Morgunblaðið - 13.08.1944, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 13.08.1944, Blaðsíða 8
Forsetinn Vestmannaeyjum FORSETI ÍSLANDS kom til Vestmannaeyja í gær með varð Skipinu Ægi. Þegar skipið lagði upp að bryggju um kl. 11 árdegis; var þar þegar saman- kominn mikill mannfjöldi( sem fagnaði honum. Bæjarfógeti, Sigfús Johnsen, og bæjarstjóri Vestrnannaeyja; Hinrik Jónsson; buðu forseta velkominn, en hann svaraði með stuttri ræðu. — Bærinn var allur fánum skreyttur sem og öll skip og bátar, sem lágu á höfninni, Vestmannakórinn söngt en síðan var gengið heim til bæjarfógeta og dvaldi for-, setinn þar nokkra hríð. Fyrir göngunni gekk lúðrasveit og Ijek göngulög. Forsetanum var síðan boðið til hádegisverðar í samkomu- húsi bæjarins óg sátu þar að borðum um 50 manns. Þar fluttu ræður Guðlaugur Gísla- son, settur fors. bæjarstjórnar, Olafur Lárusson, læknir og fl. Forseti svaraði með ræðu. Eftir borðhaldið gekk forset- in út á svalir samkomuhússins og hjell ræðu fyrir þann mikla mannfjölda, sem hafði safnast saman fyrir uían. — Að því loknu var farið inn í Herjólfs- | dal og var þar sýnt bjargsig. Því næst fór forseti aftur um borð í Ægir, en mikill mann- fjöldi kvaddi hann með húrra- hrópum. Vestmannakórinn söng þjóðsönginn og ættjarðarljóð. Þjóðverjar téfeu Gullfoss GULLFOSS okkar gamli og góði varð innlyksa í Höfn; þeg- ar Danmörk var hernumin. — Atti að fara þaðan einum eða tveim dögum eftir 9. apríi. En skipshöfnin kom, sem kunnugt er, með Petsamóferð Esju. Síðan hafði Xlullfoss verið geymdur í einhverri skipakví Hafnar og sjeð um að honum væri vel við haldið. Nokkru eftir síðustu áramót tók þýska herstjórnin skipið traustataki. En orðsending mun hafa komið um það hingað, að þýska herstjórnin taki á sig á- byrgð á skipinu, og gi'éiði fyrir skemdir, sem á því kynnu að verða. 1 Lofleiðir h. f. á von á tveim flugvjelum á næsfunni. tttiWa Sunnudagnr 13. ágúst 1944, Viðureignirnar á Græniandsjökium Eins og getið hefir verið um í fr jettum, höfðu Þjóðverjar bækistöð á Austur-Grænlandi og lentu þar í skærum við ctanska veiðimenn, sem voru í þjónustu ameríska hersins. Að lokum cyðilögðu Bandaríkjamenn stöð Þjóðverjanna og tóku tvo þeirra höndum, eftir að Þjóðverj- arnir höfðu felt nokkra Dani. — Efsta myndin sýnir Bandaríkjahermenn sækja fram að stöð Þjóðverjanna. Að neðan er teikning af handíöku þýska heimskautafarans dr. Rolf Senn- se og mynd af honum eftir handtökuna. §t 1. flokfes og hauslmót 3. fl. LANDSMÓT 1. flokks í knatt spyrnu hefst n.k. þriðjudag kl. 7 e. h. á íþróttavellinum. — Þá keppa Víkingur og Akurnes- ingar. Dómari Hrólfur Bene- diktsson og strax á eftir I. R. og Haukar, dómari Óli B, Jóns- son. Á miðvikudag keppa svo Fram og K. R,, dómari Al- bert Guðmundsson. Valur situr hjá. Þetta er útsláttarkeppni og er það fjelag, sem tapar einum leik úr keppninni. Haustmót 3. flokks hefst n.k. mánudag klukkan 6.30. Keppa þá fyrst Víkingur og Fram, dóm ari Guðbjörn Jónsson óg strax á eftir K. R. og Valur, dómari Eiríkur Bergsson. BÚIST er við, að tveggja hreyfla flugvjelinni, sem Loft- leiðir h. f. hefir fest kaup á í Ameríku, verði flogið hingað til lands nú alveg á næstunni, en ekki er nákvæmlega vitað, hve i;ær vjelin kemur, því að búast iná við, að hömlur sjeu lagðar á skeytasendingar um slík efni. Flugvjel þessi er af Druman- tegund og tekur 8—9 farþega í sæti. Þá er og á leið hingað til Iands í skipi önnur flugvjel, til Loftleiða h. f. Er það eins hreyf ils Stimson-flugvjel, sem tek- ur 3—4 farþega. Er hún eigin- lega sjóflugvjel, en henni mun verða breytt hjer í landflugvjel. Stríðsfangar skotnir. Washington; Flotamálaráðu- neytið tilkynnir, að frá alþjóða Rauða krossinum hafi því bor- ist sú fregn, að þrír Bandaríkja menn, sem voru herfangar í höndum Japana, hafi verið skotnir af Japönum í Manc- huriu, eftir að hafa gert tilraun til þess að strjúka úr fang^búð unum. — Reuter. Bagdad: Stjórnin í Iraq hef- ir ákveðið að auka her landsins að allmiklum mun, og verður sjerstök áhersla lögð á að eign- ast sæmilegt fluglið og stór- skotalið. — Einnig verður fót- gönguliðinu fjölgað og á að búa það hetri tækjum. Rússar sækja inn í Eistland London í gær; — Mikill rússneskur her sækir nú inn í Eeistlandi sunnan Úskov-vatnsins, að því er fregn ritari vor, Duncan Hooper, sím ar í dag. Þjóðverjar senda þarna varalið á vettvang og eru bardagar harðir. Þýska herstjórnin segir, að Rússum hafi með miklum tli- kostnaði tekist að sækja nokk- uð fram á þessum slóðum. Orustur munu nú liggja niðri að mestu fyrir austan þýsku landamærin, eftir hina miklu bardaga að undanförnu, en þar sem Rússar eru komnir yfir Vislu, gera Þjóðverjar enn hörð gagnáhlaup, einkum nærri Sandomierz. — Reuter. Ætlaði að flýia til Danmerkur. Stokkhólmi: Danskur flótta maður var handtekinn við Ven, nærri Landskrona í Sví- þ.jóð, er hann var að stela bát, sem hann hugðist flýja aftur heim til Danmerkur á. — lívaðst maður þessi ekki leng- ur-hafa þolað að vera í Sví- þjóð, er f.jölskylda hans væri hinumegin sundsins. — Reuter. Randolph Churchill lendir í flugslysi London: Randolph Churchill, sonur forsætisráðherra Breta, sem nýlega slapp nauðuglega, er Þjóðverjar náðu aðalstöðv- um Titos marskálks, sem Churchill yngri þá dvaldi hjá, hefir nú aftur lent í æfintýri. Var hann meðal þeirra, sem komust lífs af, er farþegaflug- vjel hrapaði til jarðar einhvers staðar í fjöllum Jugoslavíu fyr ir skömmu. Öll áhöfn flugvjelarinnar fórst, en farþegar björguðust. Voru þeir, *auk Randolph Churc hills, tveir rússneskir Jiðsfor- ingjar, blaðamaður breskur og jugoslavneskur lögreglumaður. Þegar flugvjelin kom niður, mistu allir, sem í henni voru, meðvitund, en röknuðu við aft- ur nægilega snemma til þess að komast út úr flugvjelinni, sem kviknað hafði í. Sundflokkur Ægis á Fáskrúðs- firði SUNDFLOKKUR úr Sund- fjelaginu Ægi hafði sund- sýningu á Fáskrúðsfirði á fimtudagskvöld og var sýnt í sjó. Var hann 9 stiga heitur. Sundmönnunum var tekið með miklum fögnuði. t Fáskrúðs’firði ríkir mikill áhugi á að ljúka byggingu handlaugar sem fyrst. oóuaL i >óte 225. dagnr ársins. '/ Árdegisflæði kl. 1.40. SíðdegisflæSi kl. 14.23. Næturlæknir er í læknavarð- ’ stofunni, sími 5030. Næturvörður er í Laugavegs- Apóteki. Næturakstur annast Bs. Hreyf- ill, sími 1633. Næturakstur á morgun annast Bs. Bifröst, sími 1508. Hjónaband. Nýlega voru gefin saman í hjónaband ungfrú Katr- ín Pálsdóttir, hjúkrunarkona og Hlöðver Sigurðsson, skólastjóri, ísafirði. Sjötugsafmæli á f'dag frú Sig- ríður Ámadóttir frá ísafirði til heimilis á Fjölnesveg 6. Fimtugsafmæli á á morgun þ. 14. þ. m., frú Jóhanna Einarsdótt ir, Baldursgötu 23. Hestaþing og kappreiðar verða í dag (sunnudag 13. ág.) kl. 2 e. h. að Landlæk í Gnúpverja- hreppi. Reyna hreppamenn þar gæðinga sína og veita verðlaun þeim, er framúr skara. — Mun margan físa að koma á mót þetta því að hestar þeirra hreppa- manna eru annálaðir og hrossa- ræktarstarfsemi þeirra með því besta á landinu. ÚTVARPEÐ I DAG: 8.30 Morgunfrjettir. 11.00 Messa í Dómkirkjunni (sr. Friðrik Hallgrímsson). 12.10—13.00 Hádegisútvarp. 14.00 Miðdegistónleikar, (plötur) a) Scheherazade eftir Rimsky- Korsakoff. b) Burlesque eftir Rich. Strauss. c) 15.00 Söngv- ar eftir Foster. d) 15.30 Þætt- ir frá Kákasus eftir Ippolitow Ivanoff. e) Strauss-valsar. 19.25 Hljómplötur: a) Tintangel eftir Bax. b) Cinderella eftir Coates. 20.20 Einleikur á fiðlu (Oskar Cortes): Sonata í F-dúr eftir Handel. 20.35 Ferðasaga um Vestfirði og Barðaströnd, fyrri þáttur (Her steinn Pálsson ritstjóri). 21.00 Hljómplötur: Norðurlanda- söngvarar. 21.15 Upplestur: Úr kvæðum Guðmundar Frímanns og Kristjáns Einarssonar frá Djúpalæk (Jakob Kristinsson fræðslumálastjóri). 21.35 Hljómplötur: Comes-dans- sýningarlög eftir Purcell. 21.50 Frjettir. 22.00 Danslög. 23.00 Dagskrárlok. ÚTVARPIÐ Á MORGUN: (Mánudag). 8.30 Morgunfrjettir. 12.10—13.00 Hádegisútvarp. 15.30—16.00 Miðdegisútvarp. 19.25 Hljómplötur: Þjóðdansar. 20.30 Þýtt og endursagt: (Bárður Jakobsson lögfræðingur). 20.50 Hljomplötur: Lög leikin á kornett. 21.00 Um daginn og veginn (Vil- hjálmUr S. Vilhjálmsson, blaða maður). 21.20 Útvarpshljómsveitin: ís- lensk alþýðulög. — Einsöngur (frú Sigríður Sigurðardóttir frá Akranesi): a) Dalvísur eft ir Árna Thorsteinsson. b) „Ljúf ur ómur“ eftir Bortniansky. c) „Þú ert móðir vor kær“ eftir Lenge-Möller. d) Lofsöngur eftir Beethoven. 21.50 Frjettir. Dagskrárlok. SJÁLBOÐALIÐAR FALLA sænskirl Stokkhólmi: Þrír sjálfboðaliðar í finska hern- um hafa nýlega fallið á Kirk- jálavígstöðvunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.