Morgunblaðið - 05.03.1948, Blaðsíða 1
Krafa Stalins setur
Finii i mikinn i
Þjóðin er andvíg hemaSarbandalagi
Helsingfors í gœrkvöldi.
Einkaskeyti til Morgur.blaðsins frá Reuter
SAMKVÆMT upplýsingum frá talsmanni finnska utanríkisráðu-
neytisins eru mildar líkur til að Finnar hefji umræður við
Rússa um hernaðarbandalag, enda þótt flestir stjórnmála-
flokkar í Finnlandi hafi lýst andáð sinni á slíku bandalagi. Þeír
einu sem vilja samband við Rússa eru kommúnistar og fylgi-
liskar þeirra. Hafa þeir sent Juho Paasikivi forset.a eindregin til-
mæli um að gengið yrði í öllu að kröfu Stalíns.
Annars hefir það komið:
mjög greinilega í ljós, hve erfið
aðstaða finnsku stjórnmála-
flokkanna, sem vilja óháð og
frjálst Finnland, er. Sænski
flokkurinn sendi forsetanum
svar við orðsendingu hans eft-
ir þriggja tíma fund í dag, þar
sem sagt er að hann mæli ekki
gegn því að samkomulags yrði
leitað í málinu, en leiddi hjá
sjer að svara hinum sjö grund-
vallaratriðum, sem forsetinn
hafði farið fram á að flokk-
arnir. tækju sjerstaklega af-
stöðu til.
Svara á morgun.
Hægri menn og frjálslyndir
sátu á tveimur löngum fund-
um í dag, en tilkynntu síðan
að svars þeirra yrði ekki að
vænta fyrr en á morgun (föstu
dagV
Eru á móti ríkja-
samsteypum.
Sósíaldemókratar sátu á
fundi í allan dag og lofuðu
svari síðar í kvöld, en flokk-
urinn hefir látið þá skoðun sína
í ljós, að þar sem Rússar hafi
eki tekið fram, hve víðtækan
hernaðarsamning þeir fari fram
á, bá sje það að sjálfsögðu
kurteisisskylda Finna að ræða
við bá, en að finnska þjóðin,
sem er friðsöm og frelsisunn-
iandi, hljóti að vera á móti öll-
um ríkjasamsteypum, sem geti
ógnað hlutleysi landsins.
Benliis-lGndSn,
Frakkland og Brei-
land á ráðsiefna
Briissel í gær.
FRAKKLAND, Bretland,
Holland, Belgía og Luxemburg
hófu í dag viðræður hjer um
5 ára bandalag þessara fimm
þjóða. Áreiðanlegar heimildir
herma, að bandalag þetta munj
verða miklu víðtækara en Dun
kirque-bandalagið, sem Frakk
ar og Bretar gerðu með sjer
á sínum tíma. — Samnings-
uppkast var í dag lagt fram af
Benluxlöndunum, en næsti
íundur verður væntanlega á
morgun (föstud.) og búist er
við, að ráðstefnunni ljúki á
lauaardaginn eða sunnudaginn.
Þá var þess getið, að utanrík-
isráðherrar þessara fimm þjóða
myndu sennilega halda með
sjer fund rjett áður eða rjett
eítir Parísar-ráðstefnuna, sem
hefst 15. mars n. k. og þar sem
Evrópuþjóðirnar 16 munu ræða
Marshall-áætlunina og myndi
samningurinn milli þjóðanna
fimm undirritaður á þeim
fundi.
London í gærkvöldi.
MICHAEL fyrv. Rúmeníukonungur, sagði hjer í dag, að hann
hefði verið neyddur til þess af kommúnistum að segja af sjer.
Segir hann, að tveir ráðherrar kommúnista hafi komið í höll
sína 30. des. s.l. og haft meðferðis afsagnarskjalið. Tjáðu þeir
honum, að ef hann skrifaöi ekki undir, gætu þeir ekki borið
ábyrgð á afleiðingunum. Höllin var umkringd vopnuðum her-
mönnum.
Stjórnin andstæð vilja
þjóðarinnar.
Þá sagði hann ennfremur, að
núverandi stjórn í Rúmeníu
væri ekki í samræmi við vilja
nyti hún verndar erlends veld-
is. Kvaðst hann ekki líta svo
á, að afsagnarskjalið skuld-
bindi sig til eins nje neins og
sagðist mundu halda áfram að
Þiisiindir Tjekka reyna
að flýja land
___________ sj- ~r - -
Fjöldi stúdenta
handtekinn
lýr ssndihsrra Banda-
Imm á íssandi
RICHAED P. BUTRICK, sendi
herra, sem nýlega var skipað
u:r sendiherra Bandaríkjanna
á íslandi.
Keres vann aftur í
skékmeistarakepn-
inni
Haag í gærkvöidi.
EISTLENDINGURINN Keres
vann annan sigur sinn í heims-
meistarakeppninni í skák, sem
nú fer fram hjer. Vann hann í
dag Vássili Smyslov (Rússland)
í 27 leikjum.
Hollenski skákmeistarinn dr.
Euwe béið aftur á móti ósigur
í dag, er hann keppti við Rúss-
ann Botvinnik. Bandaríkjamað-
urinn Samúel Reshevsky sat
yfir.
Keres hefur nú 2 vinninga.
Botvinnik 1, Smyslov og Res-
hevsky y2 hvor og Euwe engan.
Kaþólskir fordæma
kommúnista
Vatikanið — Kaþólska kirkjan
hefur tilkynnt kaþólskum mönn-
um að þeir megi að eins kjósa þá
flokka, sem „virði og verndi
rjettindi kirkjunnar“.
únistor vinna að
pm nppiausn
Grikklandi
AÞENA
KUNNUGIR hjer í Aþenu halda því fram, að Markos „hershöfð-
ingi“ hafi hugsað sjer að sigrast á andstöðu grísku þjóðarinnar
með því að koma á algerri efnahags- og stjórnmálalegri upplausn
í Grikklandi. Þykja skjöl, sem stjórnarhermenn nýlega fundu í
fyrverandi aðalbækistöðvum skæruliðanna, styðja þessa skoðun.
Morð og mannrán.
Kommúnistar eru ákveðnir í
því að ná þessu takmarki, með
því meðal annars að leggja her-
og vinnuskyldu á herðar öllum
þeim, jafnt konum og körlum,
sem dveljast á yfirráðasvæði
þeirra. Þá hafa þeir og á prjón-
unum ráðagerðir um að reyna
að drepa og ræna öllum grísk-
um þjóðarleiðtogum, bæði á
sviði stjórnmála og hermála.
Hálf miljón flóttamanna.
Ofbeldí skæruliða grískra
kommúnista, hefur þegar haft
það í för með sjer, að meira en
hálf miljón manna hefur orðið
áð. flýja- -heimili sín. Er svo
komið, að enginn sá staður, er
nú til í Grikklandi. sem ekki
hefur orðið fyrir barðinu á of-
beldi kommúnísta.
—Kemsley.
meiri hluta þjóðarinnar og vinna fyrir rúmensku þjóðina.
Vikið úr stjórnarstörfum
Tokio — Stjórnin hjer hefur á-
kveðið að reka 1203 stóriðju-
hölda úr ýmsum stöðum innan
stjórnarinnar til þess að losna
við áhrif þeirra í stjórnmálum.
Tröllafoss veenfan-
lepr um másiaða-
mót apríl og maí
TRÖLLAFOSS, hið nýja
skip Eimskipafjelags íslands,
sem fjelagið keypti af Banda-
ríkjastjórn, er ekki væntan-
legt til landsins fyrr en í lok
apríl-mánaðar, í fyrsta lagi.
Eins og skýrt hefur verið frá,
þá var áhöfn Tröllafoss flutt
með flugvjelum til San Fran-
cisko, en þar tók hún við skip-
inu. Þaðan var því svo siglt
til Guaymas í Mexico og þar er
skipið nú. Lestar það hrísgrjón
sem flytja á til Cuba. Þar tek-
ur skipið sykurfarm til Banda-
ríkjanna.
í þessum flutningum er
Tröllafoss á vegum amerísks
skipafjelags, er tók skipið á
leigu.
Prag í gærkv.
Einkaskeýti til Mbl. frá
Reuter.
HUBERT Harrison, frjetta-
ritari Reuters hjer, hefir skýrt
frá því, samkvæmt áreiðan-
Igum heimildum, að þúsundir
karla og kvenna hafi reynt að
komast yfir tjekknesku landa-
mærin, inn á hernámssvæði
Bandaríkjamanna í Þýska-
landi. Er þetta fólk, sem ekki
hefir farið dult með andúð
sína á kommúnistum, og ótt-
ast nú afleiðingar skoðana
sinna. Til hernámssvæðis
Bandaríkjanna hafa þegar kom
ið 20 Tjekkar, sem börðust með
Bretum í stríðinu og 170 aðrir
flóttamenn.
Þá var einríig opinberlega
tilkynt hjer í dag, að á meðal
þeirra, sem reynt hefðu að
flýja land, væri fyrv. heilbrigð
ismálaráðherra og kona hans.
I
118 Tjekkar handteknir.
Talsmaður innanríkisráðu-
neytisins hjer skýrði í dag sendi
nefnd alþjóðasambands stúd-
enta frá því, að undanfarið
hefðu 118 Tjekkar verið hand-
teknir, flest stúdentar. Hand-
tökur þeirra hefðu verið rjett-
mætar, þar eð þeir hefðu sýnt
hinni nýju stjórn margvísleg-
an mótþróa (!) og grunsamleg
skjöl hefðu fundist í fórum
þeirra. —
Landamæravörður aukinn.
Vegna þessara atburða hefir
vörðurinn við tjekknesku
landamærin verið aukinn
mjög. Eru nú komnar þangað
fjölmennar sveitir vopnaðra
manna og auk þess þjálfaðir
blóðhundar. Um síðustu helgi
fóru margir stúdentar hjeðan
,,á skíði“, en ætiað er, að þeir
hafi verið að reyna að komast
yfir landamærin eða að hjálpa
öðrum til þess.
Tveir sendiherrar
segja af sjer.
Tveir tiekkneskir sendiherr
ar í viðbót hafa sagt af sjer,
annar í Haag en hinn í Ankara.
Segiast þeir ekki geta viður-
kentu núverandj stjórn í
Tjekkóslóvakíu. Þá hafa margir
dómarar verið reknir úr em-
bættum og fræðslumálaráð-
herra hefir skipað svo fyrir, að
skólgþörn skuli daglega minnt
á hinn nýja vináttusáttmála
Rússa og Tjekka og mynd af
Stalin skuli vex’a í sjerhverri
skólastofu.
Benes veikur.
Þá hefir verið opinberlega
skýrt frá því, að Benes sje veik
Framh. á bls. 8.