Morgunblaðið - 29.10.1946, Blaðsíða 12
VEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói:
Suð-vestan og vestan kaldi eða
stinningskaldi. Sumstaðar Ijett-
Skýjað.
Engin úrslit hjé
Fram og Va!
ANNAR leikur Walterskepn-
innar fór fram á sunnudaginn
og var bæði tjörugur og yfir-
leitt fremur vel leikinn. Fóru
leikar svo að jafntefli varð, 2:2,
en ekki var hægt a<5 framlengja
sökum þess hve dimmt var orð-
ið. Hefði leikurinn að skað-
lausu mátt byrja klukkustundu .
fyrr.
Leikurinn var allur mjög
jafn, en sóknarlotur Fram
voru oft snarpari en Vals, sem
misnotaði ákaflega illa þrjú
góð tækifæri í fyrra hálfleik. I
þeim hálfleik var ekkert mark
skorað.
Strax á annari mínútu síðari
hálfleiks fjekk Valur horn-
spyrnu, sem Snorri skoraði úr,
en leikur var varla hafinn fyrr
af riýju, en Fram fjekk horn-
spyrnu og skoraði Gísli úr
henni. Skiptist nú á sókn og
vörn og var leikurinn mjög
spennandi á að horfa. Þegar
farið var að líða á hálfleikinn,
skoraði Magnús annað mark
Fram, en hjeldir menn nú að
Frammarar myndu vinna, en
svo fór ekki, því undir leikslok
kvittaði Halldór sniðuglega fyr-
ir Val.
Eins og jeg hef áður sagt
sýndu bæði lið góð tilþrif, en
skotin voru ákaflega ljeleg.
Bestu menn Fram voru þeir
Valtýr, Sæmundur og Þórhall-
ur en hjá Val voru þeir bestir
Frímann, Gur.nar og Sveirin.
Þórður Pjetursson dæmdi vel.
J. Bn.
Áðatfundur Dóm-
kirkjusafnaSar
Á SUNNUDAG var haldinn
aðalfundur Dómkirkjusafnað-
arins. Á fundinum voru reikn-
ingar lagðir fram og önnur að-
alfundarstörf tekin fyrir. Kosn-
ing stjórnar fór þó ekki fram
að þessu sinni.
Borin var fram tillaga frá
fjehirði, þess efnis að gefa til
Laugarneskirkju 50 þús. krón-
ur. Tillagan náði ekki samþykki
fundarins.
Þá var maður kosinn í nefnd
til þess að gera breytingar á
útfarasiðum í sambandi við
hina nýju kapellu í Fossvogi.
Kosinn var cand. theol. Pjetur
Sigurgeirsson-.
Björn Óíalsson
heldur fiðlulónleika
BJÖRN ÓLAFSSON fiðlu-
jeikari heldur hljómleika ann-
að kvöld í Gamla Bíó með að-
stoð dr. Urbantshitsch. Eru
hljómleikar þessir eingöngu
fyrir styrktarfjelaga Tónlist-
arfjelagsins <
Verkefni Björns eru: Cha-
conne í g-moll eftir Vitali„
Sonata í gmoll eftir Tartini
(Djöflatrillan). sex þjóðlög
fyrir fiðlu og píanó eftir Helga
Pálsson, Introduction et
Rondo Capriccioso eftir Saint-
Saens og 'fiðlukonsert op. 64
eftir Mendelssohn Bartholdy.
GREIN UM HITLER — einá
og harvn var. Bls. 7.
Þriðjudagur 29. október 1946
.
ÞANNIG mun Norræna heirnilið á Kárastaðanesi við Þingvallavatn líta út, þegar það verður
fullvert, en vonast er eftir að það geti tekið til starfa 1948.
Byrjað ú reisa norræna
heimiiið við ÞingvalEavatn
í SUMAR hefir verið unnið að byggingu Norræna heimilisins,
sem Norræna fjelagið gengst fyrir að reist verði við Þing-
vallavatn, og er kjallari hússins þegar fuRgerður. Verður húsið
tæpir 400 fermetrar að ílatarmáli, 2 hæðir, ris og kjallari undir
hálfu husinu. Hefir húsameistari ríkisins, Gufjón Samúelsson,
gert teikningu af því. Gert er ráð fyrir að húsið verði tilbúið
til notkunar 1946.
Á neðri hæð hússins er mat-'
salur, setustoía, bókaherbergi,
borðsalur, ætlaður um 70
manns, eldhús og herbergi fyr-
ir starfsfólk. A efri hæð húss-
ins eru 20 svefnherbergi með
nýtisku útbúnaði og fylgja sval
ir nokkrum þeirra. Þá er og gert
ráð fyrir áð hægt verði að koma
10 herbergjum fyrir í rishæð
hússins.
Hefir hlutafjelág verið stofn
að innan Norræna fjelagsins til
þess að hrinda þessu máli í fram
kvæmd. Er hlutafjeð nærri 200
þús. krónur, en lofað hefir ver-
ið nær 300 þús. krónum. Gert
er ráð fyrir að byggingin muni
kosta um IV2 milj. kr. Hefir
Norræna fjelagið og „Norræna
heimilið h.f.“, skrifað Alþingi
brjef, þar sem farið er fram á
500 þús. króna framlaag frá
ríkinu. Segir í brjefi þessu m.a.:
Fjelagsheimili og gistihús.
„Norræna íjelagið vinnur,
sem kunnugt er, að auknum og
bættum samskiftum á milli
Norðurlandaþjóðanna á sviði
menningármála, og hverskonar
annara viðskifta, eftir því sem
það hefir tök á. Til þess að
greiða fyrir þeim samskiftum
og til þess að geta veitt þeim
Norðurlandabúum., er til lands-
ins koma sæmilegar viðtökur,
hefir fjelagið gengist fyrir því
að reist verði myndarlegt gisti
hús við Þingveili. Jafnframt því
sem gistihús þetta er hugsað
sem samkomustaður fyrir þau
mót og námskeið, sem Norræna
fjelagið gengst fyrir, svo og
dvalarstaður fyrir fjelagsmenn
þess, er gert ráð fyrir að hægt
verði að taka þar á móti öðr-
um innlendum sem erlendum
gestum, er vilja dvelja nokk-
urn tíma við sæmileg þægindi
í skauti hins fagra fornhelga
þingstaðar“.
Hússtjórnarskóli á vetrum.
Þá segir ennfremur:
„Líklegt má telja að ekki
verði þörf á að reka þarna stórt
gistihús allan veturinn. En þá
er hugmyndin að hafa þar fyr-
irmyndarhússtjórnarskóla þann
tíma, sem gistihúsið starfaði
ekki. Eins og kunnugt er, er
hjer mikill skortur á hússtjórn-
arskóla og þurfa stúlkur að bíða
svo árum skiftir eftir því að
komast á slíka skóla og margar
stúlkur leita til útlanda til þess
að afla sjer þessarar nauðsyn-
legu menntunar, en það kost-
ar þjóðina mikið fje í erlend-
um gjaldeyri. Á einu ári hef-
ir Norræna fjelagið t. d. verið
beðið að sækja um skólavist
á hússtjórnarskólum á Norður-
löndum fyrir um 80 stúlkur.
Mun það láta nærri að það kosti
þjóðina um V2 milj. kr. í er-
lendum gjaldeyri. En þessi
mikla aðsókn að erlendum hús-
stjórnarskólum sýnir hve mik-
il vöntun er á slíkum skólum
í landinu.
Með byggingu þess húss, er
hjer ræðir um, má bæta úr
brýnni þörf, sem mjög er að-
kallandi að úr verði bætt sem
fyrst, þ. e. a. s. gistihúss- og
hússtjórnaskólaþörfinni“.
London fil Praci
LONDON. Farnar hafa nú
verið flugferðir til reynslu á
flugleiðinni milli London og
Prag beint. Var það bresk
Viking-vjel, sem fór fyrstu
ferðina og hafa reynsluferðirn-
«
ar gengið ágætlega.
Nýr bæjarsljóri á
Tveir menn leknir
fyrir ávísanafah
FYRIR nokkru síðan voru
tveir menn teknir fastir ogj
ákærðir fyrir ávísunarfölsun.
Þessir náungar stálu ávísun-
arblöðum úr tösku drukkins
manns og fölsuðu út á þær
9.600 krónum.
Fjárhæð þessari vörðu þeir
til áfengiskaupa. Er ávísanirn
ar komu í bankann, var ekki
næg innistæða fyrir þeim og
var eiganda tilkynnt þetta.
Ekld kannaðist hann við þessi
viðskipti. Er hjer var komið
afhent hann rannsóknarlög-
rtglunni málið til athugunar,
Þetta var í septembermán-
uði og hefir síðan verið unnið
að rannsókn þesssa máls, eö
hafði í för með sjer fangelsun
tveggja manna. Lögregiurann
sókn er nýlega iokið og bíða
þjófarnir báðir dóms.
Blaðænamanám-
Á FUNDI bæjarstjórnar
Akraness er haldinn var á
föstudagskvöld, var kosinn
nýr bæjarstjóri fyrir Akra-
neskaupstað. Guðlaugur Ein-
arsson, cand jur, var kosinn.
Hann mun taka við starfi
sínu 1. nóv. næstkomandi.
Fráfarandi bæjarstjðri er
Árnljótur Guðmundsson, er
sagði starfi sínu upp um síð-
ustu áramót,
a
ssns
NORRÆNA fjelagið hefir
ákveðið að gangast fyrir blaða
mannanámskeiði hjer næsta
sumar fyrir blaðamenn frá
hinum Norðurlöndunum.
Hefir fjelagið boðið þrem
þátttakendum frá hverju
landi.
Lagt til að gjaldskrá
Landssímans hækki veruiega
SÍMARÁÐSTEFNAN, sem haldin var hjer í bænum í fyrri
viku leggur til að gjaldskrá Landssímans verði hækkuð veru-
lega frá því sem er, þar sem rekstrarhalli er nú á stofnun-
inni. Ennfremur leggur ráðstefnan til að hraðað verði aðkall-
andi framkvæmdum símans og þá fyrst og fremst jarðsím-
anum milli Reykjavíkur og Akureyrar. Eftirfarandi frjett um
ráðstefnuna hefir blaðinu borist frá póst- og símamálastjórn-
inni:
„Dagana 19.—25 okt var'* *
haldin símaráðstefna í Reykja-
vík. Ráðstefnuna sátu auk
póst- og símamálastjóra síma-
stjórarnir á Akureyri, Borðeyri,
ísafirði, Seyðxsfirði, Siglufirði
og í Vestmannaeyjum, Bæjar-
símastjórinn og Ritsímastjór-
inn í Reykjavík, skrifstofu-
stjóri landssímans og yfirverk-
fræðingur.
Aðkallandi framkvæmdir.
Rætt var meðal annars um
hag og r'ekstur landssímans og
aðkallandi framkvæmdir til
endurbóta og nýsköpunar á
símakerfi lndsins, auk ýmissa
sjermála varðandi starfrækslu
símanna. Raðstefnan gerði
meðal annars eftirfarandi álykt
un:
„Símaráðstefnan 1946, held-
in í Reykjavík dagana 19.—25.
október, lítur svo á, að hraða
beri sem mest nýsköpuri þeirri
á símakerfi landssímans, scm
þegar er hafin, til þess að það
geti fullnægt þörfum lands-
manna og þó einkum með til-
liti til hinnar öru þróunar, sem
nú fer fram á sviði atvinnu-
lífsins. ■
Jarðsíminn milli Reykjavíkur
og Akureyrar.
Framar öllum símafram-
kvæmdum beri að hraða lagn-
ingu jarðsímans milli Reykja-
víkur og Akureyrar, og skorar
ráðstefnan á ríkisstjórn og Ál-
þingi að tryggja nú þegar nægi
legt fje og gjaldeyri til þess
að unnt verði að taka jarðsím-
ann í notkun eigi síðar en á ár-
inu 1948, þar sem núverandi
línuskortur milli Suður- og
Norðurlands er algerlega óvið-
unandi, en hann hefir víðtæk
áhrif á símaafgreiðsluna um allt
land.
Rekstrarhalli.
Símaráðstefnan telur ófært
að landssíminn sje rekinn með
rekstrarhalla eins og nú er og
lítur svo á, að óhjákvæmilegt
sje að hækka verulega gjald-
skrá landssímans til meira sam-
ræmis við þá hækkun, er orð-
ið hefir á kaupgjaldi, efnis-
kostnaði og rekstrarkostnaði
yfirleitt“.