjög fagur. Jeg heyrði
hina' hljómfögru, mjúku og
sljettu rödd yðar og hinn „para
dísar fagra hreim“ (messo-
voce).
Við stöndum frammi fyrir
míkilli listakonu, sem hefir stór
kostlega fagra rödd.
Viðkvæmnin í hinum mjúka,
gamla þýska jólasálm var með
afbrigðum, þó varð j,eg ennþá
meira undrandi, er jeg heyrði
yður syngja kataloniska lagið
eftir Juan Manen með stórkost-
legum tilþrifum og krafti á háu
tónunum. Þessar sterku mót-
setningar á einni efnisskrá
sýndu glögt hið framúrskar-
andi listamannseðli yðar.
Jeg óska yður að hylli yðar,
sem þjer verðskuldið fylliiega,
verði jafnmikil í Ítalíu fram-
vegis og hún er núna.
Með mikilli aðdáun,
Arturo Cuartero".
SÖNGSKEMTUN
Á MORGUN.
Hvað verður á söngskránni á
morgun, segi jeg yður ekki. En
þar verða lög úr öllum áttum.
Jeg hefi stundum sungið lög
eftir Kaldalóns erlendis.
Carl Billich verður við hljóð-
færið“.
Dr. Walter Heering, sem gaf út
bókina „Das unbekante Island“,
hefir gefið út tvær útgáfur af
bókinni og er nú að vinna að
þriðju útgáfunni, sem verður mik-
ið aukin og endurbætt.
iiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiimeiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiHiMHM
| Gullbrúðkaup I
Sigrfður Bjðrnsdóttir og Ásbjörn Ólafsson
1888 — 17. naí — 1938
C'yrir 50 árum var Hallgrímur
^ Sveinsson, síðar biskup, dóm-
kirkjuprestur í Reykjavík. Þennan
dag árið 1888 gaf hann saman
ung hjón, Ásbjörn Ólafsson, trje-
smið af Akranesi, og Sigríði
Björnsdóttur Stephensen frá Korp
úlfsstöðum. Hann var þá 27 ára
en hún 22 ára. Ungu hjónin fóru
þá upp á Akranes og áttu þár
heima í 10 ár, en fluttu hingað til
bæjarins 1898, keyptu sjer húsið
í Þingholtsstræti 22 og búa þar
enn í dag, í friði og farsæld góðr-
ar eíli, og við vináttu og ástsæld
allra, seöi þeim hafa kynst á lífs-
leiðinni.
Þegar þau settust fyrst að í húsi
sínu, blöstu við græn óbygð tún úr
gluggunum þeirra. Nú er þar al-
bygt fyrir löngu alt *um kring.
Reykjavík hefir breyst á þessum
40 árum, sem þau hafa setið um
kyrt í Þingholtsstræti 22.
Ásbjörn Ólafsson er fæddur á
Akranesi 15. okt. 1850, sonur Ól-
aft Magnússonar formanns á Litlu
brekku og Málfrjjðar Ásbjörns-
dóttur frá Kjalardal. Ættir hans
eru allar um Borgarfjörð. Hann
nam ungur trjesmíði hjá Helga
Helgasyni hjer í Rvík, og settist
að á Akranesi að loknu námi.
Vann hann mikið að húsasmíði í
Borgarfirði og vestur um Mýrar
á unga aldri, því að þá var sem
óðast verið að hýsa á ný á hinum
betri bæjum um þau hjeruð. 1898
rjeðst hann til Jóns Sveinssonar,
að smíði „nýja bamaskólans" við
Tjörnina, sem nú er orðinn gamli
skólinn, og fluttist Ásbjörn þá um
leið alfarinn hingað með konu
sinni. Þegar „Völundur" var stofn-
aður, 1903, rjeðst hann þangað
sem smiður, varð síðar afgreiðslu-
maður við timburverslunina og
gegnir þeim starfa ótrauður og
öruggur enn í dag, eftir 35 ár.
Enginn maður í þessu landi hefir
afgreitt eins mörg fet af timbri og
Ásbjörn Ólafsson og líklega fáir
reiknað eins mikið og óskeikult
brotareikning í huganum eins og
hann. Og allir, sem við hann hafa
skift, munu minnast hins trúa,
hógværa og skapfasta öðlings-
manins.
Frú Sigríður er „stephensensk‘£
í báðar ættir. Björn á Korpúlfs-
stöðum, faðir hennar, og Sigríðnr
kona lians voru bræðrabörn, en afi
beggja, var Björn Stephensen á
Esjubergi, bróðir Magnúsar kon-
ferensráðs. Hún er fædd 10. okt.
1865; á Korpúlfsstöðnm, og ólst
þar npp, við stórt heimilishald og
gestagang, því að í .æsk'U' hennar
lá þjóðleiðin um hlaðið á Korp-
úlfsstöðum. Og henni hefir enst
heimilisprýði og höfðingsskapur
hinnar merku ættar alt fram á
gullbrúðkanpsdaginn sinn í dag.
Frú Sigríður fór vistferlum með
Þorgrími lækni Þórðarsyni frænda
sínum upp á Akranes, er hann
var læknir þar eitt ár (1885—’86),
og voru það tildrögin að kynnnnor
þeirra Ásbjarnar. Hann var þá
fullnuma og nppvaxandi smiður
þar á Akranesi. Þau gullbrnðhjón-
in eiga tvær dætnr hama, Sigur-
hjörgu, konn Sigurjóns Pjeturson-
ar, og Málfríðí; hún átti fyr Gísla
Oddsson, sem fórst með skipi sími
„Leifi hepna“, en mí Niels Niel—
sen stórkaupmann í Osló.
Margir og góðir vinir óska þeirn
gullbrúðhjónunum til hamingju í
dag. Þau hafa nú í 50 ár haldið
uppi einu af hinnm bestu heimil—
um sem gerast, umsvifalítið hið
ytra, hið innra með göfgi og trygð
og hógværri rausn.
17. maí 1938.
Helgi Hjörvar.
Dr. Hoffmann, þýski augnlækn-
irinn, sem hingað hefir komið
undanfarin sumur, er væntanlegur
hingað til lands 25. júní n.k. I för
með honum verður sonur hans. Dr.
Hoffmann er vel þektur hjer á
landi og gaf hann nýlega álitlega
upphæð til starfsemi Flugfjelags
íslands.