Morgunblaðið - 30.01.1943, Blaðsíða 3
Laugardagur 30. janúar 1943
MORGUNBLAÐIÐ
Skipulögð upplausnar-
starfsemi kommúnista
r
a
ngi
oooooooooooooooooo<Q
oooooooooooooooooo
Bonesteel hers-
herhöfðingi
1 ' t ’■ : '■
á Gyðingasam-
komu á Islandi
Mrun þingræðisins og
einræði er markmiðið
ÞAÐ kemur æ skýrar í ljós, að kommúnistar
hafa aðeins eitt áhugamál á sviði stjómmái-
anna, og það er: Að skapa glundroða og upp-
lausn.
Á Alþingi vinna kommúnistar skipulega að þessu marki og
hefir talsvert orðið ágengt, vegna þess hve fjölmennir þeir eru,
og ekki síst vegna hins, að hinir vinstri flokkarnir láta komm-
únista halda sjer uppi á snakki um myndun vinstri stjórnar, sem
kommúnistar sjálfir meiná ekkert með.
Ljósmyndadeild ameríska hersins hefir nýlega leyft að birta
þessa mynd í Ameríku. Hún er af Charles H. Bonesteel, hershöfð-
ingja setuliðs Amerikumanna á íslandi, er hann kom á samkomu
Gyðinga, sem amerískir hermenn af þeim trúarflokki, hjeldu hjer
á landi. Talið er, að þetta sje hin fyrsta svonefnda Rosh Hashonah
samkoma, sem farið hefir fram á íslandi. Herpresturinn Július
Leibert, stjórnaði samkomunni.
*OOOOOÓOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO
Vevtfalltð »yðra
Valtur er striðsgróöinn
Stærsti skattgreið-
andiRD i Reykiavik
s.l. ár olaldþrota
T T ÆSTI skattgreiðandinn af
einstaklingum á skattskrá
Reykjavíkur síðastliðið ár, Guð-
mundur H. Þórðarson umboðs-
og heildsali, hef ir verið úr-
skurðaður gjaldþrota.
Þetta eru mikil umskifti og
snögg. Samkvæmt skattskránni
síðastliðið ár, var nefndum
Guðmundi gert að greiða skatta
sem hjer segir:
Tekjuskatt........kr. 127,655,60
; Bignarskatt .... . .kr. 5,510,00
Strlðsgr.skatt ■. ,. kr. 311,376,00
Lífeyrissj.gj.....kr. 6,008,00
IJtsvar . .. .. .. kr. 50,000,00
Samtals kr. 500,549,60
eða yíir hálfa miljón króna. —
Mun enginn einstaklingur hafa
komist nálægt þessu í sköttum
síðastliðið ár.
En nú hefir þessi maður ver-
ið úrskurðaður gjaldþrota, mitt
í stríðsgróðaveltunni. Hvað hef-
ir komið fyrir, er hefir orðið
valdandi hinna snöggu og miklu
umskifta ? i
Gjaldþrot þetta hlýtur að
vera mjög stórt og umfangsmik
ið, því að veltan hefir verið
geysimikil.
, -/ ![ i . ■■■,',*" !■<*■ ■;:-
Þjóðleikhús-
ið rýmt og
fullgert
Níu þingmenn úr öllum
flökkum flytja svohljóð-
andi þingsályktunartillögu í
sameinuðu þingi:
„Alþingi ályktar að skora á
ríkisstjórnina að beita sjer fyrir
þvi, að þjóðleikhúsið verði rýmt
þegar í stað og að því búnú
hafnar framkvæmdir á fullnað-
arsmíði hússins“.
í greinargerð segir:
Þjóðleikhúsið hefir nú staðið
ófullgert í tólf ár og verið not-
að síðustu árin sem vörugeymsla
erlenda setuliðsins. Samtímis er
svo ástatt, að leiklistarstarfsemi
í Reykjavík á engin skilyrði tii
þroska vegna skorts á húsnæði.
Slíkt ástand er með öllu óþol-
andi lengur, og telja flutnings-
menn þessarar tillögu því fulla
ástæðu til, að þing og stjórn
skerist í leikinn og beiti sjer
fyrir því, að fá þjóðleikhúsið
rýmt, svo að hægt sje að ljúka
til fulls smíði þess og það geti
: tekið til starfa sem raunveru-
1 legt þjóðleikhús landsins.
Það er nauðsynlegt, að þjóð-
in fylgist vel með starfi komm-
únista, því að framhald þeirrar
iðju getur haft háskalegar af-
leiðingar fyrir lýðræðið og þing
ræðið í landinu.
KOMU I VEG FYRIR
SAMSTARF
Svo sem kunnugt er, voru að
tilhlután Sjálfstæðisflokksins —■
fyrir þing og eftir að þingið
kom saman — gerðar marg-
ítrekaðar tilraunir til þess að fá
alla þingflokka til þess að taka
höndum sdman um stjórnar-
myndun og lausn vandamál-
anna. — Stóð þófið um þetta;í
nærri 7 vikur. Við þessu hefði
ekkert verið að segja, ef sam-
starf hefði tekist.
En allar tilraunir til sam-
komulags fóru út um þúfur, og
það voru allaf fyrst kommún-
istar, sem skárust úr leik. Við
hlið þeirra stóðu vinstri öflin
í Framsóknarflokknum.
NÝJA STJÓRNIN
Meðan verið var að þæfa
samkomulagsleiðina, komu
kommúnistar með þá uppá-
stungu, að ríkisstjóri skipaði
ríkisstjórn, án tilnefningar af
hálfu Alþingis. Vinstri öflin í
Framsókn studdu strax þessa
tillögu.
Þessi leið var svo farin, sem
kunnugt er. Ríkisstjóri skipaði
stjórnina, án atbeina þingsins.
Var þetta þungt áfall fyrir Al-
þingi log þingræðið í okkar
landi. Hverjar svo verða afleið-/
ingarnar í framtíðinni, getur
enginn sjeð fyrir i dag.
NÝR SKRÍPALEIKUR
HEFST
En þessi ríkisstjórn, sem
kommúnistar og vinstri armur
Framsóknar báðu um, var ekki
fyr sest á laggirinar, að kom-
múnistar hófu nýjan skrípaleik,
Þeir skrifuðu nú hátíðlega Ál-i
þýðuflokknum og Ffamsókn og
báðu um, að vinstri flokkámir
tilnefndu þrjá menn hver, til
þess að athuga möguleikana
fyrir myndun vinstri stjórnar.
Flokkarnir urðu vitanlega strax
við þessum tilmælum og níu
FRAMH. 1 SJÖTTU SÍÐU.
Átkvæðagreiðslu
útvarpstíðÍDda
um útvarpið lokið
Þorsleinn Ö. Síephen-
sen fekk flest atkvæði
sem einstaklingum
voru greidd
, I haust tóku Útvai'pstíðindi
* upp þá nýbreytni, að nokkru
leyti að erlendri fyrirmynd, að
leita álits meðal lesenda Útvarps-
tíðindai um dagskrárstarfsemina
í heild, mannaval útvarpsins og
efni. Með fyrsta tölublaði af yf-
irstandandi árgangi, sem út kom
í okt. s.l. haust, var sendur at-
kvæðaseðill, þar sem hverjunl
manni var gefinn kostur á að
greiða atkvæði um 36 dagskrár-
liði og einstaklinga, og auk þesá
svara eftirfarandi spurningu ját
andi eða neitandi: Eruð þjer á-
nægður með dagskrárstarfsemi
útvarpsins?
Á atkvæðaseðlinum voru tald-
ir upp flestir dagskrárliðir út-
yarpsins og voru þeir flokkaðif
eftir tegundum, t. d. kórsöngur
í einum flokki, erindi í öðrum
o. s. frv. Þar sem milli einstakl-
inga eða sveita skyldi velja,
voru hafðar auðar línur á seðlin-
um fyrir nöfn þeirra, er kjósandi
veldi. Áskilið var, að kjósandi
ritaði fult nafn og heimilisfang
á atkvæðaseðilinn. — Atkvæða-
talning fór fram dagana 5.—18.
janúar í aðalskrifstofu ríkisút-
varpsins og skipaði útvarpsstjóri
fulltrúa, samkvæmt ósk blaðsins,
til þess að vera við talningu at-
kvæðanna.
Úrslit atkvæðagreiðslunnar,
nöfn einstaklinga og sveita og
atkvæðatölur eru birt í nýút-
komnu hefti Útvarpstíðinda.
Ekki er Morgunblaðinu kunn-
ugt um, hvemig atkvæði fjellu,
en hefir þó fengið vitneskju um,
að Þorsteinn ö. Stephensen aðal-
þulur útvarpsins hlaut langflest
FRAMH Á SJÖTJNDU SÍÐU.
12 bátar losna
Ar banninu
Utgerðarmannafjelag Gerða-
hrepps undirritaði í gær
samning um kaup og kjör verka-
fólks i landi og gekk að ölium
kröfum verkalýðsfjelagsins.
Með þessum samningi losna 12
vjelbátar úr banni Alþýðusam-
bandsins. Þessir bátar höfðu
enga landvinnu, því að þeir selja
afla sinn beint í útflutningsskip.
Hinsvegar heldur verkfallið ár
fram við þá atvinnurekendur
syðra, sem hafa frystihús. Ráða
þeir yfir 6 vjelbátum, sem nú
eru allir stöðvaðir.
Stjórn Hlifar
endurkosin
Prá frjettaritara vorum
í Hafnarfirði.
amkvæmt breytingum þeim,
er gerðar hafa verið á lög-
um verkamannafjelagsins Hlíf,
átti stjórnarkosning að fara
fram í f jelaginu á skrifstofu þess
næstk. sunnudag, en til þessa
þarf nú ekki að taka, því að
aðeins einn listi hefir komið
fram, skipaður þessum mönnum:
Fonnaður: Hermanna Guð-
mundsson. Varaform.: Grímur
Ándrjesson. Ritari: Ólafur Jóns-
son. Fjármálaritari: Sigurbjörn
Guðmundsson. Vararitari: Sig-
urður T. Sigurðsson. Varagjald-
keri: Jens Runólfsson.
Skákþingið
Attunda umferð á skúkþingi
Reykvíkinga hófst í fyrra-
kvöld kl. 8 í V. R,-húsinu.
Úrslit urðu þessi: Steingrím-
ur vann Pjetur, Guðmundur
vann Sigurð og Magnús vann
Benedikt. Áki og Hafsteinn
gerðu jafntefli. Óli og Sturla
biðskák og Baldur og Árni bið-
skák.
Þegar níunda umferð hófst
voru þessir efstir: Steingrímur
Guðmundsson 6 vinninga, Baldur
Möller 5J/> v. og biðskák (við
Árna Snævajr), Gifðjnundur 5,
GuðmUndsson ÖVi v„ Ámi Snæ-
varr 5 v. og tvær biðskákir (við
Baldur og Áka), Magnús G.
Jónsson 5 v. og Sigurðúr Gissur-
arson 5 v.
Níunda umferð var tefld f
gærkvöldi. Tíunda og næst síð-
asta umferð verður tefld á
morgun á sama stað ofe’ hefst
kl. li/2- ••■irljí’i-er.TJJA) /
Sprenglnðairnar í
Þrándhei tnsfJrOl
f'rá norska bláðáfulltrúanum:
ins og skýrt var frá í gær,
heyrðust í J amtalandi í
Svíþjóð á þriðjudaginn, miklar
sprengingar frá Noregi. Þær
hófust klukkan 10 að morgni
og stóðu til klukkan 17 um dag-
inn. Álitið var að loftárás hafi
verið gerð á Þrándheim, en frá
Noregi hefir verið tilkynt, að
Þrándheimur hafi ekki orðið
fyrir neinum loftárásum, en
sprengingarnar háfi' komið frá
strandvirkjunum.