Morgunblaðið - 15.09.1950, Blaðsíða 11
Föstudagur 15. sept. 1950.
\lORGV N BLAÐIÐ
11
Kristinn Guðlaugsson \ujii M sjonurhóli sveitamanns
1 Minningarorð
X DAG er til moldar borinn,
vestur á Núpi í Dýrafirði, einn
ágætasti bóndi og hjeraðshöfð-
ingi Vestfjarða, Kristinn Guð-
laugsson fyrverandi bóndi þar
á staðnum. Með honum er ekki
aðems genginn mikilhæfur leið
togi í vestfirskum búnaðarmál-
um, helduf þjóðkunnur sæmdar
maður og ljúfmenni.
Kristinn Guðlaugsson ljetst
hjer í Reykjavík þann 4 þ.m.
32 ára að aldri. Hann var fædd
ur að Þremi í Garðsárdal í Eyja
firði 13. nóv. árið 1868. — Voru
foreldrar hans hjónin Guðlaug
ur Jóhannesson og Guðný Jón-
asdóttir. — Missti hann þeirra
ínnan við tvítugsaldur.
Tuttugu og tveggja ára gam
all fór hann í bændaskólann á
Hólum og lauk námi þar á
tveimur árum. Það var árið
1892. Rjeðst hann síðan starfs-
maður búnaðarfjelagsins i
Mýrahreppi í Dýrafirði. — Eftir
það rofna í raun og veru aldrei
tengsl hans við það byggðar-
lag. Hann giftist árið 1894 Ra-
kel Jónasdóttir frá Ásgeirs-
brekku í Skagafirði. — Reistu
þau fyrst bú að Meira-Garði, en
árið 1895 kaupir Kristinn Núp
í Dýrafirði. Þar hóf hann bú-
skap ári síðar og dvaldi þar
meðan honum entist líf og
heílsa.
Konu sína misti hann árið
1948. Áttu þau níu börn og eru
átta þeirra á lífi, dæturnar
Hólmfvíður, Unnur, Ólöf og
Guðný og synirnir Sigtryggur,
Haukur, Haraldur og Valdi-
mar. Tvö fósturbörn ólu þau
hjón upp. Þeir bræður Valdi-
mar og Haukur hafa fyrir
nokkru tekið við búi föður
síns á Núpi.
—X—
Kristinn á Núpi tók margvís-
legan þátt í hverskonar fjelags
starfsemi í hjeraði sínu. Yrði
of langt upp að telja öll þau
störf er honum voru falin. —
Nefna má þetta: Hann var for-
maður Búnaðarfjelags Mýra-
hrepps í yfir 50 ár, varaformað
ur Búnaðarsambands Vest-
fjarðafjarða frá stofnun þess,
en formaður þess eftir að sjera
Sigurður í Vigur ljet af for-
mennsku þess og fram til árs-
íns 1947, formaður Kaupfjelags
Dýrfirðinga í nær þrjá ára-
tugi, oddviti Mýrahrepps í 35
ár, formaður yfirkjörstjórnar
Vestur-ísafjarðarsýslu í 33 ár,
brautryðjandi í bindindismál-
um og skólamálum.
Ásamt sjera Sigtryggi bróð-
ur sínum átti hann ríkastan
þátt í stofnun hjeraðsskólans á
Núpi, sém er einn fyrsti hjer-
aðsskólinn, sem stofnaður var
hjer á landi. Voru þeir bræð-
ur jafnan sem einn maður. Svo
samhentir voru þeir.
Fyrir störf sín í þágu búnað-
arsamtakanna var Kristinn kjör
ínn heiðursfjelagi Búnaðarfje-
lags Mýrahrepps, Búnaðarsam-
bands Vestfjarða og Búnaðar-
fjelags íslands, Ennfremur var
hann sæmdur riddarakrossi
hinnar íslensku Fálkaorðu, ár-
ið 1933.
Enda þótt Kristinn Guðlaugs
son tæki ungur og efnalítill við
höfuðbóli, þar sem oft áður
höfðu búið ríkir menn, dró
hvorki úr risnu þar á staðnum
nje myndarbrag. Þvert á móti.
Þau hjón voru í senn gestrisin
ög samtaka um hverskonar
framkvæmdir og umbætur í bú-
skap sínum. Var jörðin bætt
ir.jög að húsum og landkostum
í hinni löngu búskapartíð
þeirra. Þótti það jafnan til
fyrirmyndar er Kristinn á Núpi
hafðist að þó að stundum væri
hann nokkuð á undan samtíð
sinni á ýmsum sviðum búnaðar.
—X—
Kristinn á Núpi var hár mað
ur vexti, grannur og vel limað-
ur. Enni hans var hátt og yfir
bragð milt og gáfulegt. — Jeg
heyrði hann aðeins einu sinni
halda ræðu. Var hann þá aldr-
aður orðinn og heyrnarleysi
tekið að há honum. En auð-
heyrt var engu að síður, að
hann hafði óvenjulegan tal-
anda. Er það og á allra máli,
er hann muna yngri, að hann
hafi verið einn hinn flugmælsk
asti og málsnjallasti maður er
í ræðustól hafi stigið hjer á
landi. Málflutningur hans var
eins og maðurinn sjálfur, mild-
ur og drengilegur.
Kristinn á Núpi mátti ekki
vamm sitt vita. Hann vann
störf sín af dæmafárri óeigin-
girni. Hann trúði alltaf á fram-
tíðina og gekk bjartsýnn og
gunnreifur að hverju verki. —
Þessvegna sóttust verk hans
vel og greiðlega. Landbúnaður
og sveitabúskapur var hjart-
fólgnasta hugðarefni hans. —
Ræktun landsins var honum
háleit hugsjón. Hana sá hann
rætast bæði á sínu eigin býli og
í umhverfi sínu. En hann vildi
jafnframt vinna að ræktun þess
hugarfars, sem skapar hollustu
við jörðina, tengir æskuna
traustum tengslum við gróður
moldina og hvetur til skapandi
starfs. Á þeim grundvelli
byggði hann fjölþætt afskipti
af fræðslumálum hjeraðs síns.
Þessi friðsami og góðgjarni
hjeraðshöfðingi er nú horfinn.
En um minningu hans leikur
hugþekkur blær. Og vist mun
honum hvíldin góð við barm
Dýrafjarðar.
S. Bj.
- í frásögur færandi
Framh. af bls. 5.
SÆNSK TIMBURHÚS
tilbúin til uppsetningar, er
nú hægt að útvega. Stærð
húsanna er frá 1—5 her-
bergi og eldhús. Verð frá
1500 til 14,000 krónur
„loko“ Reykjavík. Upp-
drættir og nánari upplýs-
ingar hjá O. Johnson &
Kaaber.
Þessi auglýsing birtist í
Morgunblaðinu um það bil ári
eftir lok fyrri heimsstyrjald-
ar. —
G. J. Á.
Málflutningur
\ Fasteignasala SamningagerS ;
\ Gufiiauizur Einarsson hdl. \
\ Laugaveg 24. Simar 7711, 6573 \
IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIItllllllllllllllll
Á ekki að segja frá
staðreyndum?
Á SÍNUM tíma sögðu blöðin frá
því, hlutlaust' og blátt áfram,
hvernig til tókst um björgun
mannanna af rússneska skip-
inu, sem strandaði í Þorgeirs-
firði. Þess var getið, að skip-
brotsmenn vildu hvorki njóta
aðstoðar íslendinganna, sem á
vettvang komu, nje nota skýl-
ið, sem er á þessum slóðum og
ætlað er þeim mönnum, er
lenda í sjávarháska. Skyldi
nokkrum heilvita manni með
óbrjálaða dómgreind hafa kom-
ið til hugar að hallmæla blöð-
unum fyrir þessa frásögn? Nei,
! yfirleitt þykir okkur það gott,
og eins og það á að vera, að
blöðin sjeu hlutlaus og halli
ekki rjettu máli í frjettaflutn-
ingi — skýri frá staðreyndun-
um eins og þær eru. — En það
: er samt því miður einn hópur
manna í landinu — og hann
: ekki fámennur, — sem aldrei
[ má vita til þess að Rússland sje
' nefnt eða neitt það sem rúss-
' neskt er, án þess að þeir falli
flatir niður á fótskör Stalins.
Það eru Moskvamennirnir —
I
kommúnistarnir.
I
Djúpt sokknir.
I Svo svínbeygðir eru þessir
menn undir ánauðarokið i
Moskvu að það hvarflar ekki að
þeim að það þurfi að halda sjer
. viðstaðreyndir þegar Rússinn
,og Sovjetið eða leppríkin eru
annars vegar. Meira að segja
.telur Þjóðviljinn (20. ág.) að
|Mbl. sje „djúpt sokkið“, af því
að það sagði frá strandinu í
{ Þorgeirsfirði eins og rjett var
(eftir bestu heimildum. Þjóðvilj-
inn hneykslast á því, að það er
talið sjerkennilegt framferði
þegar skipsbrotsmenn hvorki
^vildu þiggja flutning út í móð-
urskipið nje leita skjóls í skýl-
(inu, sem þeim var bent á. Þetta
(sýnir, segir Þjóðv., hve Mbl. er
^djúpt sokkið í hinn tryllta á-
róður gegn Rússum!! Skyldi
nokkurs staðar, vestan járn-
. tjalds vera um að ræða einlæg-
^ ari þjónkun við Stalin og þegna
jhans?
. Friðarviljinn og frelsið.
Aldrei þreytast kommar á að
þjóna húsbændum sínum með
því að fullvissa fólkið um frið-
•arvilja Sovjetríkjanna og dá-
I sama frelsið í paradís komm-
júnismans. En í hverju kemur
j þessi friðarvilji fram? Hann
birtist m. a. í því að í Evrópu
hafa Rússar 175 dívisjónir her-
manna gráar fyrir járnum,
studdar 40 þús. skriðdrekum,
19 þús. flugvjelum og auk þess
! fleiri og fullkomnari kafbáta en
j nokkur veit um. í þessu birtist
friðarviljinn. Og frelsið má
nokkuð marka af því, að það
[ hefur verið upplýst samkv.
i þeim öruggustu heimildum,
!sem hægt er að afla sjer aust-
an járntjalds að í Sovjetríkj-
unum sjeu nú hvorki fleiri nje
I færri en 10.000.000 — segi og
! skrifa tíu milljónir — manna,
: sem sviptir hafa verið frelsi
I sínu og settir í nauðungarvinnu.
■ Hvað myndu kommar segja um
frelsi og friðarvilja borgaralegs
lýðræðisríkis, ef slíkt birtist í
framangreindum tölum?
I *
|Árbók landbúnaðarins.
,| Nú alveg nýlega er komin út
bók, sem ber nafnið „Árbók
landbúnaðarins 1950“. Er þetta
ekkelrt smáræðis rit, 260 bls. í
Skírnisbroti. Við að fletta bók-
inni sjer maður að all-mikið
af innihaldinu er skýrslur og
skrár, enda mikið af því eftir
skýrslukónginn Arnór Sigur-
jónsson frá Laugum, sem um
mörg ár hefur verið traust-
hjálparhella margra við alls-
konar skýrslusöfnun allt frá
því að launamálanefndin
(gamla) og Rauðka (skipulags-
nefnd atvinnumála) voru við
lýði sællar minningar. Mikið af
þessum skrám og skýrslum get-
ur verið gagnlegur fróðleikur,
en satt að segja virðist óþarfi
að vera að gefa þær út í dýrri
bók á þessum tímum pappírs-
skorts og skömmtunar. Það
virtist vera nóg að þær væru
til á sínum stað, hjá ýmsum
stofnunum og fyrirtækjum,
(Búnaðarfjelagi, Framleiðslu-
ráði o. s. frv.) þar sem menn
ættu aðgang að þeim ef vildu,
En almenningur virðist ekki
vera laginn á að notfæra sjer
þennan fróðleik, svo að hann
sýnist lítið erindi á prent eiga,
og hæpið er að kosta til slikrar
útgáfu álitlegum upphæðum af
almannafje eins og þessi árbók
hlýtur að hafa kostað.
Árbók — handbók.
Eins og nafnið „árbók“ bend-
ir til má búast við því að bók
þessi sje sú fyrsta en ekki síð-
asta sinnar tegundar, enda er í
formála vitnað í lög um frám-
leiðsluráð, þar sem gert er ráð
fyrir að það gefi út árlega
skýrslu um framleiðslu, vinnslu
og sölu á búvörum og yfirlit
um markaðshorfur og afkomu
landbúnaðarins á hverjum tíma.
Hjer virðist þvi eiga að verða
-framhald á og er því hægast
úr að bæta og prófa sig áfram
og breyta til frá ári til árs. .—*
Fljótt á litið sýnist ekki vera
úr vegi að sámeina í eitt rit
þessa fyrirhuguðu ársskýrslu
[landbúnaðarins og handbók
fyrir bændur, sem landbúnaðar
-ráðherra mun hafa hug á að
láta gefa út. Þörfin á slíkri
handbók er ærið brýn orðin,
því að nú mun liðinn aldar-
fjórðUfigUr síðan þeir fjelagai’
Pálmi, Steingrímur og Þórir
Hvanneyri gáfu út „Handbok
fyrir bæn.dur“, sem mörgurn
hefur að gagni komið. En þótt
„margt hafi breyst" síðan sú
bók kom út, hafa breytingarn-
ar þó ekki verið eins örar á
neinu sviði eins og hjá land-
búnaðinum síðustu 10—20 ,ár-
^in. Þess vegna er margt orðið
úrelt í þessari gagnlegu, 25 a- n
gömlu bók eins og eðlilegt er.
En þáð er nú orðið ennþá fleira,
sem vantar í bók eins og þessa,
svo mikið, að tæplega er heppi-
legt að hrúga því öllu saman i
eitt rú. Þess vegna væri ein-
mitt hentugt að koma slíkum
fróðleik á framfæri í árbók-
arformi ásamt yfirliti um hag
og horfur landbúnaðarins á
[hverjum tíma. En —' í öllum
bænum — þetta þarf allt að
ívera ljfandi og læsilegur froðy
leikur, en ekki steindauðar og
stirðnaðar töflur og skrár. Þaú
hlýtur að vera til nóg af plássi
á öllum skrifstofunum til að
hýsa svoleiðis fróðleik handa
þeim sem vilja nota sjer hann
Ruth Hermanns |
fiðluleikari ;
byrjar kennslu í fiðluleik 1. okt. —
Uppl. i síma 81868, Laugarnesveg 42.
VÖRULAGER
Tilboð óskast í vörulager. — Byggingarvörur o. fl.
Allar upplýsingar gefúr
FINNUR ÁRNASON,
Skólabraut 25. Akranesi. Sími 135.
...........................
■
Einbýlishús
Húsið Hverfisgata 3 í Hafnarfirði er til sölu. •-
STEFÁN JÓNSSON. *
; :
i 4ra herbergja íbúð
: :
j óskast til kaups, helst í Vesturbænum eða á hitaveitu- :
■ svæðinu. — Uppl. í síma 1243.
Grjófmuiningsvjelar — Malarsigfi
Hrislisigli — Bigunarstöð
m\ptm
HEK. VERKSTED
OSLO — NORGE
1