Morgunblaðið - 07.03.1944, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.03.1944, Blaðsíða 1
31. árgangur. 52. tbl. — Þriðjudagur 7. marz 1944 ísafoldarprentsmiðja h.f. Tyrkir opjalir i samning- uni Cairo í gærkveldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. Eftir Denis Martin. HJER í löndunum við aust- artvert Miðjarðarhaf hefir það valdið allmiklum vonbrigðum, hvernig til tókst með viðræður bresku hermálanefndarinnar við Tyrki fyrir skemstu og af- lgiðingar þeirra, að hætt var að láta Tyrki fá hergögn. Haldið er fram af góðum heimildum, að förin hafi mis- tekist vegna skoðana ýmissa ráðamanna Tyrkja á þéssum málum, og er sagt, að Tyrkir háfi viðstöðulaust neitað um flugbækistöðvar og alls ekki tekið í mál að fara í stríðið með bandamönnum, nema þeir fengju fyrst hergögn, sem hlaut að taka marga mánuði að af- gfeiða. Þegar þessar skoðanir Tyrkja komu fram, neyddist nefndin tij að fara heim Við svo búið. Rætt var um loftárásahætt- una á tyrkneskar borgir og söigðu Tyrkir hana tíu sinnum meiri en Bretar vildu gera ráð fyrir, en fyrverandi herráðs- foringi Tyrkja lýsti því yfir, að ef þeir færu í stríðið, myndi ofurefli liðs ráðast á landið. Ameríkumenn í Burma. LONDON í gærkvöldi. — Til- kynt hefir verið, að amerískar heisveitir þaulæfðar í frum- skógahernaði, sjeu nú komnar til Norður-Burma, og taki þar þátt í bardögum með kínversk- um hersveitum undir stjórn Stillwells hershöfðingja. RIJ88AR RJiJFA ODE88A LWÖV JÁRIMBRAUTIINiA S!órnar ÞETTA er einn þeirra manna, sem Þjóðverjar kalla venju- lega á, ef eitthvað gengur erfið lega fyrir þeim í stríðinu, Er- ich von Mannstein marskálkur, sem nú stjórnar undanhaldi Þjóðverja í Rússlandi. — Aður stjórnaði hann sókn þar austur frá, t. d. var það hann, sem kallað var á til þess að vinna Sebastopol og endurvinna Kar- kov. Hörð sókn hjá Shepetovka London í ga;rkvöldi. — Einkaskeyti til Morg- unblaðsins frá Reuter. RÚSSAR tilkyntu í kvöld, að þeim hefði tekist að rjúfa hina þýðingarmiklu járnbraut milli Lwov og Odessa og hefðu þeir náð nokkrum hluta hennar á sitt vald. Álíta herfræðingar að nú taki mjög að versna hagur þess þýska liðs, sem er suður í Dnieperbugnum, og hefir ekki aðrar járnbrautir upp á að hlaupa til flutninga, en hið rúm- enska kerfi, en álitið er, að mest af flutningunum hafi farið um hina nýrofnu braut. Rússar segjast enn frem- ur hafa sótt mikið fram fyr- ir vestan Schepetowka, en Þjóðverjar segja frá hörðum bardögum á þessu svæði. — Segjast Rússar hafa tekið þarna allmarga bæi, þar á meðal Vesseneve og fleiri bæi nærri Tarnopol, en að þeirri borg stefna Rússar sókn sinni. kveðast Rússar hafa unnið Þjóðverjum mik- ið tjón í bardögum undan- farinna daga. í Dnieperbugnum álíta fregnritarar að Þjóðveriar hafi um 50 herfvlki, eða allt að hálfri miljón manna. — Þetta lið er ekki á neinn hátt innikróað, þótt Odessabraut in sje rofin, en á erfitt með flutninga. ESJáinýr við veana hafíss MS ESJA varð að snúa við vegna hafísbreiðu við Langa- nes. Var skipið á leið til Þórs- hafnar. Er skipið var statt út af Svínalækj artanga var fyrir stafni stór hafísbreiða. — Voru gerðar tilraunir til að komast í gegnum ísinn, en sú tilraun bar ekki árangur. Var þá skipinu lagt um nóttina undan Skálum. Næsta dag voru aftur gerðar tilraunir, en allt fór á sömu leið, þar eð ísinn var svo að segja samfeldur, en einstaka vakir voru þá*>í breiðunni. Er hjer var komið, var ákveðið að snúa skyldi við, og kemur því skipið hingað aftur sömu leið í>g farin var, austur um. Við Krivoi Rog eru háðar harðar orustur sem fvr, og kveða Þjóðverjar vörnina þar erfiða. Eru fregnirnar um bardagana á öðrum hlut um Austurvígstöðvanna, en hinu nýja sóknarsvæði, flest ar frá Þjóðverjum komnar. Framh. á 2. síðu. Stórárás á Berlín í gær London í gærkveldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Rcuter. AMERÍSK FLUGVIRKI gerðu í gær fyrstu stórárásina, sem gerð hefir verið á Berlín að degi 'til, og fylgdu þeim fjöl- margar orustuflugvjelar í þessa för, líklega hafa aldrei fleiri amerískar orustuflugvjelar far ið í leiðangra til Þýskalands. Flugmenn segja, að veður hafi verið sæmilegt, nema yfir Berlín, en þó hafi sprengjun- um verið varpað af mikilli ná- kvæmni og stórskemdir orðið. Þjóðverjar sendu upp fjölda •orustuflugvjelai, en flugmenn Bandaríkjamanna segja, að þeir hefðu búist við þeim fleirum. Voru loftorustur háðar við og við alla leiðina, en Þjóðverjar viðurkenna, að meginþorri sprengjuflugvjelanna hafi kom ist inn yfir Berlín. — Sjálfir segja Þjóðverjar þetta mestu loftorustur stríðsins. Alls fórust 68 flugvirki og 11 orustuflugvjelar, en 83 þýsk ar voru skotnar niður. Bretar missa tundurspilli. LONDON í gærkvöldi. Flota- málaráðuneytið breska til- kynnir, að tundurspillirinn Inglefield hafi farist af óvina- völdum. Skipið var 1550 smál. bygt árið 1936 og var eina skip ið af sömu gerð í breska flot- anum. —Reuter. Flugferðir aflur milli Svíþjóðar og Bretlands FLUGFERÐIR, sem Svíar hjeldu uppi milli Stokkhólms og Bretlands, en lögðust niður fyrir nokkru, er Þjóðverjar skutu niður eina flugvjel Svía, er var í þessum ferðum, verða nú teknar upp aftur, eftir að sænsk yfirvöld hafa rætt við Þjóðverja hjer um, og fengið fullyrðingu þeirra fyrir því, að sænskar flugvjelar á leið til Brctlands skuli hjer eftir ver- ið látnar í friði. —Reuter Pravda ræðir undir- tektir Finna Finsk blöð óvægnari en áður Vjelbilun í bv Þorfinni VJEL b.v. Þorfinns bilaði á leið til Englands. Var skipið þá statt 400 sjómílur undan strönd um Englands. Svo vel vildi til, að Þorfinnur var í samfloti við b.v. Óla Garða, og dró Óli Garða skipið til hafnar þar í landi. Ekki er fullkunnugt um, hversu bilunin er mikil og er málið í rannsókn. Sljómmálsambandi Washington í gærkveldi. Hjer var tilkynnt í dag, að slitið hefði verið stjórnmála- sambandi Bandaríkjanna við Argentínu í bili. Sagði Stettin- ius utanríkismálaráðherra, að sendiherra Bandar.íkjanna í Buenos Ayres hefði fengið fyr- irskipun um það, að hafa ekk- ert stjórnmálasamband við hina nýju stjórn landsins. — Ljet ráðherrann svo um mælt, að ekki væri hægt- að hafa sam- band við stjórn þessa, fyrr en hún ljeti kyrrsetja sendimenn öxulveldanna í landinu, stöðv- aði njósnarstarfsemi sömu velda þar og' hætti viðskiptum við Þýskaland og Japana. London í gærkvöldi. — Einkaskeyti til Morgun- blaðsins frá Reuter. RÚSSNESKA blaðið Pravda gerir að umræðuefni í dag, um sagnir finskra blaða um fnð- arskilmála Rússa, og segir að Finnar skuli ekki láta sig henda þá skyssu, að halda að það sje veikleikamerki af Rússum að bjóða jafn góða friðarskilmála og raun beri vitni um, og muni Finnar fá að kenna á því, ef þeir ekki fara að koma sjer út úr styrjöldinni. Geri þeir það ekki, muni þeir óhjákvæmilega hljóta sömu örlög og Þjóðverj- ar. Segir blaðið enn fremur, að ekki sje hægt að treysta stjórn- endum Finna. Finsk blöð gagnrýna friðar- skilmálaria meira í dag en nokkru sinni og segja að þeir sjeu svo harðir, að þeir sjeu al- gerlega óaðgengilegir. Er enn- fremur sagt, að það þýði ekki að bjóða Finnum upp á skil- mála eins og þeir væru sigruð þjóð. Þeir hefðu ekki tapað stríðinu og ef þeir ættu að halda áfram að berjast, þá væri það víst, að herstyrkur þeirra hefði aldrei verið meiri, en hann væri nú. Flugvöllur tekinn. ' Washington: — Bandaríkja- menn hafa náð á sitt vald flug- vellinum á eynni Los Negros í Admirality-eyjum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.