Morgunblaðið - 28.08.1948, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 28.08.1948, Blaðsíða 1
E5. árgangur 202. tbl. — Laugardagur 28. ágúst 1948. Prentsmiðja MorgunblaðsínS Jerúsalem brennur j i Arabar og Gyðingar berjast enn heiftarlega. Hjer er nivnd, sjeð yfir gamla borgarhluíann í Jerúsalein og sjást mildir eldar í hverf- inu, sem komu upp eftir stórskotahríð á borgina. iftundi fundurinn í Moskvu — en ekki sú síðusfi Moskva í gærkvöldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Don Dallas, ’ frjettaritara Reuters. SENDIMENN Vesturveldanna hjer sátu enn einn fund með Molotov' utanríkisráðherra Rússlands, 1 kvöld. Stóð fundurinn yfir í tvær klst. og 55 mín. Þegar sendimennirnir hjeldu aftur til breska sendiráðsins, að fundinum loknum, sagði Frank Roberts, fulltrúi Breta, að engin tilkynning myndi gefin út um fundinn í kvöld, en margir hjer búast við því að hún verði gefin út á morgun. — Á þessum Kreml-fundi í kvöld var Andrei Vishinsky viðstaddur, í fyrsta sinn síðan viðræðúrnar í Moskvu hófust 31. júlí s.l. — Hjer er það ætlan manna, að þetta sje ekki síðasti íundurinn með Molotov, en sendimenn Vesturveldanna hafa nú alls setið á sex fundum með honum og tveimur, með Stalin og » Molotov. Bjártsýni í AVashington ♦ 1 frjettum frá Washington seg ir, að stjórnmálamenn þar sjeu bjartsýnni en nokkru sinni áð- ur, síðan Moskvu-viðræðurnar hófust um árangur fundarins, sem haldinn var í kvöld. Þeir segðu þó, að almenningur skyldi ekki gera sjép neinar tálvonir. Umræðurnar snerust aðallega um þrennt: gjaldmiðilinn í Ber- lín og stjórn hans, afnám flutn- ingabanns Rússa á Berlín og möguleikanum á fjórveldavið- ræðum um Þýskaland. Ekki var búist við, að reynt yrði að ná samkomulagi nema um fyísta atriðið á fundinum í kvöld. Ncgrakonungur hcimsækir London. London —- Einn voldugasti negra- konungur í Nigeríu, nýlendu Breta í Afríku, kom nýlega í heimsókn til Lcndon. Hann notaði tækifærið til að fara nokkra hringi með neðan- jarðarbrautinni. Hershöfðingjar fyrlr sfríðsglæparjetti London í gærkvöldi. F.TÓRIR háttsettir þýskir hers- höfðingjar frá því i styrjöld- inni verða á næstunni dregnir fyrir stríðsglæparjett. Hershöfð ingjarnir eru þessir: Brauchit- sch, Rundstedt, Manstein og Strauss. Líklega verður rjettur- inn haldinn í Hamborg og verðúr fyrirkomulag hans eins og við alla fyrri stíðsglæpadóm- stóla á hernámssvæði Breta. — Hinir ákærðu fá að velja sjer hvern sem þeir vilja fyrir verj- anda, en ef þeir neita að gera það verður þeim skipaður verj- andi. Einnig fá þeir nægan tíma til að undirbúa málsvörn sína. — Reuter. Verður borgurstjórn Berlínur uð hrekjusi uf hernúmssvæði Rússu? vann Kaupmannahöfn í gær. Einkaskeyti til Mbl. BÁLDUR MÖLLER sigraði Finnann Niemelá í niundu um- ferðinni á skákmótinu í öre- bró. Var skák BaTdurs mjög vel leikin og vakti mikla at- hygli. Svíinn Karlin er nú efstur með 6'/2 vinning, en Baldur og Niemelá koma næstir með 6 vinninga hvor. — Páll. Franco ræðir við Don Juan San Sebastian í gærkvöldi. SÍÐASLIÐINN miðvikudag höfðu þeir Franco og Don Ju- an, er kröfur hefur gert til konungsdóms á Spáni, fund með sjer um borð í skemmti- snekkju Franco. Enda þótt það sje álit stjórnmálamanna á Spáni, að fundur þessi hafi verið mjög mikilvægur, þá segja þeir, að ekki komi til greina, að Franco afsali sjer vóldum. Þeir segja, að Franco hafi aldrei verið eins ,,fastur í sessi“ og nú og fundurinn hafi verið haldinn samkvæmt beiðni Don Juan. Það er álit margra, að á fundi þessum hafi Fránco sam þykkt, að Don Juan Carlos, sem er elsta barn Don Juan og 10 ára að aldri, skyldi útnefndur krónprins, en Franco yrði rík- isstjóri þar til drengurinn væri nógu gamall til þess að taka við konungdómi, þ.e. 30 Reuter. Kommúnistar gera enn aðsúg að ráð- húsi borgarinnar Rússar láta óeirðirnar afskiftalausar Berlín í gærkvöldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. KOMMÚNISTAR gerðu enn aðsúg að ráðhúsi Berlínarborgar í dag, í annað sinn á 24 klst. og komu í veg fyrir að borgarstjórnin gæti haldið fund sinn, en sá fundur var kallaður saman vegna þess að ekki tókst að ljúka fundi borgarstjórnarinnar í gær sök- um ofsókna Berlínarkommúnista. — Forseti borgarstjórnaririnar, Otto Suhr, sendi í dag Kotikov, hernámsstjóra Rússa í Berlín brjef, þar sem hann krafðist þess að ráðhús borgarinnar yrði verndað fyrir ofsóknum kommúnista, en ráðhúsið er á hernáms- svæði Rússa. — í brjefinu sagði, að ef Kotikov svaraði ekki, þá myndi borgarstjórnin neydd til þess að flýja af hernámssvæði Rússa. — Talsmaður Rússa i Berlín sagði í kvöld, að þessari kröfu borgarstjórans myndi hafnað — og bætti því við, að brjef hans hefði verið mjög ,,ósvífið“. ^Óeirðirnar hefjast. Óeirðirnar í Berlín í dag hóf- ust eftir að fundur borgar- stjórnarinnar hafði verið sett- ur. Um 2000 kommúnistar söfn- uðust saman fyrir framan ráð- húsið, með háreysti mikil og veifuðu rauðum fánum. i. Ræðuhöld. 3—400 manns tókst að þrengja sjer 'inn ,í sjájfan fundarsai borgarstjórnarinnar. Þar hófu ara. Slöðugir bardagar í Jerúsalem I.ondon í gærkvöldi. EFTIRLITSMENN Samein- uðu þjóðanna í Palestínu til- kynntu í dag, að vopnahljeið hafi verið þverbrotið í Jerú- salem. Þeíir hlafi fyrirskipað Gyðingum að hörfa með her- sveitir sínar frá vissum svæð- um á Norður (írak)«vígstöðvun um. Þá sagði einnig í skýrslu eftirlitsmannanna að hersveit- ir frá Irak og Transjordaníu væru að treysta aðstöðu sína umhverfis Jerúsalem, en s.l. mánudag var ákveðið að sam- eina hersveitir þessara tveggja ríkja. — Sagði ennfrémur, að óslitin skothríð hefði verið í Jerúsalem alla s.l. nótt og meira en 40 Gyðingar hefðu látist eða særst í bardögum. Rætt um lillögur Reynauds París í gær. FRANSKA stjórnin hjelt í dag áfram að ræða tillögur Rey- nauds, fjánmálaráðherra, í efnahagsmálum þjóðarinnar. Virðast tillögurnar sæta mik- illi gagnrýni, einkum frá sós- íalistum og Reynaud má hafa sig allan við til að verja svo forsprakkar kommúnista þær. Er víst, að liann hefur neyðst til að fella sumt niður úr frumvarpinu og breyta öðru og nokkrar likur eru á að til stjórnarkreppu geti dregið á nýjan leik. — Reuter. Sagði af sjer New York í gærkvöldi. UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ ba.ndaríska tilkynnti í kvöld, að Ivan Nagy, aðalritari ungversku ræðismannsskrifstofunnar hjer, hefði gert ráðuneytinu aðvart um að hann hefði látið af störf- um við ræðismannsskrifstofuna 16 ágúst s.l. — Búist er við, að hann muni sækja um leyfi til þess að dvelja áfram í Banda- ríkjunum sem pólitískur flótta- maður. — Þá var og tilkynnt í dag, að Romus Lula, verslunar- ráðunautur' rúmensku ræðis- mannskrifstofunnar, væri farinn til Buenos Aires. — Talsmaður skrifstofunnar sagði, að Lula hefði verið rekinn vegna hyskni. — Reuter. ræðuhöld og skoruðu á fólkið að láta nú til skarar skríða og steypa borgarstjórninni af stóli. Eftir nokkra stund urðu menn þreyttir á hávaðanum og hópurinn tvístraðist. Óvíst um næsta fund. Forseti borgarstjórnarinnar ljet svo ummælt, að óvíst væri hvenær næsti fundur yrði hald inn. En það er ljóst, sagði hann, að þýska lögreglan gerði ekki minnstu tilraun til þess að koma í veg fyrir óeirðir þessar og þær áttu sjer stað með vit- und og vilja Rússa, sem hæg- lega hefði getað hindrað þær. — Þá sagði forsetinn einnig, að þeir, sem þátt hefðu tekið í óeirðum þessum, hefði ekki all ir gert það að frjálsum vilja — heldur samkvæmt fyrirskip- un frá Rússum. Vindlasending til Bretlands. London — Á næstunni er von á allt að því 5000 smálestum af vindl- um frá Jamaica til Bretlands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.