Morgunblaðið - 02.09.1941, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 02.09.1941, Blaðsíða 5
S»riðjudagur 2. sept. 1941. Útgef.: H.f. Árvakur,' Reykjavlk. Rltatjörar: l| Jön Kjartanaaon, Valtýr Stef&naaon (á.byr*Oaraa.). A.uglýsingar: Árnl Óla. Rltstjörn, auglýsingar or afrrelOala: Austurstrœtl 8. — Slaal 1600. j Askriftarerjnld: kr. 4,00 & mánuBl Jananlands, kr. 4,50 utanlanda. f lausasölu: 25 aura elntaklO, 30 aura meB Leabök. Baðhúsið tekur til starf a í (1 a í*' I I ógáti Fregnir frá Englandi um síðustu helgi hermdu, að Vidkum Quisling, hafi þjáðst af svefnleysi nú um skeið. Fer það að vonum, að hann sje maður vansvefta. Fyrir- litning landa hans á honum, og «llu hans athæfi, gagnvart norsku þjóðinni, er mikil. Hún «r ekki meiri en hann á skilið. Eftir þessum frjettum að dæma, hefir hún nú reynst honum svo Jmngbær, að samviskubit hans iheldur vöku fyrir honum. Hann hefir reynt að kaupa samviskunni frið, með svefn- meðulum. Og að því kom, að því er fregnir herma, að eitt sinn tók hann sjer stærri skamt, en 'hæfði einnar nætur svefni, en sem kunni að geta nægt honum út í svefninn langa. Þeir menn, sem notað hafa þenna heimssögulega landráða- mann sem verkfæri sitt, hafa látið það berast út, að hann hafi tekið hinn mikla svefnskamt í ógáti. Trúlegt er, að lítillar for- ystu sje af þeim manni að vænta, eða forsjár, sem getnr ekki lengur gert sjer grein fyrir þeim athöfnum sínum, er ná frá náttborðinu og upp að vörunum. Þeir kunna að geta orðið margir, um það er lýkur núvei'- andi heimsviðureign, er æskja hins sama af svipuðum ástæðum og hann. Mennirnir, sem að- hylst hafa ofbeldisstefnu naz- Í3mans, en síðan fengið tæki- færi til þess að reyna hana, fengið að kenna á því, hvernig kúgunaröfl nazista leikur þjóðir þeirra, hneppa verkafólk í þrældóm, afmá ritfrelsi, skoð- anafrelsi, ganga jafnvel svo iangt, að lögð er við þung refs- ing, jafnvel dauðahegning, ef menn hlusta á aðrar útvarps- stöðvar en þær, er nazistar hafa á valdi sínu. Hvert þjóðlandið af öðru hafa nazistar gert að allsherjar fangabúðum, þar sem enginn er óhultur um líf og limi, nema hann játist sem þræll undir ok nazismans. Hve margir eru þeir, sem ,,í ógáti“ hafa aðhylst nazismann, hafa álitið, að óreyndu, að í skjóli hans dafnaði framtíðar- skipulag siðaðra þjóða, en sem í dag hafa sjeð, og revnt, að þar sem nazistar ráða, er rjett- lætið fótum troðið, mannúð bannfærð og frelsi ekki til. Þeir menn, meðal frelsisunn- randi smáþjóða, sem horft hafa .á andlit Adolfs Hitlers eins og einhverja af hæðum senda náð- arsól, ættu sem fyrst að hug- leiða, hvort ekki gæti að síð- ustu farið eins fyrir þeim, o% 'Vidkum Quisling, sem í viljandi- ■ógáti finnur einu leiðina til rfrelsis í eiturmeðulum við rúm- sstokkinn. DAG verður Baðhús Reykjavíkur opnað aft- ur, eftir raánaðar lokun. Gert hefir verið við slit og skemdir á húsinu. Það hefir verið málað inni og: úti og endurbætt eftir föngum. Þykir í þessu sambandi til- hlýðilegt að lítilsháttar sje minst á Baðhúsið og sögu þess. Hinn 13. apríl 1895 var opn- að hið fyrsta baðhús í Reykja- vík. Voru frumkvöðlar að stofn- un þeirri, þeir merkismenn: Guðm. Björnsson landlæknir, og Guðbr. Finnbogason konsúll. Gengust þeir fyrir stofnun fje- lags, er þeir nefndu „Baðhús- fjelag Reykjavíkur“. Voru í stjórn þess fjelags, auk þeirra sjálfra, þeir dr. Jónassen land- læknir, Guðm. Magnússon lækn- ir og Björn Jónsson ráðherra. Má sjá það af blaðaskrifum frá þeim tíma, að mikils var vænst af slíkri stofnun, enda mikið í ráðist, bærinn þá með aðeins 4000 íbúa, og þrifnaður eins og hann var þá, en þetta var fyrsta sporið í áttina til almenns hrein- lætis og eigi all-lítið. Húsnæði tók fjelagið á leigu fyrir baðhúsið í norðurenda ,,Gömlu-prentáhiiðjunnar“ í Að- alstræti. Var það allmyndarlegt, samanborið við íbúatölu bæjar- ins, 2 kerlaugarklefar og 1 steypibaðsklefi, biðherbergi fram af. Mun á tímabili hafa verið rekin rakarastofa í sambandi \ið baðhús þetta, ekki va» það opið a. m. k. fyrst, nema mið- vikudaga og laugardaga. Vatn var tekið úr Prent- Yfirlit um 46 ára starf Inngangur 1 steypibaðsklefana. smiðjupóstinum þar rjett hjá. Baðvörður í þessu fyrsta bað- núsi Reykvíkinga, var hinn góðkunni bæjarbúi Magnús Vigfússon, síðar dyravörður í Stjórnarráðinu. Árin 1903 og 1904 komu að utan þeiv Eggert Claesser hæstarjettarmálafl.m. og Jón Þorláksson borgarstjóri. Eitt- hvað mun þeim áhugasömu og framtakssömu mönnum fundist vanta á, að þrifnaðarmál öll væru í því lagi, sem skyldi. Þeir stofnuðu hlutaf jelag, er þeir f nefndu h.f. „Baðhús Reykja- hús Reykjavíkur. Þetta var ár- víkur“. Keyptu þeir lóð í mið- ið 1905. Hafði hlutafjelagið bænum af Kristjáni Þorgríms- rekstur hússins á hendi næstu syni og reistu á þeirri lóð Bað- árin. Fimtugur: Jónas H. Guðmundsson Hver skyldi trúa því, að hanu sje orðinn 50 ára, en kirkju- bækurnar segja það og því verð- ur að trúa því. Hið ytra er Jónas þfítugur, en glaðværðin og hin góðlátlega framkoma er líkust því, að Jónas hafi aldrei kynst neinu, sem sett gæti hið saklausa og hreina barnshjarta út úr jafnvægi. Jónas er Dýrfirðingur að ætt og uppeldi. Lærði sjómenskuna með barnalærdóminum, eins og þar er títt. Dýrfirskir sjómenn hafa lengi haft orð á sjer sem hinir á- gætustu og öruggustu til allra mannrauna. En eftir að hafa stundað sjó um nokkur ár, bæði á opnum skip um og þilskipum, lærði hann skipasmíði hjá Magnúsi Guð- mundssyni, skipasmið í Reykja- vík og aukið nám af æfingu afl- aði Jónas sjer utanlands, meðan á heimsstyrjöldinni hinni fyrri stóð. Jeg er ekki kunnugur hans starfsgrein, en þekki marga starfsbræður Jónasar og er hann tvímælalaust talinn einn hinn besti í sinni grein, og um trú- mensku í starfi er hann meðal hinna allra fremstu. Mörgu skipi hefir Jónas verið með að bjarga frá gjöreyðingu — það er sama, hvenær er kallað til hans um aðstoð, jafnvel í sjálfu jólifríinu og hátíðagleði heimilis síns er hann fús að fórna, ef öðr- um er það nauðsyn. En það var nú eiginlega ekki þetta, sem jeg ætlaði að tala um, heldur hin dásamlega skapgerð Jónasar. Mig hefir lengi undrað það, hvernig hægt er að vera svo jafnlyndur og síglaður og góður í framkomu, eins og Jónas er, inn- an um allan gauraganginn og há- vaðann í þessu lifi, og illyrðum og ónotum virðist vera svo mikið af í heiminum, en ekkert truflar Jónas. Jeg hefi heyrt dulspakan mann segja, að sál hins góða manns sje björt sem fölskvalaus eldurlogi, fyrir augum liins skygna manns. Þannig hlýtur Jónas að líta út, sjeður með skygnum augum, því með öðru móti gæti hann ekki breytt hinu kalda og hrjúfa í um- hverfi sínu í birtu og yl og aukið gleði og hamingju hvar sem hann fer. En hvergi nýtur Jónas sín bet- ur en á hinu góða og glaða heim- ili sínu, þar sem gesturinn verð- ur þess meðvitandi, að hann er meira en velkominn og að þeginn beini og rausnarlegar veitingar renna niður með þeirri tilfinn- ingu, að húsráðendum sje gerður hinn mesti greiði. En nú fer jeg að halda, að eitt- hvað af hinu góða í fari Jónasar í störfum hans utan heimilis sje kannske ekki svo lítið að þakka hinni ágætu konu hans, Margrjeti Guðmundsdóttur Ottesen og börn- unum hans fjórum, sem öll eru uppkomin. Tveir synirnir ætla að feta í fótspor föður síns, sem skipasmiðir. Jæja, vinur Jónas! Jeg óska þjer hjartanlega til hamingju með það að liafa lokið við að lifa 50 ár og skilja hvergi eftir ann- að en góðar endurminningar og innilegar óskir allra, sem þekkja þig, um að önnur fimtíu ár væru ólifuð, við sama orðstý, sem þau liðnu. Vinur. Kerlaugarklefi. Árið 1912 býður hlutafjelag- ið bænum húsið til kaups. Nefnd, sem kosin var til þess að athuga málið skilaði áliti sínu hinn 26. jan. 1912, lagði hún til að bærinn keypti húsið. Fóru itaupin fram hinn 16. apríl sama ár, tók þá bærinn við rekstri hússins og hefir rekið það síðan. Skemtilegur þáttur og lánlegur, í þessari sögu, er, að þegar h.f. „Baðhús Reykjavíkur“ greiddi hluthöfunum stofnfjeð, eftir að bærinn hafði keypt, var afgangur 1000 krónur. Það fje gaf hluta- fjelagið heilsuhælinu á Vífilsstöð- um og skyldi fjenu varið til skóg- ræktagirðingar þar. Má af þessu sjá hugarfar þeirra manna, er að málunum stéðu. ★ Eins og nærri má geta, hefir það verið erfitt verlt og vanda- verk, að reisa almenningsbaðhús í bæ, þar sem eltki var um vatn að ræða nema úr brunnum. Vatn- ið í Baðhús Reykjavíkur var leiti alla leið ofan úr Skálholtskots- lind. Var hún þar sem nú er sltemtigarður við Lækjargötu, norðan við barnaskólann. Vatninu var dælt með sveifludælu upp á loft í Baðhúsinu, í geymi þar. Vatnið var, og er enn, hitað með gufu. „Sárast af öllu var vatnsleys- ið“, Sagði Guðm. Jónsson fyrrum baðvörður, er talað var um starf hans í baðhúsinu. „Það gerði minst til með erfiðið, en að hanga við hálf-tóma „pumpuna“ þegar þurk- ar voru, og ekki hægt að af- greiða helminginn af þeim, sem FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.