Morgunblaðið - 04.09.1939, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.09.1939, Blaðsíða 1
AURABLAÐ Vikublað: ísafold. 26. árg., 205. tbl. — Mánudaginn 4. september 1939. ísafoldarprentsmiðj a h.f. ÞAÐ ER STRIÐ Bretar og Frakkar sögðu Þjóð- verjum stríð á hendur í gær Þjóöverjar hafa lokað pólsku gðngunum að sunnan Frjettir af vígstöðvnnum í Póllandi voru í morgun þessar: Barist er aðallega á þrem víg- stöðvum: AÐ NORÐAN: í sunnanverð-, urn pólsku göngunum, þar sem Þ.jóðverjar segja að hersveitir þeirra, sem sækja fram að vest- an, frá Þýskalandi, og að austan, frá Anstnr-Póllandi, hafi í raun og veru náð saman við fljótið 'Weiehsel. Pólskur her, sem er norð ar í göngunum, hefir reynt að brjótast suður í gegnum víglínur Þjóðverja til þess að reyna að hindra að hann verði króaður inni, en var hraktur til haka. Þjóðverjar segjast nú vera að reka flóttann. AÐ SUÐVESTAN: Önnur aðal víglínan er svo að segja heint í austur frá Breslau. Þar segjast Þjóðverjar hafa tekið borgina Czenstochan og vera komnir 15— 20 km. inn í landið. Pólverjar segjast aftur á móti hafa gert þarna gagnsókn, og stefna nú í áttina til Breslau. AÐ SUNNAN: Þar sækja þýsku hersveitirnar frá Slóvakíu í átt- ina til Teschen og Krakau. Litlar fregnir hafa borist af þessnm víg- stöðvum. Loftárásir. í loftárásum, sem gerðar voru á Varsjá á föstudaginn og laug- ardaginn, voru yfir 1500 manns drepnir, þ. á. m. konnr og börn. Sendiherra Pólverja í London skýrði blaðamönnum frá því í gær, að Þjóðverjar hefðu notað eitur- gas í loftárásum í tvær borgir. Pólski sendiherrann í París hefir skýrt frá því, að þ. 1. sept- ember að kvöldi hafi þýska stjórn in með milligöngu hollensku FRAMH. Á FJÓRÐU SÍÐU. Þjóðverjar skjóta í kaf breskt hafskip með mörghundruð farþegum: Bretar taka Bremen BRETAR sögðu Þjóðverjum stríð á hendur í gær klukkan 11 f. h. eftir bresk um tíma. Hafði Sir Neville Henderson, sendiherra Breta í Berlín, farið , á fund von Ribbentrops í gærmorgun kl. 9 og tjáð honum, að ef ekki væri komið fullnægjandi svar við „síðustu aðvörun“ bresku stjórnarinnar og svarið komið til London fyrir kl. 11, þá myndu Bretar líta svo á, að styrjöld væri hafin milli Bretlands og Þýskalands. Sex klukkustundum síðar, eða klukkan 5 (eftir Mið-Evróputíma) var samskon- ar frestur útrunninn, sem M. Coulandre, sendiherra Frakka í Berlín hafði sett Þjóð verjum fyrir hönd frönsku stjórnarinnar. Styrjöld var nú hafin milli Frakka, Breta og Pólverja annarsvegar og Þjóð- verja hinsvegar. Fregnir af fyrstu hernaðaraðgerðunum í styrjöld Breta og Þjóðverja, barst um miðjan dag í gær, þegar breska herskipið Warwick tók þýska hafskipið „Bremen“ í hafi úti. „Bremen“, ann að glæsilegasta skipið í hafskipaflota Þjóðverja, var á leiðinni frá New York, austur um haf. 1 síðustu viku, þegar skipið var á leið vestur, fjekk það fyrirskipun um að snúa við, þegar það átti sólarhrings ferð eftir til New York. En 12 klst. síðar fjekk það aðra fyrirskipun um að halda ferð sinni áfram til Ameríku. Skipið átti að láta farþega og farm í land í New York oghalda síðan strax heimleiðis, jafn- vel þótt það fengi engan flutning. En það tafðist yfir sólárhring í New York vegna þess að Roosevelt krafðist þess að leit yrði gerð í því, ásamt öðrum breskum og frönskum skipum, til þess að rannsaka hvort þau hefðu nokkurn hergagnaflutning. Þessi sólarhringur varð Þjóðverjum, eigendum Bremen, dýrkeyptur. 1 NÓTT VAR BRESKA HAFSKIPIÐ „ATHENIA (EIGN CUNARD-LlNUNNAR, 13,465 SMÁL.), SKOTIÐ í KAF MEÐ TUNDURSKEYTI UNDAN iRLANSSTRÖND- UM Á LÍKUM STÍÖÐUM OG WLÚSITANIU“ VAR SÖKT ÁRIÐ 1917. „ATHANIA“ VAR Á LEIÐINNI FRÁ GLASGOW VESTUR UM HAF MEÐ 1800 HUNDRUÐ FARÞEGA, Þ. Á. M. 246 AMERÍKUMENN. Nánari fregnir af þessum atburði eru ókomnar. En samkvæmt fregnum frá New York, björguðust allir farþegar í bátana. (Það var eins og kunnugt er hin beina orsök þess að Banda- ríkjamenn fóru í stríðið 1914—’18, að „Lusitaniu" var sökt). Skömtunin kemur bráðlega VERIÐ er að prenta úthlutun- arspjöldin fyrir matvæla- skömtun þá, sem fyrirhuguð er. Að prentuninni lokinni verður skömtuninni mjög fljótlega kom- ið á hjer í Reykjavík og nágrenni. En skömtunarkortin verða send með fyrstu póstum út um land, og reynt að koma því svo fyrir, að skömtunin komist í fast horf sem allra fyrst um alt landið. Finnar segja að Olympiuleikarnir verði haldnir Olympíunefndin í Finnlaudi hefir lýst yfir því, að þrátt fyrir hinar ískyggilegu horfur í Evrópu muni verða haldið fasfc við þá ákvörðuu, að lialda næstu Olympíuleika í Helsingfors. Segir í yfirlýsingunni, að sje þegar undi? Mkana búið, Finnland sje þess og albúið gerast griðastaðn.1 friðarins. Þar að auki s.je þess að vænta, rð cíi'iður þessi eje bi’átt á eula. (FÚ). alt eu að Aðvörun til norskra skipa Norska stjórnin hefir sent öll- um norskum skipum þannig lag-. aða orðsendingu: Þar sem styrjöld hefir brot- ist út milli Þýskalands annars- vegar og Póllands og Bretlands hinsvegar og franska stjórnin sett Þjóðverjum úrslitakosti, ber öllum norskum skipum á sigl- ingaleiðum í Evrópu að leita hafna í Noregi eða í hlutlaus- um löndum þegar í stað og bíða þar frekari fyrirskipana. von Ribbentrop, utanríkismálaráð herra Þjóðverja (t. h.). Myndin er tekin þegar hann var á leið- inni til Moskva. Veslmanneyinga vantar kol « vestmannaeyingar sneru sjer Y til ríkisstjórnarinnar fyrir helgina út af því, hve kolalaust er þar í Eyjum, og báðu hana að ráða fram úr því. Ákveðið er, að þeir fái 400 tonn af kolum, sem ætluð voru Sól- bakkaverksmiðjunni, en hún hef- ir lítið sem ekki verið starfrækt í sumar vegna þess hve lítið hef- ir aflast. Er helst í ráði, að síldveiðiskip úr Eyjum taki kolin á Sólbakka, er þau koma að norðan af veið- um, og flytji þau til Eyja. JAPANAR VERÐA HLUTLAUSIR. Samkvæmt fregn frá Shang- hai hefir japanska stjórnin ^ fullvissað bresku stjórnina nm það, að hún muni verða hlutlaus j í styrjöld þeirri, sem hafin er í 1 Evrópu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.