Morgunblaðið - 12.03.1944, Blaðsíða 1
Viil skilja við Tarsan
Kvik'myndaleikarinn Johnny Weissmiiller, sem kunnastur
er fyrir sundmet sín og leik sinn, sem Tarsan apabróðir í
kvikmyndum, er hjer á myndinni með kpnu sinni. — Kona
hans vill skilja við hann og segir, að hann sje geðstirður
með afbrigðum og ómögulegt að búa með honuin.
Rússar sækja fram á
600 km. breiðri víglínu
fíUSSAR hafa nú hafið milda sókn á 640 km. breiðri víg-
iínu, sem nœr frá Tarnopol að norðan og suður að liafnar-
borginni Nikolaiev við'Svartahal'. Beinist sókn þessi að án-
um Bug og Dniester.
. Hjer er um þrjá rússneska
heri að ræða, fyrsta, annan og
þriðja ukrainisku herina undir
stjórn Zhukovs marskálks og
hershöfðingjanna Koniev og
Malinovsky. Sækja þeir fast á
eftir hersveitum Mannsteins
marskálks, og hvílir aðalþungi
þeirrar sóknar á hersveitum
Konievs á miðri víglínunni og
her Marinovsky sunnar.
I vikusókn Rússa hafa 20 lið-
sveitir Þjóðverja beðið mikið
áfhroð, tala fallinna og særðra
er komin upp í 100.000» Næstu
daga mun koma fram, hvaða
afleiðingar þessi sókn hefir fyr
ir þýska herinn.
Hersveitir Marinovsky voru
í dag innan við 25'mílur frá
Nikolaiev við mynni Bug-ár-
innar. Taka Nikolaiev myndi
hafa í för með sjer einangrun
þýsku herjanna við Kherson,
sem stendur við mynni Dnieper
árinnar, en að þeirri bórg sæk-
ir nú fjórði Ukrainu-herinn
undir stjórn Tolbulchin hers-
höfðingja. Það myndi einnig
geta haft alvarlegar afleiðing-
ar fyrir þýska setuliðið á Krím
skaga.
Það er her Konievs, sem sæk
ir að Bug-ánni. Þegar síðast
frjettist í dag voru framvarða-
sveitir hans um 40 km. frá
ánni. Sagt er, að á þessum víg-
jstöðvum sje þýski herinn á
einna hröðustu undanhaldi, og
Rússar sækja fast á eftir. —
Sigui- Rússa við Uman er einn
hinn mesti, sem þeir hafa unn-
ið í Ukrainu. Manntjón Þjóð-
verja á þeim slóðum s.l. 5 daga
er áætlað 60—80 þús. fallnir
og særðir.
Þjóðverjar ásakaðir
um sfríðsglæpi
London í gærkveldi.
NÆSTU RJETTARHÖLD
út af stríðsglæpum Þjóðverja
fara sennilega bráðlega fram í
Kiev, en íbúar þeirrar borgar
hafa verið sjerstaklega grátt
leiknir af Þjóðverjum.
Um 40 þýskir hermenn og
iiðsforingjar munu verða leidd
ir fyrir rjett og ásakaðir um
beina þátttöku í pyntingum og
morðum rússneskra stríðsfanga
og óbreyttra borgara. —
— Reuter.
Svíar dttu að hernema
Noreg og Danmörku
Nægur sykur í Svíþjóð.
Það er opinberlega tilkynt,
að sykurrófnauppskeran 1 Sví-
þjóð hafi verið 10% meiri í
fyrra, en næsta ár á undan. —
Mun þörfum þjóðarinnar í
þessu efni vera fullnægt í ár.
Alþingi frestað
í gær til
10. júní
Á FUNDI sameinaðs Alþing-
is í gær. var samþ. tillaga til
frestunar á fundum Alþingis.
Áður en þingfrestunarbrjef
væri upp lesið, tók Gísli Sveins
son, forseti Sameinaðs Alþingis
til máls. Gat hann þess, að
þingið hefði nú einum rómi af-
greitt tvö stórmál, e. t. v. ein
þau stærstu, er Alþingi nokkru
sinni hefði fjallað um, þar
sem væri lýðveldisstjórnar-
skráin og tillagan um niður-
feliingu dansk-íslenska sam-
bandslagasáttmálans frá 1918.
Kvað forseti nú von og ósk
allra. að fullkominn einhugur
mætti ríkja hjá þjóðinni um
afgreiðslu málanna. í júnímán-
uði rnyrdi svo þingið koma
saman á ný og ljúka málum til
fulJs.
I kjölfar þessara mála hefir
m. a. fylgt bróðurkveðjan til
Norðurlandaþjóðanna, sagði for
seti. „Guð láti þessu öllu giftu
fylgja“.
Þá þakkaði forseti þingmönn
um gott samstarf, óskaði þeim
velferðar og góðrar heim-
komu
Eysteinn Jónsson þakkaði
forseta góða og skörulega
stjórn á þingi og gott samstarf
við þingmenn og árnaði hon-
um heilla.
Að svo búnu las forsætisráð-
herra upp þingfrestunarbrjef
og lýsti fundum Alþingis frest-
að nú, en þó eigi lengur en til
10. júní n. k. Þakkaði hann f.
h. ríkisstjórnar fyrir gott sam-
starf og forseti tók undir f. h.
þingmanna.
Loftárás á Florens
BANDAMENN gerðu í dag
fyrstu loftárás sína á Florens í
Ítalíu, en sú borg er fræg fyr-
ir listaverk sín og fagrar bygg-
ingar. Bandamenn taka það
fram, að árás þessi hafi verið
gerð vegna þess, að Florens sje
mikilvæg samgöngumiðstöð
Þjóðverja, og hafi ekki lengur
verið hægt annað en gera árás-
ir á hana, enda hafi alt verið
gert, sem hægt var, til þess að
sprengjur fjellu ekki á bygg-
ingar, heldur aðeins á járn-
brautarstöðvarnar, og áhafnir
sprengjuflugvjelanna hafi ver-
ið þaulæfðar og sjerstaklega
lagt á hjarta að gæta sín vel.
Pucheu dæmdur til
dauða
Algiers í gærkvöldi.
EFTIR nálega viku rjettar-
höld hefir nú dómur verið
kveðinn upp hjer yfir fyrr-
verandi innanríkisráðh. Vichy-
stjórnarinnar. Pierre Pucheu,
og var hann dæmdur til dauða.
Tók dómarinn fram, að þótt
vitnisburðir hefðu verið ónóg-
ir, þá væri sannað að hann
hefði haft samvinnu við Þjóð-
verja, og þó umfram allt, að
hann hefði stuðlað að því, að
franskir menn hefðu barist
gegn Rússum með Þjóðverjum.
Pucheu annaðist sjálfur vörn
sína, og kvað sig vera dæmdan
af landráðamönnum og valda-
gráðugum föntum. Hið síðasta,
sem hann sagði, áður en hann
var leiddur útt, var: „Lifi
Frakkland“. Álitið er Pucheu
muni áfrýja dóminum, en það
er leyfilegt.
Málaferli þessi hafa vakið
mikla athygli og er alment álit
ið að hinir aðrir Vichymenn, er
leiddir hafa verið fyrir rjett
hjer í Algires, fái sama dóm og
Pucheu. —Reuter.
Irar neita að
loka sendi-
ráðiun
London í gærkv.
IRSKA stjórnin hefir nú
svarað málaleitun Bandaríkja-
stjórnar um að loka sendiráðs-
skrifstofum Þjóðverja og Jap-
ana i Dublin. Svarið er afdrátt-
arlaus neitun, og tók de Valera
forseti það fram, að ef látið
væri að tilmælum þessum,
myndi Eire geta dregist inn í
styrjöldina. Kvað de Valera
engar njósnir fara fram á
írskri grund, og stuttbvlgju-
stöð, sem Bandaríkjamenn
töldu þýska sendiráðið í Dubl-
in hafa, er í vörslum irsku
stjórnarinnar, sagði de Valera.
Ekkert nýtt hefir komið fram
um þessi mál vestanhafs í dag,
en blöð í Bandaríkjunum eru
allharðorð í garð íra, en við-
urkenna að de Valera muni
hafa alla írsku þjóðina að baki
sjer í þessu máli, og hafi hag-
að sjer löglega, en þetta geti
kostað líf fleiri þúsund Amer-
íkumanna, vegna njósna Þjóð-
vera í írlandi.
— Reuter.
Sænskt blað
segir frá þess-
ari fyrirætlun
þjóðverja
STOKKHOLMI: (Skv. fregn til
breska upplýsingamálaráðu-
neytisins). Sænska blaðið Esk-
ilstuna Kurieren sagði frá því
miðvikudaginn 2. febrúar síð-
astl., að danskur verkfræðing-
ur, Rudolf Christiani að nafni,
hafi, sem fulltrúi dr. Best, vf-
irmanns Þjóðverja í Dan-
mörku, náð sambandi við
sænska utanríkisráðherrann,
Gunther, með uppástungu um
það, að Svíar skyldu hernema
Danmörku og Noreg, ef Þjóð-
verjar flyttu her sinn frá þess-
um tveim löndum.
I sambandi við þessa frásögn
blaðsins, lýsir sænskautanrík-
isráðuneytið því yfir, að dansk
ur verkfræðingur að
nafni Christiani, hafi um síð-
ustu áramót komið til utanrík-
ismálaráðherrans og annara
embættismanna uppástungum,
sem þannig hafi verið, að ekki
væri hægt að álíta að þær hafi
komið frá dr. Best.
Eskilstuna Kurieren lýsir
Christiani, sem er forstjóri
mikils verkfræðingafirma í
Kaupmannahöfn, Christiani og
Nielsen, sem „upplögðum
kvisling“. Blaðið túlkar uppá-
stungur hans þannig, að Þjóð-
verjar myndu vilja fara burt
með hernámslið sitt bæði frá
Noregi og Danmörku, ef þeir
ættu víst að Sviar hernæmu
bæði löndin og trygðu hlutleysi
þeirra til styrjaldarloka.
Loftárásir á
Munsfer og Toulon
London í gærkveldi.
BANDAMENN hjeldu áfram
loftsókn sinni í dag og voru
aðalárásirnar gerðar á sam-
göngumiðstöðina Munster í
Þýskalandi og Toulon í Frakk-
landi.
Auk árásanna á borgir þess-
ar voru gerðar margar loft-
árásir á aðra staði í hernumdu
löndunum
Flugvjelatjón bandamanna
var mjög lítið, eða aðeins fjór-
ar orustuflugvjelar, en allar
sprengjuflugvjelarnar skiluðu
sjer heim aftur.