Morgunblaðið - 31.03.1940, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 31.03.1940, Blaðsíða 7
Sunnudagur 3L mars 1940. MORGUNBLAÐI© Fimtugur: Jónas Guðmundsson Lú imtugsafmæli á í dag Jónas Guðmundsson rafvirkjameist- ari, Hávallagötu 23, og samtímis þrjátíu ára starfsafmæli í þjón- ustii gas- og rafmagnsveitu Eeykjavíkur. Uppliafs- og þróunarsaga þess- ara tveggja framfarafyrirtækja tengjást að því leyti við lífsferi! Jónasar, því að við stofnun gas- stöðvarinnar rjeðist hann í þjón- ust.u hennar og starfaði þar sem gaslagnavirki fyrst í stað, en svo síðar sem löggiltur gaslagnameist- ari ,og naut hann við það starf ó- skifts trausts allra að verðleikum. Þegar svo rafmagnið leysti gas ið af hólmi skifti Jónas skyndi- lega um verksvið og gerðist raf- virki og síðar rafvirkjameistari Nam Jónas um langt skeið hjá raftækjaverslun Jóns Sigurðsson- ar hjer í bænum og hafði giftu- samlega forstöðu þeirrar versliun ar á hendi í allmörg ár. — Það má því rjettilega segja, að Jónas hafi ötullega stikað jafnhliða framförunum á þessu sviði, og munu því margir kunningjar og vinir hans senda honum hugheilar óskir á þessum tímamótum æfi hans. V. G. Dagbók (xj H Igafell 5940427—VI—2. I.O.O.F.SsEmdlSSESbs.I Veðurútlit í Reykjavik í dag: NA-gola. Ljettskýjað. Veðrið í gær (laugard. kl. 6.) : Hæg nor^læg átt um alt land. Frostlaust á Suðurl., en 1—3 st. frost nyrðra. Urkomulaust. Helgidagslæknir er í dag Ey- þór Gunnarsson, Laugaveg 98. Sími 2111. Næturlæknir er í nótt Kjartan Olafsson, Lækjargötu 6B. Síini 2614. Næturvörður er í Reykjavíkur Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunn. Á kvöldvöku blaðamanna að Il.ótel Borg í gærkvöldi var mikið fjör og gleði. Hvert skemtiatriðið öðru betra. Fólk hló svo að glumdi í Borginni. Skemtiatriðin stóðu yfir frá kl. 9—11. Eftir það var dansað. Trúlofun. Nýlega liáfa opinber- að trúlofun sína í Vestmannaeyj- um ungfrft Guðrún Guðmundsd. frá Nórðfirði og Sveinhjörn Hjartarson vjelstjóri. Hjónaband. í gær voru gefin saman í hjónaband ungfrú Aldís Ólafsdótlir frá Árbæ í Ölfusi og Páll Einaxsson, múrari hjer í bæ. Heimili ungu hjónanna er á Þórs- götu 15. Síra Árni Sigurðsson gaf þau saman. Margrjet Eiríksdóttir píanóleik- ari ætlar að halda hljómleika í Gamla Bíó næstkoinandi þriðjit- dag. Tónlistarvinir minnast henn ar vegna frainúrskarandi liæfi- leika, er hún sýndi á nemenda- hljómleikum Tónlistarskólans og einnig á fyrstu sjálfstæðu hljórn- leikunum, er hún hjelt hjer árið 1936. Þeir fagna því, að fá tæki- færi til að heyra hana aftur eft- ir framhaldsnám við The Royal Aeademy í London, þar sem hún naut kenslu Mr. Bowen, eins þekt- asta kennara Englendinga. Stúdentar 1930 gerið svo vel að mæta á fundi, er lialdinn verður í Oddfellowhúsiuu mánudaginn 1. apríl kl. 8V2 e- b. Jarðarför frú Bríetar Bjarn- hjeðinsdóttur fór fram. í gær. Kvenþjóðin í Reykjavík sýndi hinni látnu merkiskonu virðing sína, með því að fjölmenna við jarðarförina. Sr. Bjarni Jónsson flutti húskveðjuna á heimilinu í Þingholtsstræti 18. Hann talaði einnig í kirkjunni. Blaðamenn báru kistuna í kirkju. Meðan á VALDAR ISLENSKAR Kartöflur fyrirliggjandi. Eggerf Krisf jánsson & Co. it.f. --- SfMI 1400. - kirkjuathöfniuni stóð var fáni Kvenrjettindafjeiagsins og íslenski fáninn í kórdyrum, sitt hYoru megin við kistuna. Með kvenrjett- indafánanum stóð frú Soffía Guð- laugsdót.tir leikkona lieiðursvörð. Hún var í skautbúningi. En við íslenska fánann var fulltrúi frá kvenstúdentafjelaginu. Konur úr Kvenrjettindafjelagi íslands báru kistuna úr kirkju. Kistan var svört, prýdd hvítum blómum. Fimti -fyrirlestur dr. Einars Ól. Sveinssonar um menningu Sturl- ungaaldar verður í Háskólanum annað lcvöld kl. 8 stundvíslega. Dansk-íslenska fjelagið hjelt skemtifund síðastliðið fimtudags- kvöld að Hótel Borg. Yar þar fjöl menni mikið og skemtu menn sjer vel. dr. Jón Helgason sagði end- urminningar frá fyrstu námsárum sínum í Danmörku. Karlakórinn Fóst,bræður söng nokkur lög. og Brynjólfur Jóhannesson kom fram í tveimur gerfum, og skemti með söng. Að lokum var dans stiginn fram eftir nóttu. Fjöldi nýrra fjelaga gekk inn á fundinum. Leikfjelag Reykjavíkur sýnir Fjalla-Eyvind í kvöld. — Næsta fimtudag verður frumsýning á nýjum gamanleik eftir Arnoid & Bach. Gengið í gær: Sterlingspund 23.21 100 Dollarar 651.65 — Ríkismörk 260.76 — Fr. frankar 13.33 — Belg. 111.50 — Sv. frankar 146.41 — Finsk mörk 13.27 — Gyllini 346.66 — Sænskar krónur 155.40 — Norskar krónur 148.29, — Danskar krónur 125.78 Útvarpið í dag: 10:45 Morguntónleikar (plötur): Baeh: a) ítalski konsertinn. b) Píanókonsert í A-dúr. c) Prelú- día og fúga í Es-dúr. 12.00—13.00 Hádegisútvarp. 15.30—16.30 Miðegistónleikar. Ó- pera: „Carmen", eftir Bizet. 3. og 4. þáttur. 17.00 Messa í Fríkirkjunni (síra Árni Sigurðsson). 18.30 Barnatími: a) Sögur (Þor- steinn Ö. Stephensen). b) Telpa, 13 ára, syngur og leikur á mandólín. 19.15 Einleikur á píanó (frú Fríða Einarsson). 20.20 Erindi: Norræn samvinna (Guðlaugur Rósinkranz rit- stjóri). 20.45 Hljómplötur: Brailowsky leikur á píanó. 21.00 Upplestur: „Förumenn", IT. (frú Elinborg Lárusdóttir). Útvarpið á morgun: 20.20 Um daginn og veginn (Y. Þ. G.). 20.40 Einsöngur (síra Garðar Þor- steinsson). 21.00 Kvennaþáttur: Vandamál konunnar (Jónína Sig. Líndal, húsfreyja á Lækjamóti). 21.20 Útvarpshljómsveitin: Norsk og finsk þjóðlög. | Erfðafestuland - I - Timbur. i $ A Stórt og gott erfðafestuland f Ý , V t til sölu. Sömuleiðis mikið af X ... .(. byggmgartimbri. Eignaskifti f v Y j; hugsanleg. Uppl. í síma 2045. X t Htíscígnír tíl SÖltí stærri 0g smærri, á góðum stöðum í bænum. Eignaskifti möguleg. Upplýsingar gefur Hannes Einarsson Óðinsgötu 14 B. Sími 1873. heÍTra kl. 12—3 og eftir kl. 6 og öðrum tímum eftir samkomulagi. A U G A Ð hvíliit með gleraugum frá THIELE Hárspennur . Hárkambar Nýjasta tíska frá New York. N ý k o m i ð. K. Einarsson k Björnsson Bankastræti 11. W - • ... ÖU.VL Odýr inatarkaup. Af sjerstökum ástæðum eru til sölu nokkrar hálftunn- ur af saltsíld (hausskorin og magadregin), sjerlega vel verkuð. — Verðið er aðeins kr. 20.00 pr. 50 kg. tunnu. Tómar tunnur undan síldinni verða keyptar aftur fyr- ir hátt verð, ef afhendast ógallaðar. Þetta verða því sjer- staklega ódýr og góð matarkaup. Upplýsingar í Niðursuðuverksmiðjunni á Lindargötu, sími 5424, og í síma 2343 frá kl. 6—8 e. h. Mótorista vantar til Hnífsdals nú þegar. Nánari upplýsingar í síma 2333* kl. 2—3 í dag. Umferff er stranglega bönnuð öllum óviðkomandi á lóð heimilisins. Elli- 09 hjúkrunarbeimilið Grund. Visitala. Samkvæmt útreikningi kauplagsnefndar er vísitala framfærslukostnaðar í Reykjavík mánuðina janúar til mars 121. Kaupuppbætur samkvæmt lögunum um gengisskrán- ingu og ráðstafanir í því sambandi verða þvi: í 1. flokki 15.75% í 2. — 14.00% og I 3. — 11.05% Viðskiflamálaráðnneytið. ■faal 1380. LITLA BILSTÖÐIH UPPHITAÐIR BlLAR. Ei aokk.nl stét Jarðarför móður miimar VILBORGAR SIGURÐARDÓTTUR fer fram þriðjudaginn 2. apríl og hefst með bæn á heimili mínu, Túngötu 45 kl. iy2 síðd. Jarðað verður frá dóirkirkjunni. Fyrir hönd mína og annara aðstandenda Sigurður Sigurðsson. •o

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.