Morgunblaðið - 12.03.1944, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 12.03.1944, Blaðsíða 12
12 Sunnudag’ur 12, mars 1944^ Oryggi sam- gangna milli Reykjavíkur og Suður- landsundir- lendis ALÞINGI samþykti í fyrra- k\öld tillögu til þingsályktun- ar um ákvörðun og fram- kvæmd gagngerðra samgöngu- _ bót-a frá Reykjavík austur i Öiufus. Eiríkur Einarsson var fyrsti flutningsmaður þessar tillögu, en endanlega var hún afgreidd með breytingum, sem sam- komulag hafði orðið um í fjár- veitingarnefnd, og var megin- efni hennar ekki raskað. Til- lagan var samþykt svöhljóð- andi: ,,Alþingi ályktar að fela fimm manria nefnd að rannsaka og skila rökstuddu áliti um það, á hvern hátt verði hagkvæm- ast og með mestu öryggi trvgð- ar samgöngur milli Reykjavík- ur og Suðurlandsundirlendis- íns. Neindinrý ber að semja kostn- aðaráætlun um þær samgöngu bætur, er hún Ieggur til, að gerðar verði. Fjórir nefndarmanna skulu kosnir hlutbundinni kosningu í sameinuðu Alþingi, en vega- málastjóri vera fimti maður í nefndinni og formaður hennar. Kostnaður við störf nefndar- innar greiðist úr ríkissjóði“. Fyrir þingfrestun í gær fór fram kosning á nefndarmönnr um af hálfu þingsins. Kosn- ingu hlutu, af A-lista Emil Jór.sson, af B-lista Jón Gunn- arsson, af C-lista Gunnar Beuediktsson og af D-lista, Arni Snævarr. Er þess að vænta, að sú máls ferð, er þannig heíir viðhöfð verið í þessu mikla hagsmuna- máli, megi til góðs leiða og skila raunhæfum og heilla- dr.’ugum áiargri. lesbókin í dag. í LESBÓKINNI í dag er þetta efni: Stórfróðleg grein um upphaf Weyvvadts-ættar á íslandi, eft- ir Bjarna Jónsson frá Unnar- J.olti. Greininni íylgja fjórar myndir. Þá er skýrt frá starf- semi Hatnpiðjunnar s.l. 10 ár og I>ví nytjastarfi, sem unnið er í verksmiðjum fyrirtækisins, lýst, en Hampiðjan mun eitt gagnlegasta iðnfyrirtæki hjer-*’ Jendis. Margar myndir fylgja greininni. — Þá er framhald af hinni einkennilegu og merki legu frásögn frá Nýju Guineu. Ennfremur er þar grein eftir Gscar Clausen, er heitir ,,Upp- nefni og viðurnefni“, skemti- leg smásaga eftir Guy de Mau- passant, Annáll Lesbókar og smælki. Forselafrúin nuddar nefi viS inniædda ELEANOR ROOSEVELT, kona Bandarikjaforseta, var fyrir nokkru á ferðalagi á Kyrra- hafseyjum. Þar var þessi mynd tskin af forsetafrúnni, þar sem hún er að heilsa háttsettri höfð- ingjafrú á einni Suðurhafseyjunni. Þær frúrnar heilsast að venju innfæddra á þessum slóðum með því að nudda saman nefjum. Ljósmyndarinn, sem tók þessa mynd, var heppinn. Amerískt tímarit keypti Ijósmyndina til birtingar fyrir 2500 dollara, eða rúmlega 16.000 krónur. Barnaspítali Hrings- ins verður á Land- spítalaióðinni Gjafir til barnaspítaians verða undanþegnar skatti BARNASPÍTALINN, sem Kvenfjelagið Hringurinn hefir ver- ið að safna fje til undanfarið hálft annað ár, verður reistur á Landspítalalóðinni. Hefir Hringnum verið úthlutað lóð þar fyr- ir væntanlegan barnaspítala. Það má búast við að skriður komi á fjársöfnunina til barnaspítalans á þessu ári og því næsta, því Alþingi hefir samþykt, að gjafir til hans megi draga frá skatt- skyldum tekjum manna árin 1944 og 1945. Hringkonur hafa með fá- dæma dugnaði safnað saman um 180,000 krónur á því hálfu öðru ári, sem liðið er frá því, að fjársöfnunin var hafin. Hef- ir fje þetta komið inn á skemt- unum, sem Hringkonur hafa staðið fyrir og einnig með sam- skotum. Auk stjórnar Hringsins. sem hefir unnið að fjáröflun til spítalans, var kosin sjerstök nefnd, fjáröflunarnefnd, til að sjá um fjársöfnunina. í þessari nefnd eru: frú Margrjet Ólafs- son. frú Margrjet Ásgeirsdótt- ir, frú Herdís Ófeigsson, frú Lára Árnadóttir og frú Soffía Haralz. Stór hasar í uppsilgingu. Hringkonur hafa nú í undir- búningi mikinn basar, sem þær þær ætla að halda í vof til á- góða fyrir barnaspítalann. — Verður mjög til basarins vand- að. Hringkonur sjálfar sauma fatnað, scm seldur verður á basarnum. Nokkrir velunharai' fjelagsins hafa gefið efni o§ styrkt basarinn á annan hátt. Bygging barnaspitala hjer í bæ er mikið nauðsynjamál. — Eiga Hringkonur skyldar þakk- ir Reykvíkinga fyrir þann mikla áhuga, sem þær hafa sýnt í þessu máli. Ættu allir góðir menn að styrkja þettá málefni. Unnið er að teikningu hins fyrirhugaða spítala. Verður haf ist handa um bygginguna eins fljótt og auðið er, en áður en það er hægt, verður að auka mjög fjársögnunina. Grikkjum gefnar bifreiðar. Stokkhólmi: — Hin sænsku gufuskipafjelög, sem eiga skip í matvælaflutningum til Grikk lands, hafa gefið Grikkjum ellefu vörubifreiðir til mat- vælaflutninga um landið. Níu þeirra hafa þegar vefið sendar til Grikklands. Ræða forseia sara- einaðs þings við þinfrestun AÐ loknum störfum'í sam- einðu Alþingi í gær, er sam- þykt hafði verið í einu hljóði þingsályktunartillaga um þing frestun, en áður en forsætis- ráðherra las upp ríkisstjóra- brjef þar að lútandi, mælti for- seti Gísli Sveinsson á þessa leið: „Fyrir 'þessu þingi, sem nú verður frestað um hríð, hafa eins og til stóð legið til úrlausn ar tvö stórmál, ein þau merk- ustu, ef ekki þau allra merk- ustu, sem nokkurá tima hafa komið fyrir Alþingi íslendinga. En þau eru: ályktun um sam- handsslit við Danmörku og hin fyrsta lýðvcldisstjórnarskrá Islands. Þau hafa bæði hlotið afgreiðslu áleiðis til meðferðar hjá þjóðinni sjálfri, einróma afgreiðslu frá þinginu, og nú er það von og ósk vor allra, að fullkominn einhugur megi um þau ríkja, er þjóðin samþykkir þau með atkvæði sínu.Að lok- um mun svo Alþingi leggja á málin fullnaðarsamþykt í júní- mánuði næstkomandi, eins og öllum hefir verið kunnugt gert. ,1 kjölfar þessara höfuðmála hefir ýmislegt flotið, er snertir meðferð þeirra, eða stendur í óbeinu sambandi við þau, og nefni jeg hjer til aðeins bróð- urkveðjuna til hinna Noi'ður- landaþjóðinna, sem samþykt var á \ Alþingi í gær í einu hljóði. Guð láti þessu öllu giftu fylgja“. Til vinnubælis S. í. B. S. hef- ir blaðinu borist 1000 króna gjöf frá Þormóði Eyjólfssyni konsúl í Siglufirði. Rekstur stræt- isvagna í Reykjavík „Sti'aúisvagnar Reyk.jo vík- ur“ h.f. hafa farið fram á við . bæjarráð, að fjelaginu verðx, trygður rjettur til rekstrar .strætisvagna í Reykjavík um allt að 10 ára skeið, en ef það ekki fæst, mun ]>að bjóða stjórnarvöldum bæjarins að’ taka við rekstri strætisvagn- anna. : ..Sti'ætisvagnar Reykjavík- ur h.f.“ hafa sent bæjarráðí erindi varðandi framtíðar- skipan á rekstri strætisvagná lijer í bænum. Er ]>ar l>ent. á. að gerbreyta þurfi aksturs- kerfi til óslitins aksturs í gegn um bæinn, ]>ar sem lín- urnar skeri aðaltorg miðbæjar ins. Þá liggur og fyrir að reisa stórbyggingu, sem hvortl tvegg.ja yrði verkstæði og bíla- geymsla. I»á ]>ar£ aukinn vagna kost og hefir fjélagið fyrir löngu gert ráðstafamr til kaupa á 4 stórum undirvögn- um frá Amerríku, en slíkir vagnar kosta tilbúnir tiL aksturs um 90 ]>ús. krónur hver vagn og mun f.jelagið árlega þurfa slíka viðbót tiL eridurnýjtmar. Á síðasta aðalfundi f.jelags- ins var eftirfarandi ályktun samþykt með 191 atkv. gegn 1. „Með þyí að sýnt er, að f.jelagið verður hið fyrsta að ráðast í margvíslegar fjár- frekar framkvæmdir, til þess að geta fullnægt eðlilegri og æskilegri þróun í samgöngu- málum bæjarins, svo sem bygg ingu stórhýsis, fjölgun stórra og dýrra vagna, starfrækslu nýrra leiða til úthverfa bæj- arins og fjölgun vagna á öðr- um, kerfisbreytiugu til óslit- ins aksturs í gegnum bæinn og ýmis fleiri nauðsynjaverk. — ályktar aðalfundur S.V.R., haldinn 25. febr. 1944. að fela stjórn fjeiagsins og fram- kvæmdastjóra, að leita sanm- inga vi’ð stjórnarvöld bæjar-t og ríkis um sjerleyfi, er tryggi fjelaginu rjett til reksturs strætisvagna í Reyk.javíkk um allt að 10 ára skeið — eða til ársloka 1953. Náist hinsvegar ekki sainn- ingar við viðkomandi aðila, er feli í sjer slíka starfstrygg- ingu fvrir fjelagið, telur fund- urinn starfsgrundvöll fjelags- ins of veikan til þess að byggja á undirbuning að stór- auknum framkvæmdum, er krefjast mikilla fjárframlaga með hlutafjáraukningú og lánsfje —- og ályktar ]>ví að fela stjórn og framkvæmda- stjóra, að bjóða stjómarvöld- um bæjarins að taka við rekstri strætisvagnanna og veitir stjórn og framkvæmda- stjóra fullt umboð, til ]>ess að sel.ja og afhenda bænum eða öðrum opinbérum aðila, að bænum frágengnum, eignir fjelagsins með samningi eða eftir mati, allt eftir því sem r.jett ]>ykir og hagfeldast að dómi greindra umboðsaðila fjelagsins og að áskyldu snm- þylcki nýs Muthafafundar.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.