Morgunblaðið - 03.12.1943, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.12.1943, Blaðsíða 1
30. árgangur 274. tbl. — Föstudagu'r 3. desember 1943. Isafoldarprentsmiðja h.f. O-VA ÞJÓÐVERJA ROFNAR Rússland: Vlest barist { Dnieperbugnum London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. EFTIR FREGNUM frá Rúss- landi að dæma, eru nú mestu orusturnar háðar í Dnieper- bugnum, einkum suðvestur af Kremenchug, þar sem Rússar gera harðvítugar tilraunir til þess að sækja fram. Hafa þeir riiætt þar miklum gagnáhlaupum Þjóðverja, og bardagar orðið feikna harðir. Segjast Rússar hafa getað náð nokkrum stöðvum af Þjóðverj- um þarná, en við Cherkassi segja Rússar frá hörðum gagn- áhlaupum Þjóðverja, sem var hrundið. Dregið hefir úr orustum á svæðinu fyrir norðan Gomel, en þar eru nú hin verstu veð- ur, en miklu betri suður í Dnieperbugðunni. Þó hafa Rússar sótt nokkuð fram fyrir austan Slobin. Hvorugir minnast nú neitt á bardaga fyrir vestan Kiev, þar sem orustur hafa verið harð- astar að undanförnu og lauk með því, að Þjóðverjar náðu Korosten. Þjóðverjar greina frá miklu áhlaupi Rússa á Perekopeið- inu, en segjast hafa hrundið því og gjöreytt árásarliðinu. Chiang Kai Shek kominn heim London í gærkveldi. Chiang Kai Shek marskálk- ur og frú hans eru komin heim til Chungking og fóru loftleið- is, að því er opinberlega hefir verið tilkynt í borginni. Flug- ferðin heim til Chungking var farin í tveim áföngum, en ekki er um það getið, hvar lent hafi verið á leiðinni þangað frá Cairo. — Réuter. Vjelbátur strandar I ’rú frjettaritara vorum á ísafirði. V -1E LBÁTURINN „Sæ- borg“ frá Súgandafirði strand aði í fyrradág við Fjallskaga í Dýrafirði. — Mannbjörg varð. „Sæborg“ er 14 rúmlestir að stærð, eign Sturlu Jónsson- ar,' útgerðarmanns. skemdri kirkju Ögnir ófriðarins ganga ekki síður yfir kirkjur, en önnltr hús, og hefir fjöldi kirkna víðsvegar verið eyðilagðav í styrj- öldinni. Myndin er tekin í kirkju á Italíu, sem hefir orðið fyrir fallbyssukúlum. Gefumst aldrei upp, segir Göbbefs London í gærkveldi. — Hin \ vikulega grein Göbbels í „Das Reich“, sem kom út í dag, fjall- . ar enn um uppgjöf. Göbbels segir m. a. í grein sinni:" „Það hefir enn ekki verið háð styrj- . öld án mótlætis. Við megum I aldrei viðurkenna, að við höf- um beðið ósigur“. ] „Dagsskipanin er því — gef- umst aldrei upp“. (Reuter.) Menn skyldaðir til námavinnu London í gærkveldi. BEVIN, verkamálaráðherra Breta, tilkynti í dag, að viss hundraðshluti þeirra manna, sem kvaddir verða til herþjón- ustu í Bretlandi í ár, yrðu að fara til vinnu í kolanámum, en ekki í herinn. Verður varpað hlutkesti um það, hverjir fari í námuvinnuna, og er svo ráð fyrir gert, að 30.000 menn hafi komi'ð í námavinnu á þenna hátt í apríllok n.k. — Reuter. Slys í HafnarMi ÞAÐ SLYS vildi til í Skipa- smíðastöð Hafnarfjarðar í gær- dag, að siglutrje fjell á einn starfsmann stöðvarinnar, Eirík Ágústsson og slasaðist hann all mikið. tlann var þegar fluttur í sjúkrahús. Siglutrjeð hafði fallið á læri Eiríks. Ekki var vitað í gærkveldi, hve maðurinn var mikið slas- aður, þar sem ekki var búið að taka mynd af fætinum. Nýtt vopn handa flugvjelum Amerískar sprengjuflugvjel ar á Kyrrahafssvæðinu hafa nýlega verið útbúnar með nýju og mjög öflugu vopni. Eru þetta umbygðar Mitchell-flugvjelar og er hið nýja vopn fallbyssa með 75 mm. hlaupvídd. (Flug- vjelafallbyssur með meiri hlaup vídd en 32 mm. hafa hingað til ekki verið notaðar). Hefir þetta nýja vopn verið reynt ^árásum, og hitti flug- maður einn japanskt skip með einni sprengikúlu úr hinni nýju fallbyssu, og kviknaði í allri yfirbyggingu þess. Þessi sami flugmaður hitti nokkru síðar japanska flugvjel á flugvelli, og sprakk hún í loft upp. Kúl- urnar úr hinni nýju fallbyssu vega um 14 pund. — Reuter. Stokkhólmi í gærkveldi. MERKI um loftárásahættu voru gefin í Berlín seint í kvöld, en ekki hefir enn vitn- ast um það, hvort sprengjum var varpað á borgina. Síma- sambandi var slitið milli Stokk hólms og Berlínar um tíma í kvöld. — Reuter. Þýski herinn hörfar með ströndinni London í gærkvöldi. blaðsins frá Reuter. Einkaskeyti til Morgun- ÁTTUNDI herinn breski hefir í hörðum bardögum rofið varnir Þjóðverja norðan Sangro-árinnar á um 24 kílómetra löngu svæði og sótt þar fram alllangt og sækja enn. Þjóðverjar halda hægt undan og gera áttunda hern- um miklar skráveifur á undanhaldinu, með baksveita- hernaði og sprengjulögnum hvarvetna, er því verður við komið. ______:___________________ Bretar hafa tekið um 1000 fanga í bardögum þeim, er þarna hafa staðið. — Segja fregnritarar með áttunda hernum, að Sangro-virkja- línan hafi verið allramger, þótt ekki væri hún ýkja breið. Voru víða skotbirgi höggvin út í kletta, enn- fremur vjelbyssuhreiður, vel falin. Sjerfræðingar láta það álit í ljósi, að Þjóðverjar muni líklega nema staðar nokkuð nærri Pescara, en það er hafnarborg «in all- stór á Adriahafsströndinni, en eru þó ekki allir á einu máli um þetta atriði. Loftherinn gerði í gær miklar árásir á stöðvar Þjóðverja andspænis fimta hernum, og var árásunum aðallega beint gegn nokkr- um hæðum, sem mikið hef- ir verið barist um, og sem eru nærri megin veginum til Róm. Flugvirki frá Norðvest- ur-Afríku rjeðust á kúlu- leguverksmiðjur í Torino, en önnur flugvirki gerðu atlögu að höfninni í Mar- seilles. Svíar móf- mæla slúd- enlahandtök- unum London í gærkveldi. SÆNSKA STJÓRNIN hefir sent þýsku stjórninni mótmæli vegna þess, að Þjóðverjar ljetu í fyrradag handtaka 1200 norska stúdenta við Oslohá- skóla og alla prófessora við há- skólann og setja í fangabúðir. Segir í orðsendingu sænsku stjórnarinnar, að samkomulag- ið milli Svía og Þjóðverja muni fara mjög versnandi, ef Þjóð- verjar endurskoði ekki afstöðu sina viðvíkjandi stúdentahand- tökunum. — Reuter. ARAS A ENGLAND. London í gærkveldi. — Nokkr- ar þýskar flugvjelar komu í morgun inn yfir suðvestur og suðurströnd landsins. Sprengj^ um var varpað á nokkrum stöð um, en' tjón var lítið og mann- tjón ekkert. Ein flugvjel var skötin niður. — Reuter. Verðlækkun- arskatlurinn feldur FRUMVARPIÐ um verð- lækkunarskattinn var felt við 2. umræðu í efri deild í gær. Atkvæðagreiðslan varð nokk- uð sjerstæð. Fyrst voru sam- þyktar 1. og 2. gr. frv., en síð- ari greinar feldar. Og að lok- um var. frv. í heild felt. Var fáment í deildinni, því að nokkrir þingmenn eru lasnir (inflúensa). Brol á verðlags- ákvæðum Frá skrifstofu verlags- stjóra hefir blaðin bor- ist eftirfarandi: NÝLEGA hefir verslun Gísla Stefánssonar, Garðhúsum, Vest ^ mannaeyjum verið sektuð fyrir ■ að selja vindlinga of háu verði. Sekt og ólöglegur hagnaður ínam kr. 250.00. Tveir íslenskir tog- arar laskast í árekstrum FYRIR SKÖMMU hafa tveir íslenskir togarar lent í árekstr um í hafi. Þeir voru ekki sam- flota, annar var á leið til Islands, en hinn á leið til Eng- lands. — Engin slys urðu á mönnum. Óli Garða frá Hafnarfirði lenti í árekstri á leið til Eng- lands og varð að fara til ann- arar hafnar en fyrirhugað var og selja afla sinn þar, og fá viðgerð. Vörður frá Patreksfirði lenti í árekstri, er hann var á leið til íslands. Skipið leitaði til hafnar, þar sem gert var við tjónið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.