Morgunblaðið - 07.02.1939, Side 5
I*riðjndagur 7. febr. 1939.
i.
JfllorgutiWaMð
Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavlk.
Ritatjörar: Jðn Kjartansson og Valtýr Stefánsson (ábyrgBarmaBur).
Auglýsingar: Árni Óla.
Ritstjörn, auglýsingar og afgreiBala: Austurstræti 8. — Slmi 1*00.
Áskriftargjald: kr. 3,00 á mánuBl.
í lausasölu: 15 aura elntakiB — 25 aura neB Lesbök.
ÓÞOLANDIÁSTAND
Alt bendir til þess, að rík-
isstjórnin standi alger-
lega ráðalaus og sje því í þann
veginn að gefast upp við að
leysa ýms þau aðkallandi
vandamál, sem nú steðja mest
að þjóð vorri.
Sjerstaklega virðist stjórnin
aúrræðalaus í sambandi við
málefni sjávarútvegsins, en
}>essi aðal-atvinnuvegur þjóð-
.;arinnar er nú svo djúpt sokk-
ínn, að hann á sjer ekki við-
reisnarvon, nema gerðar sjeu
róttækar ráðstafanir af hálfu
hins opinbera honum til stuðn-
ings og hjálpar.
Enn hefir ekkert heyrst frá
;stj.óminni um það, hvað hún
Jiugsar sjer að gera útveginum
til viðreisnar. Og hinn nýaf-
stáðni aðalfundur Framsóknar-
flokksins gerði ekki annað en
að samþykkja loðnar ályktanir,
.sem hvergi koma nálægt lausn
niálsins.
En meðan svo er, að sjálf
ríkisstjórnin hefir engar tillög-
iir að gera til viðreisnar hinum
hrynjandi sjávarútvegi, þá
verður ekkert aðgert. Stjórnin
hefir meirihluta Alþingis á sínu
ibandi, og hún getur því hindr-
að framgang allra mála þar,
sem hún ekki aðhyllist sjálf.
★
Þetta úrræðaleysi ríkisstjórn-
-arinnar í málum sjávarútvegs-
Ins og öðrum aðkallandi stór-
snálum, stendur vitaskuld í
beinu sambandi við veikleika
hennar.
Svo sem kunnugt er, situr
atjórnin nú með stuðningi 19
þingmanna Framsóknarflokks-
ins og 7 þingmanna Alþýðu-
flokksins. En síðan síðustu kosn
ingar fóru fram, hefir Alþýðu-
flokkurinn klofnað, og er nú
:svo ástatt um þann flokk, að
vafasamt er, hvort hann er ann-
að eða meira en þeir 7 þing-
menn, sem á Alþingi eru. Hitt
•er a. m. fullvíst, að kjósendum
Alþýðuflokksins hefir stór-
fækkað frá síðustu kosningum,
•og alt sem bendjr til þess, að sá
flokkur fengi ekki fleiri en 2—
3 þingmenn, ef kosið væri nú í
>dag.
Þessi aðstaða hlýtur að
veikja mjög ríkisstjórnina.
Stjórnín veit, að hún hefir
:stóran minníhluta þjóðarinnar
^ð baki sjer. Hún veit einnig,
að sá þingmeirihluti, sem hún
hefir stuðst við, er falskur.
'Vitneskjan um þetta hvort-
tveggja gerir stjórnina að mestu
íóstarfhæfa. j
★
Þetta hefir hinn nýafstaðni
aðalfundur miðstjórnar Fram-
fióknarflokksins rjettilega skil-
ið, ef það er rjett, sem heyrst
hefir, að hann hafi ákveðið að
rstjórnin sæti ekki áfram með
stuðningi Alþýðuflokksins eins.
iSkyldi því athuga möguleikana
fyrir myndun þjóðstjórnar, eða
að öðrum kosti að rjúfa Al-
þing og stofna til kosninga á
næsta vori. Hafði miðstjórnar-
fundurinn, að sögn, falið þing-
flokknum að ákveða hvor leiðin
skyldi farin.
Ekkert hefir enn heyrst frá
ríkisstj órninni um það, hvað
hún hugsar sjer í þessu efni. En
eftir ýmsum sólarmerkjum að
dæma, virðast ekki miklar lík-
ur til þess, að grundvöllur sje
fenginn fyrir myndun þjóð-
stjórnar. Það virðist svo margt
og mikið sem skilur milli flokk-
anna, að vart er sjáanlegt að
takist að brúa skjótlega þau
mörgu og breiðu sund.
En alt tal um myndun þjóð-
stjórnar er vitanlega út í blá-
inn, meðan ekkert liggur fyrir
um það frá sjálfri stjórninni,
hvaða mál hún hugsar sjer að
þjóðstjórn leysi og á hvern hátt
sú lausn skuli vera. Þjóðstjórn,
sem mynduð yrði til þess eins að
sitja í valdastólunum og við-
halda miklu af því ófremdar-
ástandi, sem nú ríkir á nálega
öllum sviðum og öll bölvunin
stafar af er vitanlega óhugs-
anleg.
Hitt geta vitanlega allir ver-
ið sammála um, að æskilegast
væri að flokkarnir gætu nú
komið sjer saman um viðreisn
sjávarútvegsins, enda er lausn
þeirra mála mest aðkallandi í
augnablikinu.
Aðalfundur „Oðins“
Aðalfundur málfundafje-
lagsins ,,Óðins“ var hald-
inn í Kaupþingssalnum síðastl.
sunnudag. Fundurinn var svo
vel sóttur, að salurinn var þjett-
skipaður og fjöldi inntöku-
beiðna í fjelagið bárust.
Ný stjórn var kosin í fjelag-
inu og skipa nú stjórnina:
Sigurður Halldórsson, for-
maður (endurkosinn) ; Ki’istinn
Árnason, varaformaður (nýr í
stjórninni). Meðstjórnendur
voru kosnir: Axel Guðnason
(endurkosinn), Gísli Guðnason,
Yngvi Hannesson (endurkosn-
ir), Jón Björnsson og Sveinn
Sveinsson.
Störfum aðalfundarins var
ekki lokið og verður haldinn
framhaldsaðalfundur á næst-
unni.
Knattspyrnufjel. Valur heldur
ársdansleik sinn í Oddfellow-hús-
inu n.k. laugardag. Ýms skemti-
atriði verða. Meðal annars sýriir
Sif Þórs nýtísku listdansa o. fl.
Aðgöngumiðar seldir í Málaranum
í Bankastræti og hjá H. Biering,
Laugaveg 3.
„Greathope“, enskt kolaflutn-
ingaskip, kom í fyrrinótt með
farm til Ólafs Gíslasonar & Co.
Lýsing á sýningarskðlanum
EFR.I HÆÐ
I
t
Grunnteikníng af sýningarskála íslands.
FRAMH. AF FJÓRÐU SÍÐU.
fram eftir endilöngum salnum og
fram um miðjan skálann í um 9
m. hæð. Var um það að ræða, ým-
ist að hafa tvær hæðir eða svalir,
og áleit sýningarstjórnin og ráðu-
nautur hennar smekklegra og
hentugra að velja þetta fyrir-
komulag.
Skálinn að innan.
Þegar inn er komið vallarmeg-
in, verður fyrst fyrir gestinum
upplýsingaskrifstofa, sem stendur
í sambandi við skrifstofu skálans,
sem er þar fyrir innan. Þegar lit-
ið er til vinstri, blasir við heill
veggur. Verður gestinum fyrst
starsýnt á kort eitt mikið, sem
er 8, m. breitt og 8 m. á liæð og
sýnir hnattstöðu fslands og sigl-
ingaleiðina milli íslands og Vín-
lands. Siglingalínan verður skýrð
með litlínu, og getur sýningar-
gesturinn með því móti rakið leið
fornmanna vestur um haf. Enn-
fremur sýnir önnur litlína flug-
leið Lindberghs frá Ameríku til
íslands.
Kortið takmarkast beggja meg-
in af útbyggingu. og er annars
vegar að neðan fyrir komið inn-
bygðri bogamynd, er sýnir Leif
taka land vestan hafs, víkinga-
skip hans og föruneyti. Hinum
megin í sörnu hæð er jafnstór
bogamynd af lendingu Lindberghs
við Reykjavík. Fyrir ofan þessar
myndir báðum megin eru innbygð
tjöld fyrir kvikmyndasýningar.
Verður þar daglega sýnd íslands-
kvikmynd, eins og síðar mun
skýrt frá.
Sýning sjávar-
útveffsins.
A,nd,spænis , þessum vegg undir
svölunum eru tveir stórir, boga-
myndaðir sýningarbásar, • hvor
um sig 8 m. á breidd. í öðrum
þeirra er sýndur sjávarútvegur-
inn, en í hinum landbúnaðurinn.
Sjávarútvegssýnin gunni verður
þannig fyrir komið, að í sýuingar-
básnum eru 5 bogadregnar
myndir. Stærsta myndin, í miðj-
um básnum, sýnir skip að veiðum
við suðurströnd íslands, og eru
þar bæði togarar og mótorbátar,
en í fjarska blasir landið við með
fjöllum og jöklum.
Hafflöturinn er táknaður með
glerjum og vatni á milli, og und-
ir haffletinum sjást veiðarfæri
skipanna, hafsbotninn og lífið í
sjónnm. Myndin er 2% m. á lengd.
Næst þessari mynd verður öðr-
um megin mynd af síldveiðum
og síldariðnaði, en hinum megin
verður sýnd meðferð og verkun
þorsksins. Fremst í básnum, sitt
hvorum megin, verður mynd af
Vestmannaeyjum á vertíðinni, er
sýnir gnægð sltipa og mikið at-
hafualíf, en hinum megin verður
mynd af Siglufirði um síldveiði-
tímann, er sýnir verksmiðjur,
síldarsöltun og alt athafnalíf þeg-
ar annir eru þar mestar.
Til hægri handar við þennan
bás er súla, sem skýrir lýsisfram-
leiðslu vora, gæði lýsisins og þýð-
ingu þess fyrir heilbrigði manna.
Verða þar einnig allskonar línu-
rit um þetta, en inni í súlunni
situr hafmey (höggmynd Guð-
mundar Einarssonar) ög rjettir
fram skel með lýsi í. Verður stytt
án öll fagurlega upplýst, og fyrir
áhrif Ijóssins kastar lýsið frá
sjer fínlegum geislum.
Landbúnaðarbásinn.
í landbúnaðarbásnum er fyrir
miðju stór bogamynd, er sýnir
íslenskt landslag til sveita. Á
myndinni er stór fjárhópur að
renna fram dal, og í horni mynd-
arinnar sjest íslenskur sveitabær.
Fremst á myndinni er komið fyr-
ir þrem kindum, er valdar voru
norðan úr Þingeyjarsýslu síðast-
liðið haust, fluttar út og stoppað-
'ar erlendis. Er þetta 1 hrútur, 1
ær og 1 dilkur, og verður þeim
þann veg fyrir komið, að svo
virðist sem þær sjeu í sjálfum
fjárrekstrinum.
Sitt hvorum megin við • þessa
mynd og næst henni eru tvær
bogamyndir. Önnur sýnir nýtísku
mjólkurbú, nokkuð í framtíðar-
ljósi, en hinum megin er sýnd
notkun jarðhita til blóma- og
grænmetisræktar, með gróðri og
húsum. Yst í básnum til beggja
handa jeru bogamyndir, öðrum
megin af Hvanneyri, og er þar
sýnd kúahjörð og heyannir með
nýtísku tækjum. Hinum megin er
sýndur dalur og fjöll með. stoð-
rekstri og ríðandi mönnum.
I báðum þessum básum verður
fyrir komið allmiklu af ljósmynd
um fyrir ofan bogamyndirnar, og
verða þær sjerstaklega miðaðar
við landbúnað og sjávarútveg.
ísland ferða-
mannaland.
Á þessum sama vegg, þegar lýk-
ur þessum sýningum, er 15 m.
bogadreginn veggur, sem nær að
útgöngudyrum skálans hring-
brantarmegin. Á þessum vegg
verður fsland sýnt sem ferða-
mannaland. Fyrir miðjum veggn-
um er stórt kort af íslandi,
eru á það teiknuð ýms merkileg
náttúrufyrirbæri, og athyglin
sjerstaklega dregin að þeim stöð-
um, er ferðamenu girnast að sji-